DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Country Roads

Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS – XXL.

DROPS 223-6
DROPS Design: Mynstur fl-062
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 08, brúnn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjón, neðan frá og upp, að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsinn, í kringum ermar og neðst á peysu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-256-256-288-320-352 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 28-32-32-36-40-44 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Prjónið A.1 þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð, prjónið næstu 104-120-120-136-152-168 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 104-120-120-136-152-168 lykkjur, fellið af síðustu 4 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 104-120-120-136-152-168 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu: 3 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 0-1-0-2-6-7 sinnum = 94-98-104-108-112-118 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið nú af miðju 36-38-42-44-46-48 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð við hálsmál: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 25-26-27-28-29-31 lykkjur eftir á öxl. Haldið svona áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 104-120-120-136-152-168 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu: 3 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 0-1-0-2-6-7 sinnum = 94-98-104-108-112-118 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 42-44-48-50-52-54 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmál = 25-26-27-28-29-31 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 80-88-88-96-104-112 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Flora. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-4-1-1-1-1 cm millibili alls 4-3-6-7-6-5 sinnum = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-15-12-13-12-10 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram með A.1 og fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-24-25-25-25 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 26-26-25-26-26-26 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum neðri hluta á peysu, í kringum hálsmál og neðst í kringum ermar.
Heklið með Flora og heklunál nr 3 þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Emma wrote:

Hej! Stämmer verkligen måttskissen? Har storlek S och M samma bredd?

17.02.2024 - 08:13

DROPS Design answered:

Hej Emma, ja det stemmer ifølge opskriften (man slår også samme antal masker op osv) men ærmegabet og længden er forskellig :)

23.02.2024 - 10:43

country flag Linda wrote:

Hvordan undgår man, at kanten på ærmer og krop ruller? Selv efter hæklekanten er lavet, ruller det. Har I nogle tips, så jeg ikke skal presse min fine bluse hver gang, jeg vil bruge den? Kan jeg evt. hækle/strikke en anden type kant? Jeg elsker denne bluse og er i gang med min anden. Den første blev lavet i ren bomuld. Denne i Drops Flora 😊

29.10.2023 - 11:29

DROPS Design answered:

Hei Linda. Du kan evnt prøve å strikke 4 omgange retstrik i begynnelsen (istedenfor 2 omganger retstrik). Prøve på ett ermet først å se om du syns det er OK før du fortsetter. mvh DROPS Design

30.10.2023 - 09:48

country flag Gun Skogmyr wrote:

Hej! Undrar över ärmarna. Förutsätter att de också stickas nerifrån och upp men så här står det "När arbetet mäter 16-15-12-13-12-10 cm maskas det av 8 maskor mitt under ärmen (= 4 maskor på varje sida av markören). Arbetet stickas nu färdigt fram och tillbaka på rundsticka." Kan det verkligen stämma? Jag vill få det till att man börjar maska av när det är ex 10 cm "kvar". Tacksam för svar! Hälsningar Gun

17.08.2022 - 18:56

DROPS Design answered:

Hei Gun. Du strikker ermet rundt på rundpinne til ermet måler 16-15-12-13-12-10 cm, deretter skal ermtoppen strikkes fram og tilbake (du fortsetter å bruke rundpinnen, men strikker fram og tilbake). Du feller 8 masker under ermet og så starter du med ermtoppen og følger fellingene som beskrevet i oppskriften til ermet måler ca 26-26-25-26-26-26 cm. Om du ser på målskissen feller du de 8 maskene i "krysset" mellom bolen og ermet, deretter strikkes ermtoppen frem og tilbake de siste 10-11-13-13-14-16 cm. mvh DROPS Design

22.08.2022 - 10:32

country flag Antonella Marian wrote:

Buongiorno ho fatto questa maglia con i ferri normali nn circolari ma il bordo si arrotola...qualche suggerimento? Grazie.

22.04.2022 - 13:45

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, ha bloccato il lavoro dopo il lavaggio? Il bordo arrotolato può dipendere anche da una tensione diversa nell'avvio/chiusura, nel caso provi ad avviare/chiudere le maglie con mezza misura di ferri in più. Buon lavoro!

24.04.2022 - 16:34

country flag Shio wrote:

Liebes drops-team\r\nleider hab ich noch nie in runden gestrickt. deswegen eine vielleicht blöde frage. muß ich jetzt die rückreihe als hinreihe stricken und dann einfach genauso wie es kommt nur rechts stricken? oder wird hier wirklich keine \"rückreihe\" gestrickt?\r\ndanke für die antwort :)

18.04.2022 - 23:53

DROPS Design answered:

Liebe Shio, wenn Sie in Runden stricken, sind alle Reihen "Hinreihen" = sie werden alle von der Vorderseite gestrickt, Das Diagram lesen Sie dann immer rechts nach links. Wenn sie dann die Arbeit teilen, beachten Sie nur, daß die Reihen mit Lochmuster immer noch einer Hinreihe bleiben. Mehr über Diagramme lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

19.04.2022 - 11:52

country flag Gautier wrote:

Que veut dire : Continuer A.1 comme avant.

18.04.2022 - 20:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gautier, vous continuez à tricotez les mailles restantes pour le devant/le dos en continuer à suivre le diagramme de sorte que le motif continue comme avant (vous avez juste moins de mailles au début/à la fin du rang, adaptez si besoin en tricotant en jersey les mailles que vous ne pouvez pas tricoter en suivant A.1). Bon tricot!

19.04.2022 - 11:49

country flag Gautier wrote:

Puis je tricoter le pull avec 2 aiguilles au lieu dune aiguille circulaire ? Merci

18.04.2022 - 08:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gautier, tout à fait, cette leçon vous explique comment procéder. Bon tricot!

19.04.2022 - 11:22

country flag Katrin wrote:

Liebe Grüße an das Drops-Team! Wird wirklich mehr Garn für die Größe S als für M + L gebraucht?! Die Angaben der Weite von Gr. S+M sind identisch-ist das korrekt? (Die Angaben für die Jacke sind ähnlich) Das Design des Pullovers gefällt mir sehr gut: alltagstauglich und hat das Zeug für ein „Lieblingsteil“!

21.04.2021 - 10:14

DROPS Design answered:

Liebe Katrin, danke für den Hinweis, dies wurde unser Designteam weiterleitet, damit sie die Garnmenge noch mal prüfen. Viel Spaß beim stricken!

21.04.2021 - 13:22

country flag Jeanette Payberg wrote:

Der må være en fejl i antal nøgler til de forskellige str XS - S - M - L - XL - XXL 250-350-300-300-350-350 g farve 08, brun

20.04.2021 - 08:22

country flag Michaela Claus wrote:

Die Zeichenerklärung beim Diagramm enthält einen Fehler in der deutschen Version. Die Beschreibung von Zeichen 3 ist falsch. Bei der Strickjacke ist es richtig.....

17.04.2021 - 15:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Claus, danke für den Hinweis, dies wird korrigiert! Viel Spaß beim stricken!

19.04.2021 - 09:02