DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Celtic Poetry

Prjónað eyrnaband og hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni.

DROPS 214-12
DROPS Design: Mynstur me-213
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250 g litur 42, ceder

EYRNABAND:

STÆRÐ:
Ein stærð.
Stykkið mælist ca: Breidd = 12 cm. Lengd = 49 cm eða óskaðri lengd.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 42, ceder

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm eða 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Mál: Lengd = ca 30-32 cm frá öxl og niður. Breidd = ca 29-34 cm.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 42, ceder

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 42 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til eftir er 1 uppsláttur og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum hægra megin við miðjulykkju þannig: Prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppslátt sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum vinstra megin við miðjulykkju þannig: Lyftið sléttri lykkju (+ uppsláttur) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (+ uppsláttur) yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn hvoru megin við miðjulykkju með prjónamerki í (= 4 lykkjur fleiri í umferð), þannig:
Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 3 lykkjur (miðju lykkjan af þessum lykkjum = miðjulykkja), prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni – en hafið í huga að í fyrstu umferð á eftir útaukningu, kemur önnur útaukna lykkjan til með að prjónast slétt án þess að prjónast saman með uppslætti, þar sem ekki hefur verið gerður neinn uppsláttur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman við miðju að aftan.

EYRNABAND:
Fitjið upp 34 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1. umferð í KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 23 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (séð frá réttu = 1 lykkja slétt). Haldið nú áfram með 2. og 3. umferð í klukkuprjóni, JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu), prjónið MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 frá réttu þannig:

MYNSTUR-1:
MYNSTUR-1 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjurnar, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið klukkuprjón þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri), fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu 5 lykkjur eins og áður.
Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir til viðbótar (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu).

MYNSTUR-2:
MYNSTUR-2 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður yfir fyrstu 3 lykkjurnar, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið klukkuprjón þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri), fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu 3 lykkjur eins og áður.
Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu).

Haldið svona áfram fram og til baka með til skiptist MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2.
Þegar stykkið mælst ca 49 cm (eða prjónið að óskaðri lengd), fellið af með sléttum lykkju. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af slétt eins og eigin lykkja. Klippið frá, en skiljið eftir smá enda til að sauma eyrnabandið saman með. Saumið eina og eina lykkju saman innan við affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum sem saumað er saman á öxlum. Að lokum er kantur prjónaður í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 76-88 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine.
Prjónið 1. umferð í KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 51-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð (séð frá réttu = 1 lykkja slétt). Haldið nú áfram með 2. og 3. umferð í klukkuprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 þannig:

MYNSTUR-1:
MYNSTUR-1 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið næstu lykkju eins og áður, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING, prjónið næstu lykkju eins og áður, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkjur í umferð eins og áður.
Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu).

MYNSTUR-2:
MYNSTUR-2 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 11 lykkjur eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna – munið eftir ÚTAUKNING, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkjur í umferð eins og áður.
Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu).

Haldið svona áfram fram og til baka með til skiptist MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2.
Þegar stykkið mælst 28-30 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 13-17 lykkjurnar og setjið þær á þráð (= hægri öxl), fellið af næstu 25-25 lykkjum (+ uppslátt) – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er allur uppsláttur felldur af eins og eigin lykkja (= hálsmál), prjónið síðustu 13-17 lykkjurnar eins og áður (= vinstri öxl). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið þar til stykkið mælist 30-32 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið klukkuprjón og MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 24-26 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 17-21 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, prjónið næstu 17 lykkjur eins og áður og setjið þær á annan þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 17-21 lykkjur eins og áður fyrir hægri öxl. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig.
Hægri öxl.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur frá hálsi þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið næstu 2 lykkjur eins og áður, lyftið sléttu lykkjunni (+ uppsláttur) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (+ uppsláttur) yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman (= 2 lykkjur færri), prjónið út umferðina eins og áður. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. 3 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina frá réttu) alls 2 sinnum = 13-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru settar á þráð fyrir hálsmáli (stykkið mælist ca 30-32 cm alls), fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið allan uppslátt af eins og eigin lykkja.
Vinstri öxl:
Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá hálsi) og prjónið klukkuprjón eins og áður með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur við háls þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir við hálsmál, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. hver 3. Sýnilega slétta lykkjan á hæðina frá réttu) alls 2 sinnum = 13-17 lykkjur eftir fyrir öxl.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru settar á þrá fyrir hálsmáli (stykkið mælist ca 30-32 cm alls), fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið allan uppsláttinn af eins og eigin lykkja.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur!

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt aftan í hnakka með Merino Extra Fine og stuttan hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur frá réttu þannig:
Prjónið upp 25 lykkjur fram að lykkjum á þræði mitt að framan (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja lykkju í hnakka og prjónið upp afgang af lykkjum innan við 1 kantlykkju garðaprjón fram að lykkjum á þræði, prjónið upp 24 lykkjur fram að byrjun á umferð (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja lykkju í hnakka og að afgangur af lykkjum sé prjónaður upp innan við 1 kantlykkju garðaprjón) = 66 lykkjur. Aðlögun á mynstri er til að klukkuprjónsmynstrið komi til með að halda áfram með klukkuprjónslykkju yfir klukkuprjónslykkju meðfram kanti í hálsmáli.

UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður. Klukkuprjónsmynstrið á að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður.
UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður.
Endurtakið umferð 2 og 3 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Cecile Dadachanji wrote:

Thank you for this lovely pattern. I got stuck on the very first line of the pattern where it said to cast on 88 stitches and work row 1 of English rib = 59. Just wanted to clarify, in case it helps someone else as well, that this total count does not include the yarnovers.

30.11.2023 - 10:44

country flag Margarita wrote:

No estan los diagramas

07.03.2022 - 21:45

DROPS Design answered:

Hola Margarita, parece que hay un error en este patrón. Trataremos de resolverlo lo antes posible.

08.03.2022 - 21:44

country flag ANNE MARIE HERMANN wrote:

Hvorfor står der i opskriften til bagstykket at der skal slås 76 m op når arbejdet kun strikkes over 51 m. Det kan tælles på billedet. Vh Anne Hermann

02.12.2021 - 15:05

DROPS Design answered:

Hej Anne När du har stickat första pind i helpatent har du 51 masker. Mvh DROPS Design

03.12.2021 - 12:18

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

Jeg lurer på hva jeg gjør gal. Jeg er ikke fornøyd med kantene. Jeg følger å strikke rille med først og siste maskene men de blir ujevnt. Er det noe du kan anbefale? Strikker jeg kanskje for stramt?

12.04.2021 - 22:50

DROPS Design answered:

Hei Ana. Om du ser på bildet er den kanten også litt ujevn. Prøv evnt å løfte 1. maske fra retten (den som strikkes i rille) over til høyre pinne istedenfor å strikke den (bare pass på at det ikke blir for stramt). Se om du syns det blir penere. mvh DROPS design

26.04.2021 - 11:43

country flag Cathrine Ruud wrote:

Jeg finner ikke mønster diagram her..

17.03.2021 - 00:12

DROPS Design answered:

Hei Cathrine, Det finnes ikke diagram fordi mønstrene er beskrevet i teksten på toppen av oppskriften. God fornøyelse!

17.03.2021 - 07:58

country flag Bodil E wrote:

Oppskrift Celtic Poetry Jeg har spørsmål ang Pannebåndet. Man skal legge opp 34 masker. Strikk 1. pinne hel patent. - les forklaring over = 23 masker. Jeg skjønner ikke disse 23 maskene. Er det riktig antall eller feil i oppskrifta?

16.03.2021 - 22:12

DROPS Design answered:

Hei Bodil, Når man strikker helpatent er det laget kast annenhver pinne som er ikke telt som masker. Disse blir strikket sammen med løse maskene på neste pinne. Når du teller masker er det kun ordentlige masker som telles. God fornøyelse!

17.03.2021 - 08:08

country flag Thadee wrote:

Hi ! Est ce que le 1er maille (celui au point mousse) compte dans les 5 premièrs mailles à faire dans le PT fantaisie 1 ou les 5 1er mailles correspondent à 2 mailles ensemble à l'endroit, 1 jeté et une maille envers, et re 2 mailles ensemble à l'endroit ? Les jetés font bien partie de la maille envers donc on ne les compte pas ? Merci

19.02.2021 - 16:47

DROPS Design answered:

Bonjour Thadee, tout à fait, la maille lisière appartient aux 5 premières mailles du rang - et les jetés ne comptent effectivement pas comme des mailles car ils appartiennent à la maille glissée. Bon tricot!

22.02.2021 - 07:10

country flag Cla wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse précédente. Je reprends seulement mon tricot et me voilà face au point fantaisie. Je me perds un peu dans les étapes à faire en même temps pour les augmentations et diminutions, pourriez-vous tenter de me réexpliquer s'il vous plaît ? Merci par avance !!

28.01.2021 - 18:02

DROPS Design answered:

Bonjour Cla, pour tricoter le point fantaisie-1 procédez ainsi: tricotez les 5 premières mailles comme avant, puis diminuez 2 m (= cf DIMINUTIONS à droite de la m centrale), continuez comme avant jusqu'avant la m centrale, augmentez 2 m de chaque côté de la m centrale, cf AUGMENTATIONS. Tricotez jusqu'à ce qu'il reste 8 m, diminuez 2 m (= cf DIMINUTIONS après la maille centrale) et terminez votre rang. N'hésitez pas, si besoin, à vous entrainer sur un échantillon à faire les diminutions et les augmentations Bon tricot!

29.01.2021 - 07:27

country flag Henna Laaksonen wrote:

I am checking knitting tension and wondering why I am knitting 18 stitches in width but 24 rows in height with English rib in area of 10 x 10 cm using 3.75mm circular needle. Is there any possibility that there is a mistake in this pattern or do I have to change the needles? Now I have used Novita wooden 3.5mm and ChiaoGoo 3.75mm needles.

14.01.2021 - 18:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Laaksonen, you should have 18 sts and 44 rows or 17 sts x 42 rows worked in English rib, ie there should be only 22 or 21 knitted stitches visibile in height - read more about DROPS Merino Extra Fine here. Happy knitting!

15.01.2021 - 06:42

country flag Cla wrote:

Bonjour,\r\n\r\nJe ne comprends pas comment au rang 1 on passe de 34 à 23 mailles alors que la maille sur l\'vers est glissée est non tricotée avec le jeté (d\'après le texte). \r\nPourriez-vous me donner plus de précisions s\'il vous plaît ?\r\n\r\nCordialement\r\nCh

13.01.2021 - 12:17

DROPS Design answered:

Bonjour Cla, au tout premier rang des côtes anglaises, on diminue 11 mailles en tricotant ainsi: 1 maille au point mousse, *2 mailles ensemble à l'endroit (= 1 diminution), 1 jeté, glisser 1 maille à l'envers (le jeté appartient à la maille envers et ne compte pas comme une maille*, répéter de *-* jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles (= 10 fois = on diminue 10 mailles), tricotez 2 mailles ensemble à l'endroit (= 1 diminution) et 1 maille au point mousse. Il vous reste 23 mailles. Cette vidéo montre comment tricoter des côtes anglaises avec jetés. Bon tricot!

13.01.2021 - 12:31