DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Victoria's Twirl

Prjónuð síð, aðsniðin peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-8
DROPS Design: Mynstur cm-102
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-800-850-950-1050-1150 g litur 03, beige

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir kanta.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-8-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Hægra framstykki: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3 og A.12.
Vinstra framstykki: Sjá mynsturteikningu A.4, A.5, A.6 og A.13.
Bakstykki: Sjá mynsturteikningu A.7 til A.13.
Ermi: Sjá mynsturteikningu A.14 til A.16.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR FYRIR MYNSTURTEIKNINGU:
Þessi uppskrift er með margar mynsturteikningar. Það getur verið gott að setja hring utan um mynsturteikningu sem tilheyrir þinni stærð, þá næð þú að halda betur utan um mynstrið þegar þú prjónar. Annað gott ráð er að klippa út þá mynsturteikningu sem tilheyrir þinni stærð og safna þeim saman í flokka fyrir framstykki, vinstra framstykki, bakstykki o.s.frv. (sjá skiptingu í kaflanum MYNSTUR).

LEIÐBEININGAR:
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í framstykki og bakstykki er miðaður út frá því að það eru 3 lykkjur í litlu köðlunum, en passið uppá að lykkjufjöldinn í litlu köðlunum skiptist frá 3 og 2 lykkjum alla leið til loka á stykkinu og þetta kemur til með að hafa áhrif á lykkjufjölda í umferð.
Á ermum er miðað við að það eru 2 lykkjur í kaðli þar sem A.15 byrjar með 2 lykkjum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 6-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 9-8-8½-8½-7½-8 cm millibili.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt).
Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur þannig: Þær 3-3-3-4-5-5 fyrstu lykkjurnar eru prjónaðar brugðið frá réttu/slétt frá röngu, þær 4-8-8-8-8-8 næstu lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.12 (á hægra framstykki og í hægri hlið á stykki á bakstykki) eða A.13 (á vinstra framstykki og í vinstri hlið á stykki á bakstykki), þær 0-0-0-4-6-12 næstu lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu/slétt frá röngu, síðan er endað með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.

ÚRTAKA FRAMSTYKKI (á við um úrtöku í brugðnum einingum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Þegar lykkjum er fækkað jafnt yfir í brugðnum einingum, fækkið þá lykkjum í annarri hverri brugðinni einingu, það á ekki að fækka lykkjum í öllum brugðnu einingum í umferð.
Hoppið yfir brugðnu eininguna næst kanti, fellið af 1 lykkju í næstu einingu með brugðnu einingu.
Í næsta skipti sem lykkjum er fækkað, hoppið yfir brugðnu eininguna næst kanti, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, fellið af 1 lykkju í næstu brugðnu einingu, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, fellið af 1 lykkju í næstu brugðnu einingu.
Fækkið um 1 lykkju í brugðinni einingu með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman. ATH: Það er fallegast ef þú fækkar lykkjum til skiptis í byrjun og í lok á brugðinni einingu (ekki mitt í).

ÚRTAKA BAKSTYKKI (á við um úrtöku í brugðnum einingum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Þegar fækka á lykkjum jafnt yfir í brugðnum einingum, er lykkjum fækkað í annarri hverri brugðinni einingu, en lykkjum er ekki fækkað í öllum brugðnum einingum í umferð.
Teljið frá miðju lykkju í umferð til að áætla hvar úrtakan eigi að byrja. Fækka á um 1 lykkju í brugðinni einingu hvoru megin við miðju lykkjuna, hoppið yfir næstu brugðnu einingu í hvorri hlið, fækkið um 1 lykkju í næstu brugðnu einingu í hvorri hlið.
Í næsta skipti þegar fækka á lykkjum, hoppið yfir brugðnu eininguna hvoru megin við miðju lykkjuna, fækkið um 1 lykkju í næstu brugðnu einingu í hvorri hlið, hoppið yfir næstu brugðnu einingu í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju í næstu brugðnu einingu í hvorri hlið.
Fækkið um 1 lykkju í brugðinni einingu með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman. ATH: Það er fallegast ef þú fækkar lykkjum til skiptis í byrjun og í lok á brugðinni einingu (ekki mitt í).

ÚTAUKNING FRAMSTYKKI (á við um útaukningu í brugðnum einingum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Þegar aukið er út jafnt yfir í brugðnum einingum, aukið út í annarri hverri brugðinni einingu, en ekki er aukið út í öllum brugðnum einingum í umferð:
Aukið því fyrst út í brugðinni einingu næst kanti að framan, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, aukið út 1 lykkju í næstu brugðnu einingu.
Í næsta skipti þegar auka á út, hoppið yfir brugðnu eininguna næst kanti að framan, aukið út 1 lykkju í næstu brugðnu einingu, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, aukið út 1 lykkju í næstu brugðnu einingu.
Aukið út 1 lykkju í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðnar frá réttu/slétt frá röngu.
ATH: Það er fallegast ef þú eykur út lykkjur til skiptis í byrjun og í lok á brugðinni einingu (ekki mitt í).

ÚTAUKNING BAKSTYKKI (á við um útaukningu í brugðnum einingum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Þegar auka á út jafnt yfir í brugðnum einingum, aukið út í annarri hverri brugðinni einingu yfir miðju 14 brugðnum einingum í umferð.
Teljið miðju 14 brugðnu einingarnar og setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja hvar útaukningin á að byrja og enda. Í fyrsta skipti er aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir, aukið er út um 1 lykkju í fyrstu brugðnu eininguna, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, aukið út 1 lykkju í næsta brugðnu einingu o.s.frv. þar til aukið hefur verið út um 7 lykkjur. Í næsta skipti sem auka á út, hoppið yfir fyrstu brugðnu eininguna, aukið út 1 lykkju í næstu brugðnu einingu, hoppið yfir næstu brugðnu einingu, aukið út 1 lykkju í næstu brugðnu einingu o.s.frv. þar til aukið hefur verið út um 7 lykkjur.
Aukið út um 1 lykkju í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðnar frá réttu/slétt frá röngu.
ATH: Það er fallegast ef þú eykur út til skiptis í byrjun og í lok á brugðinni einingu (ekki mitt í).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.15 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.15, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið A.15 (= 2/3 lykkjur), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, ofan frá og niður.
Byrjið með hægra framstykki, þ.e.a.s. prjónið hægir öxl, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og aukið út fyrir handveg. Fækkið síðan lykkjum og aukið út í brugðnu einingunum til að fá aðsniðið form.
Vinstra framstykki er prjónað alveg eins, nema spegilmynd. Bakstykki er prjónað alveg eins, þ.e.a.s. prjónið hægri öxl, prjónið vinstri öxl, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið og fækkið lykkjum og aukið í brugðnu einingunum til að fá aðsniðið form.
Ermakúpan á ermum er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður, síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman í lokin og prjónaður er kantur í hálsi.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 21-21-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 (1. umferð = rétta). JAFNFRAMT er aukið út fyrir hálsmáli þannig: Í 7.-7.-5.-5.-5.-5. hverri umferð í A.1 byrjar útaukning fyrir hálsmáli, þ.e.a.s. fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig:
Fitjið upp 1 lykkju alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og 2 lykkjur alls 3 sinnum = 31-31-33-33-35-35 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR! Nýjar lykkjur eru prjónaðar eins og mynsturteikning sýnir. Síðan: Í 19. umferð í A.1 eru fitjaðar upp 15-15-17-17-18-18 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu = 46-46-50-50-53-53 lykkjur. Þessar 15-15-17-17-18-18 lykkjur eru prjónaðar brugðnar í næstu umferð, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og síðasta umferð í A.1.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 27-27-28-28-30-30 lykkjur), prjónið A.3 (= 14-14-17-17-18-18 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 15-14-15-13-14-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg – sjá ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG (útaukningar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG).
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-8-8-11-12-16 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 54-58-62-67-73-79 lykkjur.
Þegar síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp fyrir handveg, mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð í hlið.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA FRAMSTYKKI. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 7 cm frá prjónamerki = 50-54-58-63-69-75 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING FRAMSTYKKI. Þegar stykkið mælist 14½ cm frá prjónamerki, er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir. Haldið svona áfram með útaukningu til skipist 3 og 4 lykkjur með 4½ cm millibili alls 10 sinnum (aukið út til skiptis 3 lykkjur 5 sinnum og 4 lykkjur 5 sinnum) = 85-89-93-98-104-110 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd, þar til 1 cm er til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu! Framstykki mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 21-21-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.4 (1. Umferð = rétta).
JAFNFRAMT er aukið út fyrir hálsmáli þannig: Í 8.-8.-6.-6.-6.-6. hverri umferð í A.4 byrjar útaukning fyrir hálsmáli og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og 2 lykkjur alls 3 sinnum. Nýjar lykkjur eru prjónaðar upp eins og mynsturteikning sýnir.
Síðan: Í síðustu umferð í A.4 (ranga), fitjið upp 15-15-17-17-18-18 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 46-46-50-50-53-53 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5 (= 14-14-17-17-18-18 lykkjur) og prjónið síðan A.6 (= 27-27-28-28-30-30 lykkjur). Sjá LEIÐBEININGAR og haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 15-14-15-13-14-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg – sjá ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG (útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG).
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-8-8-11-12-16 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 54-58-62-67-73-79 lykkjur.
Þegar síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp fyrir handveg, mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í lok umferðar í hlið.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA FRAMSTYKKI! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 7 cm frá prjónamerki = 50-54-58-63-69-75 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING FRAMSTYKKI. Þegar stykkið mælist 14½ cm frá prjónamerki, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir. Haldið svona áfram með útaukningu til skiptis með 3 og 4 lykkjur með 4½ cm millibili alls 10 sinnum (aukið út til skiptis 3 lykkjur 5 sinnum og 4 lykkjur 5 sinnum) = 85-89-93-98-104-110 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd, þar til 1 cm er til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu!
Framstykki mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður.

HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 21-21-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.7 (1. umferð = rétta).
JAFNFRAMT í lok 2. umferðar í A.7 (ranga), fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið A.7 til loka. JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar í A.7 eru fitjaðar upp 33-33-39-39-41-41 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli (mitt aftan í hnakka) = 57-57-64-64-68-68 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl aftan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 21-21-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.8 (1. umferð = rétta).
JAFNFRAMT í lok 3. umferðar í A.8 (rétta), fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið A.8 til loka = 24-24-25-25-27-27 lykkjur. Nú á að setja stykkin saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið inn lykkjur frá hægri og vinstri öxl á sama hringprjón 4 = 81-81-89-89-95-95 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (byrjið á að prjóna yfir lykkjurnar frá vinstri öxl): Prjónið A.9 (= 27-27-28-28-30-30 lykkjur), prjónið A.10 (= 27-27-33-33-35-35 lykkjur), prjónið A.11 (= 27-27-28-28-30-30 lykkjur). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona, en þegar A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina endurtakið mynstureiningar merktar með stjörnu á hæðina.
Þegar stykkið mælist 15-14-15-13-14-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið nú út fyrir handveg í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG (útauknu lykkjurnar eru prjónaðar eins og útskýrt er í ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG).
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-8-8-11-12-16 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 97-105-113-123-135-147 lykkjur.
Þegar síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli í hvorri hlið, mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í lok á umferð í hlið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA BAKSTYKKI. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 7 cm frá prjónamerki = 89-97-105-115-127-139 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING BAKSTYKKI. Aukið svona út með 4½ cm millibili alls 10 sinnum = 159-167-175-185-197-209 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd, þar til 1 cm er til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu! Bakstykki mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón, síðan er ermin prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón til loka.
Fitjið upp 23-27-31-25-31-29 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Merino. Prjónið A.14 fram og til baka, en teljið út frá miðju – miðjulykkja í A.14 á að passa við miðjulykkju í stykki.
JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.14, þannig að það verður ein lykkja í klukkuprjóni með 5 lykkjur brugðið á milli hverra lykkja í klukkuprjóni): Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið, 1 lykkja 5-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 69-75-79-85-91-97 lykkjur.
Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp, setjið lykkjur á sama sokkaprjón eða stuttan hringprjón 4 og prjónað er í hring til loka. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki (steypið yfir lykkju á undan prjónamerki á vinstri prjón), prjónið A.15 yfir miðju 2 lykkjurnar undir ermi, prjónið 9-12-14-11-14-17 lykkjur brugðið, prjónið A.16A yfir næstu 48-48-48-60-60-60 lykkjur (= 8-8-8-10-10-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.16B (= 1 lykkja) og endið með 9-12-14-11-14-17 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið var prjónað saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-9-9-10-10-11 sinnum = 53-57-61-65-71-75 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 45-45-45-43-43-42 cm frá þar sem prjónað var saman (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu).
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn þannig: Haldið áfram A.15 mitt undir ermi, prjónið 1-3-2-1-1-3 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2-4-3-2-2-4 lykkjur á undan A.15, prjónið 1 lykkju slétt og 1-3-2-1-1-3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroff í ca 1½ til 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 56-57-57-57-57-58 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsauma á peysu frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í (ermin er lögð undir kant með garðaprjóni meðfram handveg þannig að kantur í garðaprjóni sjáist og saumað er í ystu lykkjuna meðfram kanti í garðaprjóni). Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 104 til 119 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3 (lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 3 + 2). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 1½ til 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.03.2019
Leiðrétting - BAKSTYKKI:..Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd, þar til 1 cm er til loka).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið eins og í mynsturteikningu (= gat)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan er ekki lengur til, eða hefur verið felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = stingið hægra prjóni í gegnum lykkju frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjum af prjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið síðan fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um þessar 2 lykkjur (= 1 lykkja færri
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið eins og mynsturteikning sýnir (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = 1 mynstureining á hæðina
symbols = miðjulykkja á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Ylva wrote:

Hei! Hva betyr det når det står på høyre forstykke at de neste fem og de neste åtte og de neste tolv maskene skal strikkes? Er de de samme maskene lagt sammen, ellet er det fem, åtte og tolv nye masker etter hverandre?

26.08.2022 - 15:30

DROPS Design answered:

Hei Ylva. Litt usikker på hva du mener med og hvor i oppskriften under HØYRE FORSTYKKE du henvender deg til når du skriver: "....neste fem og de neste åtte og de neste tolv maskene skal strikkes...." Om du mener der det står:" ...totalt 5-8-8-11-12-16 ganger..." Så skal du i str. S øke som forklart i oppskriften på hver 2. pinne (dvs på hver pinne fra retten) totalt 5 ganger. I str. M og L 8 ganger, i str. XL 11 ganger, i str. XXL 12 ganger og i str. XXL 16 ganger. Om det ble feil forklart, send oss gjerne et nytt spørsmål + hvilken str du strikker. mvh DROPS Design

29.08.2022 - 11:25

country flag Josée wrote:

Bonjour,je fais la grandeur large. Au diagramme A2 lorsque nous avons fait les 4 premiers rang . Je ne comprends pas comment terminer le diagramme? J’espère que vous allez pouvoir m’aider. Merci.

04.07.2022 - 01:36

DROPS Design answered:

Bonjour Josée, dans A.2 (notamment) les motifs ne se répètent pas au même rythme, autrement dit, lorsque vous avez tricoté les 4 premiers rangs sur les 19 premières mailles, reprenez au 1er rang et répétez ainsi ces 4 rangs sur ces 19 mailles. En même temps, continuez les 8 dernières mailles jusqu'à ce que les 10 rangs soient terminés et répétez ces 10 rangs sur ces 8 mailles. Bon tricot!

04.07.2022 - 08:30

country flag Pernille wrote:

Skøn trøje! Er det muligt at strikke ærmerne fra vrangen, så jeg undgår at skulle stikke alle de vrangmasker? I bekræftende fald har jeg brug for hjælp til, hvordan jeg strikker mønster masken fra forrige pind korrekt.

04.04.2022 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Pernille, ja det kan du sikkert gøre - prøv at lave en lille strikkeprøve hvor du har mønsteret fra retsiden, så kan du sammenligne med en prøve fra vrangen og se om du får samme mønster :)

05.04.2022 - 08:19

country flag Laetitia LAIR wrote:

Bonjour, Je vous remercie pour votre réponse. Pouvez-vous me préciser les différents diagrammes que l'on retrouve sur les 73 mailles du demi-devant droit après les augmentations des emmanchures. Je suis un peu perdue et que deviennent les 3 mailles au point mousse du côté emmanchure ? Merci d'avance.

16.10.2021 - 18:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lair, en XXL voustricotez ainsi les 73 m (vu sur l'endroit) du devant droit: 1 m lis au point mousse, 6 m jersey envers, A.12 (= 8 m), 5 m jersey envers (= 1+6+8+5= 20 soit 12 x 1 m augmentées + 8 m montées), A.2 (= 30 m), A.3 (= 18 m), 5 m de bordure devant = 1+6+8+5+30+18+5=73. Bon tricot!

18.10.2021 - 08:54

country flag Laetitia LAIR wrote:

Bonjour, Je tricote la taille XXL. J'ai fait les augmentations des emmanchures et monter les 8 mailles à la fin du rang envers. J'ai tricoté à l'envers sur l'endroit les 5 premières augmentations , en A12 les 8 augmentations suivantes et 6mailles à l'envers sur l'endroit et 1 maille lisière. Que devient les 3 mailles au point mousse ? On continue de continuer ces 3 mailles au point mousse jusqu'à la fin de l'ouvrage ? Merci d'avance pour votre réponse.

13.10.2021 - 16:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lair, quand toutes les mailles ont été montées, vous continuez comme avant (avec les différents diagrammes, les mailles endroit et les mailles envers comme avant) avec 5 mailles de bordure point mousse pour la bordure devant et 1 maille lisière au point mousse sur le côté. Bon tricot!

14.10.2021 - 09:16

country flag Kattis wrote:

Jag ska öka till höger ärmhål och har lagt upp 8 nya maskor innanför de tre kantmaskorna. Jag ska nu lägga upp 4 till i slutet på nästa aviga varv. Dessa 12 nya maskorna ska stickas som 3 maskor slätstickning, 8 maskor mönster enl A12 och en kantmaska. Men var hamnar de 3 ursprungliga kantmaskorna? Känns som jag har 3 maskor för mycket?

05.03.2021 - 10:32

DROPS Design answered:

Hej Kattis, när du ökar 1 maska innanför 3 kantmaskor på vartannat varv, stickas de 3 kantmaskorna fortfarande i rätstickning. Först när du är klar med ökningarna och skall lägga upp nya maskor i slutet av varvet från avigsidan, stickas alla maskorna i mönstret och 1 kanmaska i sidan i rätst. Lycka till :)

05.03.2021 - 13:10

country flag Carmen wrote:

Hallo, ich bin noch ganz am Anfang dieser schönen Weste. Gibt es denn keine Randmaschen? Oder werden diese extra zum Muster noch hinzugestrickt? Es wäre nett, wenn mir jemand antworten könnte.

13.10.2020 - 21:26

DROPS Design answered:

Liebe Carmen, bis alle Maschen für die Blende angeschlagen sind, gibt es keine Randmaschen, die Maschen werden wie im Diagram A.1 bzw A.4 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

14.10.2020 - 07:55

country flag Birgith wrote:

Hvad mener I med “når tøjet er på” Opskriften starter med det, allerede ved første forstykke

22.03.2020 - 09:32

DROPS Design answered:

Hei Birgith. Det menes det gjelder høyre stykket når plagget er på deg, ikke når du strikker - ser på plagget. mvh DROPS design

23.03.2020 - 15:28

country flag CELIA wrote:

Bonjour, Je peux me tromper mais il n'y aurait pas un problème sur vos diagrammes ? (en plus de la numérotation A5 / A6) En taille S, le A1 a 7 rangs en bas et 3 tout en haut mais le A4 a 8 rangs en bas et 2 tout en haut. Les devants droite et gauche sont sensés être symétrique, non ?

29.07.2019 - 13:43

DROPS Design answered:

Bonjour Celia! J'ai verifie cela encore une fois et sur le devant gauche tout est bien dans les explications du modele: "Tricoter le rang suivant sur l'endroit ainsi: 5 mailles de bordure devant au point mousse, A.5 (= 14-14-17-17-18-18 mailles) et A.6 (= 27-27-28-28-30-30 mailles)" > donc a partir de la bordure devant gauche, on a les diagrammes, respectivement A.5, A.6 et A.4. Bon tricot!

29.07.2019 - 17:06

country flag CELIA wrote:

Bonjour, Je commence tout juste ce modèle et étudie les instructions et une chose me semble étrange au niveau des diagramme pour les devants : si les le devant droit c'est A1, A2, A3, le devant gauche ne devrait-il pas être A4, A6, A5 et non A4, A5, A6 ? Ma question est peut être idiote mais je voudrais pas me tromper. Merci.

28.07.2019 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Celia! Il me semble que vous avez raison. Je vais le confirmer et si necessaire une correction sera ajoutee. Bon tricot!

29.07.2019 - 11:08