DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 182-13
DROPS Design: Mynstur fl-018
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200 g litur 07, beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 2,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónað er í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

STUTTBUXUR:
Fitjið upp 168-192-216-240 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 84-96-108-120 lykkjur (= miðja að framan).

Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan þannig:
Stærð XS/S og L/XL: 1 lykkja brugðin, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið.
Stærð M og XXL/XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum brugðið, 1 lykkja slétt.
Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið 11 lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið 22 lykkjur stroff til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið 32 lykkjur stroff. Haldið svona áfram með að prjóna 10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 122-122-142-142 lykkjur. Snúið í síðasta skipti til að koma að réttu á stykkinu. Prjónið að prjónamerki við miðju að aftan = byrjun á umferð. Haldið áfram með stroff hringinn þar til stykkið mælist 20-22-24-26 cm mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan þannig: 27-33-39-45 lykkjur í sléttprjóni, 30 lykkjur stroff eins og áður, 54-66-78-90 lykkjur sléttprjón, 30 lykkjur stroff eins og áður og 27-33-39-45 lykkjur í sléttprjóni.

Þegar stykkið mælist 24-26-28-30 cm mitt að framan er aukið út um 2 lykkjur að framan og að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 10 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni = 208-232-256-280 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-37-39-41 cm frá miðju að framan eru felldar af fyrstu 8-8-10-10 lykkjur eftir prjónamerki við miðju að aftan, prjónið næstu 88-100-108-120 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), prjónið næstu 16-16-20-20 lykkjur og látið þær verða eftir á prjóni (= op), prjónið næstu 88-100-108-120 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), fellið af þær 8-8-10-10 lykkjur sem eftir eru, klippið frá. Prjónið síðan 11-12-13-14 cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-20-20 lykkjurnar á prjóni, fellið af og saumið niður opið við 16-16-20-20 lykkjur sem felldar voru af við miðju að aftan.

HÆGRI SKÁLM:
Setjið 88-100-108-120 lykkjur af þræði í hægri hlið á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 24-28-32-32 lykkjur meðfram annarri hliðinni á opi = 112-128-140-152 lykkjur. Prjónið síðan stroff yfir 30 lykkjur á hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið svona þar til skálmin mælist 3 cm. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 2,5 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur, passið uppá að stroffið haldi áfram eins og áður yfir 30 lykkjur í hlið. Prjónið stroff í 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI SKÁLM:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið eins og fyrri skálm.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Why Not

Sabrina Dietrich, Germany

182-13 Why Not

Sofie, Denmark

Ull bukse

Ann-Bjørg, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Ann-Sofie wrote:

Jag undrar vilka mått i cm som storlekarna motsvarar (höftmått och ben)

10.03.2024 - 13:40

DROPS Design answered:

Hei Ann-Sofie. Her er det ikke oppgitt noen cm mål ettersom denne shortsen har vrangbord i siden = den er elastisk. Her bør man strikke den str. man vanligvis bruker. Om du ønsker cm mål kan du regne det ut fra den oppgitte strikkefastheten og finne ut hva partiene i glattstrikk vil måle. mvh DROPS Design

18.03.2024 - 11:54

country flag Marita Orvik Larsen wrote:

Hei! Har dere noen mål på de ulike størrelsene på denne oppskriften? Ser det står oppgitt mål på andre bukser, men ikke på denne.

23.02.2024 - 08:13

DROPS Design answered:

Hei Marita. På denne oppsrkiften har vi dessverre ikke cm mål på. Men siden den har vrangbord i sidene er den tøyelig, så strikk den størrelsen du vanligvis bruker. mvh DROPS Design

26.02.2024 - 14:32

country flag Marita Orvik Larsen wrote:

Jeg kan ikke se at det står oppgitt ca hvilke mål (hoftemål) som er beregnet på hver størrelse. Det står oppgitt på de andre strikkebuksene/shortsene, men ikke denne. Hadde vært fint å hatt det da det gir en viss pekepinn på hvordan den er i størrelsen.

19.02.2024 - 09:09

country flag Insa wrote:

Ist das richtig, dass für die Erhöhung 'German Short rows' bzw verkürzte Reihen gestrickt werden?

21.01.2024 - 11:39

DROPS Design answered:

Liebe Insa, die verkürzten Reihen könnnen nach "German short rows" technique gestrickt werden, sonnst können Sie auch sie wie in diesem Video stricken. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2024 - 10:01

country flag Chloe wrote:

Is there an English pattern or tutorial available for the shorts? I dont understand the language used in the site so its hard to navigate it.

25.12.2023 - 09:42

DROPS Design answered:

Dear Chloe, sure, just click on the scroll down menu below the picture to edit language. Happy knitting!

02.01.2024 - 08:23

country flag Brigitte St-Amour wrote:

Hello! When working the levation at the back, I'm not sure how many times I have to turn to get to 122 sts. I don't quite understand how to count to make sure I've made the correct amount of short rows. Thanks for your help!

03.12.2023 - 16:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs St-Amour, you will work a total of 12 rows for the elevation: 6 rows from RS and 6 rows from WS, 1st row: work 11 sts, 2nd row: work 22 sts, 3rd row: work 32 sts (10 more sts), 4th row: work 42 sts; and so on until you have worked 122 sts (last row is worked from WS), turn and work to mid back and continue in the round. Happy knitting!

04.12.2023 - 08:22

country flag Brigitte St-Amour wrote:

Bonjour, J'aimerais savoir comment choisir la taille? Il est indiqué plusieurs tailles, mais pas de mesures pour la taille ou les hanches par exemple. Merci !

17.11.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme St-Amour, utilisez la taille habituelle, les côtes sur les côtés donnent un côté élastique au short. Vous pouvez également vérifier la largeur totale des hanches en divisant le nombre de mailles par la tension, soit après les augmentations (208-232-256-280) et une tension de 2,4 soit environ 87-97-107-117 cm avant la division. Bon tricot!

20.11.2023 - 09:28

country flag Evgeniya Belenkaya wrote:

Hello! I'm not good at knitting. So I have a question at the very beggining) Do I need one more stitch for joining the circle? I mean 168+1. Or I just continue knitting and 168 stitches are the total amount?

25.09.2023 - 14:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Belenkaya, in 1st size, cast on 168 sts, join in the round and continue working over the 168 sts as explained for the size XS. Happy knitting!

25.09.2023 - 15:43

country flag Åshild Vari wrote:

Hei, jeg er litt usikker på om jeg har gjort noe feil i forhøyningen bak. Foran måler den nå 6cm og bak 7,5cm. er dette riktig? mvh Åshild

30.03.2023 - 10:51

DROPS Design answered:

Hej Åshild, jo men det lyder rigtigt :)

13.04.2023 - 10:16

country flag Annci Rüdh Lagerman wrote:

Min dotter önskar komplettera shortsen med en snodd i midjan. Är det lämpligt att göra hålvarv till snodden efter att man stickat förhöjningen bak?

22.04.2022 - 14:43

DROPS Design answered:

Hei Annci. Siden vi ikke har det på vår modell/shorts, kan vi ikke si 100% sikkert på hvordan det vil bli. Bare pass på at om det lages en hullrad at den blir jevn i forholde til forhøyningen. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 09:32