DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Dunes

Prjónuð húfa, hálsskjól og handstúkur úr DROPS Puna. Settið er prjónað í stroffprjóni og sólfjaðramynstri.

DROPS 192-21
DROPS Design: Mynstur pu-032
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300 g litur 07, ljós grár

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 07, ljós grár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - M/L
Mál: Ummál að ofan: ca 60-68 cm. Hæð: ca 22-24 cm.

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150 g litur 07, ljós grár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - M/L
Mál: Ummál: ca 18-20 cm. Lengd: ca 18-19 cm.

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-100 g litur 07, ljós grár

HÚFA:
PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. 1 mynstureining A.2 mælist ca 4 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm fyrir kant.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:
PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. 1 mynstureining A.2 mælist ca 4 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm fyrir kant.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HANDSTÚKUR:
PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. 1 mynstureining A.2/A.5 mælist ca 4 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
1 kantlykkja í garðaprjóni = prjónið lykkjuna slétt frá réttu og slétt frá röngu.

ÚTAUKNING (á við um hálsskjól):
Útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan hverri snúinni lykkju slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 120-130 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Puna.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram í stroffprjóni, en passið uppá að sléttu lykkjurnar séu prjónaðar snúnar slétt. Þegar stykkið mælist 3 cm í báðum stærðum er skipt yfir á stuttan hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu þannig að þú vitir allan tímann hvar byrjunin á umferðinni er.
Prjónið síðan A.2 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 10 lykkjum – passið uppá að prjóna mynstur í hverri umferð). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 einu sinni til viðbótar á hæðina, en nú færist byrjun á umferð til um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið yfir fyrstu lykkjunni á vinstri prjón yfir á hægri prjón án þess að prjóna lykkjuna, færið jafnframt prjónamerkið þannig að nú byrjar umferðin hér. Prjónið A.2 hringinn eins og áður, lykkjan sem var færð yfir á hægri prjón er nú prjónuð eins og síðasta lykkja í síðustu mynstureiningu með A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 10 lykkjum).
Haldið svona áfram með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðna lykkju yfir brugðna lykkju þar til húfan mælist 22-24 cm. Prjónið A.4 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 12-13 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 = 6-7 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-27 cm ofan frá og niður.

----------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 150-170 lykkjur á hringprjón 3 með Puna.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið áfram í stroffprjóni, en passið uppá að sléttu lykkjurnar séu prjónaðar snúnar slétt. Þegar stykkið mælist 3-4 cm er skipt yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu þannig að þú vitir allan tímann hvar byrjunin á umferðinni er.
Prjónið síðan A.2 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 10 lykkjum – passið uppá að prjóna mynstur í hverri umferð). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 einu sinni til viðbótar, en nú færist byrjunin á umferðinni um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið yfir fyrstu lykkjunni á vinstri prjón yfir á hægri prjón án þess að prjóna lykkjuna, færið jafnframt prjónamerkið þannig að nú byrjar umferðin hér. Prjónið A.2 hringinn eins og áður, lykkjan sem var færð yfir á hægri prjón er nú prjónuð eins og síðasta lykkja í síðustu mynstureiningu með A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 10 lykkjum), en eftir 2 umferð með A.3 skiptist stykkið við prjónamerkið, fitjið JAFNFRAMT upp 1 lykkju í lok síðustu umferðar = 151-171 lykkjur. Prjónið síðan stroffprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan (lykkjur sem prjónaðar voru snúnar slétt frá réttu eru nú prjónaðar snúnar brugðið frá röngu og lykkjurnar sem prjónaðar voru brugðið frá réttu eru nú prjónaðar slétt frá röngu). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu eru auknar allar 1 lykkja brugðin til 2 lykkjur brugðnar – sjá ÚTAUKNING = 225-255 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í stroffprjóni fram og til baka í 6-7 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Hálsskjólið mælist ca 22-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður.

----------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 47-51 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Puna.
Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 18-20 lykkjur, prjónið A.1 (= 10 lykkjur), * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 18-20 lykkjur og endið með 1 lykkju brugðið. Haldið áfram í stroffprjóni. Þegar stykkið mælist 2½-3 cm skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður yfir fyrstu 18-20 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið A.2 (= 10 lykkjur), setjið 1 prjónamerki (lykkjur í A.2 eru nú merktar þannig að auðveldara er að prjóna mynstur), haldið áfram með stroff eins og áður yfir síðustu 19-21 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 18-20 lykkjur eins og áður, prjónið 1 umferð snúna slétt, færið fyrra prjónamerkið hingað, prjónið A.5 (= 10 lykkjur), færið seinna prjónamerkið hingað, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 18-20 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni þar til A.5 hefur verið prjónað til loka.
Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3. Prjónið síðan stroffprjón hringinn með snúnar sléttar lykkjur yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (fellið af með grófari prjónum til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur). Handstúkan mælast ca 18-19 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina handstúkuna á sama hátt.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja, þ.e.a.s. prjónið sléttu í aftari lykkjubogann
symbols = brugið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið eða snúinn slétt eins og mynsturteikning segir til um
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Christine wrote:

Guten Tag, ich habe folgende Fragen zum Kragenschal, wo man die Arbeit teilt: Ist es richtig, dass die angeschlagene Masche am Ende der letzten Runde dann die erste Masche (Rand-Masche) wird beim Hin- und Zurückstricken? Wann verdoppelt man die Linksmaschen? Ebenfalls dann, wenn man die Arbeit teilt und eine Masche aufnimmt, oder strickt man hin und zurück mit 151/171 Maschen und nimmt die Linksmaschen erst dann in der 2. Hinrunde auf? Besten Dank und liebe Grüsse, Christine

06.08.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Christine, am Ende der 2. Reihe A.3 wird eine Randmasche extra angeschlagen, dann stricken Sie in Hin- und Rückreihen mit 1 Randmasche krausrechts beidseitig (die neue Masche ist jetzt die 1. Masche der Rückreihe). Bei der nächsten Hin-Reihe verdoppelten Sie die linken Maschen und so stricken Sie weiter mit Bündchen 1 M rechts, 2 M links (von der Vorderseite gesehen). Viel Spaß beim stricken!

07.08.2023 - 11:04

country flag Lola Gouffé wrote:

Bonjour, Merci pour le modèle. Dans A2, la moitié des jetés sont tricotés au tour suivant avec des mailles endroit torses. Cela réduit forcément le jour. Ça ne crée pas de déséquilibre par la suite (seulement au niveau esthétique, en nombre de maille aucun pb)?

01.07.2023 - 09:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gouffé, tous les jetés se tricotent torse, pas seulement la moitié, vous devez les tricotez torse à l'endroit ou torse à l'envers en fonction du tour suivant, mais torse quoi qu'il en soit. Bon tricot!

03.07.2023 - 09:41

country flag Louise Smith wrote:

What is a virtual Printer? I am not very computer savvy. I know how to click on a download PDF highlighted rectangle and then it saves it to my download file. Then I can read it whenever I need to see it. Our computer server is not fast and we live in a rural area that seems to be affected by weather interruptions so I get on and then off the internet, I do not stay on the internet connection. Thank-you, Louise

10.05.2023 - 01:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, when printing a pattern the browser/ computer will ask you to choose the printer you like to use; and at this place, you can generally choose to "save or print it as a pdf" instead - choose this option to save it on your computer. For any further assistance, feel free to ask your DROPS Store in/to Canada, they can help you even per mail or telephone. Happy knitting!

10.05.2023 - 08:26

country flag Louise Smith wrote:

Is there a way to get a PDF instead of printing off pages of instructions? Thank-you

03.05.2023 - 23:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, sure, just choose a virtual printer instead of a "real" printer to save the pattern as a .PDF. Happy knitting!

04.05.2023 - 08:09

country flag Martina Dietz wrote:

Stricke ich den ersten Umschlag in der zweiten Reihe von A2 dann li ab und in der 3. Reihe dann re ab? Vielen Dank für Ihre Hilfe!

14.03.2023 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dietz, also bei der 2. Reihe A.2 beginnen Sie mit 1 Umschlag, dann stricken Sie die nächste Maschen links usw... bei der 3. Reihe A.2 beginnen Sie mit 1 Umschlag, dann stricken Sie die nächste Masche rechts (Umschlag von 2. R) und die nächste Masche links (Umschlag von 1. R), so haben Sie immer noch Rippenmuster, bei dem Diagram ist es schwierig, so was zu zeigen, aber beim stricken, wird es so aussehen, das Rippenmuster wird wegen Zunahmen und Abnahmen verschoben. Viel Spaß beim stricken!

15.03.2023 - 09:50

country flag Martina Deitz wrote:

Inder 1. Runde von Strickschrift A2 sind re und li M nicht mehr übereinander. Ist das richtig?

13.03.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Deitz, die 1. Reihe A.2 soll genau über die 1. Reihe A.1 stimmen, über die ersten 4 Maschen A.1 z.B. hatten Sie: 1 M re, 2 M li, 1 M re, diese stricken Sie jetzt in A.2 so: 1 Umschlag, 2 M rechts zs verschränkt, 1 M li, 1 M re, usw. Viel Spaß beim stricken!

14.03.2023 - 09:27

country flag Ann Pascale Grünberg wrote:

Hej! Findes dette hulmønster også i en cardigan eller sweater? Venligst Ann Grünberg

20.07.2020 - 16:27

DROPS Design answered:

Hej Ann, ikke lige dette viftemønster, men prøv at klikke på viftemønster øverst i opskriften under "Tags" God fornøjelse!

28.07.2020 - 12:11

country flag Mila wrote:

Da ich dieses Muster in Hin- und Rückreihen stricken möchte, sind auch die Rückreihen im Diagramm gezeigt oder nicht? Falls ja, soll ich dann auch in Rückreihen die 2 Maschen rechts verschränkt zusammenstricken? Danke für Ihre nette Antwort!

13.07.2020 - 06:57

DROPS Design answered:

Liebe Mila, ja genau alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, dh die Hin- sowie die Rückreihen - lesen Sie rechts nach links bei den Hinreihen und links nach rechts bein den Rückreihen - die rechts verschränkte Maschen (Hinreihen) sollen dann bei den Rückreihen links verschränkt gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

13.07.2020 - 09:23

country flag Astrid Gryting Skauen wrote:

På bildet ser det ut som det er vrangbord i viftene, men mønsteret viser vel perlestrikk? mvh astrid

07.10.2019 - 19:54

DROPS Design answered:

Hej Astrid, da maskerne bliver forskudt i vifterne (ifølge diagrammerne), så vil det se ud som vrangbord, prøv gerne at strikke en mønsterrapport, så du kan se hvordan det bliver :)

08.10.2019 - 08:37

country flag Celine wrote:

Je souhaiterais savoir svp comment je fais le 2ème tours car je comprend pas très bien et comme je débute tout n'est pas clair pour moi. Merci

16.04.2019 - 16:57

DROPS Design answered:

Bonjour Celine, vous faites exactement la meme chose que dans le tour precedent, en suivant le diagramme A.1: répétez 9 fois *1 m torse à l'end, 1 m env* (= 18 m), puis tricotez A.1 (= 10 m) et terminez en répétant 9 fois *1 m env, 1 m torse à l'end) (= 18 m). Comment lire les diagrammes en rond vous troverez ICI. Bon tricot!

16.04.2019 - 17:22