DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Burning Leaves

Prjónað sjal úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni.

DROPS 204-3
DROPS Design: Mynstur ks-153
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 45 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 184 cm.

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 33, ryð

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓNS LYKKJA:
Klukkuprjóns lykkja er lykkja með tilheyrandi uppslætti sem lykkjan er prjónuð saman við – uppslátturinn er þar með ekki talinn sem eigin lykkja. ATH! Í umferð með útaukningu, er ekki neinn uppsláttur um lykkjurnar sem auknar eru út. Það þýðir að þessar lykkjur eru prjónaðar einar og sér – án uppsláttar.

AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR:
Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var yfir á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri).

AUKIÐ UT UM 4 LYKKJUR:
* Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var yfir á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið.

UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið.
Prjónið 1 kantlykkju slétt, færið til baka lykkjuna yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar (þetta er gert til að kanturinn verði ekki of stífur).

UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju slétt, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 4 LYKKJUR í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt, færið til baka lykkjuna á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar (= alls 8 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 3 (= frá röngu): Sjá KLUKKUPRJÓNS LYKKJA í útskýringu að ofan. Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið.
Prjónið 1 kantlykkju slétt, færið til baka lykkjuna yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar.

UMFERÐ 4 (frá réttu):
Prjónið 1 kantlykkju slétt, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt, færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar (= alls 4 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 kantlykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt, setjið til baka lykkjuna yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar.

UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju slétt, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt, setjið til baka lykkjuna yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar (= alls 4 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 kantlykkju slétt, setjið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

UMFERÐ 8 (= rétta):
Prjónið 1 kantlykkju slétt, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju – sjá útskýringu að ofan, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 4 LYKKJUR í næstu lykkju (= miðju lykkja), prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 LYKKJUR í næstu lykkju. Prjónið 1 kantlykkju slétt, setjið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón og prjónið kantlykkjuna slétt einu sinni til viðbótar (= alls 8 lykkjur fleiri).

Endurtakið umferð 3-8 þar til stykkið mælist ca 45 cm við miðju að framan.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur, á að fella uppsláttin af eins og eigin lykkja (það verður þá 1 lykkja + 1 lykkja með uppslætti að 3 lykkjum þegar fellt er af). Ef kanturinn verður enn of stífur, er hægt að fella af með grófari prjónum. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Marit wrote:

Skal man felle av fra retten eller vrangen? Har det stor betydning?

01.03.2024 - 00:14

DROPS Design answered:

Hei Marit, Det er det samme om du feller av fra retten eller vrangen. God fornøyelse!

01.03.2024 - 08:12

country flag Ana María wrote:

Sigo esta página hace mucho tiempo, logrando excelentes resultados. En este modelo las instrucciones de las filas 3, 5, 7, están con error, el video muestra realmente como debe hacerse. Debí hacer la muestra, por el video, lo logré con bastante dificultad. Gracias.

21.02.2023 - 20:13

country flag Marit Bøe wrote:

Kan dere lage et diagram til mønsteret? Det er så mye lettere å forstå og mer oversiktlig enn en liste med pinner/omganger. Orker ikke så mye tekst (eller videoer)...

17.02.2023 - 12:34

DROPS Design answered:

Hej, vi har lavet en video som passer specifikt til dette sjal - du finder den nederst i opskriften :)

23.02.2023 - 14:58

country flag BESSON Jacques wrote:

Bonjour, Impossible d'imprimer les explications de ce modèle ! Pourriez-vous y remédier. Merci. Cordialement.

01.03.2022 - 15:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mr Besson, nous avons pu imprimer les explications de ce modèle sans aucun souci, essayez d'actualiser votre page, de vider le cache/les cookies ou essayez avec un autre navigateur, ça devrait fonctionner. Bon tricot!

01.03.2022 - 16:37

country flag Ashling wrote:

Hej Drops ! Jeg har problemer med opskriften når jeg kommer til pind 3 i mønsteret : der hvor jeg skal gentage mønsteret fra * til * for anden gang, går det galt - der hvor jeg skal tage en m løs af, er der en m med omslag - og den skal jo ikke tages løs af ? Uanset hvad jeg gør kan jeg ikke få p 3 til at passe …. Skal der slet ikke strikkes nogen vrang masker i denne type patent mønster ? Mange venlige hilsner, Ashling.

01.01.2022 - 23:12

DROPS Design answered:

Hej Ashling, jo den du tager løst af lige efter omslaget, tager du af som en vrangmaske, på næste pind er det den du strikker ret (sammen med omslaget). Se også gerne videoen som viser hvordan man gør :)

05.01.2022 - 08:44

country flag Rita wrote:

Buon giorno è possibile sapere le misure finali dello scialle? Se non ho letto male la lunghezza è circa 45 cm ma la larghezza? Grazie

24.09.2021 - 14:04

DROPS Design answered:

Buonasera Rita, lo scialle è largo 184 cm nella parte più alta. Buon lavoro!

26.09.2021 - 21:13

country flag Mary wrote:

Grazie per la risposta. Avrei un'altra domanda: i primi 8 ferri vengono ripetuti fino alla misura indicata. Ma nel ferro 2 gli aumenti saranno solo sempre 8 (seconda maglia, maglia centrale, penultima maglia)? Grazie, sono inesperta.

21.01.2021 - 16:47

DROPS Design answered:

Buonasera Mary, i ferri dal 3 all'8 vengono ripetuti, non tutti i ferri. Buon lavoro!

21.01.2021 - 19:55

country flag Mary wrote:

Nel ferro 2, dopo l'aumento di 4 maglie, mi restano più maglie (nel ferro di sinistra) di quelle che indicate di lavorare. Eppure il primo ferro è corretto e provo e riprovo, seguendo la spiegazione, ma il risultato è sempre lo stesso. Ho cominciato con 7 maglie + 2 di vivagno. Grazie.

19.01.2021 - 20:14

DROPS Design answered:

Buongiorno Mary, deve avviare solo 7 maglie, non 7+2. Buon lavoro!

19.01.2021 - 22:57

country flag Iolanda wrote:

Buona giornata Volevo sapere quando c'è scritto - ripetere i ferri 3 - 8 vuol dire solo questi due ferri oppure dal 3 al ferro 8? Quindi 3/4/5/6 7/8 grazie ❤️

29.11.2019 - 08:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Iolanda. Quando trova indicato: ripetere i ferri 3-8, deve ripetere tutti i ferri dal 3 all'8 (quindi 3-4-5-6-7-8). Buon lavoro!

29.11.2019 - 09:17

country flag Cathy Meikle wrote:

How many stitches to start with

22.08.2019 - 15:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meikle, cast on 7 stitches with 2 strand Kid-Silk, then work as explained in pattern: Purl 1 row and start working with ROW 1 (= from wrong side). Happy knitting!

23.08.2019 - 09:38