DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cathy

Hekluð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er heklað með sólfjöðrum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-33
DROPS Design: Mynstur mb-051
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
1000-1150-1400 g litur 08, marmari

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæð = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

HEKLLEIÐBEININGAR (sjalkragi):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjur, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og lok á umferð þannig:
Fækkið lykkjum með því að hekla eins og útskýrt er í A.6 þar sem lykkjum er fækkað í byrjun á umferð.
Fækkið lykkjum með því að hekla eins og útskýrt er í A.7 þar sem lykkjum er fækkað í lok á umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig og saumað saman í lokin.
Ermar eru heklaðar í hring frá handveg.

BAKSTYKKI:
Heklið 104-118-133 loftlykkjur með heklunál 5 með Big Merino.
Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= jafngildir 2 stuðlum), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-6-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 16-18-21 sinnum = 86-98-110 stuðlar.
Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig – frá réttu: Heklið A.1 yfir fyrsta stuðul, A.2 yfir næstu 84-96-108 stuðla (= 14-16-18 mynstureiningar), A.3 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með þetta mynstur til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 68-74-79 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 61-68-75 loftlykkjur með heklunál 5 með Big Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= jafngildir 2 stuðlum), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-4-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 9-10-11 sinnum = 50-56-62 stuðlar.
Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig – frá réttu: Heklið A.1 yfir fyrsta stuðul, A.2 yfir næstu 48-54-60 stuðla (= 8-9-10 mynstureiningar), A.3 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 68-74-79 cm – stillið af eftir bakstykki. Nú er heklaður sjalkragi.

SJALKRAGI:
Heklið sjalkraga fram og til baka með byrjun frá réttu – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, þannig - * Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 18 stuðlum, snúið og heklið 1 fastalykkju í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 1 hálfur stuðull í hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull í hvern af næstu 14 stuðlum, snúið *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki fram þar til sjalkragi er heklaður. Klippið frá og festið enda áður en byrjað er á sjalkraga. Sjalkraginn er heklaður á sama hátt og á hægra framstykki, en byrjið frá röngu (festið enda með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Byrjið 20-22-24 cm niður frá öxl (= handvegur) og saumið saman hliðar. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan og saumið hálsmálið aftan í hnakka á bakstykki – passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar kraginn er brotinn niður.

ERMI:
Heklið í kringum handveg þannig – byrjið mitt undir ermi: Festið enda með 1 keðjulykkju mitt undir ermi, heklið 3 loftlykkjur (= jafngildir 1 stuðli), heklið 57-60-66 stuðla jafnt yfir um lykkjur meðfram handveg, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 58-61-67 stuðla.
Heklið síðan þannig: A.4 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) yfir fyrsta stuðul og A.5 yfir þá 57-60-66 stuðla sem eftir eru (= 19-20-22 mynstureiningar). Haldið áfram með mynstur til loka – jafnframt er fækkað um 1 mynstureiningu mitt undir ermi í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð merktri með ör alls 4-5-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð merktri með ör alls 3-2-0 sinnum = 37-40-43 stuðlar í síðustu umferð í mynsturteikningu. Heklið síðan áfram þar til ermin mælist ca 46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Heklið 39-39-46 loftlykkjur með heklunál 5 með Big Merino.
Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= jafngildir 2 stuðlum), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5-5-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 5-5-6 sinnum = 32-32-38 stuðlar.
Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig – frá réttu: Heklið A.1 yfir fyrsta stuðul, A.2 yfir næstu 30-30-36 stuðla (= 5-5-6 mynstureiningar), A.3 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.1/A.2/A.3 hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina, heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 18 cm.
Heklið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið vasana þannig að mynstrið á vasa passi við mynstur á peysu – leggið þá alveg inn að hliðarsaumi á hvoru framstykki og 1 mynstureiningu upp frá neðri kanti á peysu. Saumið vasana niður með smáu spori.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð!
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN: * Bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni undir loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 1 stuðull um bilið á milli 2 lykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = úrtökuumferð
symbols = HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið heklunálinni undir fyrsta loftlykkjubogann, sækið þráðinn, stingið heklunálinni undir næsta loftlykkjuboga, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri)
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Bettina Bagle wrote:

Mønsteret til Cathy jakken er ikke lik mønsteret i oppskriften.

14.04.2024 - 18:00

country flag Loecky Gruber wrote:

Ik heb een vraag over de sjaalkraag. Moet ik die verder haken op het rugpand?

25.01.2024 - 22:41

country flag Hannelie Kotzè wrote:

I have read this pattern over and over again and I just cannot seem to find where does the combination of A.6, A.4, A.7 come in? Also, on row 3 of A.2: do you just start directly with the 2 trebles together after your first stich in A.1?

06.11.2023 - 12:54

DROPS Design answered:

Der Mrs Kotzè, A.4 shows how to start the rounds, A.6 shows how to decrease at the beginning of the round on sleeves, then you wontinue working A.5 and finish round with A.7 which shows how to decrease at the end of the round. When working A.2 you should start with A.1 first = 1 chain at the beg of 3rd row, then repeat A.2 and end with A.3 = 1 double crochet (Uk-English) in the 3rd chain from beg of 2nd row. Happy crocheting!

06.11.2023 - 15:09

country flag Mia Proosdij wrote:

Hallo mijn vraag is als ik de tweede keer aan het patroon begin verspringen de bloemen hoe verder ik haak hoe minder bloemen ik over hou dus eigenlijk hou ik na elke toer minder steken over zonder dat ik minder

01.11.2023 - 10:39

DROPS Design answered:

Dag Mia,

Dan gaat er inderdaad iets mis en minder je blijkbaar steeds. Let goed op dat je de steken van A.2 ook aan het begin en eind haakt, dus na voor en na A.1/A.3

01.11.2023 - 19:26

country flag AtZ wrote:

Hallo, ik begrijp de sjaalkraag niet. Moet ik eerst voor-en achterpand aan elkaar vastzetten? Waar start ik dan de sjaalkraag?

23.07.2023 - 18:35

country flag Christiane Cartier wrote:

Désolée, je ne comprends tjs pas... : 1er r. 61 brides, 2e r 20 arcs, 3e r ?, 4e r ?. 5e r ? et combien de rangs entre les diminutions ?

06.06.2023 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cartier, à chacun des tours avec une flèche dans A.5 (cf à droite de A.4), vous crochetez le début du tour comme dans A.6, continuez A.5 comme avant, et terminez le rang comme indiqué dans A.7. Vous avez diminué 1 motif au début + 1 motif à la fin du tour. Terminez A.5, au A.5 suivant, diminuez au rang avec la flèche de la même façon, et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez diminué 5 fois à chacun des tours avec une flèche (= vous avez crocheté 5 fois A.5 en hauteur au total), continuez avec A.5 mais diminuez cette fois tous les 2 motifs en hauteur (= crochetez 1 motif sans diminuer, 1 motif en diminuant comme avant), et ceci 2 fois au total. Bon crochet!

06.06.2023 - 17:23

country flag Christiane Cartier wrote:

Bonjour, pourriez-vous m'expliquer en détail la manière de crocheter les manches car si je suis vos directives, à la fin du 4e tour A5, il ne me reste que 40 mailles... Merci de m'aider car je suis bloquée sur les manches ! Meilleures salutations.

05.06.2023 - 16:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cartier, vous devez diminuer pour les manches soit au début du tour comme indiqué par A.6 soit à la fin du tour comme indiqué dans A.7 - les autres mailles se crochètent en suivant A.5. Quand toutes les diminutions sont faites, il doit bien vous rester 40 brides au dernier tour des diagrammes dans la 2ème taille. Bon crochet!

05.06.2023 - 17:37

country flag Cartier Christiane wrote:

Bonjour, je suis bloquée... J'ai crocheté mes 74 cm. Et les 22 qui amène au col ? Je ne comprends pas pourquoi et comment commencé le col châle à 74 cm alors qu'il manque 22 cm pour arriver aux épaules... Merci de m'expliquer comment procéder. Meilleures salutations.

10.05.2023 - 10:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cartier, en taille L/XL, la veste mesure 74 cm de hauteur totale à partir de l'épaule (y compris 22 cm d'emmanchure), autrement dit, quand votre devant mesure 74 cm, vous crochetez maintenant uniquement le col avec les différentes mailles comme indiqué pour que le col soit plus large à l'extérieur et plus court côté épaule/encolure dos. Bon crochet!

10.05.2023 - 16:38

country flag Sylvia wrote:

Hallo, ik heb een vraag over het patroon A2. Ik start met 2 losse, 1 vaste, 5 lossen, maar dan?.. weer 5 lossen of 2 lossen? Ik weet dat het boogjes worden maar kom er even niet uit of het boogjes van 5 lossen worden of afwisselend boogjes van 2 en 5 lossen. Ik lees graag uw antwoord, dankjewel.

13.03.2023 - 20:11

DROPS Design answered:

Dag Sylvia,

Je haakt steeds boogjes van 5 lossen. Aan het eind haak je in plaats van 5 lossen: 2 lossen en een dubbel stokje.

16.03.2023 - 20:48

country flag Sarah wrote:

Bonjour, Peut on remplacer la laine par du fil de coton à crocheter ?

11.03.2023 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour Sarah, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles, notamment les cotons que vous pourrez utiliser. Votre magasin DROPS saura également vous conseiller la meilleure alternative, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

13.03.2023 - 09:12