DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 215-32
DROPS Design: Mynstur z-904
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 100, natur
200-250-250-300-300-350 g litur 7323, sjávarþoka

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Síðan eru kanta að framan á framstykkjum prjónaðir.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka í lokin.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 96-104-112-120-132-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 16-18-18-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 80-86-94-102-110-120 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 72-78-86-94-102-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-3-3-5 sinnum = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 48-52-56-60-64-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 8-9-9-9-9-12 lykkjur jafnt yfir = 40-43-47-51-55-60 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun á umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 36-39-43-47-51-56 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, byrjar úrtaka í hlið fyrir handveg eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu: 8-8-8-9-9-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 4 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 90 lykkjur með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarþoka á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu jafnframt því sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir til: 87-91-95-99-103-107 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Prjónið síðan frá réttu þannig (frá toppi): 1 kantlykkja sem prjónuð er slétt í öllum umferðum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kantur að framan mælist ca 3½ cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið nú 1 umferð slétt frá röngu, fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 48-52-56-60-64-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 8-9-9-9-9-12 lykkjur jafnt yfir = 40-43-47-51-55-60 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun á umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 36-39-43-47-51-56 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, byrjar úrtaka í hlið fyrir handveg eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá röngu. Eftir alla úrtöku eru 32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu: 8-8-8-9-9-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 4 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 90 lykkjur með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarþoka á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram hægra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu jafnframt því sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir til: 87-91-95-99-103-107 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Prjónið síðan frá réttu þannig (neðan frá): 4 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kantur að framan mælist ca 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu).
Nú eru gerð hnappagöt meðfram kanti að framan, efsta hnappagatið á peysunni er gert þegar kantur í hálsmáli er prjónaður – byrjið þess vegna með að staðsetja prjónamerki þar sem þau hnappagöt sem eftir eru, eiga að vera. Neðsta hnappagatið á að vera ca 3-2½-2-4-3-2 cm frá kanti að neðan og það efsta á að vera ca 7-7½-8-8-7-7½ cm frá kanti að ofan. Síðan eru þau 3-3-3-3-4-4 hnappagöt sem eftir eru í kanti að framan með staðsett með ca 8-8½-9-9½-8-8½ cm millibili. Fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: Prjónið 2 lykkjur saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt eða brugðið inn í mynstur í næstu umferð.
Prjónið þar til kantur að framan mælist ca 3½ cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 42-46-46-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 4-6-4-6-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju innan við kantlykkju í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-12-13-14-16 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorir hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-4-5 sinnum og síðan 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 56 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 82-90 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta að framan á hvoru framstykki), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Í næstu umferð frá réttu er síðasta hnappagatið gert, það er gert í línu fyrir ofan þar sem fellt var af fyrir öðru hnappagatinu í kanti að framan JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, skiptið yfir í 2 þræði í litnum sjávarþoka og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum og saum niður meðfram hliðum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Myriam Gateault wrote:

Hallo, ist bei den Maßen für den Halskragen, die Reihen aus Rippenmuster erhalten oder muss man diese aus den Maßen bei der Herstellung auf Papier noch abziehen. Ich hoffe, meine Frage war verständlich. Viele Grüße Myriam Gateault

11.04.2024 - 08:19

country flag Helga Eitel wrote:

Guten Tag, ich stricke die Jacke. Das Rückenteil ist fertig. Beim 1. Vorderteil weiß ich nicht weiter. Nach 10 cm soll ich die Abnahmen machen wie am Rückenteil. Heißt das dass ich an beiden Seiten alle 5 cm abnehmen soll? Dann hätte das Vorderteil doch vorne jeweils keinen geraden Abschluss. Ist das so gewollt? Erst nach Ihrer Antwort stricke ich weiter weil Aufribbeln bei 2 Fäden nicht so toll ist. Danke im Voraus für eine Antwort.

04.04.2024 - 11:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Eitel, beim Vorderteilen werden Sie nur an einer Seite abnehmen, die Seite, die zum Rückenteil angenäht wird, so beim linken Vorderteil am Anfang einer Hinreihe und beim rechten Vorderteil am Ende einer Hinreihe. Viel Spaß beim Stricken!

04.04.2024 - 12:55

country flag Marja Stravers wrote:

Hoe kan het dat de pas bijna 36 cm meet terwijl ik een pen dunner heb gebruikt(4) en precies het patroon heb gevolgd? Erg mooi patroon trouwens.

12.06.2023 - 13:22

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Komt de stekenverhouding overeen met die van het patroon? Als dat klopt, zo je geen afwijkende maten horen te krijgen. Welke maat brei je? En bedoel je de breedte van de pas op het achterpand nadat je geminderd hebt voor de armsgaten?

14.06.2023 - 17:55

country flag Kirsten wrote:

Når der står “når arbejdet måler 10 cm” under bagstykke, er det så 10 cm med eller uden ribkant?

26.01.2022 - 13:15

country flag Maren Kamstrup Rasmussen wrote:

Kan bulen( bagstykket og de 2 forstykker) strikkes på en rundpind indtil ærmegabet, i så fald skal kantmaskerne da trækkes fra

29.10.2021 - 08:37

country flag Jenny wrote:

Schade, dass die ersten 3 Fotos nahezu identisch sind. Man kann nicht sehen, wie die Jacke im Stehen am Körper sitzt und wo sich der untere Knopf bzw. das Knopfloch befindet. Nun meine Frage: Setzt man das unterste Knopfloch in die 4 kraus rechte Maschen oder direkt danach und strickt die ersten 2 rechten Maschen zusammen und arbeitet dann einen Umschlag ein? Werden die Knopflöcher alle so gearbeitet, dass die bei den Rippen immer die 2 rechten Maschen zusammengestrickt werden + 1 Umschlag?

01.02.2021 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Jenny, am besten vergleichen Sie die Maßen einer ähnliche Jacke, die Sie gerne haben, mit den in der Skizze, so finden Sie die richtige passende Größe - hier lesen Sie mehr. Das unterste Knopfloch wird ca 3-2½-2-4-3-2 cm über den unteren Rand sein - siehe RECHTE BLENDE - gerne können Sie die Knopflöcher je nach der linke Blende anpassen. Viel Spaß beims tricken!

02.02.2021 - 10:12

country flag Marie-Dominique Langen wrote:

Bonjour, ce modèle peut-il se tricoter avec un seul fil et dans ce cas les mesures sont-elles les mêmes et quel numéro d'aiguilles utiliser svp ? cordialement

21.12.2020 - 21:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langen, ce modèle peut tout à fait se tricoter avec un seul fil du groupe C qui remplacera 2 fils du groupe A (= Alpaca ici en l'occurence), mais, pour conserver les explications du modèles, vous devez conserver la même tension/le même échantillon - vous trouverez plus d'infos ici. Si vous souhaitez utiliser une tension différente, il vous faudra chercher un modèle correspondant à l'échantillon souhaité - en utilisant le filtre "échantillon" ici. Bon tricot!

22.12.2020 - 09:44

country flag Béatrice LASSALLE wrote:

BONJOUR Pourriez-vous me conseiller ? Quel coloris puis-je utiliser avec le Pétrole Mix 7240 en alpaca pour que cela soit harmonieux ? Merci beaucoup de votre réponse.

15.11.2020 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lasalle, pour toute assistance au choix des couleurs, merci de bien vouloir contacter directement votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, il est plus à même de vous aider en fonction de ce que vous recherchez. Bon tricot!

16.11.2020 - 08:53

country flag Marlemio wrote:

Suerschöne schlichte Jacke in tollen Winterfarben... Gefällt mir sehr gut!

24.09.2020 - 07:34