DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Baby 20-21
DROPS Design: Mynstur nr DE-009-by + DE-010-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/7) ár
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104-110/122)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-200-200 (250-250-300) gr litur nr 07, beige/blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 38 umferðir með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

DROPS TRÉTALA, nr 513: 5-5-6 (6-6-7) st.
--------------------------------------------------------

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104-110/116)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-200 (200-250-250) gr litur nr 7, beige/blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð 1/3 mán: 2, 8, 14 og 20 cm
Stærð 6/9 mán: 2, 8, 15 og 21 cm
Stærð 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm
Stærð 2 ára: 2, 9, 16, 23 og 30 cm
Stærð 3/4 ára: 2, 10, 18, 26 og 34 cm
Stærð 5/6 ára: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og búks (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 132-138-150 (162-168-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Delight.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm, munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í umferð 1 eftir stroff er lykkjufjöldinn jafnaður út til 118-128-140 (146-158-168) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42-44) lykkjur frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74-80) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin, endurtakið með 3-3-3 (4-5-6) cm millibili alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-20-23 (27-30-32) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 38-42-46 (50-54-60) lykkjur eftir á bakstykki og 24-25-29 (30-32-34) lykkjur eftir á hvoru framstykki.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 30-30-36 (36-36-36) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum Delight.
Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30 (30-32-32) lykkjur í 1. umferð eftir stroff. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6-7) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 7-4-3 (3-3,5-3,5) cm millibili alls 2-4-5 (7-7-8) sinnum = 32-36-40 (44-46-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30-34) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36-38) lykkjur eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið inn ermar á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handveg = 138-148-168 (182-190-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalína byrjar.
LASKALÍNA: Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerki (= 8 úrtökur) – lesið úrtaka að ofan! Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð: 7-8-8 (9-10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 0-0-2 (2-2-2) sinnum.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40-43) cm setjið síðustu 8-8-10 (10-10-12) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum.
Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-56 (62-62-64) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 30-32-36 (41-45-48) cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp ca 80 til 105 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á hringprjón 4 með 2 þráðum Delight.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66-72) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (frá réttu verða þetta 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri hlið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BUXUR:

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að taka upp lykkjur frá fyrri umferð og prjónið lykkjuna slétt.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman,
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá mitti og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna

BUXUR:
Fitjið upp 114-120-120 (126-132-138) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af Delight.
Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8-9-9 (10-10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umferð slétt - JAFNFRAMT er fækkað um 22-24-20 (22-24-26) lykkjur jafnt yfir = 92-96-100 (104-108-112) lykkjur. Setjið prjónamerki í miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 46-48-50 (52-54-56) lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-14-15 (15½-16-17) cm. Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan (2 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) – SJÁ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 8-9-9 (10-11-11) sinnum = 108-114-118 (124-130-134) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24-25) cm. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur á hvorri skálm.

SKÁLM:
Setjið lykkjur frá annarri skálminni á þráð og lykkjur frá hinni skálminni á sokkaprjóna nr 4 = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni í hring á sokkaprjóna – setjið prjónamerki að innan verðu á skálm. JAFNFRAMT þegar skálmin mælist 4-4-4 (5-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6-8) cm millibili alls 4 sinnum = 40-43-45 (48-51-53) lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-15-18 (23-28-33) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8-5-9 (6-9-7) lykkjur jafnt yfir = 48-48-54 (54-60-60) lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Allar buxurnar mælast nú alls 40-46-50 (56-62-68) cm.
Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið síðan seinni skálmina á sama hátt og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman opið á milli skálma. Brjótið upp á skálmina eftir þörf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.05.2022
Leiðrétting: PEYSA: Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/7) ár. Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104-110/122)

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Pernille wrote:

Jeg har forsøgt at lave jakken eller cardiganen i str 6/9 måneder og 1/3. Men størrelserne virker meget store især 6/9. Bukserne er mega store i omkreds på 114 masker kan det være rigtigt?

18.01.2022 - 14:52

country flag Doris wrote:

Fragen zum Hosen stricken: Ich stricke an der Hose mit 114 Maschen. Das Bündchen mit 8 cm ist fertig. Jetzt mit Rundstricknadel Nr.4 weiter stricken und abnehmen, auf 92 Maschen kommen. Das abnehmen auf der Rundstricknadel geschieht in welcher Folge? Gibt es noch eine andere Anleitung oder vielleicht ein Video? Herzlichen Dank für Ihre Hilfe.

06.12.2020 - 11:51

DROPS Design answered:

Liebe Doris, hier wird erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!

07.12.2020 - 08:26

country flag Thérèse wrote:

I am still intrigued that two strands from a wonderful, randomly coloured yarn can have produced this remarkably matched cardigan. I appreciate that the nuance of this yarn is in the colour changing, but there is not a standard repetition which would permit the knitting of this small garment using two continuous strands. I suppose I must cut the yarn into matching colours then knit leaving many ends to be sewn in .

01.05.2020 - 00:38

country flag Thérèse wrote:

Your illustrations show the colours in ‘blocks’ and matching on the fronts. How is this achieved with the recommended yarn, please?

30.04.2020 - 17:24

DROPS Design answered:

Dear Thérèse, the color is there in blocks rather than stripes, because this small sweater has short rows, thus more rows can be knitted with the same color. However, if you ook closely, the colors on the sleeves do not match with the front, but this is just what is so wonderful about these yarns with long colorchanges... not two piece is the same, even if it is done with the same yarn. I hope this helps. Happy Knitting!

01.05.2020 - 00:16

country flag Pascale wrote:

Bonjour, faut-il absolument des aiguilles circulaires pour faire ce modèle ? Et si oui, pourquoi ? Merci beaucoup !

09.10.2019 - 21:20

DROPS Design answered:

Bonjour Pascale, seules les manches de cette veste se tricotent en rond (sur aiguilles doubles pointes), on utilise une aiguille circulaire pour le dos/les devants puis l'empiècement pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!

10.10.2019 - 08:37

country flag Karen wrote:

Jeg strikker str 6/9 mdr, men forstår ikke når jeg skal strikke 20 cm påtrøjen efter indtagningen, er det fra mærketråden?

15.07.2019 - 22:29

DROPS Design answered:

Hei Karen. Du måler fra oppleggskanten. Dersom det har vært fra merketråden ville det ha stått, f.eks - HERFRA MÅLES ARBEIDET. God Fornøyelse.

26.08.2019 - 14:13

country flag Kari wrote:

Jakke, str 5/6 år, skal man legge opp hele 192 masker??? Den må jo da bli ekstra vid i forhold til de andre størrelsene.

16.04.2019 - 15:59

DROPS Design answered:

Hei Kari. Rett etter vrangborden skal det felles til 168 masker, som gir 44 cm målt tvers over. Det strikkes med fler masker i vrangborden fordi denne natrulig trekker seg sammen, men skal være like vid som bolen. Om du ser på målskissen nederst ser du at den skal måle 44 cm i størrelse 5/6 år, så dette stemmer. Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du striker den i en mindre størrelse, og heller legger til på lengden om dette passer bedre. God fornøyelse

23.04.2019 - 14:23

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, pour vos patrons qui se tricotent avec deux fils ensemble et que ceux -ci ont un eux mêmes un ensemble de couleur est-ce que vous chercher à trouver le début de la séquence pour que les couleurs se suivent à la même place ou vous n'en tenez pas compte du tout , merci !

12.06.2017 - 03:06

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous pouvez si les pelotes le permettent, les séquences des couleurs Delight peuvent différer d'une pelote à l'autre, même dans un bain identique (cf nuancier).Bon tricot!

12.06.2017 - 10:03

country flag Irene wrote:

Salve, cosa si intende per 2 fili? Devo accostare due fili di due gomitoli diversi e lavorarli insieme? Qual'è lo scopo?! Grazie

16.07.2016 - 19:40

DROPS Design answered:

Buonasera Irene. Tutto il capo viene lavorato usando il filato messo doppio. Può usare due gomitoli contemporaneamente o lavorare usando il capo esterno e quello interno dello stesso gomitolo. In questo modo il capo risulta più caldo. Buon lavoro!

16.07.2016 - 20:41

country flag Kristine wrote:

Das ist mein erstes strickstück mit so einer Wolle mit Farbverlauf, daher ist meine Frage vielleicht sehr grundlegend. Wie bekomme ich ein schönen Farbverlauf hin, wenn ich mit zwei Fäden stricke? Ich habe mir ein Knäuel in zwei gleiche kleinere geteilt und würde nun versuchen, ungefähr mit der gleichen Farbe anzufangen. Macht man das so??? Oder gibt es einen anderen Trick? Danke für die Antwort

14.12.2015 - 14:42

DROPS Design answered:

Wenn Sie keine "Melierung" wünschen, wie man sie bei der Hose gut sieht, sondern der doppelte Faden die gleiche Farbe haben soll, schauen Sie am besten bei zwei Knäueln genau die Farbabfolge an (indem Sie es etwas abwickeln) und fangen dann an der Stelle mit dem einen Knäuel an, an der es mit der gleichen Farbe wie das andere Knäuel beginnt und den gleichen Farbverlauf hat. Den Rest des Knäuels können Sie dann später verwenden.

20.12.2015 - 16:54