DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Warm Joy

Prjónuð húfa og hálsskjól úr 1 þræði DROPS Alpaca + 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í hring í stroffprjóni og gatamynstri.

DROPS 192-24
DROPS Design: Mynstur z-827
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 2020, ljós kamel
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 20, ljós beige

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 2020, ljós kamel
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 20, ljós beige

HÁLSSKJÓL:
Mál: Ummál: 60 cm. Hæð: 25 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 2020, ljós kamel
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 20, ljós beige

HÚFA:
PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
1 mynstureining A.4 mælist 8,5 cm á breidd og 6,5 cm á hæð.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:
PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
1 mynstureining A.2 mælist 8,5 cm á breidd og ca 22 cm á hæð.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru í umferð = 16 lykkjur færri í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skipt er yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 80 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 (= 16 lykkjur) alls 5 sinnum hringinn í umferð. Endurtakið A.1 alls 2 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið mynstur A.4 (= 16 lykkjur) yfir hverja mynstureiningu A.1. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 18 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið. Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 10 lykkjur (þ.e.a.s. á eftir sléttri lykkju), setjið síðan næstu 7 prjónamerki með 10 lykkju millibili. Hvert prjónamerki er nú á eftir sléttri lykkju.
Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur á undan hverju prjónamerki (= 16 lykkjur færri í umferð) – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum = 16 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26 cm.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 112 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn þannig: Prjónið A.1 (= 16 lykkjur) alls 7 sinnum í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram þannig: A.2 (= 16 lykkjur) alls 6 sinnum, A.3 (= 16 lykkjur) 1 sinni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram hringinn þar til mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið nú A.1 alls 7 mynstureiningar í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = brugðið
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat!
symbols = stingið prjóninum inn frá réttu á milli 15. og 16. lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn á bakhlið á stykki, dragið þráðinn í gegn að réttu á stykki (= 1 ný lykkja), prjónið * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt * yfir næstu 14 lykkjur, 1 lykkja brugðið (= 1 lykkja fleiri)
symbols = prjónið lykkjuna sem aukin var út þar sem þráðurinn var sóttur á milli 15. og 16. lykkju frá fyrri umferð og næstu lykkju (= brugðin lykkja) brugðið saman (= 1 lykkja færri).
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = þegar 8 lykkjur eru eftir í þessari umferð er prjónað áfram frá fyrsta tákni í næstu umferð í A.2
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Fulconis wrote:

Merci pour votre réponse. Je vais essayer... Bonne journée. Natercia

28.11.2023 - 12:27

country flag Fulconis wrote:

Bonjour. Je suis en train de tricoter le bonnet 192-24. Je ne comprends pas les explications pour avoir la longue maille qui couvre 14 mailles...(piquer l'aiguille en 15ème et 16ème mailles, ....). Serait-il possible svp d'avoir des explications plus précises ou une petite vidéo de ce motif? En vous remerciant par avance pour votre disponibilité. Natercia

28.11.2023 - 08:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fulconis, insérez l'aiguille droite entre la 15ème et la 16ème maille sur l'aiguille gauche (sans tricoter les mailles précédentes), ramenez le fil sur l'endroit (vous avez maintenant 1 maille supplémentaire) et tricotez les 15 mailles suivantes en côtes (1 m env, 1 m end): vous avez désormais 16 mailles sur l'aiguille droite (la maille créée en ramenant le fil et les 15 mailles précédentes. Au tour suivant, vous tricoterez ensemble à l'envers le jeté (= la maille créée au tour précédent) et la maille envers suivante = vous retrouvez votre nombre de mailles initial. Bon tricot!

28.11.2023 - 09:03

country flag Elsi Petrica wrote:

Strikker lue, men forstår ikke diagram i A4. Hva æ gjør med de svarte masker? Håper at dere kan skrive oppskrifter sånn at vi nybegynnere også forstår de. Kan dere forklare litt mer tydeligere og i detalj hvordan A4 strikkes?

20.12.2022 - 15:33

DROPS Design answered:

Hej Elsi, den svarte masker betyder hop over denne maske i diagrammet, det vil sige du strikker de 16 masker ifølge første pind i diagrammet, starter med at tage ud, 1vr, 1r osv når du har strikket første pind i diagram A.4 har du 18 masker. God fornøjelse :)

21.12.2022 - 14:35

country flag Goldenstein, Rita wrote:

Meines Erachtens ist der Mustersatz mit 24 Maschen dargestellt, nicht mit 16 Maschen!

10.10.2022 - 17:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Goldenstein, alle Diagramme werden über 16 Maschen gestrickt, bitte beachten, daß die schwarze Kästchen keine Maschen sind (diese Maschen wurden noch nicht zugenommen), so wird A.2 so bei der 1. Reihe gestrickt (= 1 Umschlag, (1 M li, 1 M re)x 7, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M li) = 16 Maschen + 2 Umschläge: es sind 18 Maschen nach der 1. Reihen. Viel Spaß beim stricken!

11.10.2022 - 08:12

country flag Megan wrote:

How do you make a yarn over between two purl stitches? In Diagram A.4 row 1, the 16th stitch becomes a purl stitch now. Do I make a yarn over by wrapping the yarn around the needle one round to make the next purl stitch? In the explanation of the diagram, I don't understand "On next round knit the yarn over to make holes." Does it mean to take the extra loop as a knit stitch? Thank you.

23.08.2022 - 04:34

DROPS Design answered:

Dear Megan, this video shows how to make a yarn over between 2 purl (or simply when the stitch after the yarn over will be purled). On the next round, knit the yarn over in the back loop of stitch (= twisted) to avoid holes - see time code 2:22 in this video. Happy knitting!

23.08.2022 - 08:11

country flag Megan wrote:

“insert needle from right side in between 15th and 16th stitch, 1 yarn over at the back of piece, pull yarn through to the right side of piece (= 1 new stitch)” Does “pull yarn through to the right side” mean you insert needle from the back of piece to the right side of piece? As you did that before you make the yarn over on the back. Thank you.

21.08.2022 - 06:53

DROPS Design answered:

Dear Megan, you insert the needle initially from the right side to the back. Then, you make a yarn over in the back and pass this yarn over from the back to the front (right side). Happy knitting!

21.08.2022 - 21:25

country flag ROSSET wrote:

Bonjour Je tenais à vous remercier pour votre gentillesse. Cordialement Françoise ROSSET

28.01.2022 - 13:03

country flag ROSSET wrote:

Je vous remercie. Sur le diagramme A2. Après le 23 rangs , je ne comprends pas les diminutions après avoir piqué l’aiguille entre la 15 mailles. Je suis bloquée. Cordialement Françoise Rosset

26.01.2022 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rosset, ce motif va se faire comme le tout premier (au 7ème rang), mais en quiconque, autrement dit, commencez quand il reste 8 mailles avant la fin du 22ème tour et comptez les 8 mailles de la fin du 22ème tour + les 7 mailles du 1er A.2 du tour = vous êtes bien entre la 15ème et la 16ème maille; tricote les mailles suivantes jusqu'à ce qu'il reste 8 mailles avant la fin de ce A.2 et continuez ainsi en comptant ces 8 dernières mailles + les 7 premières mailles du A.2 suivant. Au tour suivant, les tours recommencent comme avant. Bon tricot!

26.01.2022 - 17:25

country flag ROSSET wrote:

Bonjour \r\nDéjà, je voulais tout d’abord vous remerciez pour votre réponse concernant le bonnet qui est très beau.\r\nPouvez-vous me faire une photo à plat du tour du cou. Car j’ai un problème concernant le diagramme.\r\nEn le regardant, je pense que je comprendrais mieux.\r\nJe vous en remercie.\r\nCordialement \r\nFrançoise ROSSET

26.01.2022 - 11:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rosset, nous n'avons pas d'autres photos de ce modèle et nous ne pouvons plus faire de photos car nous ne l'avons plus, en revanche, nous pouvons volontiers vous aider, quelle était votre question à propos du diagramme?

26.01.2022 - 13:27

country flag Rosset wrote:

Bonjour Je voudrais faire le bonnet drops 192-24. Sur le diagramme, A4 les cases noires se tricotes à l’endroit où à l’envers. Je vous remercie. Cordialement Françoise ROSSET

06.12.2021 - 17:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rosset, les cases noires dans A.4 ne sont pas des mailles (cf 3ème symbole et légende); car ces mailles ont été diminuées. Autrement dit A.4 se tricote sur 16 m au 1er rang et vous tricotez: 1 jeté, (1 m env, 1 m end) x 7, 1 m env, 1 jeté, 1 m end (= vous avez 18 mailles (et donc 2 cases noires en moins au rang suivant du diagramme), etc. Bon tricot!

07.12.2021 - 07:35