DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Selvik Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-19
DROPS Design: Mynstur u-859
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-450 g litur 80, bleikur
250-300-300-350-400-400 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-400-400-450 g litur 32, dökk bleikur
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4 - lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið sjálft með sléttprjóni og norrænu mynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3 – lengd 80 cm fyrir stroff
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS STÁLTALA, Hringlaga (silfur) NR 529: 8 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR -1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LEIÐBEININGAR-2:
Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur!

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Öll útaukning/úrtaka er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 7-8-8-8-9-9 cm frá hnappagati í kanti í hálsi. Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnum einingunum (séð frá réttu).
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju framan, ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka eru kantlykkjur að framan felldar af og prjónað er síðan með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram miðju að framan fyrir kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-132-136-144 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist ca 1½ cm fellið af fyrir 1 hnappagati í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur (= kantur að framan) og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 104-108-112-120-124-132 lykkjur í umferð meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1a þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út 27-31-35-35-39-47 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 131-139-147-155-163-179 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – nú er pláss fyrir 32-34-36-38-40-44 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (það hefur nú þegar verið aukið út við ör-1).
Í umferð með ör-2 aukið út um 32-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 163-171-179-187-203-219 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-25-27 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-3 er aukið út um 32-40-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 195-211-219-227-243-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-28-30-33 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-4 er aukið út um 32-32-40-48-48-40 lykkjur jafnt yfir = 227-243-259-275-291-307 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með A.1A með 16 lykkjum).
Í umferð með ör-5 er aukið út um 32-32-32-32-40-48 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-41-44 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum) = 259-275-291-307-331-355 lykkjur.
Í umferð með ör-6 er aukið út um 32-32-32-24-32-32 lykkjur jafnt yfir (nú er pláss fyrir 36-38-40-41-45-48 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum) = 291-307-323-331-363-387 lykkjur. Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð S, M og L.
Í umferð með ör-7 (á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL) er aukið út um 24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 291-307-323-355-387-419 lykkjur í umferð.
Útaukningar hafa nú verið gerðar til loka í stærð XL, XXL og XXXL.
Prjónið síðan áfram þar til síðasta umferð í A.1 er eftir. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 40-44-46-50-56-64 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir (= framstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-93-101-113-129 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir (= bakstykki), setjið næstu 64-64-68-76-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-46-50-56-64 lykkjur brugðið eins og síðasta umferð í mynsturteikningu sýnir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 179-195-211-227-259-291 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S, M, XL og XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 22-24-28-32 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 11-12-14-16 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ L og XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-18 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram með A.3 eins og útskýrt er að ofan. A.3 er endurtekið á hæðina eins langt og hægt er áður en stroffið byrjar. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.3A er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 195-211-227-243-275-307 lykkjur (þessi útaukning er einungis gerð í fyrsta skipti sem A.3 er prjónað á hæðina).
Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri á breiddina með A.3A).
Prjónið þar til stykkið mælist ca 29-29-29-29-29-30 cm frá skiptingu fyrir ermar – endið fallega eftir heilan mynsturbekk.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með bleikur þar sem aukið er út um 41-41-45-49-57-61 lykkjur jafnt yfir = 236-252-272-292-332-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff svona í garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 8. hverja lykkju jafnframt því að fella af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið de 64-64-68-76-80-80 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-72-80-88-96-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju eftir miðju, teljið 35-35-39-43-47-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðju lykkja). Nú eru 35-35-39-43-47-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin undir ermi eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum og prjónamerki mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið byrjar.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið síðustu umferð í A.1A þannig að A.1 endar alveg eins og á fram- og bakstykki.
MYNSTUR:
Í stærð S, M, XL, XXL prjónið nú A.2A hringinn (= 9-9-11-12 mynstureiningar með 8 lykkjum), teljið nú út frá miðju – miðjulykkjan í A.2A á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3A alveg eins. Í stærð L og XXXL er prjónað A.3A strax eftir að síðasta umferð í A.1A hefur verið prjónuð og er talin út frá miðjulykkju alveg eins og í öðrum stærðum.
A.3 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist ca 29-28-26-23-22-21 cm frá skiptingu – endið fallega eftir heilan mynsturbekk. Prjónið síðan A.4A hringinn alveg eins.
ÚRTAKA:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 14-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-56-56 lykkjur.
Þegar ermin mælist ca 39-38-36-34-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt með bleikur þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-52-52-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-38-37-36 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3 með litnum bleikur, þ.e.a.s. byrjið beint undir kanti í hálsmáli og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 120-124-128-136-140-144 lykkjur (þetta jafngildir ca 25 lykkjum á hverja 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 4).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið kant að framan alveg eins meðfram hægra framstykki, en byrjið neðst niðri á framstykki og haldið áfram upp að kanti í hálsmáli. Þegar kantur að framan mælist ca 1-1½ cm fellið af fyrir 7 HNAPPAGAT jafnt yfir – lesið útskýring að ofan. Haldið síðan áfram með kant að framan þar til hann mælist í sömu lengd og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan við kant í hálsmáli efst með sauminn inn að röngu.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = natur
symbols = bleikur
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Uta wrote:

Hallo, sind in dem Diagramm A.1A die Hin- und Rückrunden enthalten oder nur die Hinrunde? Ich hoffe, ich habe mich halbwegs verständlich ausgedrückt. Vielen Dank im Voraus. Lieben Gruß Uta

28.12.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Liebe Uta, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hinreihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:49

country flag Marian B wrote:

Hallo bezig met patroon DROPS 196-19. Maat L. Begonnen bij de PAS.De eerste regel, Brei 1 kantsteek in ribbelsteek, na de meerdering heb ik 147 steken brei A.1B (= 1 steek) aan beide kanten 1 kantsteek. Daarna komt A1B niet meer voor in de beschrijving. Moet ik A1B alleen deze ene naald breien? op diagram wordt deze steek gewoon getoond. Het oneven aantal steken kan niet gedeeld worden door A1A en A1B samen. Ook niet zonder A1B.

27.10.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Dag Marian,

Nee, A.1B moet je wel steeds breien als je verder gaat met A.1 en 1 kantsteek. (Staat inderdaad niet goed aangegeven.)

28.10.2023 - 10:14

country flag Emilie Toure wrote:

Hoe blijft merino extra fine in de was als ik de kleuren zwart/wit naast elkaar gebruik. Ik wil de Selvit Jacket breien.

26.10.2022 - 18:27

DROPS Design answered:

Dag Emilie,

Als je je aan de wasvoorschriften houd kun je deze combinatie gewoon wassen zonder dat de kleuren in elkaar over lopen.

26.10.2022 - 19:40

country flag Alyce Estrem wrote:

I am working on the Selvik Jacket, DROPS/196/19. I am directed to work pattern A.1A but cannot find the chart in the instructions. I am making a L size and have reached the beginning of the sleeve. "Work the last row of A.1A so that A1 finishes in the same way as the body." I love your patterns and appreciate the fine work that goes into them. Thank you. Alyce Estrem (Yes, my last name is Norwegian.)

01.05.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Hi Alyce, The diagrams and size chart are at the bottom of the pattern. Happy knitting!

02.05.2022 - 08:28

country flag Valerie wrote:

Bonjour, c est la 1ère fois que je tricote en circulaire et j’aurais besoin d un petit renseignement svp concernant la manche, est ce que le début du rang correspond au milieu des mailles relevées sous là manche ? Merci par avance pour votre aide. Cordialement

22.11.2021 - 08:13

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, tout à fait, le début des tours quand on tricote les manches en rond se trouve au milieu des nouvelles mailles relevées dans les 8-12 ou 16 mailles sous la manche. Bon tricot!

22.11.2021 - 08:48

country flag Carina wrote:

Hola. Cuando una vuelta, por ejemplo la del derecho es con rosa, y la siguiente del revés blanco, se corta el hilo o cómo lo hacéis? Porque pasar todo el hilo por detrás, no lo veo Gracias

16.10.2021 - 18:25

DROPS Design answered:

Hola Carina, al combinar los colores en la misma fila, se recomienda pasar el hilo por detrás. En el caso de trabajar filas con un solo color y cambiar de color en la siguiente fila, se recomienda trabajar con un ovillo de cada color a cada lado, para no tener que cortar.

17.10.2021 - 19:27

country flag Carina wrote:

Gracias por contestar, pero no decís en las instrucciones que si salen más puntos hay que usar un número de agujas mayor? Me dices que use un número menor, así es que no lo entiendo 🤔

09.09.2021 - 01:23

DROPS Design answered:

Hola Carina. Según tu muestra, tienes pocos puntos en 10 cm, tienes menos de 21 (porque si tienes 21 puntos en 14 cm entonces tienes menos de los necesarios en 10 cm). Por lo tanto, tienes que usar agujas más pequeñas, tal y como se indica en la parte superior del patrón, para tener más puntos en los 10 cm.

10.09.2021 - 10:14

country flag Carina wrote:

Hola. Mi muestra de 21 puntos de ancho y 28 hileras de altura mide 14x14 cm, yo uso la talla XL, entonces en base a mi muestra qué hago, cojo la talla M o cómo tendría que hacerlo? Gracias por contestar y también por todos los patrones que ponéis a nuestra disposición. Un saludo

07.09.2021 - 21:03

DROPS Design answered:

Hola Carina. Hay que calcular según 10 cm. Viendo tu muestra, los 10 cm contiene 15 puntos. Para trabajar el punto nórdico con este hilo es demasiado flojo. El dibujo va a quedar muy abierto. Te recomiendo cambiar de número a agujas más pequeñas e intentar acercarse lo máximo posible a la tensión del patrón.

08.09.2021 - 20:20

country flag Thyra Storm wrote:

Ik ben met dit patroon bezig, en ben nu bij het punt dat ik moet beginnen met A.2.A maar ik ben bezig met een maat L. Welk patroon moet ik dan aan houden? Ik zie voor maat M staan en voor XL. Maar geen L. Hopelijk kan iemand mij helpen

16.08.2021 - 22:02

DROPS Design answered:

Dag Thyra,

A.2A wordt alleen gebreid voor maat S, M, XL, XXL en niet voor maat maat L en XXXL. Hiervoor brei je maat A.3A. Als je de hele paragraaf doorleest wordt het wel duidelijk.

17.08.2021 - 11:30

country flag DENISE MANNING wrote:

Hi I just started pattern number 196/9 and am stuck after the rib is there a video for this pattern please because am so confused I have just done the added stitches do I do a purl row or knit row thanks Denise manning

14.08.2021 - 16:24

DROPS Design answered:

Dear Denise, you can find all the relevant videos linked at the bottom of the pattern. Happy stitching!

15.08.2021 - 23:35