Winter Berries |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki og A-formi. Stærð 2-12 ára. Prjónað eyrnaband úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri.
DROPS Children 32-5 |
||||||||||||||||||||||
---------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun (þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-12-13-13-14 lykkjur framhjá prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-24-26-26-28 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að framan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um norrænt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 20. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá eru 19. og 20. hver lykkja prjónaðar slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 80-84-84-88-88-92 lykkjur á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-90-90-96-96-102 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn (= 28-30-30-32-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Ör-1: Aukið út um 16-14-14-12-12-10 lykkjur jafnt yfir = 100-104-104-108-108-112 lykkjur (passið uppá að aukið sé út með natur í þessari umferð). Ör-2: Aukið út um 14-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 114-120-120-126-126-132 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-20-21-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 22-24-26-28-34-36 lykkjur jafnt yfir = 136-144-146-154-160-168 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 20-24-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir = 156-168-172-180-188-196 lykkjur (nú er pláss fyrir 39-42-43-45-47-49 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-5: Aukið út um 20-22-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 176-190-196-204-216-224 lykkjur. Ör-6: Aukið út um 16-18-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 188-204-212-220-236-244 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-51-53-55-59-61 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-7: Aukið út um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 196-212-220-230-246-254 lykkjur. Ör-8: Aukið út um 8-4-8-10-6-10 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-252-264 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 hringinn (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-16-16-17-20-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið 0-0-1-2-0-0 cm sléttprjón með ljós grár. Stykkið mælist nú ca 16-16-17-19-20-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með ljós grár: Prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 30-32-34-36-38-40 lykkjur sem eftir eru sléttar (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-140-148-160-168-176 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á lykkjum í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3-4-4½-5-5½-6½ cm millibili alls 4 sinnum á hvorri hlið = 148-156-164-176-184-192 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-20-23-25-28-32 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-40-44-48-48 lykkjur jafnt yfir = 184-196-204-220-232-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-44-46-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3½-4-4-4½-5 cm millibili alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð þar slétt sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. ---------------------------------------------------------- EYRNABAND: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fitjið upp 108-116-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 100-108-112 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 25-27-28 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 108-116-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Eyrnabandið mælist ca 9 cm frá uppfitjunarkantin að affellingarkanti. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Elisabetta wrote:
Non capisco oer qs maglione qyake e la tg 2 anni
04.01.2024 - 00:52DROPS Design answered:
Buongiorno Elisabetta, per la taglia 2 anni deve considerare il primo numero di ogni serie di numeri. Buon lavoro!
04.01.2024 - 08:31Ann Katrin Karlsson wrote:
Finns beskrivningen på svenska
22.11.2022 - 21:00DROPS Design answered:
Hej Ann Katrin, ja, du kan klicka på: ändra språk som ligger under bilden :)
23.11.2022 - 11:24Lulusa wrote:
Lo voy a intentar pero les doy las gracias por ser tan generosos
27.01.2021 - 17:12Anna wrote:
Bedeutet es z. B. Größe104-(bis) 110 oder 98/104?
02.08.2020 - 13:18DROPS Design answered:
Liebe Anna, die 2. Grösse = 3/4 Jahre = 98/104 cm. Viel Spaß beim stricken!
03.08.2020 - 08:19Christine wrote:
Oppskriften er meget enkel. Men genseren er ganske A-formet. Noe som kommer dårlig frem fra starten/bildene.
29.04.2020 - 17:08Angharad wrote:
This was the first top down sweater I’ve ever knitted and only my second colour way. It was a dream to knit with a very easy to follow pattern. I loved knitting it and my daughter loves wearing it. Thank you.
08.01.2019 - 21:10