DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11858.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dream Weaver

Prjónuð oversized peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk, prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri /skáhallandi öxl, röndum, háu hálsmáli og klauf í hliðum.

DROPS 243-34
DROPS Design: Mynstur ab-145
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK från Garnstudio (tillhör garngrupp C)
50-50-50-50-50-75 g litur 15, ljós sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 31, skærbleikur
25-25-25-25-25-25 g litur 12, dauf bleikur
25-25-25-25-25-25 g litur 19, karrý
25-25-25-25-25-25 g litur 24, ryð
25-25-25-25-25-25 g litur 25, stálblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þráð í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11858.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

RENDUR – STUTT ÚTSKÝRING:
Allt stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Einungis litum í DROPS Brushed Alpaca Silk er skipt þegar rendur eru prjónaðar eins og útskýrt er að neðan. Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni.

RENDUR BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI:
6 cm með litnum dovt rosa.
4 cm með litnum ryð.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
2 cm með litnum skærbleikur.
5 cm með litnum karrý.
7-7-8-8-9-9 cm með litnum ljós sægrænn.
4 cm með litnum stálblár.
3-3-3-4-4-4 cm með litnum ljós sægrænn.
2 cm með litnum karrý.
4-5-5-5-5-6 cm, eða að óskuðu máli með litnum dauf bleikur.

RENDUR ERMI:
6 cm með litnum dauf bleikur.
4 cm með litnum ryð.
2 cm með litnum skærbleikur.
5 cm með litnum karrý.
9-8-8-8-7-7 cm, eða að óskuðu máli með litnum ljós sægrænn.

LEIÐBEININGAR (endar festir):
Þegar skipta á yfir í nýjan lit í næstu rönd, endið þegar 8 lykkjur eru eftir í umferð á undan næstu rönd. Klipptu þráðinn sem þú prjónar með í DROPS Brushed Alpaca Silk ca 10-12 cm frá stykki, hnýtið þennan þráð saman með DROPS Brushed Alpaca Silk í næsta lit (ca 7-8 cm inn á þráðinn sem klippt var af þannig að þú sért með 2 þráðarenda ca 7-8 cm), skiptið upp endunum og prjónið síðustu lykkjur með 2 þráðum í litnum sem þú hefur nýlega prjónað með, eftir hnútinn prjónar þú næstu lykkjur með 2 þráðum í næstu litarönd (þráðarendarnir prjónast núna inn).
Þetta er gert í hvert skipti sem skipt er um lit, en passið uppá að skipt sé um lit til skiptis sitt hvoru megin á stykki, þannig að endaskiptin verði ekki alltaf í sömu hlið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund í röndum.
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptis fyrir klauf í hliðum. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrist prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 22-24-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjurnar í hverri umferð.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun umferðar (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 19-21-23-24-26-28 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu eru 60-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón án útaukninga.
Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið, héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 4-5-5-6-7-8 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki (stykkið mælist ca 16-18-19-21-23-26 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan).
Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið RENDUR BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI (lesið einnig stuttar leiðbeiningar um rendur í útskýringu að ofan).
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka á bakstykki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, mælist stykkið ca 14-15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki – mælt yst meðfram handvegi. Klippið þræðina, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Notið 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir) og prjónið upp 19-21-23-24-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki).
Prjónið sléttprjón fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 23-25-27-28-30-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónaðar til baka frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

Notið 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir) og prjónið upp 19-21-23-24-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan síðustu 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 23-25-27-28-30-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónaðar til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 23-25-27-28-30-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan sléttprjón yfir 23-25-27-28-30-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 60-66-70-74-78-82 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-17-18-19-20 cm, mælt yst meðfram handvegi. Munið eftir LEIÐBEININGAR og prjónið RENDUR FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI.
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka á framstykki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, mælist stykkið ca 24-25-27-28-29-30 cm frá þar sem framstykkið og bakstykkið var sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Skiptið yfir í 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur (2 þræðir). Prjónið sléttprjón yfir 60-66-70-74-78-82 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-4-6-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 60-66-70-74-78-82 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-2-2-4-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 124-136-144-156-168-180 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 2-2-2-4-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Það á að nota þá síðar þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið fram að 1. merkiþræði – umferðin byrjar núna hér.
Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan (munið eftir LEIÐBEININGAR og stuttar upplýsingar um rendur).
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm, mælt frá þar sem stykkið var sett saman fyrir fram- og bakstykki og eftir eru ca 10 cm að loknu máli.
Nú skiptist stykkið við merkiþræðina og framstykkið / bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 62-68-72-78-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og skipti yfir í 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 78-86-90-98-106-114 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona í 8 cm.
Skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ryð. Haldið áfram með stroff í 2 cm til viðbótar (alls 10 cm stroff). Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur á hringprjóna 5,5 og prjónið á sama hátt og á bakstykki.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 7 og 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir). Byrjið frá réttu við botninn á handvegi í framstykki og prjónið upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur upp að öxl, prjónið síðan upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur upp að öxl, prjónið síðan upp 17-18-18-19-21-22 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á bakstykki = 46-48-50-52-56-58 lykkjur meðfram handvegi.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er núna mæld frá þessu prjónamerki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-1-2-3-3 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Það á að prjóna rendur og fækka lykkjum mitt undir ermi – lestu afganginn af ermi áður en þú prjónar áfram.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 5-5-5-5-6-6 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-2½-2½ cm millibili alls 6-7-7-7-9-9 sinnum = 34-34-36-38-38-40 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 10-10-10-9-9-9 cm frá prjónamerki með litnum ljós sægrænn, prjónið RENDUR ERMI.
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, mælist ermin ca 35-34-34-32-30-30 cm frá prjónamerki efst á ermi og eftir eru ca 10 cm að loka máli.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-48-52 lykkjur.
Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ryð. Haldið áfram með stroff í 2 cm til viðbótar (alls 10 cm stroff).
Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-45-45-44-43-43 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, nema prjónið lykkjur upp á gagnstæða vegu, þ.e.a.s. byrjið við botninn á handvegi á bakstykki, prjónið upp 17-18-18-19-21-22 lykkjur upp að öxl og prjónið upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 80 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 18-18-18-21-21-21 cm. Fellið af aðeins laust.
Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum í hvora hlið við hverja axlalínu.

FRÁGANGUR:
Saumið botninn á handvegi við fram- og bakstykki – sjá teikningu.

Mynstur

symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) prjónið upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), prjónið upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Abby wrote:

Does this mean you’re releasing more colors of alpaca boucle?

06.08.2023 - 21:05

country flag Linda wrote:

Navn: Free

06.08.2023 - 20:30

country flag Danielle Llorens wrote:

Rainbow

06.08.2023 - 16:17

country flag Blumstein wrote:

Pourrais je avoir des explications pour ce modèle svp merci

06.08.2023 - 10:48

country flag Andrea wrote:

Winter sun

06.08.2023 - 10:18

country flag Nadia Trappeniers wrote:

Frosty

04.08.2023 - 08:52

country flag Ould Oufella MC wrote:

Pull avec plusieurs couleurs coordonnées superbe

04.08.2023 - 07:13

country flag Monica Flantua wrote:

Winter spring

04.08.2023 - 07:03

country flag Libellule01 wrote:

Berlingot

03.08.2023 - 19:37

country flag Wilma wrote:

Milkshake feast

03.08.2023 - 19:35