DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Beach Ballet

Heklaður vafnings toppur úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum og sólfjöðrum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-47
DROPS Design: Mynstur vs-049
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-400-400 g litur 03, ljós beige

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti stuðull í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul.
Aukið út um 2 lykkjur með því að hekla eins og útskýrt er í A.4 á hægra framstykki/A.5 á vinstra framstykki – ATH: Fyrsti tvíbrugðni stuðull í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 4 loftlykkjur.

ÚRTAKA (á við um hliðar):
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7 (A.6 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).

ÚTAUKNING / ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga / úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 17.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að hekla 16. og 17. hverja lykkju saman. Ef auka á út eru heklaðir 2 stuðlar í 17. hvern stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður.
Stykkin eru saumuð saman, síðan er heklaður sólfjaðrakantur í neðri kanti. Ermar eru heklaðar fram og til baka ofan frá og niður að handveg, síðan er heklað í hring. Lítill skrautkantur er heklaður meðfram framstykkjum og bakstykki / hálsmáli. Toppurinn er hnýttur eins og vafningstoppur með því að hægra framstykkið liggur yfir vinstra framstykkið og er hnýttur saman í mitti.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 21-22-22-25-24-25 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5-6-6-3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 17-18-18-20-19-20 stuðlar. Heklið alls 6-7-8-6-7-6 umferðir með 1 stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Aukið síðan út fyrir hálsmáli og handveg, aukið er út samtímis, þ.e.a.s. aukið út þannig:
HÁLSMÁL:
Í næstu umferð (= frá réttu) byrjar útaukning fyrir hálsmáli í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1 stuðul alls 2-3-3-0-1-1 sinnum, síðan er aukið út (eins og útskýrt er í A.4) alls 19-19-20-26-26-29 sinnum (= alls 40-41-43-52-53-59 fleiri stuðlar fyrir hálsmáli).
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 16-16-16-17-16-14 cm byrjar útaukning fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 stuðul 0-1-1-1-0-1 sinni, síðan er aukið út um 2 lykkjur 0-1-2-3-5-7 sinnum. Í lok fyrstu umferðar frá röngu eru heklaðar 5-5-6-7-8-8 lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) fyrir handveg (= alls 3-6-9-12-16-21 stuðlar fleiri fyrir handveg meðtaldar fyrstu útaukningar). Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-2-3-4-4 loftlykkjum og heklið síðan út umferð eins og áður.
Í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul í hlið (þ.e.a.s. að handveg) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum (= alls 4 stuðlar færri), útaukning við háls heldur áfram eins og áður. Þegar öll úrtaka (að hlið) og útaukning (fyrir hálsmáli og handveg) hefur verið gerð, eru 56-61-66-80-84-96 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 30-32-34-36-38-40 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 21-22-22-25-24-25 loftlykkjur með heklunál 4 með Belle. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5-6-6-3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 17-18-18-20-19-20 stuðlar. Heklið alls 6-7-8-6-7-6 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Aukið síðan út fyrir hálsmáli og handveg, aukið út samtímis, þ.e.a.s. aukið út þannig:
HÁLSMÁL:
Í næstu umferð (= frá réttu) byrjar útaukning fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1 stuðul alls 2-3-3-0-1-1 sinnum, síðan er aukið út um 2 lykkjur (eins og útskýrt er í A.5) alls 19-19-20-26-26-29 sinnum (= alls 40-41-43-52-53-59 fleiri stuðlar fyrir hálsmáli).
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 16-16-16-17-16-14 cm byrjar útaukning fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 stuðul 0-1-1-1-0-1 sinni, síðan er aukið út um 2 lykkjur 0-1-2-3-5-7 sinnum. Í lok fyrstu umferðar frá réttu eru heklaðar 5-5-6-7-8-8 lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) fyrir handveg (= alls 3-6-9-12-16-21 stuðlar fleiri fyrir handveg meðtaldar fyrstu útaukningar). Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-2-3-4-4 loftlykkjum og heklið síðan út umferð eins og áður.
Í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul í hlið (þ.e.a.s. að handveg) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum (= alls 4 stuðlar færri), útaukning við háls heldur áfram eins og áður. Þegar öll úrtaka (að hlið) og útaukning (fyrir hálsmáli og handveg) hefur verið gerð, eru 56-61-66-80-84-96 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 30-32-34-36-38-40 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 21-22-22-25-24-25 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Snúið stykkinu, fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5-6-6-3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 17-18-18-20-19-20 stuðlar.
Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar.

VINSTRI ÖXL:
Heklið 21-22-22-25-24-25 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Snúið stykkinu, fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5-6-6-3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 17-18-18-20-19-20 stuðlar. Næsta umferð (frá réttu) heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 2 stuðla í síðasta stuðul (= við hálsmál) = 18-19-19-21-20-21 stuðlar á vinstri övl. Eftir það eru heklaðar laust 30-30-32-32-34-34 loftlykkjur fyrir hálsmáli. Takið fram hægri öxl, byrjið frá réttu og heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, eftir það er heklaður 1 stuðull í hvern af næstu 16-17-17-19-18-19 stuðlum (= 18-19-19-21-20-21 stuðlar á hægri öxl).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið á vinstri öxl (frá röngu) og heklið 1 stuðul í hvern af 18-19-19-21-20-21 stuðlum, heklið 1 stuðul í hverja af 30-30-32-32-34-34 loftlykkjum í hálsmáli, heklið 1 stuðul í hvern af 18-19-19-21-20-21 stuðlum á hægri öxl = 66-68-70-72-74-76 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 16-16-16-17-16-14 cm. Nú byrjar útaukning fyrir handveg í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 stuðul 0-1-1-1-0-1 sinnum, síðan er aukið út um 2 stuðla 0-1-2-3-5-7 sinnum = 66-74-80-86-94-106 stuðlar. Klippið frá.
Heklið næstu umferð þannig: Heklið 3-3-4-5-6-6 lausar loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og endið með 5-5-6-7-8-8 lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) fyrir handveg = 72-80-88-96-106-118 lykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-2-3-4-4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og heklið 1 stuðul í hverja af 3-3-4-5-6-6 síðustu loftlykkjum = 72-80-88-96-106-118 stuðlar.
Í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul hvoru megin á stykki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 64-72-80-88-98-110 stuðlar. Heklið áfram þar til heklaðar hafa verið jafn margar umferðir og á framstykki, þ.e.a.s. stykkið mælist ca 30-32-34-36-38-40 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

SÓLFJAÐRAKANTUR (neðri kantur):
= 176-194-212-248-266-302 stuðlar í síðustu umferð (alls framstykki og bakstykki).
Byrjið á hægra framstykki frá röngu og heklið þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 4 stuðlana, heklið A.2 þar til 1 stuðull er eftir (= 19-21-23-27-29-33 mynstureiningar yfir 9 stuðla), endið með A.3 yfir síðasta stuðul. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda.

SKRAUTKANTUR (meðfram framstykki og bakstykki/hálsmáli):
Byrjið neðst niðri í horni á hægra framstykki frá réttu og festið enda með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Heklið 1 fastalykkju um fyrstu umferð, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu framstykkinu, meðfram hálsmáli að aftan og niður meðfram vinstra framstykki, endið í horni. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð ofan frá og niður. Byrjað er með ermakúpu.
Heklið 42-48-44-45-42-46 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með DROPS Belle. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-1-4-5-2-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 34-39-36-37-34-38 stuðlar. Í næstu umferð er aukið út um 2 stuðla í hvorri hlið á stykki (hér er aukið út um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla í sama stuðul). Aukið svona út alls 7-7-8-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 62-67-68-69-70-74 stuðlar. Klippið frá.
Heklið 3-3-4-5-6-6 lausar loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hvern af 62-67-68-69-70-74 stuðlum og endið með 3-3-4-5-6-6 lausar loftlykkjur fyrir handveg, tengið stykkið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 68-73-76-79-82-86 lykkjur.
Heklið nú í hring þannig: Heklið A.6 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), endurtakið A.7 umferðina hringinn (= 7-8-8-9-9-10 mynstureiningar yfir 9 stuðla) – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út með því að auka/fækka til 64-73-73-82-82-91 stuðla – sjá ÚTAUKNING / ÚRTAKA. Haldið svona áfram þar til A.6 og A.7 hefur verið heklað til loka. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 6 metra með DROPS Belle. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalda og þá koma þeir til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Hnýtið niður í annan endann á horninu á hægra framstykki. Gerið aðra snúru til viðbótar á sama hátt og festið í hornið á vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.06.2019
Leiðrétting - VINSTRA FRAMSTYKKI: HANDVEGUR:.. heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 1-1-2-3-4-4 loftlykkjum og heklið síðan út umferð eins og áður.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á bakstykki.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið við ör. Í A4/A.5 er byrjað í næstu umferð.
symbols = byrjið hér
symbols = loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju
symbols = umferð byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferð byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Beach Ballet in DROPS Belle

knitknit_pl, Norway

Beach Ballet

Softstopshop, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Claire wrote:

I don't understand this pattern at all. I thought it was my inexperience using diagrams but the diagram lesson doesn't even fit. i.e. why is a circle fraction used when I'm not working a circle, nor am I I repeating the fraction. Perhaps consider writing the pattern out.

20.04.2024 - 17:44

DROPS Design answered:

DearClaire, we use (mostly) diagrams not only because our patterns are available in many languages, but also we believe that with diagrams you can also see the "bigger picture" in other words, not only the very next step (stitch) but also how rows and stitches relate to each other. A.1 /A.2 pattern is not a "circle fraction" but stitches at the beginning/end of a row, with increases. Happy Crafting!

20.04.2024 - 22:54

country flag HERMAND Carine wrote:

Bonjour\\r\\nMerci pour votre réponse rapide\\r\\nPour les augmentations A4 et A5 le diagramme montre des doubles brides et vous indiquez dans les explications simples brides\\r\\nDoit on faire double bride ou simple bride ?\\r\\n\\r\\nMerci pour votre réponse\\r\\n\\r\\nCordialement\\r\\n\\r\\nCarine HERMAND

08.04.2024 - 14:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hermand, quand vous augmentez 1 maille, vous augmentez 1 bride en crochetant 2 brides dans la même bride du rang précédent, quand vous augmentez 2 brides, crochetez les augmentations comme indiqué par A.4 et A.5 (= double-brides). Bon crochet!

08.04.2024 - 15:39

country flag Hermand Carine wrote:

Je ne comprends pas L'ouvrage mesure environ 19-20-21-22-23-24 cm. Tourner et crocheter 1 bride dans la 4ème maille en l'air à partir du crochet (= 2 brides), 1 bride dans chacune des 1-1-2-3-4-4 mailles en l'air suivantes et crocheter jusqu'à la fin du rang comme avant.

07.04.2024 - 20:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hermand, vous avez monté 5 à 8 mailles en l'air (cf taille) à la fin du rang suivant, on explique ici comment crocheter ces nouvelles mailles en l'air: commencez par 1 bride dans la 4ème maille en l'air à partir du crochet (les 3 ml = 1ère bride), puis crochetez 1 bride dans chacune des mailles en l'air restantes et terminez le rang comme avant. Bon crochet!

08.04.2024 - 09:12

country flag Georgina wrote:

Apologies if this has already been answered in a previous post. With the neck increases at the beginning, it says to do on the end of the row, then 2 increases as following A4. Are the increases then only still to be done at the end of the row? And the diagram shows the end of the rows only omitting to show the beginning of each row? I see the incerases taking place around the ch1 space but then there's no example of a ch3/ch4 after each turn? Thanks, Georgina

26.02.2024 - 23:52

DROPS Design answered:

Dear Georgina, the first increase for neck is worked at the end of the row from right side on right front piece, but you will now increase on every row, this means at the beg of every row from wrong side just as shown in diagram A.4. See INCREASE TIP at the beg of the written pattern. Happy knitting!

27.02.2024 - 08:15

country flag Anna wrote:

Trots att jag har stor erfarenhet av virkning så är det här mönstret supper förvirrande och när jag läser de andra kommentarna så är jag inte den ända så ni kanske ska se över mönstret och se hur de kan bli mer lätt att förstå

05.09.2023 - 22:24

country flag Iridesca wrote:

Bonjour, En français il est dit de faire des brides, et en a anglais le mot employé est « treble », qui sont des doubles brides. Quel est la version « juste » ? Pour le dos, il est demandé au 2e rang de l’épaule d’augmenter en début de rang pour l’encolure, puis de faire 30 mailles en l’air en fin de rang pour l’encolure. Mais l’encolure ne peut pas être en début ET en fin de rang. Est-ce une erreur ? Merci

09.07.2023 - 19:11

DROPS Design answered:

Bonjour, dans ce top on utilise des brides (treble crochet en anglais) et des doubles brides (double treble crochet en anglais). Les mailles en air devrait etre crochetees a la fin de l'epaule gauche du dos ('...ne pas oublier INFO CROCHET et crocheter 2 brides dans la dernière bride (= côté encolure) = 18-19-19-21-20-21 brides. Crocheter ensuite souplement 30-30-32-32-34-34 mailles en l'air pour l'encolure et joindre avec 1 maille coulée dans la dernière bride de l’épaule droite'...). Bon crochet!

25.07.2023 - 16:19

country flag Emily wrote:

Hoi, wat wordt er juist bedoeld met 1 stokje in de zijkant minderen (richting het armsgat)? Minder ik dan een stokje op het einde van de toer langs de kant van het armsgat? In het geval van maat M heb ik 6 stokjes gemeerderd voor het armsgat op 3 toeren, klopt dat? Dan begin ik al op de volgende toer richting het armsgat te minderen, klopt dat ook? Of moet ik nog steeds, terwijl ik minder in de zijkant, nog steeds blijven meerdere in het armsgat? Maar met hoeveel dan? Ik begrijp er niets van.

01.07.2023 - 13:35

DROPS Design answered:

Dag Emily,

Dit minderen is in de zijnaad, dus zeg maar onder de oksel, aan de kant waar je eerst meerderde voor het armsgat. Pas als het meerderen voor het armsgat klaar is, minder je aan de zijkant. Bovenaan bij 'tip voor het minderen' staat beschreven hoe je dit kunt doen.

06.07.2023 - 21:16

country flag Lieke wrote:

Right shoulder: On the next row work 2 double crochets in the first double crochet (towards the neck) and 1 double crochet in each of the remaining double crochets = 18-19-19-21-20-21 double crochets. Then work 30-30-32-32-34-34 loose chain stitches for the neck and 1 slip stitch in the last double crochet on the left shoulder. Cut and fasten the strand. --------> This seems incorrect, it sais both sides should be the neck side?

28.06.2023 - 10:59

DROPS Design answered:

Dear Lieke, at the end of right shoulder, after you have worked the icnrease for neck, just chain the number of stitches for your size (it's for the neck on back piece) and join together with 1 slip stitch in the last dc worked towards neck on left shoulder, cut the yarn. Both shoulders are now joined together with a chain inbetween. You now work back piece starting with left shoulder. Happy crocheting!

28.06.2023 - 12:18

country flag Lieke wrote:

Hoi! Ik snap het gedeelte bij de armhole niet. Eerst moet je 5 chains maken inclusief 3 om te draaien. Betekent dat dat je 5+3 moet maken of dat de 3 dus inderdaad inclusief zitten. Hierna moet je bij de 20 cm eerst je werk draaien en dan in de 4e chain verder haken. Moet je dan eerst chain 3 doen voor het draaistuk? Daarna moet ik nog een 1 chain verder haken. Welke moet ik dan insteken, is dat een van de chain 5 uit de vorige rij?

28.06.2023 - 10:00

DROPS Design answered:

Dag Lieke,

Van de 5 lossen zijn er 3 om het werk mee te keren, na het keren haak je in de andere twee lossen, hierdoor heb je 3 stokjes gemeerderd (de eerste 3 lossen vervangen het eerste stokje). Bij 20 cm haak je inderdaad eerst 3 lossen om het werk te keren. In tip voor het meerderen (bovenaan) staat dat het eerste dubbele stokje vervangen wordt door 4 lossen. Op 20 cm haakje nadat je 4 lossen hebt gehaakt om mee te keren, een stokje in de 4e lossen.

29.06.2023 - 21:30

country flag Sara Gustafsson wrote:

Hej igen! Jag virkar storlek M och förstår inte hur jag ska öka för ärmhålet.

23.05.2023 - 21:36

DROPS Design answered:

Hej, Du ökar mot ärmhålet när arbetet mäter 16 cm. Börja med 1 stolpe 1 gång (2 st i sista stolpen), sedan nästa gång du kommer till ärmhålet ökas det 2 maskor 1 gång (2 st i sista 2 st). Nu virkas det 5 lösa lm i slutet av nästa varvet från avigsidan (inklusive 3 luftmaskor att vända med) till ärmhål. Arbetet mäter ca 20 cm. Vänd och virka 1 stolpe i 4:e luftmaskan från nålen (= 2 stolpar), virka 1 stolpe i nästa luftmaska, och virka sedan varvet ut som förut.

24.05.2023 - 11:02