DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stone Cables

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-4
DROPS Design: Mynstur ai-372
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 224 lykkjur) og deilið þeim lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 11,2.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er gerður uppsláttur til skiptis á eftir ca 11. hverja lykkju.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri) þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
ATH! Þegar ekki er lengur pláss fyrir heilan kaðal við laskalínu eru kaðlalykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í: Prjónið að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju (lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt og síðan jafnóðum inn í mynstur A.1.

LEIÐBEININGAR:
Þegar fella á af fyrir handveg á fram- og bakstykki og ermum, verður að passa uppá að það sé gert í sömu umferð í mynstri sem er merkt með A.x á fram- og bakstykki og ermum (kaðlar sem eru stakir). Þetta er gert til að hægt sé að snúa öllum köðlunum í sömu umferð í mynstri þegar prjónað er áfram.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-232-250-264-292-314 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 20-20-22-24-24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 204-212-228-240-268-288 lykkjur.
Prjónið eftir mynsturteikningu þannig:
* Prjónið A.1 yfir 20-24-32-38-30-40 lykkjur, A.2 yfir 11-11-11-11-22-22 lykkjur (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 11 lykkjum), A.3 (= 9 lykkjur), A.4 (= 42 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur), A.6 yfir 11-11-11-11-22-22 lykkjur (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 11 lykkjum) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkjurnar sem voru prjónaðar í mynstri A.1 (10-12-16-19-15-20 lykkjur með A.1 hvoru megin við hvort prjónamerki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið mynstur svona þar til stykkið mælist ca 35-35-36-36-36-36 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR!
Í næstu umferð eru felldar af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6-6-8-8-10-10 lykkjur í hvorri hlið) fyrir handveg. Nú eru 96-100-106-112-124-134 lykkjur á framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 48-48-50-50-52-54 lykkjur á sokkaprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist ca 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 54-54-56-58-60-62 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, þetta prjónamerki er notað síðar þegar lykkjur eru auknar út mitt undir ermi.
Prjónið síðan eftir mynsturteikningu þannig:
Prjónið A.1 yfir 9-9-10-11-12-13 lykkjur, prjónið A.3 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur) og prjónið A.1 yfir síðustu 9-9-10-11-12-13 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan.
Endurtakið útaukningu með ca 6½-4½-3-3-2½-2 cm millibili alls 6-8-11-11-13-15 sinnum = 66-70-78-80-86-92 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-43-42-41-40-38 cm frá uppfitjunarkanti (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 25-27-28-30-32-34 cm að stroffi í hálsmáli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd – munið eftir LEIÐBEININGAR!
Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur mitt undir ermi = 60-64-70-72-76-82 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt, en setjið prjónamerkið sem er mitt undir ermi í síðustu lykkju í umferð.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 312-328-352-368-400-432 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Síðan eru 2 lykkjurnar sem sitja hvoru megin við hvert prjónamerki prjónaðar í sléttprjóni, afgangur af lykkjum eru prjónaðar inn í mynstur eins og áður. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 4-4-2-4-2-1 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Haldið áfram með mynstur eins og áður og byrjið úrtöku fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 22-24-27-28-32-35 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir laskalínu til loka eru 136-136-136-144-144-152 lykkjur í umferð og berustykkið mælist ca 24-26-27-29-31-33 cm frá þar sem stykkið var sett saman.
Í næstu umferð er mynstrið prjónað eins og áður, en yfir kaðla í mynstri eru prjónaðar sléttar lykkjur og lykkjum er fækkað jafnt yfir þannig: Fækkið um 6 lykkjur yfir kaðla á framstykki, fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla á fyrri ermi, fækkið um 6 lykkjur yfir kaðla á bakstykki og fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla á seinni ermi = 118-118-118-126-126-134 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 36-32-30-38-34-38 lykkjur jafnt yfir í umferð = 82-86-88-88-92-96 lykkjur.
Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist ca 12 cm. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út til að kantur í hálsi verði ekki of stífur þegar hann er brotinn niður. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni lykkju = ca 102-107-110-110-115-120. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, svo ekki myndist gat. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn í hálsi mælist ca 14 cm (kantur í hálsi er síðar brotinn niður þannig að við frágang verður hann ca 7 cm).
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.01.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.3 og A.5.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Stone Cables

Lisa, United States

Stone Cables

elizaBc, Spain

Stone Cables

Hélène, Belgium

Stone Cables

Therese Lundberg, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Anja wrote:

Wonderful pattern! I used Baby Merino together with Alpaca and it turned out beautifully. It turned out slimmer at first because Baby Merino is quite stretchy but after blocking it had the right size. I still reccomend making sleeves and body 2 cm longer. It's an easy to follow pattern when you have some experience in bottom up knitting. Thank you for this great pattern!

25.03.2024 - 19:07

country flag Steffy wrote:

Die Anleitung ist immer noch total falsch. Sie stellen schicke Pullover kostenlos ins Netz. Ich kaufe die Wolle und die Anleitung ist total falsch. Das geht nicht. Wann können mit einer korrekten Anleitung rechnen?

19.01.2024 - 16:27

country flag Mme Oudinet wrote:

Bonjour, dans le modele 224-4 Au niveau apres le raglan c´est indique diminuer a interval regulier 6 mailles dans les torsades du devant +3 mailles dans celle de la premiere manche +6 m celles du dos et 3 mailles dans l´autre manche Comment proceder je ne comprends pas trop Merci beaucoup

16.01.2024 - 15:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Oudinet, comme il faut plus de mailles pour tricoter une torsade que pour du jersey, on doit diminuer le nombre de mailles des diagrammes: tricotez 6 fois 2 m ens à l'endroit (= 6 diminutions) dans les torsades du devant et du dos, et tricotez 3 fois 2 m ens à l'endroit dans les torsades de chacune des manches. Au tour suivant, répartissez encore le nombre de diminutions indiqué pour votre taille puis tricotez le col. Bon tricot!

17.01.2024 - 08:53

country flag Sabine Kannacher wrote:

Liebes Team, ihr müsst unbedingt die Diagramme des Modells DROPS Design: Modell ai-372 überarbeiten. Es soll schon eine Korrektur erfolgt sein aber die erschließt sich mir absolut nicht! Liebe Grüße

05.01.2024 - 20:18

country flag Ives De La Riviere wrote:

Ik kom bij het breien van mijn proeflapje tot de constatatie dat ik naalddikte 6 zal moeten gebruiken voor dit werk (behalve voor de boorden natuurlijk). Drops air is echter niet geschikt voor deze dikte naalden en heeft ook wat teveel "doorkijk" met naalddikte 6. Kan ik dan twee draden Drops air gebruiken voor dit werk? Of gaan de maten dan niet meer kloppen...?

18.12.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Dag Ives,

Dan zou je met 2 draden opnieuw een proeflapje moeten maken om te kijken of je de stekenverhouding haalt (waarschijnlijk met dunnere naalden). DROPS Air is van zichzelf wat dun en heeft iets meer 'doorkijk' dan ander garen, maar ik denk dat dat mee zal vallen in dit patroon met kabels.

10.01.2024 - 10:07

country flag Marianne Van Houdt wrote:

Ik lees dat er een correctie doorgevoerd is voor tel patroon A3 en A5 maar kan hierover verder niets vinden. Is het patroon hier afgebeeld dan toch reeds het gecorrigeerde?

16.10.2023 - 11:25

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Ja, het online patroon is de gecorrigeerde versie. Mocht je een afdruk hebben van voor de correctiedatum, dan is de correctie nog niet in de afdruk doorgevoerd.

18.10.2023 - 19:00

country flag Tordis Fjeldstad wrote:

Takk for svar, men det er akkurat det jeg mener: noen har kort, andre lang rygg. Akkurat som at noen har kort overkropp og lang underkropp, og omvendt. Jeg forstår fortsatt ikke at alle er like lange fra ermehull og ned til f.eks. hoftehøyde?

09.10.2023 - 14:52

country flag Tordis Fjeldstad wrote:

Hei! Ang. Stone Cables, Drops 224-4. Kan det være riktig at det skal strikkes like langt før felling til ermehull for størrelsene L-XXXL? Jeg har strikket genseren i str. L, og den ble altfor kort . Jeg hadde dessverre ingen mulighet til å måle den jeg strikket til, men stolte på oppskriften.

30.09.2023 - 11:27

DROPS Design answered:

Hei Tordis. Jo, oppskriften stemmer. Folk er forskjellige, noen har kort rygg, mens andre lang. For at et plagg skal passe best mulig er det en god ide å ta mål av en genser som passer den som skal ha genseren, og sammenlign med målene i målskissen for å finne beste passform. mvh DROPS Design

09.10.2023 - 14:12

country flag Després Isabelle wrote:

Bonjour Y a t'il vraiment un intérêt à tricoter ce pull en un seul morceau Cordialement

20.04.2023 - 11:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Després, c'est ainsi que la styliste l'a créé; l'intérêt est de limiter les coutures (on a ici une seule couture sous chacune des manches). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter un pull raglan de bas en haut; et dans cette leçon, nous traitons des aiguilles circulaires. Bon tricot!

20.04.2023 - 13:26

country flag Kirsten wrote:

Hei. Prøver å strikke denne genser. Størrelse xl passer etter målene angitt i skissen. Men når jeg var ferdig med vrangbordet kom jeg på 150cm i omkrets selv om strikkefastheten stemmer med 17/10. Hva gjør jeg feil?

18.04.2023 - 23:22

DROPS Design answered:

Hej Kirsten,da strikker du vrangborden for løst, prøv med en mindre pind. Det glatstrikkede skal være 17 m på 10 cm men ikke vrangborden, den er elastisk og vil trække sig sammen (med mindre du strikker for løst) :)

19.04.2023 - 10:03