DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ice Dancer

Aðsniðin peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan með gatamynstri, köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-25
DROPS Design: Mynstur li-105
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
750-850-950-1000-1100-1250 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN:
Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir lykkjur á kanti að framan, svo að kanturinn dragist ekki saman á hæðina. Prjónið frá réttu í 20. hverri umferð þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt (= hægri kantur að framan), snúið og prjónið til baka. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur eins og áður.
Snúið og prjónið 5 lykkjur slétt (= vinstri kantur að framan), snúið og prjónið til baka. Snúið og prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur eins og áður.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með prjónamerki í þannig:
Prjónið fram að fyrstu einingu í sléttprjóni og prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í einingu í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hverja og eina af afgang af einingum með sléttprjóni og með prjónamerki í (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um kraga):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 3 lykkjur með garðaprjóni í kanti við miðju að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næst umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 2 lykkjur í hverri og einni af 8 einingum með 20-22-24-24-24-24 lykkjum með sléttprjóni þannig: Prjónið fram að fyrstu einingu í sléttprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í þessari einingu í sléttprjóni, prjónið síðustu 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hverja og eina af 7 einingum sem eftir eru í sléttprjóni (= 16 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð (þ.e.a.s. fellið af í byrjun á umferð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
S: 27, 36, 45, og 54 cm.
M: 28, 37, 46 og 55 cm.
L: 29, 38, 47 og 56 cm.
XL: 30, 39, 48 og 57 cm.
XXL: 31, 40, 49 og 58 cm.
XXXL: 32, 41, 50 og 59 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 323-339-355-391-391-427 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið nú mynstur frá réttu í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S, M og L:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 9 lykkjur), A.3 (= 18 lykkjur), * sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.5 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, A.3 yfir næstu 18 lykkjur, * sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 20-22-24 lykkjur, A.5, A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Stærð XL, XXL og XXXL:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), * sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), * sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sléttprjón yfir næstu 24-24-24 lykkjur, A.1 yfir næstu 9-9-18 lykkjur (= alls 1-1-2 mynstureiningar), A.7 yfir næstu 18 lykkjur, A.1 yfir næstu 9 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Allar stærðir:
Í fyrstu umferð er lykkjum aukið út í hverri mynstureiningu, útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu (= 17-17-17-21-21-25 útauknar lykkjur) = 340-356-372-412-412-452 lykkjur. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka og í 20. hverri umferð eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1, A.3, A.5 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru A.2 prjónað yfir A.1, A.4 yfir A.3, A.6 yfir A.5 og A.8 yfir A.7 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-6-7-11-8-9 cm byrjar úrtaka í hverri einingu með 20-22-24-24-24-24 lykkjur sléttprjón – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-5-5 cm millibili alls 8-9-9-10-9-9 sinnum = 212-212-228-252-268-308 lykkjur. Eftir allar úrtöku eru 4-4-6-4-6-6 lykkjur í sléttprjóni í hverri einingu í sléttprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í 2.,3.,6, og 7. einingu í sléttprjóni. Þ.e.a.s. 2 miðju einingarnar í sléttprjóni í hvorri hlið á stykki.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út í hverri einingu með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-4-2-2 cm millibili alls 1-2-3-3-3-3 sinnum = 220-228-252-276-292-332 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 58-59-60-61-62-63 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið fyrstu 56-58-64-70-74-84 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-96-108-120-128-148 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 56-58-64-70-74-84 lykkjur í umferð (= vinstra framstykki). Klippið frá. Setjið lykkjur fyrir hægra og vinstra framstykki á sitt hvorn þráðinn og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 92-96-108-120-128-148 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-0-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-3-2-3-2 sinnum = 86-86-90-104-110-120 lykkjur. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 31-31-32-39-41-46 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, yfir lykkjur á prjóni þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm. Prjónið nú 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, jafnframt er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 56-58-64-70-74-84 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir kraga – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 8-8-10-10-12-12 sinnum, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið alveg eins og á bakstykki. Þegar öll affelling og úrtaka hefur verið gerð eru 61-61-65-72-77-82 lykkjur á prjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-30-33-33-36-36 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= kragi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-31-32-39-41-46 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur fyrir öxl. Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur fyrir öxl, snúið og fellið af. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir fyrstu 18-18-20-20-21-22 lykkjur, prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 56-58-64-70-74-84 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka alveg eins. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir kraga – munið eftir ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 8-8-10-10-12-12 sinnum, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu alveg eins og á bakstykki og hægra framstykki. Þegar allar affellingar hafa verið gerðar fyrir handveg og allar útaukningar fyrir hálsmáli eru 61-61-65-72-77-82 lykkjur á prjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-30-33-33-36-36 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= kragi), Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-31-32-39-41-46 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-29-35-37-40 lykkjur fyrir öxl, snúið og fellið af. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir fyrstu 18-18-20-20-21-22 lykkjur, prjónið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjón. Fitjið upp 52-54-56-58-60-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Lima. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan þannig: 8-9-10-11-12-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.1, 8-9-10-11-12-12 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir A.1 og A.8 yfir A.7. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-3-3-1-1 cm millibili 9-8-5-2-0-7 sinnum og með 4-2-2-2-2-2 cm millibili 1-3-7-11-14-9 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-3-3-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 2-6-7-6-9-10 sinnum, 2 lykkjur 3-1-1-1-3-3 sinnum og 3 lykkjur 2-3-3-4-2-2 sinnum = 24-26-28-28-30-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 55-55-55-54-53-52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í. Saumið kraga saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.10.2019
Leiðrétting - ERMI:..sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-3-3-1-1 cm millibili 9-8-5-2-0-7 sinnum og með 4-2-2-2-2-2 cm millibili 1-3-7-11-14-9 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið- sjá næstu umferð í mynsturteikningu, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lið á lykkju og næsti uppsláttur er prjónaður brugðið í aftari lið á lykkju- það eiga að myndast göt (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Mevrouw Van Leeuwen wrote:

De eerste naald beginnen met patroon. Aan het eind hou ik 21 steken over (excl 5 ribbel). En klopt het aantal steken in het patroon wel? A1=10 steken....A3=20 steken... enz. Geteld vanaf de tweede naald in de patronen.

16.03.2024 - 11:18

DROPS Design answered:

Dag Van Leeuwen,

Ja, het patroon klopt. A.1 begint met 9 steken en heeft vanaf de 2e naald 10 steken. A.3 begint met 18 steken en heeft vanaf de tweede naald 20 steken.

17.03.2024 - 18:52

country flag Tineke Klapwijk wrote:

In mijn berekening kom ik ook uit op die 391 steken, maar in het breiwerk zelf houd ik 20 steken over vóór de bies. Ik neem aan dat ik telpatronen A1 en A7 aansluitend op elkaar moet breien, en niet met een steek ertussen of zoiets. Anders heb je meer dan die 391 steken nodig.

15.03.2024 - 11:52

country flag Tineke wrote:

Ik wil maat XL breien. Voor het lijf heb ik 391 steken opgezet. Bij de 5de toer moet ik na de bies afwisselend A1, A7 en stukjes in tricotsteek breien. Als laatste weer 5 steken voor de bies. Voordat ik bij die bies ben heb ik nog 20 steken over op mijn naald, waarvan ik niet snap dat ik die overhoud. Wat heb ik dan fout gedaan?

14.03.2024 - 22:18

DROPS Design answered:

Dag Tineke,

Ik heb het uitgerekend en ik kom precies uit met de steken. Na de paragraaf over het lijf (dus waarbij je steken opzet) ga je verder met de paragraaf voor maat XL tot en met XXXL en omdat je maat XL breit, kies je in die paragraaf steeds het eerste getal van de reeks getallen. Op een gegeven moment staan er sterretjes. Wat tussen 2 sterretjes staat, dat brei je in totaal 3 keer. Misschien helpt het om even uit te schrijven in je eigen maat en dan even het aantal steken bij elkaar op te tellen.

15.03.2024 - 10:44

country flag Tineke Klapwijk wrote:

Ik wil nou eindelijk dit vest breien, maar ik kom er niet uit. Het antwoord op mijn eerdere vraag hierover heeft me niet geholpen. Ook andere breisters kunnen me er niet bij helpen. We vermoeden dat er een fout in het patroon moet zitten. Ik zou heel graag iemand van Drops willen spreken, om uit te leggen wat het probleem is, en om over een oplossing te kunnen overleggen. Maar ik weet niet hoe ik iemand kan bereiken. Please, help!!

14.03.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Dag Tineke,

Wanneer je aangeeft welke maat je wilt breien en waar je precies tegenaan loopt, dan kunnen we je hopelijk beter helpen.

14.03.2024 - 21:57

country flag Debbie wrote:

I have tried knitting the xxxl size 4 different times and cannot get the numbers to work, I am increasing the correct amount of sts, but I am left with 25sts at the end of the row not including the garter stitch bands. Please tell me where I am going wrong, absolutely love this pattern and I am desperate to knit it, many thanks

07.03.2024 - 23:47

DROPS Design answered:

Dear Debbie, work as follows: 5 sts in garter stitch, A.1 (= 9 sts), A.7 (= 18 sts), A.1 (= 18 sts), *24 sts in stocking stitch, A.1 (= 9 sts) *, work from *-* 3 times in total, 24 sts in stocking stitch, (33 x 3 = 99 sts), 24 sts in stocking st, A.1 (18 sts), A.7(= 18 sts), A.1 (= 9sts), A.7 ( 18 sts), A.1(18sts), *24 sts in stotcking stitch, A.1 ( 9 sts)*, work from *-* 3 times in total (99 sts), 24 sts in stocking stitch, A.1( 18 sts), A.7 ( 18 sts), A.1 (9 sts), 5 sts in garter stitch. =5+9+18+18+99+24+18+18+9+18+18+99+24+18+18+9+5 = 427 sts. Happy knitting!

08.03.2024 - 08:50

country flag Gitte Frandsen wrote:

Er det korrekt at der i opskriften Drops Design 197-25 Ice Danser skal være 5 kantm. a1, a3, (20 m, a1) (x 3) 20m , a5, a1, a3, (20 m, a1) (x3) 20 m a5, a1, 5 kantm. Skal der ikke være 2 x a5 på ryggen og a3 på forstykkerne. Synes det andet virker forkert da a5 er bredere end a3

25.02.2024 - 10:53

DROPS Design answered:

Hej Gitte, A.1 er midt bagpå. Du skal have A.5 på den ene side af A.1 og A.3 på den anden side (både A.5 og A.3 består af 18 masker) :)

01.03.2024 - 14:39

country flag Kirsti Mäkinen wrote:

Jatketaanko "reunan lyhennetyt kerrokset" myös huivi kauluksessa?

23.02.2024 - 09:09

DROPS Design answered:

Kyllä, myös huivikauluksessa neulotaan kyseisiä lyhennettyjä kerroksia.

21.03.2024 - 17:34

country flag Tineke Klapwijk wrote:

Mijn vraag gaat over telpatronen A1 en A7. Wat doe ik met de steek 'die er niet is', als een zwart blokje in het patroon? Aan het eind van de eerste toer (maat XL) met de telpatronen houd ik 12 steken over. Zijn dat die 12 keer het zwarte blokje? En hoe los ik dat op?

21.01.2024 - 14:39

DROPS Design answered:

Dag Tineke,

Als je het aantal blokjes telt in de breedte van het telpatroon, dan zie je ook dat er geen 18 steken zijn maar, 16 steken. Als je het telpatroon uit zo knippen, dan zou je de zwarte blokjes er ook uit moeten knippen. Dus wanneer je de volgende ste(e)k(en) op de linker naald breit, dan brei je de steek die gelijk na het zwarte blokje komt.

21.01.2024 - 19:39

country flag Susanne Striegl wrote:

Wie errechne ich den Wollbedarf?

02.01.2024 - 18:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Striegl, die benötige Wollmenge für jede Grösse finden Sie unter dem Kopfteil, zusammen mit den Grössen und Nadeln bzw Maschenprobe, dh in S brauchen Sie z.B.k 750 g DROPS Lima / 50 g das Knäuel = 15 Knäuel. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2024 - 08:23

country flag Cornelia Vogelsang wrote:

Könnte ich hiervon einr PDF haben?

01.04.2023 - 11:53

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, wenn Sie auf den Button "Drucken" klicken, können Sie sich ein pdf der Anleitung erstellen, wenn Sie in den Druckeinstellungen den Druck als pdf wählen.

06.04.2023 - 08:56