November Sky Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ATH! Þegar RENDUR eru prjónaðar er sér útskýring fyrir garðaprjón – sjá útskýringu undir RENDUR. RENDUR: Berustykkið og fram- og bakstykki er prjónað í röndum með til skiptis 1 þræði frá hvorum lit. Til að litaskiptin byrji í sömu hlið, verður að prjóna 1 umferð með litnum sandur frá réttu og 1 umferð með litnum grár frá réttu, síðan er prjónuð 1 umferð með litnum sandur frá röngu og 1 umferð með litnum grár frá röngu. Á ermum er prjónað til skiptis 1 umferð með litnum grár og 1 umferð með litnum sandur svo að þetta passi við berustykki. ATH! Þegar prjónað er GARÐAPRJÓN í röndum er það gert yfir 4 umferðir þannig: UMFERÐ 1 (litur sandur frá réttu): slétt. UMFERÐ 2 (litur grár frá réttu): brugðið. UMFERÐ 3 (litur sandur frá röngu): brugðið. UMFERÐ 4 (litur grár frá röngu): slétt. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,3. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið nákvæmlega á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar. Öll útaukning er gerð frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir stroffi í hálsmáli, fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með 8-8½-9-9-9½-10 cm millibili. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón. Allt stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 120-136-140-148-152-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum grár. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjón. Þegar stykkið mælist 12 cm er prjónuð 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjón (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur og aukið út 6-5-11-9-15-13 lykkjur jafnt yfir næstu 110-126-130-138-142-150 lykkjur – SJÁ ÚTAUKNING-1 og endið með 5 lykkjum í garðaprjóni (= kantur að framan) munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 126-141-151-157-167-173 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Setjið eitt prjónamerki að innanverðu á kanti að framan – þetta prjónamerki er notað til að mæla frá. Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett í 26.-29.-30.-33.-34.-37. lykkju í umferð, annað prjónamerkið er sett í 47.-50.-54.-54.-58.-58. lykkju í umferð, þriðja prjónamerkið er sett í 80.-92.-98.-104.-110.-116. lykkju í umferð og fjórða prjónamerkið er sett í 101.-113.-122.-125.-134.-137. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki í eru nú 25-28-29-32-33-36 lykkjur í hvoru framstykki, 32-41-43-49-51-57 lykkjur á bakstykki og 20-20-23-20-23-20 lykkjur á hvorri ermi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3, sjá RENDUR í útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn sandur. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 20-23-24-27-28-31 lykkjur, aukið út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir 20-20-23-20-23-20 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin viðlykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir 32-41-43-49-51-57 lykkjur á bakstykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir 20-20-23-20-23-20 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir næstu 20-23-24-27-28-31 lykkjur á framstykki og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Skiptið yfir í litinn grár. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón fram að fyrsta prjónamerki (= vinstra framstykki), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón fram að næsta prjónamerki (= ermi), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón fram að næsta prjónamerki (= bakstykki), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón fram að síðasta prjónamerki (= ermi), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón fram þar til 5 lykkjur eru eftir (= hægra framstykki) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= ranga): Skiptið yfir í litinn sandur. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (= ranga): Skiptið yfir í litinn grár. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna og auka út í hverri umferð frá réttu svona þar til aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 26-28-32-36-40-44 sinnum á hæðina = 334-365-407-445-487-525 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í röndum þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál. Stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og skiptið stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 53-58-63-69-76-84 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 69-75-85-93-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 90-99-111-121-137-151 lykkjur, setjið næstu 69-75-85-93-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 53-58-63-69-76-84 lykkjur (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Takið frá prjónamerkin í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-229-251-273-303-333 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, röndum og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4½-4½-4-4-3½ cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 230-249-271-297-327-361 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-29-30-30-30 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og litinn grár. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 6-7-5-7-5-7 lykkjur jafnt yfir = 236-256-276-304-332-368 lykkjur. Prjónið stroff með grár þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroffið svona þar með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stroffið mælist 3 cm í öllum stærðum – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-75-85-93-99-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn í röndum (= 1 umferð með hvorum lit). Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-13-16-20-21-23 sinnum = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og litinn grár, prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 6 cm í öllum stærðum. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið inn stroffið efst í hálsmáli að röngu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé ekki saumaður í hverja lykkju – gerið aðeins lengri og lausari saum, þannig að saumurinn verði teygjanlegur. Saumið síðan aftur op í hvorri hlið í kanti í hálsi með smáum sporum innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Helga Eitel wrote:
Guten Tag ,\\r\\n ich möchte diese Jacke mit Fabel Print stricken ohne Streifen. Ist es richtig dass ich für die Größe XL 400 g Fabel Print benötige?\\r\\nFür eine Antwort bedanke ich mich herzlich.\\r\\nFreundliche Grüße\\r\\nHelga Eitel
24.03.2024 - 19:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Eitel, vielleicht würden Sie etwas weniger brauchen, aber da diese Jacke mit 2 Farben gestrickt wurde, hat man nur die Garnmenge für jede Farbe (und die Jacke haben wir leider nicht mehr). Gerne kann Ihnen damit Ihr DROPS Händler - auch per Telefon oder per E-Mail - weiterhelfen. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 09:20Katelijne Van Gansbeke wrote:
Hallo, ik zou deze vest graag breien maar ik heb moeite om mijn maat te bepalen. Ik vind geen diagram met de maten terug. Bij mijn vorige projecten van garnstudio stond ook telkens een tekening met maten van het patroon. Kan u me helpen aub?
29.09.2021 - 13:11DROPS Design answered:
Dag Katelijne,
Onderaan de beschrijving staat een tekening van het vest met de maten. Het eerste getal van de reeks getallen is maat S, het tweede getal maat M, enzovoort. Om de juiste maat te kiezen kun je een bestaand kledingstuk erbij nemen die goed zit en dan de maten vergelijken met de maten in de tekening.
30.09.2021 - 09:23Marianne wrote:
Dank voor uw antwoord. Tot zover begreep ik het wel. Maar wat doe ik met de steek met de markeerdraad erin, aan weerszijden waarvan ik meerder. Brei ik die steek gewoon net als alle andere steken? Haal ik die af? Dat is eigenlijk mijn vraag.
25.04.2021 - 17:26DROPS Design answered:
Dag Marianne,
De steken met de markeerdraden brei je gewoon verder zoals hiervoor. Voor de raglan meerder je aan beide kanten van de steek met de markeerdraad.
25.04.2021 - 17:39Marianne wrote:
Ik heb van dit patroon (maat M) de pas gebreid tot en met de eerste meerdering, daar waar ik markeerdraden moet invoegen. Er staat dat de markeerdraden IN de 29e, 50e etc. steek moeten. Er IN, dus niet tussen twee steken in? Ik heb 141 steken op de naald. Als ik de steken optel voor de verschillende delen - voorpanden, achterpand, mouwen- kom ik op 137. Wat doe ik dan met die 4 steken met markeerdraad erIN? Ik snap hier niets van. Graag uw uitleg.
21.04.2021 - 22:12DROPS Design answered:
Dag Marianne,
Er staat aangegeven hoeveel steken er op de voorpanden, op de mouwen en op het achterpand staan tussen de steken met de markeerdraden. Dit zijn inderdaad in totaal 137 steken. Als je daar de 4 steken met de markeerdraad bij op telt kom je op 141 steken. In de volgende paragraaf staat aangegeven hoe je meerdert (aan beide zijden van de steek met de markeerdraad).
25.04.2021 - 14:02TERNON wrote:
Après le col, avec l'aiguille circulaire mais c'est un gilet donc ouvert devant comment faire ; sur vos explications rang 1(=sur l'endroit); rang 2(=sur l'endroit) rang3(=sur l'envers) rang 4 (=sur l'envers) comment faire deux rangs consécutifs sur l'endroit puis sur l'envers alors que le tricot est un gilet non fermé (circulaire)?
17.04.2021 - 16:48DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ternon, Les rayures se tricotent toujours avec 2 rangs sur l'endroit suivis de 2 rangs sur l'envers: tricotez le 1er rang sur l'endroit, puis glissez les mailles de nouveau à l'autre extrémité de l'aiguille circulaire pour tricoter le 2ème rang sur l'endroit également (avec l'autre couleur), tournez et tricotez le 3ème rang sur l'envers (avec la 1ère couleur), glissez les mailles de nouveau à l'autre extrémité de l'aiguille pour tricoter le 4ème rang sur l'envers de nouveau avec la 2ème couleur. Répétez ces 4 rangs, et adaptez le point mousse comme expliqué en le tricotant soit à l'endroit, soit à l'envers. Bon tricot!
19.04.2021 - 08:14Lucia wrote:
Chiedo scusa, ho capito, per eseguire questa lavorazione occorre per forza usare i ferri circolari, per proseguire partendo dal lato opposto, giusto? Grazie.
01.04.2021 - 14:41DROPS Design answered:
Buonasera Lucia, esatto, deve far scorrere le maglie sul cavo. Buon lavoro!
03.04.2021 - 19:32Lucia wrote:
Non mi è chiaro questo passaggio: Per avere il cambio di colore sempre sullo stesso lato, lavorare 1 ferro con il colore sabbia sul diritto del lavoro e 1 ferro con il colore grigio sul diritto del lavoro, poi lavorare 1 ferro con il colore sabbia sul rovescio del lavoro e 1 ferro con il colore grigio sul rovescio del lavoro.
01.04.2021 - 14:33DROPS Design answered:
Buonasera Lucia, deve far scorrere le maglie sul cavo e partire la lavorazione dal lato opposto. Buon lavoro!
03.04.2021 - 19:32Torsten Gunnar wrote:
Verstehe ich es richtig das ich erst 2 Reihen mit Umschlag und dann 2 Reihen ohne Umschlag arbeite?
01.04.2021 - 08:30DROPS Design answered:
Lieber Torsten, ja das ist korrekt. Es werden bei der Raglanpasse zwei Hin-Reihen mit Umschlägen in jeder Reihe und dann zwei Rück-Reihen ohne Umschläge gestrickt. Gutes Gelingen weiterhin!
05.04.2021 - 10:06Schropp wrote:
Guten Tag, ich wollte die Jacke stricken. Habe auch Garngruppe A von Drops. Aber die Maschenprobe passt mit den gleichen Nadeln gar nicht. Habe Mehrere Varianten ausprobiert mit dem Halsausschnitt, aber es kommen nie die Maße heraus, die auf dem Plan sind. Irgendwas stimmt da nicht oder ist die Maschenprobe falsch angegeben? Ich hatte genau die Nadelstärke und - wie gesagt - auch Garngruppe A von Drops. Viele Grüße
28.02.2021 - 16:19DROPS Design answered:
Liebe Frau Schropp, die Maschenprobe ist hier die gewöhnliche Maschenprobe für ein Garn der Garngruppe A: 24 Maschen x 32 Reihen glatt rechts = 10 x 10 cm; hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe - diese Maschenprobe können Sie zuerst waschen und trocknen lassen, dann nochmal prüfen, obe die Maschenprobe stimmt. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 09:37Uta wrote:
Hallo, bedeutet 1. Reihe (sand in der Hin-Reihe): rechts 2. Reihe (grau in der Hin-Reihe): links 3. Reihe (sand in der Rück-Reihe): links 4. Reihe (grau in der Rück-Reihe): Masche rechts Das glatt rechts gestrickt wird. Wollte Uni- Farben stricken. Danke
30.10.2020 - 18:09DROPS Design answered:
Liebe Uta, so stricken Sie die 4 Reihen: 1. Reihe= Hinreihe rechts mit sand + Blendemaschen rechts; 2. Reihe = Hinreihe rechts mit grau + Blendmaschen links. 3. Reihe = Rückreihe llinks mit sand + Blendmaschen links. 4. Reihe: Rückreihe links mit grau + Blendemaschen rechts. Diese 4 Reihen wiederholen. Hoffentlich hilft es Ihnen weiter.Wenn Sie mit 1 Farbe stricken möchten (= ohne Streifen) dann stricken Sie glatt rechts mit 5 Blendemaschen krausrechts. Viel Spaß beim stricken!
02.11.2020 - 07:31