Green Luck |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri, laskalínu. Stærð S – XXX. Prjónuð húfa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri og uppábroti í stroffi.
DROPS 196-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.6 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu lykkju frá kanti. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 12, 20, 28, 35, 42 og 49 cm M: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 51 cm L: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 53 cm XL: 4, 12, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm XXL: 4, 12, 19, 27, 35, 43, 50 og 57 cm XXXL: 4, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 59 cm ATH: Síðasta af þessum 7-7-7-8-8-8 hnappagötum er fellt af í kanti í hálsmáli ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir á berustykki): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 4,45. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (þ.e.a.s. fækkið hvoru megin við A.5) = 8 lykkjur færri í hveri úrtökuumferð. Fækkið lykkjum svona á undan A.5: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona á eftir A.5: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan er fram- og bakstykki og kantur á ermum sett inn á sama hringprjón og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 286-314-334-374-414-446 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1A (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 52-59-64-68-78-86 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.2A (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, en fellið af fyrir 1 HNAPPAGAT íkanti að framan – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1B (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur sem fækka í 29-29-29-39-39-39 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 38-38-38-50-50-50 lykkjur í umferð og fækkið jafnframt um 40-46-50-54-62-68 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (prjónið ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman), prjónið A.2B (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur sem fækka í 29-29-29-39-39-39 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 238-260-276-308-340-366 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið til baka frá röngu í garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 29-29-29-39-39-39 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 34-34-34-44-44-44 lykkjur í umferð, prjónið A.4 (= 29-29-29-39-39-39 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er sett 1 prjónamerki 66-72-76-86-94-100 inn frá hvorri hlið (= 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í öðrum hverjum cm alls 5 sinnum í hvorri hlið = 218-240-256-288-320-346 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 5 sinnum í hvorri hlið = 238-260-276-308-340-366 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð (ranga) eru felldar af 10-10-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Nú eru 61-67-70-80-87-92 lykkjur eftir á hvoru framstykki og 96-106-112-124-138-150 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 56-60-60-64-68-68 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-10-12-12-10 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-56-58 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-8-6-6-6 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-15-17-16-13-9 sinnum og síðan í hverjum cm alls 2-4-6-8-12-17 sinnum = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 45-44-42-41-39-37 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-76-84-88-92-94 lykkjur slétt og fellið af þær 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 350-392-420-460-496-522 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.3 eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru fetir á undan prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur – prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 lykkja), prjónið sléttprjón yfir ermi þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir bakstykki þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir ermi þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að A.4, haldið áfram með A.4 og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir þar sem fram- og bakstykki og kantur á ermum var sett saman er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum og síðan í annarri hverri umferð alls 22-26-29-33-36-38 sinnum. Á eftir síðustu úrtöku eru 150-160-164-172-184-194 lykkjur eftir í umferð. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 26-32-32-32-40-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 124-128-132-140-144-152 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fellið af fyrir síðasta hnappagati í þessari umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 128-136-144 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 11-13-15 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 11-13-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 117-123-127 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð þannig: 45-48-50 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (= 27 lykkjur), prjónið 45-48-50 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm frá kanti í garðaprjóni eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 11-11-11 lykkjur í umferð, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 22-22-23 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 51-57-59 lykkjur og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 22-22-23 lykkjur. Nú eru 11-11-11 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið áfram með sléttprjón og mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 = 8 lykkjur færri í umferð. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10 sinnum. JAFNFRAMT þegar A.6 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum er prjónað A.7 yfir sömu 27 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka og öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 23-29-33 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræði þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 28-30-32 cm ofan frá og niður ásamt stroffi. Brjótið uppá helming á stroffi saman tvöfalt að réttu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Gjertrud wrote:
Hei, jeg fant A-5 nå !
18.09.2022 - 23:07Gjertrud wrote:
Hei, jeg finner ikke A-5 som henvises til i forbindelse med raglanfelling.
18.09.2022 - 20:54DROPS Design answered:
Hei Gjertrud. Du finner diagram A.5 mellom A.4 (xl-xxl-xxxl) og A.7. Det minste diagrammet, består av 8 masker og 6 rader. mvh DROPS Design
19.09.2022 - 13:55Konni Plitschka wrote:
Hallo ich würde gerne die Jacke stricken nur traue ich mich noch nicht so richtig ran.Bevor ich loss lege würde ich gerne noch wissen ob die ab und Zunahmen in dem Diagramm mit drin stehen.
27.01.2022 - 09:13DROPS Design answered:
Liebe Frau Plitschka, einige Abnahmen sind in den Diagrammen gezeichnet, aber nicht alle, die Sie in der Anleitung stricken sollen, die sind in die schriftlichen Erklärung beschrieben. Viel Spaß beim stricken!
28.01.2022 - 10:29Konni wrote:
Hallo ich würde gerne die Jacke stricken nur traue ich mich noch nicht so richtig ran.Bevor ich loss lege würde ich gerne noch wissen ob die ab und Zunahmen in dem Diagramm mit drin stehen.
25.01.2022 - 14:21Valérie wrote:
J'ai tricoté ma première Manche avec la méthode du magic loop, je dois rabattre à la fin 6 mailles en début et fin de rang. Pour le début pas de problème, mais pour rabattre les 6 dernières je suis dans un nœud. Comment dois je faire svp merci bcp
17.04.2020 - 23:12DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, à la fin de ce dernier tour de la manche, rabattez les 6 premières mailles, tricotez les mailles suivantes (84 ou 88 selon la taille) comme avant jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles sur l'aiguille gauche, et rabattez ces 6 dernières mailles, coupez le fil, vous devez avoir 84 ou 88 m sur l'aiguille. Bon tricot!
20.04.2020 - 08:36Valérie wrote:
Bonsoir, c'est encore moi. J'arrive au 30 cm où il es indiqué de rabattre sur l'envers poir ma taille 12 mailles soit 6 de chaque côté du fil marqueur. Ma question est comment les rabattre. Merci à vous pour votre disponibilité.
31.03.2020 - 20:42DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, vous pouvez les rabattre au choix comme elles se présentent: à l'envers sur l'envers et vous fermerez ensuite par une couture ces 12 mailles rabattues aux 12 mailles rabattues des manches (cf vidéo. Bon tricot!
01.04.2020 - 08:18Valérie wrote:
Bonsoir, je sèche après avoir fais les côtes, sur le rang où il faut faire les diminutions. J'ai bien diminué sur les 45 premières mailles, mais pour la suite je ne comprend pas. Merci de bien vouloir m'aider.
21.03.2020 - 22:14DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, après les côtes, vous tricotez: 5 m point mousse, A.5B (= on passe de 45 à 39 m), tricotez les mailles suivantes à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 50 m (= les mailles de A.2A + les 5 m de bordure devant) en diminuant en même temps 54-62-68 m (= cf taille) et terminez par A.2B (on passe de 45 à 39 m) et 5 m point mousse. Vous avez maintenant: 5 + 39 + 220-252-278 + 39+5= 308+340+366 m. Bon tricot!
23.03.2020 - 09:53Isabelle wrote:
Existe-t-il une vidéo pour montrer comment réunir le dos/devant et les manches ? Merci
27.02.2020 - 17:33DROPS Design answered:
Bonjour Isabelle, tout à fait, c'est cette vidéo qui montre comment réunir les manches - les mailles rabattues au début et à la fin du dernier rang de la manche doivent être contre les mailles rabattues pour les emmanchures à la fin du dos/devants. Bon tricot!
28.02.2020 - 07:51Cecilie wrote:
Det ser ut til at fordeling og strikking av knapphull har falt ut. Det samme gjelder alle felletips og øketips.
23.06.2019 - 23:39DROPS Design answered:
Hei Cecilie. Nå skal all informasjon til oppskriften være lagt inn. Takk for beskjed og god fornøyelse
24.06.2019 - 07:12Nathalie wrote:
Bonjour, J'ai 2 questions : Il manque un symbole dans la légende des diagrammes, le triangle rectangle noir avec angle droit en bas à gauche des 2 mailles. Les diagrammes sont ils inversés ou faut-il les lire de droite à gauche ? Parce que A3 commence par 2 mailles envers alors qu'on voit 2 mailles endroit après la bordure au point mousse, A4 finit par 2 mailles envers au lieu des 2 mailles endroit avant la bordure au point mousse. Pouvez vous m'éclairer ? Merci
09.04.2019 - 12:11DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, pour A.4, je tricoterai 2 m ens à l'envers également pour conserver la cohérence du motif - nos stylistes vont vérifier ça aussi rapidement que possible - Les diagrammes se lisent sur l'endroit de droite à gauche, A.3 va ainsi commencer par 2 m end sur l'end et A.4 terminera par 2 m end sur l'end. Sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite - cliquez ici pour en savoir plus sur les diagrammes. . Bon tricot!
09.04.2019 - 12:23