DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Helix

Hekluð hringpeysa úr 1 þræði DROPS Nord + 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-36
DROPS Design: Mynstur z-833
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-550 g litur 16, gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-200 g litur 27, gallabuxnablár

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Fyrsta fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.
Fyrsti stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Fyrsti tvíbrugðni stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 4 loftlykkjur, umferðin endaði með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (skipting í næstu umferð):
Heklið keðjulykkjur að fyrstu lykkju í næstu umferð. Ef það er loftlykkjubogi í síðustu umferð eru heklaðar keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga í umferð. ATH: Á við um frá og með lok á 3. umferð í A.1 og síðan til loka.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 loftlykkjuboga þannig: Heklið * 1 fastalykkju + 1 loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 2 sinnum um sama loftlykkjuboga.

ÚRTAKA (á við um ermar):
ATH: Mynstrið gerir það að verkum að byrjun á umferð færist til, passið því uppá að úrtökurnar 2 komi mitt undir ermi.
Fækkið um 1 loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki og út og handvegur er heklaður á hringnum. Framstykkin eru hekluð fram og til baka, síðan er heklaður kantur í lokin í kringum alla peysuna. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður.

HRINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði Nord + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 7 sinnum í umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 og HEKLLEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 49 loftlykkjubogar í síðustu umferð. Hringurinn mælist ca 34 cm að þvermáli.
Klippið frá og byrjið á næstu umferð í 4. loftlykkjuboga = miðja að aftan/hnakki. Haldið síðan áfram eftir mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
= 49 loftlykkjubogar.
Hekli fyrstu umferð í A.2 – JAFNFRAMT er heklaður handvegur þannig:
Heklið um hverja og eina af fyrstu 7 loftlykkjubogum, heklið 35 lausa loftlykkjuboga (= handvegur), hoppið yfir 8 loftlykkjuboga, heklið um hvern og einn af næstu 19 loftlykkjubogum, heklið 35 lausar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 8 loftlykkjuboga, heklið um hvern af síðustu 7 loftlykkjubogum.
Heklið 2. umferð í A.2 – JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING, þannig:
Heklið um hvern og einn af fyrstu 7 loftlykkjubogum – aukið út um 2 loftlykkjuboga yfir þessa loftlykkjuboga, heklið 10 loftlykkjuboga/fastalykkjur um handveg (= 2 útaukningar), heklið um hvern af næstu 19 loftlykkjubogum – aukið út um 7 loftlykkjuboga yfir þessa loftlykkjuboga, heklið 10 loftlykkjuboga/fastalykkjur um handveg (= 2 útaukningar), heklið um hvern og einn af síðustu 7 loftlykkjubogum – aukið út um 2 loftlykkjuboga yfir þessa loftlykkjuboga (= alls 15 útaukningar í umferð) = 64 loftlykkjubogar.
Heklið síðan 3. umferð í A.2 án útaukningar. Hringurinn mælist ca 45 cm að þvermáli.

STÆRÐ L/XL - XXL/XXXL:
= 49 loftlykkjubogar.
Heklið fyrstu umferð í A.2 – JAFNFRAMT er aukið út um 15 loftlykkjuboga jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um 1 loftlykkjuboga yfir ca 3. Hvern loftlykkjuboga) – sjá ÚTAUKNING = 64 loftlykkjubogar.
Heklið aðra umferð í A.2 – JAFNFRAMT er heklaður handvegur þannig:
Heklið um hvern af fyrstu 8 loftlykkjubogum, heklið 38-41 laustar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 9 loftlykkjuboga, heklið um hvern af næstu 30 loftlykkjubogum, heklið 38-41 lausa loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 9 loftlykkjuboga, heklið um hvern af síðustu 8 loftlykkjubogum.
Heklið síðan 3. umferð í A.2 án útaukningar. Hringurinn mælist ca 45 að þvermáli.

ALLAR STÆRÐIR:
= 64 loftlykkjubogar í öllum stærðum.
Heklið síðan mynsturteikningu A.3 hringinn, A.3 er heklað alls 5-6-7 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT er aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – munið eftir ÚTAUKNING, þannig:
Aukið út um 16 loftlykkjuboga í hverri umferð með útaukningu, þ.e.a.s:
1. SKIPTI: Aukið út 1 loftlykkjuboga um 4. hvern loftlykkjuboga = 80 loftlykkjubogar.
2. SKIPTI: Aukið út 1 loftlykkjuboga um 5. hvern loftlykkjuboga = 96 loftlykkjubogar.
3. SKIPTI: Aukið út 1 loftlykkjuboga um 6. hvern loftlykkjuboga = 112 loftlykkjubogar.
4. SKIPTI: Aukið út 1 loftlykkjuboga um 7. hvern loftlykkjuboga = 128 loftlykkjubogar.
5. SKIPTI: Aukið út 1 loftlykkjuboga um 8. hvern loftlykkjuboga = 144 loftlykkjubogar.
Haldið síðan áfram eftir mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
Klippið frá og festið enda. Hringurinn mælist ca 100 cm að þvermáli.

STÆRÐ L/XL:
6. SKIIPTI: Aukið út um 1 loftlykkjuboga um 9. hvern loftlykkjuboga = 160 loftlykkjubogar.
Klippið frá og festið enda. Hringurinn mælist ca 111 cm að þvermáli.

STÆRÐ XXL/XXXL:
6. SKIPTI: Aukið út um 1 loftlykkjuboga um 9. hvern loftlykkjuboga = 160 loftlykkjubogar.
7. SKIIPTI: Aukið út um 1 loftlykkjuboga um 10. hvern loftlykkjuboga = 176 loftlykkjubogar.
Klippið frá og festið enda. Hringurinn mælist ca 122 cm að þvermáli.

ALLAR STÆRÐIR:
= 144-160-176 loftlykkjubogar.
Heklið síðan einungis yfir 40-44-47 loftlykkjuboga í hvorri hlið – þ.e.a.s. ekki er lengur heklað yfir 32-36-40 loftlykkjuboga efst í hnakka og 32-36-42 loftlykkjubogar neðst á baki. Haldið áfram eftir útskýringu undir vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 40-44-47 loftlykkjubogar. Haldið áfram fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja, * heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju um síðasta loftlykkjuboga = 39-43-46 loftlykkjubogar.
Endurtakið 1. umferð 3-3-7 sinnum til viðbótar. Nú eru 36-40-39 loftlykkjubogar yst á framstykki. Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og vinstra framstykki, yfir 40-44-47 loftlykkjubogar í hægri hlið. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Í LOKIN:
Heklið kant í kringum allan hringinn, þannig: Heklið síðustu umferð í A.3, þ.e.a.s. yfir hvern loftlykkjuboga er hekluð 1 fastalykkja og 3 loftlykkjur. Heklið síðan 1. umferð í A.3, þ.e.a.s. heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 104-115-126 cm að þvermáli á hæðina og ca 114-126-146 cm að þvermáli á breidd.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring frá handveg.
Byrjið mitt undir ermi og heklið 57-63-66 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir í kringum handveg (= ca 3 tvíbrugðnir stuðlar um hvern loftlykkjuboga) = 1. umferð í A.3. Haldið áfram hringinn í A.3 til og með síðustu umferð. Endurtakið síðan A.3 á hæðina – JAFNFRAMT er fækkað um 2 loftlykkjuboga mitt undir ermi, fækkið í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð merktri með ör alls 4-5-5 sinnum = 11-11-12 loftlykkjubogar. Haldið síðan áfram án úrtöku þar til ermin mælist ca 42-44-46 cm – passið uppá að enda eftir eina umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = 4 loftlykkjur, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð (= 1. umferð)
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Mary wrote:

I love this design but am having a bit of difficulty working around "round 3 in A.2". My issue is when I reach the armhole chain, how do I continue the A.2-3rd round? do I ignore the chain and work in the chain spaces from round 1 or do I work the same amount of ---T---T---T of skipped chain spaces? Or something else? I'm not sure I understand that part. I am working a size XL if that helps any.

01.03.2024 - 22:13

DROPS Design answered:

Dear Mary, on round 3, you work over all stitches, as they are all now included in the pattern. So, over the chain stitches, work: 1sc/dc, ch3, as in the chart. Happy crochetting!

03.03.2024 - 19:53

country flag Anastasia wrote:

Buongiorno, vorrei utilizzare un filato che viene lavorato con un ferro di 2.5-3 mm per questo modello (18 maglie×23 righe per ottenere un campione 10×10), è possibile? Devo tenere qualche accorgimento?

12.02.2024 - 16:46

DROPS Design answered:

Buongiorno Anaatasia, il filato è molto diverso da quello utilizzato nel modello: per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

13.02.2024 - 09:10

country flag Nm wrote:

Hi! Could you please tell me how much yarn I would need if I was using group C yarn for this pattern?

03.01.2024 - 05:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nm, please find how to calculate the new amount required (depending on the yarn you will choose) in this lesson, see 2 strands of different meterage to 1 strand.. Happy crocheting!

03.01.2024 - 08:37

country flag Manuela Liener wrote:

Hallo zusammen. ich habe, so gut wie immer, ein Problem mit der Maschenprobe. Bei mir stimmt die Höhe (mit entsprechender Nadel) aber so gut wie nie die Breite. Vor allem bei Häkelarbeiten. Was kann ich tun?

04.12.2023 - 18:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Liener, am besten versuchen Sie mit einer anderen Häkelgrösse bis Sie die genaue Maschenprobe in der Breite haben, dann können Sie versuchen, die Größe von Ihren Maschen anzupassen (etwas mehr oder weniger in der Höhe ziehen, je nach der Maschenprobe). Viel Spaß beim häkeln!

05.12.2023 - 08:42

country flag Agnes wrote:

I need to size down to XS. What would you suggest to start the circle?

02.10.2023 - 17:12

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, j'ai terminé le cercle mais je ne comprends pas les manches. J'ai de chaque côté une chaînette qui pend et sinke travail dessus Rien de ne sera fermé. J'ai peur de devoir tout défaire. Existe-t-il une photo pour les manches svp ? Merci beaucoup

01.06.2023 - 20:06

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, pour former les emmanchures, vous crochetez un tour en sautant des arceaux que vous remplacez par une chaînette (35-38-41 mailles en l'air, cf taille), autrement dit, ce tour doit être crocheté comme avant entre les emmanchures et avec 1 chaînette de chaque côté pour former un trou. Dans cette vidéo, nous montrons cette technique pour un gilet carré, elle devrait vous aider à comprendre comment procéder. Bon crochet!

02.06.2023 - 08:08

country flag Maryann Topham wrote:

There is an English saying, “a picture is worth a thousand words…” I wish I could see pictures of a partially completed sweater or send a picture as question. Or upload a pic of my project. I am really stuck on the creation of armholes, 2nd round of diagram A.2. (Sz L) Do my 38 chain stitches represent the circumference of an armhole or one half of an armhole, with the 9 skipped chain spaces making the other half? Does 3rd round apply to the chain of 38, skipped 9, or both?

01.04.2023 - 03:16

DROPS Design answered:

Dear Maryann, for sharing your project pictures and asking for help you can join our DROPS workshop group: https://www.facebook.com/groups/DROPSWorkshop/, where other knitters will be able to help you. The armhole is formed by the 38 chain stitches AND the 9 skipped chain spaces. The 3rd round is only worked over the 38 chain stitches. Happy crochetting!

02.04.2023 - 22:26

country flag Monika wrote:

Hallo, ich verstehe die Häkelinformation 2 nicht: In A1 endet fast jede Reihe mit Luftmaschen - also soll ich in der darauf folgenden Reihe Kettmaschen bis zur Hälfte des nächsten Luftmaschenbogen häkeln (??) Und dann?? Wie soll ich dann weiterhäkeln? Ich bin dann im Luftmaschenbogen - muss ich dann Stäbchen anschlagen?

28.03.2023 - 19:36

DROPS Design answered:

Liebe Monika, ab 3. Reihe in A.1 häkeln Sie 1 Kettmasche in die 1. /2. Masche (die Runde in A.1 beginnen in die 1., 2. oder 3. Stb von der vorrigen Runde) - wenn Sie dann Luftmaschenbogen (A.2/A.3) häkeln, dann häkeln Sie Kettmaschen bis die Mitte vom 1. Luftmaschenbogen. Viel Spaß beim häkeln!

29.03.2023 - 09:43

country flag Birgitte Kjærgaard wrote:

Synes opskriften ikke fortæller hvordan jeg arbejder videre med luftmaskekæden til armhul. Skal jeg arbejde på luftmaskekæden, eller de 9 buer jeg sprang over ? Hvis jeg arbejder på luftmaskekæden, hvor mange buer skal jeg lave herpå?

23.03.2023 - 19:51

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. Du hekler 3. omgang i A.2, også over luftmaskeraden. Du har heklet 38 eller 41 løse luftmaske, avhengig av hvilken str du hekler etter. En liggende oval sort tykk strek = 6 luftmasker, så når du skal hekle over luftmaskeraden må du telle slik at du hekler fastmasken midt om de 6 luftmasker. mvh DROPS Design

27.03.2023 - 12:56

country flag Albert Robine wrote:

Hallo beste Drops ontwerper. ik vind dit een heel mooi en leuk patroon. maar ik loop even vast. ik heb de armsgatenlossen ingehaakt en wil nu aan toer3 van a2 beginnen. alleen weet ik niet hoe dat moet ? moet dit op de ketting lossen (armsgaten)?en hoe dan? of op de toer daarvoor? en daarna moet ik toch eerst toer4 van a2 doen en daarna pas toer 1 van a3? dit staat ook nergens terug te vinden? alvast bedankt. Robine

24.02.2023 - 16:13