DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blueberry Cream Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-57
DROPS Design: Mynstur ml-086
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-300-300-350-350-400 g litur 21, ljós blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 68-72-76-80-80-84 lykkjur með DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 6 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 6 og haldið eftir lykkjunum á stutta hringprjóninum 4,5 (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn til að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

Skiptið yfir á hringprjón 6.
Í næstu umferð eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = ca mitt að aftan.

Prjónið næstu umferð ca frá miðju að aftan þannig: 10-10-12-12-12-14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17-19-21-23-23-25 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-9-9-11-11-11 lykkjur sléttprjón = 76-80-84-88-88-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan.

Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan ef þú hugsar að þú sért í flíkinni), prjónið sléttprjón frá réttu þar til þú hefur prjónað 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (= hægri hlið á hálsmáli að framan) – JAFNFRAMT í þessari umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til þú hefur prjónað 7 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki mitt að aftan.

BERUSTYKKI:
Byrjið umferð við prjónamerki mitt að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni.
JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 8-10-12-14-20-22 sinnum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum og strax eftir kanti í hálsmáli).
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið út svona 8-8-8-8-4-4 sinnum á fram- og bakstykki (4-4-4-4-2-2 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum á fram- og bakstykki og 12-14-16-18-22-24 sinnum á ermum.
Eftir síðustu útaukningu eru 180-200-220-240-264-284 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 20-23-25-28-30-33 cm frá miðju að framan, prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukninga að réttu máli.

Í síðustu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 29-31-35-37-41-45 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-73-81-87 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 26-30-32-36-40-42 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 134-146-158-174-190-206 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-22-22-21-21-20 cm frá skiptingu.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 35-39-43-47-51-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-14-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-51-55-61-65-71 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 12-12-12-14-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Þegar ermin mælist 4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 15-10-10 cm millibili alls 2-3-3 sinna (fækkið ekki lykkjum í stærð S, M og L).

ALLAR STÆRÐIR:
= 47-51-55-57-59-65 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-36-35-32-31-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-17-19-19-19-23 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 45-42-41-38-37-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blueberry Cream Sweater

Astrid, Norway

Blueberry Cream Sweater

@lelisknit, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-57

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Maria wrote:

Halsringing: når man strikker forkortede pinner, skal det økes til raglan på hver pinne eller bare annenhver (altså hver gang man strikker rett)? I instruksjonsvideoen øker de på hver omgang når man strikker forkortede pinner. Hvis det er tilfelle i denne oppskriften også, så burde det spesifiseres. Det er mye som er uklart her og som kunne vært spesifisert mer.

16.03.2024 - 16:05

DROPS Design answered:

Hei Maria, I denne oppskriften øker du til raglan på hver pinne fra retten mens du strikke forkortede pinner i halsen. God fornøyelse!

18.03.2024 - 06:56

country flag Assa wrote:

Bonjour, je cherche la taille de poitevine poir ce patron mais je ne l'a voit pas affiché. Merci d'avance

05.02.2024 - 17:37

DROPS Design answered:

Bonjour Assa, vous trouverez toutes les mesures finales de ce modèle dans le schéma du bas de page, ces mesures sont prises ouvrage posé à plat, d'un côté à l'autre. Pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire dont vous aimez la forme et comparez les mesures. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

06.02.2024 - 08:15

country flag Hannah wrote:

Ich bin auf Urlaub und hab dieses Set dabei, allerdings wird die Maschenprobe immer zu klein wenn ich mit der 6er Nadel stricke obwohl ich schon extrem locker stricke. Ist das möglich? Kann ich die Maschen irgendwie umrechnen? Ich würde den Pulli gerne im Urlaub stricken aber hab jetzt nur die Nadeln aus der Anleitung mit. 🙈

31.01.2024 - 10:53

DROPS Design answered:

Liebe Hannah, stricken Sie DROPS Melody? Es ist eine ziemlich übliche Maschenprobe für Melody, siehe alle Modellen in Melody hier; am besten versuchen Sie die Maschenprobe zu spannen oder mit grösseren Nadeln. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2024 - 07:33

country flag Brenda Hooper wrote:

I have completed the Double Neck and cut the strand according to the pattern. For the NECK LINE, the pattern doesn’t say which needles to use. I was only sent the 2 sets of circular needles in the kit I purchased and the printed pattern details only mention the 2 sets of circular needles. If I need double pointed needles for the NECK-LINE then I have to purchase them and I’m disappointed that the kit was incomplete and the printed details are not specific. Please reply in English.

25.01.2024 - 11:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hooper, you work with a circular needle size 6 mm just the same as when you inserted the markers before, and work now neckline back and forth on the circular needle just as shown in this video. You don't need double pointed needles if you have circular needles in 80 cm length, you can work magic loop. Happy knitting!

26.01.2024 - 07:05

country flag Nina wrote:

Bærestykket: Fortsett med glattstrikk og økninger til raglan, men annenhver gang det økes, økes det nå kun på bolen (4 masker økt). Dvs det økes på bolen på hver 2.omgang, og på ermene på hver 4.omgang. Øk på denne måten 8-8-8-8-4-4 ganger på bolen (4-4-4-4-2-2 ganger på ermene). Det er nå økt totalt 16-18-20-22-24-26 ganger på bolen og 12-14-16-18-22-24 ganger på ermene. Hvilke merker er det man skal øke på? Er det begge sidene av merkene eller ene siden?

24.01.2024 - 11:37

DROPS Design answered:

Hei Nina. Når du skal øke ved hvert merke, økes det på hver side = 8 økte masker på omgangen. De gangene det kun skal økes på bolen, økes det kun på bolens side = 4 økte masker. Altså da økes det kun før 1. og 3. merke og etter 2. og 4. merke. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 08:13

country flag Gardelle wrote:

Bonjour, Est ce que le marqueur doit être dans la maille ou à côté ? Est ce que le jeté compte comme une maille ? Au niveau de l'encolure. Merci à vous,

16.01.2024 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gardelle, les marqueurs des raglans doivent être bien placés dans une maille (pas entre les mailles), les jetés faites de part et d'autre des mailles avec un marqueur sont les augmentations du raglan. Bon tricot!

17.01.2024 - 08:34

country flag Ute Ender wrote:

Hallo, wie stricke ich die Passe? Wie sind die Zunahmen zu verstehen? Was ist der Rumpf (vorne und hinten) , was der Arm? Es sind doch nur 4 Raglangmakierer da! Wo nehme ich jetzt weiter zu in jeder 2 Runde und wo in jeder 4Runde?

28.12.2023 - 10:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ender, bei der Beschreibung für die Markierungen vor Halsausschnitt wird beschrieben wo Ärmel und Vorderteil sind, dann stricken Sie die verkürzten Reihen für den Halsausschnitt (8 Maschen in jeder Hin-Reihe zugenommen - siehe Video), dann strickt man wieder in Runden mit den Raglanzunahmen in jeder 2. Runde; dann wird man in jeder 4. Runde für die Ärmel und gleichzeitig in jeder 2. Runde für den Rumpf zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:31

country flag Sunkyung Sommarberg wrote:

Hello! I have a question about Neck and yoke. The directions say I should end up with 180 sts for small, but I have 188. If I started at 76, then Neck-line: 4 rows x 8 sts = 32 sts Yoke: 4 rows x 8 sts = 32 sts then 4 rows x 8 sts + 4 rows x 4 sts = 32 + 16 = 48 sts then it does end up at 188 sts. In this case, how should I go about doing sts for the sleeve step? Thanks!!

27.12.2023 - 03:27

DROPS Design answered:

Dear Sunkyung, the first increase is when you increase from 68 to 76 stitches, right before the neck line. That's why it's 180 stitches and not 188 stitches. So you should have Happy knitting!

29.12.2023 - 00:08

country flag Kichi Brammer wrote:

Er det meningen at antallet af masker der skal sættes af til ærmer, skal svare til antallet af masker til ærmer mellem raglan udtagninger? Det passer nemlig ikke helt for mig, så måske jeg har taget forkert ud?

14.11.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Hej Kichi, nej det er ikke alle masker du har taget ud på ærmesiden som skal sættes på tråd til ærmer, så sæt det antal på tråd som står i opskriften :)

16.11.2023 - 14:17

country flag Sarah K wrote:

Is this pattern suitable for beginners?

02.11.2023 - 09:56

DROPS Design answered:

Dear Sarah, please read and follow the pattern thoroughly - look at the lessons/videos at the bottom of the page if you need some help with the techniques and feel free to ask any questions here, we'll try to help you. Happy knitting!

02.11.2023 - 17:45