Pure Magic |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Hekluð peysa með gatamynstri og ermum án sauma úr DROPS Air.
DROPS 194-35 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. RÖND: Heklið alls 3 endurtekningar af A.1b til A.3b með litnum blár, síðan er afgangurinn af stykki heklað með litnum þoka. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum, byrjar með 3 loftlykkjum sem koma í stað fyrsta stuðul. Hver umferð með tvíbrugðnum stuðlum, byrja með 5 loftlykkjum sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 77-84-91-98-105-112 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 6 með litnum blár. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 65-71-77-83-89-95 stuðlar. Heklið frá réttu þannig: Heklið A.1a (= 5 stuðlar), A.2a (= 6 stuðlar) yfir næstu 54-60-66-72-78-84 stuðla (= 9-10-11-12-13-14 sinnum á breidd) og endið með A.3a (= 6 stuðlar). Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a í RÖND – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 52-53-54-56-57-58 cm, passið uppá að næsta umferð sé frá röngu, klippið frá og heklið lykkjur fyrir ermar þannig: Heklið 36-34-33-31-28-27 loftlykkjur, heklið A.3b, A.2b og A.1b yfir bakstykki eins og áður og endið með 39-36-35-33-30-29 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með). Stykkið mælist nú ca 54-55-56-57-58-59 cm. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Ermi: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), * heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, heklið frá *-* þar til eftir eru 6-4-3-1-5-4 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 0-4-3-1-5-4 loftlykkjum (= 32-30-29-27-25-24 stuðlar fyrir ermi) Bakstykki: Heklið A.1b, A.2b og A.3b eins og áður yfir lykkjur á bakstykki. Ermi: Heklið 1 stuðul í hvora af fyrstu 2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* þar til eftir eru 0-4-3-1-5-4 loftlykkjur og endið með 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 0-4-3-1-5-4 loftlykkjum (= 32-30-29-27-25-24 stuðlar fyrir ermi) = alls 129-131-135-137-139-143 lykkjur. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 8-9-5-9-10-6 stuðlana, A.3b yfir næstu 6 stuðla (passið uppá mynsturumferð með A.2b), A.2b alls 17-17-19-18-18-20 sinnum á breidd (= 102-102-114-108-108-120 lykkjur), A.1b yfir næstu 5 stuðla (passið uppá mynsturumferð með A.2b) og endið með A.4 yfir síðustu 8-9-5-9-10-6 stuðla. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm, passið uppá að næsta umferð sé hekluð frá réttu (þ.e.a.s. með stuðlum), heklið axlir til loka hvora fyrir sig. Nú er eftir 1 umferð. HÆGRI ÖXL: Heklið nú yfir fyrstu 55-56-58-56-57-59 lykkjur (ekki er lengur heklað yfir miðju 18-18-18-24-24-24 lykkjur = hálsmál) þannig: Heklið A.4 eins og áður yfir fyrstu 8-9-5-9-10-6 lykkjur, A.1b eins og áður, A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Heklið yfir síðustu 56-57-59-57-58-60 lykkjur. Hoppið yfir 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar af A.2b fyrir hálsmál og heklið frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju á næstu mynstureiningu af A.2b, heklið 3 loftlykkjur (= koma í stað 2. lykkju í A.2b, þ.e.a.s. fyrsta loftlykkjan er ekki hekluð í fyrsta skipti þegar A.2b er endurtekið), heklið A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd, heklið A.3b eins og áður og endið með A.4 í hverja af síðustu 8-9-5-9-10-6 lykkjum. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist alls ca 74-76-78-80-82-84 cm. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu (þ.e.a.s. með tvíbrugðnum stuðlum). Nú eru eftir 4 umferðir. Heklið hvora öxl til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Heklið yfir fyrstu 56-57-59-57-58-60 lykkjur (ekki er lengur heklað yfir miðju 18-18-18-24-24-24 lykkjur = háls) þannig: Heklið A.4 eins og áður yfir fyrstu 8-9-5-9-10-6 lykkjur, A.3b eins og áður, A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd og endið með 1 tvíbrugðinn stuðull um síðustu loftlykkju. Snúið og heklið frá réttu þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= fyrsti stuðull), heklið A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd, A.3b eins og áður og A.4 yfir síðustu 8-9-5-9-10-6 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til heklað hefur verið yfir alls 4 umferðir á öxl (síðasta umferð er með stuðlum frá réttu). Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist alls ca 74-76-78-80-82-84 cm. VINSTRI ÖXL: Heklið yfir síðustu 55-56-58-56-57-59 lykkjur. Hoppið yfir 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar af A.2b fyrir hálsmáli og heklið frá röngu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju á næstu mynstureiningu af A.2b, heklið 5 loftlykkjur (= koma ekki í stað fyrstu lykkju í A.2b), heklið A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd, heklið A.1b eins og áður og endið með A.4 í hverja af síðustu 8-9-5-9-10-6 lykkjum. Snúið og heklið frá réttu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 8-9-5-9-10-6 lykkjur, A.1b eins og áður, A.2b alls 7-7-8-7-7-8 sinnum á breidd og endið með 1 stuðul í 5. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Haldið svona áfram með mynstur þar til heklaðar hafa verið alls 4 umferðir á öxl (síðasta umferð er með stuðlum frá réttu). Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist alls ca 74-76-78-80-82-84 cm. FRÁGANGUR: Leggið framstykkið og bakstykkið að hvor öðru með rönguna út og heklið axlirnar saman þannig: Heklið 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkja um/í næsta loftlykkjuboga/lykkja *, heklið frá *-* meðfram allri öxlinni, passið uppá að endað sé með 1 fastalykkju. Heklið saman sauma undir ermum alveg eins og haldið síðan áfram niður meðfram hliðum ca 10 cm (= 44-45-46-47-48-49 cm klauf). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Melanie Rice wrote:
Please explain if A1a is one row or 2 rows. Also, the same for a2a and A3a. The chart is confusing because the bracket is not clear. Thank you!
28.09.2018 - 21:11DROPS Design answered:
Dear Mrs Rice, A.1a-A.3a are only one row, it shows how to start the pattern over the previous row. After you have worked the a-part of diagrams repeat the b part of diagrams: A.1b, A.2b, A.3b. Happy crocheting!
01.10.2018 - 07:51Linda wrote:
I love your patterns. Thank you for sharing and all of the inspiration.
08.09.2018 - 19:55Annica wrote:
Sååå vacker!
04.07.2018 - 21:57