DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

River Moss

Prjónuð peysa með háum kraga fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-3
DROPS Design: Mynstur wi-020
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600-700-750-800 g litur 13, dökk ólífa

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING / ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 7,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 6. og 7. hver lykkja og 7. og 8. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum og í hlið á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-72 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 9 cm.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 (skipt er yfir í lengri hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni).
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-4-4-0-0-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING / ÚRTAKA = 52-56-60-64-68-68 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér – héðan er nú stykkið mælt.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 8-9-10-11-12-12 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, teljið 10 lykkjur (= ermi) og setjið eitt nýtt prjónamerki hér, teljið 16-18-20-22-24-24 lykkjur (= framstykki) og setjið eitt prjónamerki hér, teljið 10 lykkjur (= ermi) og setjið eitt prjónamerki hér. Nú eru eftir 8-9-10-11-12-12 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki og fram að byrjun á umferð (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-16-17-17-19-21 sinnum = 164-184-196-200-220-236 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-25-26-27-28 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsi. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki er prjónað þannig:
Prjónið yfir fyrstu 25-27-29-30-34-37 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 50-54-58-60-68-74 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 25-27-29-30-34-37 lykkjur í umferð (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 108-116-124-132-148-160 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingu. Nú er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 9-9-5-10-5-7 cm millibili alls 2-2-3-2-2-2 sinnum = 100-108-112-124-140-152 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30-30-31-32-33-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-120-124-136-152-164 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 32-38-40-40-42-44 lykkjur frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón 8 (skipt er yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum hefur fækkað). Prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 36-42-44-46-48-50 lykkjur.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm frá skiptingu. Nú er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-4-4-3½-4-5 cm millibili alls 4-6-6-7-6-5 sinnum = 28-30-32-32-36-40 lykkjur í umferð.
Prjónið þar til stykkið mælist 40-39-38-38-38-38 cm frá skiptingu (nú eru eftir 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 32-32-36-36-40-44 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 46-45-44-44-44-44 cm frá skiptingu.
Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

River Moss

Sofia.strickt, Germany

River Moss

minxymoo8

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Larissa wrote:

Bonjour. Je tricote la taille XL. En ce qui concerne les diminutions de côtés, si on diminue 2m après 5cm puis 2x après 10cm. On aura diminué au total 6m. Du coup, je ne comprends pas pourquoi on a 124m à la fin vu qu’au départ, on avait 132m. Merci de m’éclairer.

21.01.2024 - 02:57

DROPS Design answered:

Bonjour Larissa, en taille XL on ne diminue que 2 fois au total: 1 fois après 5 cm et 1 fois après 10 autres cm (15 cm depuis la division), soit 132 - (4 m x 4) = 124 mailles. Bon tricot!

22.01.2024 - 09:09

country flag Silke Haber wrote:

Hallo, ich würde den Pullover gern in einem dünneren Garn stricken. Z.B.Drops Nord oder Drops Loves You 9. Weiß aber nicht wie man das umrechnet. Kann jemand helfen? Vielen Dank Silke Haber

17.01.2024 - 11:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Haber, die Maschenprobe würde dann verschieden, so sollten Sie die ganze Anleitung nach Ihrer Maschenprobe umrechnen, sonnst finden Sie alle Pullover für Herren in einer Wolle der Garngruppe A wie Nord und DROPS Loves you 9 18.01.2024 - 08:17

country flag Isabella Nielsen wrote:

Hej. Kunne I ikke skrive i opskriften hvilke masker, der skal være raglanmasker/raglanstolpe, når man har talt feks 10 masker? Er det så maske nr. 10+11 eller 11+12, eller hvordan skal det forstås? Mvh Isabella

14.12.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Hej Isabella, det er de 2 masker (1 på hver side af mærket) som er raglanovergangen og du tager ud på hver side af de 2 masker :)

15.12.2022 - 09:37

country flag LEONOR wrote:

Good morning: I'm making this pattern and I haven't had any problems, but when I make the raglan and use the "YO" increases in one row and in the next I knit it twisted, I still have a lace effect next to each marker in the raglan. In other sweater patterns I always used the M1 R/L increase and this does not happen to me. What will be the problem? Thank you very much

17.11.2022 - 13:16

DROPS Design answered:

Dear Leonor, please feel free to change the way of increasing to raglan using your best favorite technique. Happy knitting!

17.11.2022 - 16:09

country flag Fanny Redon wrote:

Bonjour, pour l'échantillon faut-il le faire avec les aiguilles 7 ou 8 ?

03.11.2022 - 14:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Redon, il doit se faire avec les aiguilles 8 - pensez également que le pull se tricote en rond, si votre tension est différente lorsque vous tricotez en rond ou en rangs, pensez à tricoter votre échantillon en rond. Bon tricot!

04.11.2022 - 07:43

country flag Kamila wrote:

Based on the instructions, I was unable to do the ribbing pattern for the bottom of body due to the number of stitches (size S 108/L 124).

26.08.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Dear Kamila, at the bottom of body part you will work in rib K2, P2, there are 108 sts in size S, this means you will repeat (knit 2, purl2) a total of 27 times. In size L there are 124 sts, you will work (knit 2, purl 2) a total of 31 times. Can this help?

26.08.2022 - 09:44

country flag Isabella wrote:

Hvor meget giver sweateren sig, når den bliver vasket?

21.05.2022 - 22:07

DROPS Design answered:

Hei Isabella. Følg vaskeanvisningen, se enten på etikkenten eller les mer under Tips&Hjelp - Vaskeanvisning - Generelle Tips. Plagget skal formes etter vask og tørkes liggende, men husk legg aldri et dryppende vått plagg til tørk. Unngå å tørke plagget på underlag som suger til seg fuktighet, som for eksempel frottéhåndklær. I begge tilfeller kan plagget misfarges eller miste sin naturlige elastisitet. Følges disse rådene, skal plagget holde seg ganske likt slik det først var. mvh DROPS Design

23.05.2022 - 09:29

country flag Katarzyna wrote:

Robię rozmiar XL. Po oddzieleniu dekoldu i umieszczeniu markerów nie znajdują się one pomiędzy dwoma oczkami prawymi (2 razy między prawymi i 2 razy między lewymi). Jak w takim razie wyrabiać reglan skoro w środku maja być 2 prawe oczka

14.04.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, po wykonaniu golfu, dalsza część swetra jest już przerabiana dżersejem prawym, wykonujesz reglan w wyznaczonych miejscach (wg wzoru). I może się zdarzyć, że linia reglanu nie jest przedłużeniem oczek prawych ściągacza (patrz zdjęcie). Miłej pracy!

15.04.2022 - 09:24

country flag Fabiana wrote:

Come fisso i fili che sono rimasti liberi dopo aver ripreso le maniche?

22.12.2021 - 08:12

DROPS Design answered:

Buonasera Fabiana, i fili liberi verranno fissati come gli altri fili alla fine del lavoro. Buon lavoro!

26.12.2021 - 22:57