DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Berries Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-15
DROPS Design: Mynstur u-822
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 44, ljós grár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 13, kirsuber
50-50-50-50-50-50 g litur 16, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 72, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón neðst niðri á fram- og bakstykki.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – fyrir kant í hálsi og garðaprjón neðst niðri á ermum.

DROPS STÁLTALA, Bogalaga (silfur) NR 529: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-14-15-16 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-28-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-42-45-48 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-70-75-80 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,7. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Í þeim umferðum sem annað hvort eru rendur eða mynsturborðar er prjónað með liti í rönd eða grunnlit í mynsturborða einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kant í hálsi í garðaprjóni, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9-8-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum ljós grár. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 19-21-23-31-33-35 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok þessarar umferðar – sjá útskýringu að ofan = 119-125-131-143-149-155 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og 2!
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjum slétt í hvorri hlið fyrir kant að framan. Til að flíkin passi betur er nú prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-38-40-44-46-48 mynstureiningar 3 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING-1 (alltaf er aukið út í umferð frá réttu) og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð með ör-1 er aukið út um 30-30-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 149-155-167-185-191-197 lykkjur.
Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 173-182-197-218-227-233 lykkjur.
Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 197-209-227-251-263-269 lykkjur.
Í umferð með ör-4 er aukið út um 20-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir = 217-235-255-279-293-305 lykkjur.
Í umferð með ör-5 er aukið út um 18-24-28-28-30-34 lykkjur jafnt yfir = 235-259-283-307-323-339 lykkjur.
Í umferð með ör-6 er aukið út um 16-16-16-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 251-275-299-323-339-363 lykkjur.
Í umferð með ör-7 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 259-287-311-335-355-379 lykkjur.
Í umferð með ör-8 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 267-299-323-347-371-395 lykkjur.
Í umferð með ör-9 er aukið út um 6-10-14-14-14-10 lykkjur jafnt yfir = 273-309-337-361-385-405 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með litnum ljós grár frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 40-43-48-51-57-61 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 79-85-95-101-113-121 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-43-48-51-57-61 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 185-197-221-233-257-281 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 49-52-58-61-67-73 lykkjur inn frá hvorri hlið = 87-93-105-111-123-135 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-17-18-20-22 mynstureiningar 12 lykkjur), prjónið A.2B (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 8 sinnum í hvorri hlið = 217-229-253-265-289-313 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með hringprjónum 4,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 52-64-68-74-74-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 60-72-78-84-84-90 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2A hringinn (= 5-6-6½-7-7-7½ mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.2A er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-14-16-18-18-20 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XL og XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá skiptingu að ofan, í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með sokkaprjónum 4,5. Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.11.2018
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með ljós gráum frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 40-43-48-51-57-61 lykkjur brugðnar (= framstykki),

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
symbols = dökk grár
symbols = vínrauður
symbols = kirsuber
symbols = útaukningsumferð
symbols = byrjið á þessari umferð í þinni stærð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag BELONY wrote:

SUPER. TOUT TOMBE TOUT PILE. Je me suis affolée pour RIEN. J'ai compris maintenant. C'est très bien expliqué. Merci.

13.03.2024 - 16:36

country flag BELONY wrote:

Bonjour \r\nJe viens de me lancer dans le gilet femme malgré vos explications , je n\'arrive pas à comprendre à quel moment je dois m\'occuper de la partie dos et devant. J\'en suis au rangs 41 pour la diminution 6.,si je ne me suis pas trompée.\r\nA QUEL MOMENT JE COMMENCE LA SEPARATION POUR LES MANCHES SVP. MERCI DE ME REPONDRE Véro

12.03.2024 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Véro, vous devez augmenter pour l'empiècement jusqu'à la flèche-9 du diagramme A.1A; quand ces augmentations sont faites, tricotez encore jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 23-25-26-28-30-32 cm de hauteur totale depuis le rang de montage le long du bord de l'un des devants - continuez en gris si besoin après le diagramme;. Vous allez maintenant diviser l'ouvrage et mettre les mailles des manches en attente pour tricoter le bas du gilet et les manches séparément. Bon tricot!

13.03.2024 - 07:47

country flag BELONY wrote:

BonjourJe viens de me lancer dans le gilet femme avec le même motif, malgré vos explications et les explications , je n\'arrive pas à comprendre à quel moment je dois m\'occuper de la partie dos et devant , aussi pour séparer les manches. J\'en suisau rangs 41 pour la diminution 6. si je ne me suis pas trompée. Pouvez-vous me dire où je place les manches et ou je commence le dos devant.A QUEL MOMENT JE COMMENCE LA SEPARATION POUR LES MANCHES SVP. MERCI DE ME REPONDRE

12.03.2024 - 17:47

country flag Sheila Wilkinson wrote:

Drops design 181/15 There is a correction on this pattern which states that "When A1 has been worked 1 time vertically work the next row as follows from the wrong side with light gray" There is nothing else to tell me what to do next. Please help

25.03.2020 - 08:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilkinson, if you printed the pattern after the date of the correction,then the online pattern is right and already includes that correction. Happy knitting!

25.03.2020 - 10:10

country flag Annika Hudak wrote:

Hej! Jag har stickat denna kofta till mig själv och älskar den! Det var roligt att sticka uppifrån och ner och göra framkant etc direkt. Nu skulle jag vilja göra motsvarande i herrmodell. Dvs en kofta uppifrån och ner, runt ok samt något nordiskt mönster i garn motsvarande karisma. Går det att få tag på ett sådant mönster? Mvh Annika

07.02.2020 - 14:57

DROPS Design answered:

Hej Annika, så här söker du :) nordisk - herr - uppifrån och ner

11.02.2020 - 11:51

country flag Haagen wrote:

Bonjour, Je voudrais réaliser ce joli modèle. La couleur rose qui parait sur la photo ne me semble pas être la même que celle présentée qui est plus fuchsia. Que me conseillez-vous?

31.01.2020 - 18:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Haagen, en fonction de l'éclairage et de l'environnement, la même couleur peut apparaître différemment. N'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS (même par mail ou téléphone) pour toute aide au choix des couleurs. Bon tricot!

03.02.2020 - 09:12

country flag Desgranges Liliane wrote:

Comment faire pour que la base du gilet ne roulotte pas ? Merci

05.03.2018 - 09:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desgranges, vous pouvez bloquer votre gilet à la fin (humidifiez-le et faites le sécher à plat, avec des épingles si besoin). Bon tricot!

05.03.2018 - 09:55

country flag Jasmin Gold wrote:

Sehr geehrtes Drops Team, laut Anleitung muss nach der 9 . Zunahme eine Rück-Reihe mit den stillgelegten Maschen gestrickt werden und danach die Ärmel und der Rumpfteil extra (Muster A.2a folgt), jedoch fehlen vom Muster A.1 noch drei Reihe vom Muster . Soll ich nun erst A.1 fertig Stricken ( wie auf dem Dazugehörigen Bild dargestellt) oder sofort A.2a stricken ? Wenn ja dann fehlen diese drei Reihen im Muster ! Mit freundlichen Grüßen

18.02.2018 - 11:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gold, ja A.1 müssen Sie bis zur Ende stricken, dann A.2 anfangen. Viel Spaß beim stricken!

19.02.2018 - 09:53

country flag Linda Kozakewich wrote:

I am unable to find out exactly how much yarn is needed for any of the sizes you've stated as well as exactly the measurement of the stated sizes. Am new knitted and really like this pattern. Can you help me please.

04.12.2017 - 07:32

DROPS Design answered:

Dear Linda, for example, in size S you will need: 350 g colour 44 light grey, 50 g colour 01 off white, 50 g colour 13 cerise, 50 g colour 16 dark grey, 50 g colour 48 wine red and 50 g colour 72 light pearl grey. As for measurement, please see our lesson How to read a schematic drawing. Happy knitting!

04.12.2017 - 08:36

Anna Lindborg wrote:

När jag har stickat förhöjningen till oket är det dags att börja sticka mönster enligt A1.1. När jag tittar i mönstret använder jag först ljust pärlgrå och sedan wienröd. Men när jag tittar på bilden av koftan ser jag tydligt att mönstret börjar med ljusgrå och natur. Har jag missförstått instruktionen, eller saknas den första ljusgrå/natur-delen av mönstret? Tack på förhand! Mvh Anna

16.11.2017 - 17:56

DROPS Design answered:

Hej, delen med ljusgrå och natur finns med nederst i diagram A.1.

17.11.2017 - 17:24