DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Herring Bone Thermals

Prjónaðar stuttbuxur úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffi. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-43
DROPS Design: Mynstur u-887
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M/L - XL – XXL/XXXL
Mittismál: ca 92/96 - 104/108 - 114/123 - 123/133 cm.
ATH: Vegna stroffprjóns í hliðum eru buxurnar teygjanlegar. Prjónaðu þá stærð sem þú notar venjulega.

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-350-400 g litur 50, sægrænn

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um skálmar):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. Það er prjónuð upphækkun að aftan.

STUTTBUXUR:
Fitjið upp 144-168-192-216 lykkjur á hringprjón 2,5 með Karisma. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) og 1 prjónamerki eftir 72-84-96-108 lykkjur (= mitt að framan). Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) hringinn í 6 cm. Prjónið síðan upphækkun að aftan í stroffprjóni þannig: Prjónið 9 lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði, prjónið 17 lykkjur stroffprjón til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið 26 lykkjur stroffprjón. Haldið svona áfram með því að prjóna 9 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 107-125-143-161 lykkjur. Snúið við í síðasta skipti til að komast að réttunni á stykkinu. Prjónið að prjónamerki mitt að aftan = byrjun á umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur þannig: 22-28-34-40 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út um 21 lykkjur), 1 lykkja slétt, A.2 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 43-55-67-79 lykkjur, A.1 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 1 lykkja slétt, A.2 yfir næstu 14 lykkjur (aukið út til 21 lykkjur), 21-27-33-39 lykkjur slétt = 172-196-220-244 lykkjur. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2 – prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-11-14 cm mitt að framan (mælt frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður), aukið út um 2 lykkjur mitt að framan og að aftan – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7. hverri umferð alls 7-8-10-10 sinnum = 200-228-260-284 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 29-31-34-36 cm mitt að framan, fellið af fyrstu 6-7-8-8 lykkjur á eftir prjónamerki mitt að aftan, prjónið næstu 88-100-114-126 lykkjur og setjið síðan á þráð (= skálm), prjónið næstu 12-14-16-16 lykkjur og látið þær vera eftir á prjóni (= op), prjónið næstu 88-100-114-126 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), fellið af 6-7-8-8 lykkjur sem eftir eru, klippið þráðinn frá. Prjónið síðan 11-12-13-14 cm sléttprjón fram og til baka yfir 12-14-16-16 við lykkjur á prjóni, fellið af og festið opið við 12-14-16-16 lykkjur sem felldar voru mitt að aftan.

HÆGRI SKÁLM:
Setjið 88-100-114-126 lykkjur af þræði í hægri hlið á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið að auki upp 25-26-28-31 lykkjur meðfram annarri hlið á opi = 113-126-142-157 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í innanverða skálm (þ.e.a.s. mitt í lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram opi) = byrjun á umferð. Prjónið síðan mynstur A.3, 1 lykkja slétt og A.4 eins og áður yfir 43 lykkjur í hlið, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar skálmin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-4.-3.-3. hverri umferð alls 3-5-6-7 sinnum = 107-116-130-143 lykkjur (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar það eru of fáar lykkjur fyrir hringprjóninn). Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-1-2-1 lykkju yfir lykkjur í sléttprjóni = 108-117-132-144 lykkjur. Þegar skálmin mælist 10-11-11-12 cm, prjónið sléttar lykkjur fram að byrjun á A.3. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur, en passið uppá að stroffið nái jafn langt upp alla leiðina hringinn og að prjónaðar séu sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir 43 lykkjur í hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Stuttbuxurnar mælast ca 43-46-49-52 cm mælt frá uppfitjunarkanti mitt að framan og niður.

VINSTRI SKÁLM:
Setjið til baka lykkjur af hinum þræðinum á prjóninn og prjónið á sama hátt og fyrri skálm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið – sjá næstu umferð í mynstri
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu!
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Inga wrote:

Hej! Ni skriver att sidomönstret är elastiskt, då kommer hela arbetet att töjas ut, hur kan då det minsta måttet passa 92cm och 96? Det kommer ju att sitta som en säck efter ett tag, särskilt resår? Hur är det med "negative ease" I detta fall?

04.02.2024 - 15:46

DROPS Design answered:

Hei Inga. Her er det nok ment at plagget måler 92 cm (når det ligger flatt), men pga vrangborden vil den passe hoftemål på 96 cm, om man overholder strikkefastheten på oppskriften. mvh DROPS Design

12.02.2024 - 13:35

country flag Steffi wrote:

Hallo, in dieser Anleitung ist mir nicht klar, was der Text " Bei einer Länge von 29-31-34-36 cm an der vorderen Mitte die ersten 6-7-8-8 Maschen nach dem Markierer an der hinteren Mitte abketten, die nächsten 88-100-114-126 Maschen stricken und diese Maschen dann stilllegen (= Bein)," bedeutet. Muss ich an der vorderen und hinteren Mitte die gleiche Abnahmen arbeiten?

12.11.2023 - 11:26

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, die Runden beginnen in der hintere Mitte, deshalb werden Sie die 6-7-8-8 ersten + die 6-7-8-8 letzten Maschen abketten, die Maschen von jedem Bein stilllegen und dann nur über die mittleren 12-14-16-16 Maschen für den Schritt stricken. Diese Maschen ketten Sie dann ab und nähen Sie an den abgekettenen Maschen. Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 08:07

country flag Vilma wrote:

Kudotaanko A3 ja A4 mallineuleet aina vaan uudestaan lahkeen loppuun asti?

18.05.2023 - 19:53

DROPS Design answered:

Kyllä, piirrosten A.3 ja A.4 mallikertoja toistetaan lopulliseen mittaan asti.

22.05.2023 - 19:15

country flag Sabine wrote:

In M 3 und M4 werden dir zusammengestrickten Maschen immer links zusammengestrickt oder ans Muster angepasst mal links und mal rechts ( so wie die Zunahmen auch angepasst werden)?

04.04.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, Sie stricken die Abnahmen stets links zusammen. Viel Spaß beim Weiterstricken!

05.04.2023 - 10:29

country flag Ragnhild Andersen wrote:

Siden shortsen strikkes ovenfra og ned, skal mønsteret også følges ovenfra og ned da?

12.03.2022 - 19:07

DROPS Design answered:

Hei Ragnhild, Nei, mønsteret strikkes nedenfra og opp og fra høyre til venstre. God fornøyelse!

14.03.2022 - 07:46

country flag Delphine wrote:

Bonjour, pourriez-vous vous créer ou/et adapter vos modèles pour les machine à tricoter du type lk150?

24.03.2021 - 14:24

DROPS Design answered:

Bonjour Delphine, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande ni à chaque machine à tricoter; demandez conseil à votre magasin ou bien sur un forum spécialisé en machines à tricoter. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

24.03.2021 - 15:39

country flag Ragnhild Andersen wrote:

Strikkefasthet: 22 masker blir 10 cm i bredden. Hvordan kan da 144 masker i str S passe et hoftemål på 92-96cm? 144:22=6,5 6.5x10=65 cm.

17.01.2021 - 21:48

DROPS Design answered:

Hei Ragnhild, Strikkefasthet er målt med glattstrikk og pinnestr. 3.5. Du legger opp masker for vrangborden, som er elastisk og som skal være rundt livet; flere masker er lagt opp for hofteparti senere, når du er ferdig med vrangborden. God fornøyelse!

20.01.2021 - 08:20

country flag Anu wrote:

Mallin otsikossa puhutaan Drops Karisma -langasta ja ohjeessa Merino extra fine langasta. Kumpi on oikea mallissa käytetty lanka?

22.10.2020 - 22:15

DROPS Design answered:

Hei, oikea lanka on DROPS Karisma.

17.11.2020 - 16:29

country flag Anneli wrote:

Hei-hvor er oppleggskanten? Der jeg la opp i begynnelsen? Rekker jeg å strikke bare en gang A3 og A 4? Før jeg skal begynne å øke til Kilen?

18.09.2020 - 06:55

country flag Anneli wrote:

Hei skal jeg strikke A2to ganger iløpet av hele shortsen?

16.09.2020 - 16:39

DROPS Design answered:

Hei Anneli. Du strikker A.2 2 ganger på samme omgang og du strikker A.2 1 gang i høyden, samme som A.1. God Fornøyelse!

21.09.2020 - 08:30