DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pink Pacific

Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað í stuðlum með kanti í sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 211-8
DROPS Design: Mynstur r-753
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 06, eyðimerkurrós

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------


UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um A.1, A.3, A.4 og A.6):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki):
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg):
Í byrjun á hverri umferð: Skiptið út fjölda stuðla sem á að fækka um með 1 keðjulykkju.
Í lok á hverri umferð: Heklið ekki yfir lykkjurnar sem á að fækka um.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Heklið 1 stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum í lokin um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 stuðlar færri).

ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál):
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum. Fyrst er framstykkið heklað og bæði bakstykkin, neðan frá og upp í stuðlum. Síðan er heklaður kantur í sólfjaðramynstri á framstykki og á báðum bakstykkjum, ofan frá og niður. Toppurinn er saumaður á öxlum og í hliðum og tölur eru saumaðar í á bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Heklið 69-75-81-93-99-111 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJUR. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 67-73-79-91-97-109 stuðlar í umferð.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 til A.3 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.3 yfir síðustu lykkjuna.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-3-3-3-3 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-3-3-3 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 71-79-85-97-105-117 stuðlar.

Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 og heklið eins og útskýrt er að neðan:
Haldið áfram með stuðla og fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð þannig: Fækkið lykkjum um 3 stuðla 1-1-1-2-3-5 sinnum, 2 stuðlar 2-3-4-5-5-5 sinnum og 1 stuðul 2-3-3-3-3-2 sinnum = 53-55-57-59-61-63 stuðlar eftir.

Þegar stykkið mælist 17-19-20-22-23-25 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 og ÚRTAKA-3 og heklið eins og útskýrt er að neðan:
Heklið öxl yfir fyrstu 19-20-20-21-21-22 stuðlana í umferð (það eiga að vera 15-15-17-17-19-19 stuðlar mitt í hálsmáli). Síðan er fækkað um 2 stuðla í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum og 1 stuðul í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 stuðlar eftir á öxl.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA BAKSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Heklið 40-45-46-52-57-63 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 38-43-44-50-55-61 stuðlar í umferð.
Heklið síðan A.1 til A.3 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.3 yfir síðustu lykkjuna. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-3-3-3-3 cm, aukið út um 1 stuðul í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-3-3-3 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hlið = 40-46-47-53-59-65 stuðlar.

Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið – sjá ÚRTAKA-1 og heklið eins og útskýrt er að neðan:
Haldið áfram með stuðla og fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið í hverri umferð þannig: Fækkið um 3 stuðla 1-1-1-2-3-5 sinnum, 2 stuðlar 2-3-4-5-5-5 sinnum og 1 stuðul 2-3-3-3-3-2 sinnum = 31-34-33-34-37-38 stuðlar.

Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 og ÚRTAKA-3 og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan:
Heklið öxl yfir fyrstu 19-20-20-21-21-22 stuðlum frá hlið (nú eiga að vera 12-14-13-13-16-16 stuðlar við hálsmál mitt að framan). Fækkið síðan um 2 stuðla í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum og 1 stuðul í hverri umferð við hálsmálalls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 stuðlar eftir á öxl. Heklið áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm.
Klippið frá og festið enda.

HÆGRA BAKSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Heklið á sama hátt og á vinstra bakstykki, en passið uppá að útaukning í hliðum, úrtaka fyrir handveg og úrtaka fyrir hálsmáli er gert í gagnstæðri hlið miðað við á vinstra bakstykki.

KANTUR MEÐ SÓLFJAÐRAMYNSTRI Á FRAMSTYKKI:
Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á framstykki = 67-73-79-91-97-109 fastalykkjur.
Heklið síðan A.4 til A.6 þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 9-10-11-13-14-16 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.6 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður.

KANTUR MEÐ SÓLFJÖÐRUM Á VINSTRA BAKSTYKKI:
Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá miðju að framan) og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á vinstra bakstykki = 38-43-44-50-55-61 fastalykkjur.
Heklið síðan A.4 til A.6 frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, heklið A.5 þar til eftir eru 13-12-13-13-12-12 lykkjur í umferð (= 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), heklið A.6 yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 stuðul í hverja og eina af 7-6-7-7-6-6 síðustu lykkjum (= stuðull).
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður.

KANTUR MEÐ SÓLFJAÐRAMYNSTRI Á HÆGRA BAKSTYKKI:
Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá hlið) og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á hægra bakstykki = 38-43-44-50-55-61 fastalykkjur.
Heklið síðan A.4 til A.6 frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að aftan). Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 7-6-7-7-6-6 lykkjurnar (= stuðull), heklið A.4 yfir næstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð (= 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.6 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant með smáu fallegu spori. Saumið hliðarsauma alveg eins. Saumið 5-5-5-6-6-6 tölur jafnt yfir í kant í hægra bakstykki – efsta talan á að sitja ca 1 cm frá kanti í hálsmáli og neðsta talan ca 2 cm frá neðri kanti. Tölunum er hneppt á milli stuðla í vinstri kanti að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 2 loftlykkjur – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð (jafngildir 1 stuðli)
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Diana wrote:

Er der ikke et billede af ryggen nogen steder?

24.02.2024 - 23:47

DROPS Design answered:

Hej Diana, vi skal se efter, hvis vi har så skal vi nok lægge det ud :)

01.03.2024 - 14:29

country flag Angèle wrote:

Bonjour, Pour le modèle 211-8 qu'entendez -vous par 'ajuster après un rang sur l'endroit ' Merci pour votre réponse.

20.06.2023 - 14:50

DROPS Design answered:

Bonjour Angèle, ajustez la hauteur indiquée pour votre taille de sorte que le dernier rang tricoté soit un rang sur l'endroit, autrement dit, tricotez les côtes sur un peu moins ou un peu plus de 9 cm en fonction de votre propre tension, tant que le dernier rang est un rang sur l'endroit. Bon crochet!

20.06.2023 - 15:34

country flag Bianca Vink wrote:

Ik snap niet veel van dit patroon ik heb de eerste toer gedaan maar hoe dan.

09.06.2023 - 13:52

DROPS Design answered:

Dag Bianca,

Na de eerste toer begin je met de telpatronen. Je haakt eerst A.1 over de eerste steek, dat is dus 3 lossen omdat het op het begin van de toer is. Vervolgens haak je A.2, waarbij je het telpatroon dus steeds in de breedte herhaalt totdat je nog 1 steek over hebt op de toer. Deze haak je in A.3. De telpatronen lees je van onder naar boven en van rechts naar links. De toer met een ster ernaast haak je niet.

Voor meer informatie kun je ook de video's bekijken en de stap voor stap instructies lezen over de verschillende technieken die in dit patroon gebruikt worden.

10.06.2023 - 18:26

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, è possibile avere lo stesso modello lavorato ai ferri? Grazie

16.05.2022 - 14:43

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, questo modello è stato progettato per essere lavorato all'uncinetto, non può essere trasformato in un modello ai ferri. Provi a navigare tra i modelli del nostro sito per trovarne tanti altri lavorati ai ferri. Buon lavoro!

17.05.2022 - 18:59

country flag Raquel wrote:

Hola se podría hacer este top en dos piezas para no tener que ponerle botones. Habría que hacer dos piezas iguales siguiendo el patrón del delantero y coser??. Gracias

16.04.2022 - 08:32

DROPS Design answered:

Hola Raquel, se pueden hacer 2 piezas (delantero y espalda) y coser. Se trabaja igual hasta el escote y la línea del escote se comienza 2 cm antes que la línea del escote en la espalda.

17.04.2022 - 11:56

country flag Marian Van Iwaarden wrote:

Is de werkbeschrijving die hier staat wel de beschrijving van de top op de foto? Ik zie geen top in 3 kleuren op de foto en ook geen strikbanden.

05.06.2020 - 11:22

DROPS Design answered:

Dag Marian,

Patroon en afbeelding waren inderdaad foutief aan elkaar gekoppeld. Het staat nu goed. Dankjewel voor het doorgeven. Veel haakplezier!

08.06.2020 - 12:51

country flag Willy Van Bommel-Drissen wrote:

Hoi leuk topje. Maar de beschrijving klopt niet met het plaatje. Andere kleur garen, oké Maar driehoeken maken en een strikbandje?? Maar de patronen zijn erg leuk!

02.06.2020 - 21:29

country flag Marlies wrote:

Ik denk dat het plaatje niet klopt bij het patroon want die geeft 3 kleuren aan. Ook mis ik hoeveel steken ik moet opzetten. Er staan strikbanden in die op punt a en d vast gemaakt moeten worden maar deze kan ik ook niet herleiden. Lees ik niet goed of zit er een fout in het patroon?

02.06.2020 - 21:22

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Oeps... inderdaad het verkeerde patroon bij het plaatje. Dank voor het doorgeven, het is nu aangepast.

05.06.2020 - 12:33

country flag Brigitte wrote:

Mooi topje ,is het patroon beschikbaar?

18.02.2020 - 09:56

country flag Johanna wrote:

Iets langer maar ik zou het model graag haken.

11.01.2020 - 12:54