DROPS Baby 20-21 |
|
|
|
Prjónuð peysa og buxur fyrir börn úr DROPS Delight
DROPS Baby 20-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 8, 14 og 20 cm Stærð 6/9 mán: 2, 8, 15 og 21 cm Stærð 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm Stærð 2 ára: 2, 9, 16, 23 og 30 cm Stærð 3/4 ára: 2, 10, 18, 26 og 34 cm Stærð 5/6 ára: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og búks (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 132-138-150 (162-168-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm, munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í umferð 1 eftir stroff er lykkjufjöldinn jafnaður út til 118-128-140 (146-158-168) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42-44) lykkjur frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74-80) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin, endurtakið með 3-3-3 (4-5-6) cm millibili alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-20-23 (27-30-32) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 38-42-46 (50-54-60) lykkjur eftir á bakstykki og 24-25-29 (30-32-34) lykkjur eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-30-36 (36-36-36) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30 (30-32-32) lykkjur í 1. umferð eftir stroff. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6-7) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 7-4-3 (3-3,5-3,5) cm millibili alls 2-4-5 (7-7-8) sinnum = 32-36-40 (44-46-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30-34) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36-38) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið inn ermar á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handveg = 138-148-168 (182-190-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalína byrjar. LASKALÍNA: Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerki (= 8 úrtökur) – lesið úrtaka að ofan! Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð: 7-8-8 (9-10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 0-0-2 (2-2-2) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40-43) cm setjið síðustu 8-8-10 (10-10-12) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-56 (62-62-64) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 30-32-36 (41-45-48) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80 til 105 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á hringprjón 4 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66-72) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (frá réttu verða þetta 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri hlið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BUXUR: ÚTAUKNING: Aukið út með því að taka upp lykkjur frá fyrri umferð og prjónið lykkjuna slétt. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá mitti og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna BUXUR: Fitjið upp 114-120-120 (126-132-138) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af Delight. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8-9-9 (10-10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umferð slétt - JAFNFRAMT er fækkað um 22-24-20 (22-24-26) lykkjur jafnt yfir = 92-96-100 (104-108-112) lykkjur. Setjið prjónamerki í miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 46-48-50 (52-54-56) lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-14-15 (15½-16-17) cm. Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan (2 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) – SJÁ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 8-9-9 (10-11-11) sinnum = 108-114-118 (124-130-134) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24-25) cm. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur á hvorri skálm. SKÁLM: Setjið lykkjur frá annarri skálminni á þráð og lykkjur frá hinni skálminni á sokkaprjóna nr 4 = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni í hring á sokkaprjóna – setjið prjónamerki að innan verðu á skálm. JAFNFRAMT þegar skálmin mælist 4-4-4 (5-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6-8) cm millibili alls 4 sinnum = 40-43-45 (48-51-53) lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-15-18 (23-28-33) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8-5-9 (6-9-7) lykkjur jafnt yfir = 48-48-54 (54-60-60) lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Allar buxurnar mælast nú alls 40-46-50 (56-62-68) cm. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið síðan seinni skálmina á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman opið á milli skálma. Brjótið upp á skálmina eftir þörf. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Pernille wrote:
Jeg har forsøgt at lave jakken eller cardiganen i str 6/9 måneder og 1/3. Men størrelserne virker meget store især 6/9. Bukserne er mega store i omkreds på 114 masker kan det være rigtigt?
18.01.2022 - 14:52Doris wrote:
Fragen zum Hosen stricken: Ich stricke an der Hose mit 114 Maschen. Das Bündchen mit 8 cm ist fertig. Jetzt mit Rundstricknadel Nr.4 weiter stricken und abnehmen, auf 92 Maschen kommen. Das abnehmen auf der Rundstricknadel geschieht in welcher Folge? Gibt es noch eine andere Anleitung oder vielleicht ein Video? Herzlichen Dank für Ihre Hilfe.
06.12.2020 - 11:51DROPS Design answered:
Liebe Doris, hier wird erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!
07.12.2020 - 08:26Thérèse wrote:
I am still intrigued that two strands from a wonderful, randomly coloured yarn can have produced this remarkably matched cardigan. I appreciate that the nuance of this yarn is in the colour changing, but there is not a standard repetition which would permit the knitting of this small garment using two continuous strands. I suppose I must cut the yarn into matching colours then knit leaving many ends to be sewn in .
01.05.2020 - 00:38Thérèse wrote:
Your illustrations show the colours in ‘blocks’ and matching on the fronts. How is this achieved with the recommended yarn, please?
30.04.2020 - 17:24DROPS Design answered:
Dear Thérèse, the color is there in blocks rather than stripes, because this small sweater has short rows, thus more rows can be knitted with the same color. However, if you ook closely, the colors on the sleeves do not match with the front, but this is just what is so wonderful about these yarns with long colorchanges... not two piece is the same, even if it is done with the same yarn. I hope this helps. Happy Knitting!
01.05.2020 - 00:16Pascale wrote:
Bonjour, faut-il absolument des aiguilles circulaires pour faire ce modèle ? Et si oui, pourquoi ? Merci beaucoup !
09.10.2019 - 21:20DROPS Design answered:
Bonjour Pascale, seules les manches de cette veste se tricotent en rond (sur aiguilles doubles pointes), on utilise une aiguille circulaire pour le dos/les devants puis l'empiècement pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!
10.10.2019 - 08:37Karen wrote:
Jeg strikker str 6/9 mdr, men forstår ikke når jeg skal strikke 20 cm påtrøjen efter indtagningen, er det fra mærketråden?
15.07.2019 - 22:29DROPS Design answered:
Hei Karen. Du måler fra oppleggskanten. Dersom det har vært fra merketråden ville det ha stått, f.eks - HERFRA MÅLES ARBEIDET. God Fornøyelse.
26.08.2019 - 14:13Kari wrote:
Jakke, str 5/6 år, skal man legge opp hele 192 masker??? Den må jo da bli ekstra vid i forhold til de andre størrelsene.
16.04.2019 - 15:59DROPS Design answered:
Hei Kari. Rett etter vrangborden skal det felles til 168 masker, som gir 44 cm målt tvers over. Det strikkes med fler masker i vrangborden fordi denne natrulig trekker seg sammen, men skal være like vid som bolen. Om du ser på målskissen nederst ser du at den skal måle 44 cm i størrelse 5/6 år, så dette stemmer. Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du striker den i en mindre størrelse, og heller legger til på lengden om dette passer bedre. God fornøyelse
23.04.2019 - 14:23Nathalie wrote:
Bonjour, pour vos patrons qui se tricotent avec deux fils ensemble et que ceux -ci ont un eux mêmes un ensemble de couleur est-ce que vous chercher à trouver le début de la séquence pour que les couleurs se suivent à la même place ou vous n'en tenez pas compte du tout , merci !
12.06.2017 - 03:06DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, vous pouvez si les pelotes le permettent, les séquences des couleurs Delight peuvent différer d'une pelote à l'autre, même dans un bain identique (cf nuancier).Bon tricot!
12.06.2017 - 10:03Irene wrote:
Salve, cosa si intende per 2 fili? Devo accostare due fili di due gomitoli diversi e lavorarli insieme? Qual'è lo scopo?! Grazie
16.07.2016 - 19:40DROPS Design answered:
Buonasera Irene. Tutto il capo viene lavorato usando il filato messo doppio. Può usare due gomitoli contemporaneamente o lavorare usando il capo esterno e quello interno dello stesso gomitolo. In questo modo il capo risulta più caldo. Buon lavoro!
16.07.2016 - 20:41Kristine wrote:
Das ist mein erstes strickstück mit so einer Wolle mit Farbverlauf, daher ist meine Frage vielleicht sehr grundlegend. Wie bekomme ich ein schönen Farbverlauf hin, wenn ich mit zwei Fäden stricke? Ich habe mir ein Knäuel in zwei gleiche kleinere geteilt und würde nun versuchen, ungefähr mit der gleichen Farbe anzufangen. Macht man das so??? Oder gibt es einen anderen Trick? Danke für die Antwort
14.12.2015 - 14:42DROPS Design answered:
Wenn Sie keine "Melierung" wünschen, wie man sie bei der Hose gut sieht, sondern der doppelte Faden die gleiche Farbe haben soll, schauen Sie am besten bei zwei Knäueln genau die Farbabfolge an (indem Sie es etwas abwickeln) und fangen dann an der Stelle mit dem einen Knäuel an, an der es mit der gleichen Farbe wie das andere Knäuel beginnt und den gleichen Farbverlauf hat. Den Rest des Knäuels können Sie dann später verwenden.
20.12.2015 - 16:54