DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Forest Fling

Prjónað sjal með blöðum úr DROPS Delight. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með stuttum umferðum.

DROPS 196-5
DROPS Design: Mynstur de-193
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 42 cm
Lengd: ca 162 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250 g litur 08, grænn/beige

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 41 umferð á hæðina með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Mynsturteikning A.1 er lesin frá vinstri til hægri í öllum umferðum frá röngu. Í öllum umferðum frá réttu er mynsturteikning lesin frá hægri til vinstri.
Mynsturteikning A.2 sýnir blöðin, mynsturteikningin sýnir einnig stefnu og röð á umferðum.

TILLÖGUR UM LITI:
Til þess að blanda litum og brjóta upp mynstur með litum jafnóðum þá er hægt að skipta um dokku eða að taka þráð frá hinum endanum á dokkunni í hverri umferð með blöðum. Skiptið um lit áður en prjónuð er hver BYRJUNAR UMFERÐ 1 og BYRJUNAR UMFERÐ 2

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, prjónað er frá öðru horninu og upp og út á hlið með röndum og mismunandi fjölda blaða.
Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir blöð í hvert skipti, allt stykkið er prjónað með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Notið prjónamerki í stykkið, þessi prjónamerki eru sett á milli og mitt í blöðin jafnóðum í stykkið. Prjónamerkin sitja á prjóninum og koma til með að fylgja stykkinu. Prjónamerkin gera vinnuna auðveldari þegar prjóna á blöðin. Lesið einnig TILLÖGUR UM LITI í útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 36 lykkjur á hringprjón 4 með Delight. Prjónið síðan þannig:

RÖÐ 1: Prjónið BLAÐ A þannig:

BLAÐ A:
Prjónið mynsturteikningu A.1, fyrsta umferð í mynsturteikningu er frá röngu – sjá útskýringu að ofan undir mynstur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina = 1 blað. Fyrsta röðin með blöðum er nú tilbúin, snúið stykkinu.
Í skiptingunni á milli 1. og 2. raðar með blöðum er prjónuð BYRJUNAR UMFERÐ 1 þannig:

BYRJUNAR UMFERÐ 1:
Frá réttu: Fellið af fyrstu 18 lykkjur slétt, prjónið 18 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér og fitjið upp 18 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér. Fitjið upp 36 nýjar lykkjur í lok umferðar. Nú er þetta tilbúið þannig að hægt er að prjóna næstu röð með blöðum. Snúið stykkinu.

RÖÐ 2: Prjónið BLAÐ B, C og D þannig:

BLAÐ B:
Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu 36 lykkjur á prjóni (fram að fyrsta prjónamerki á prjóni séð frá röngu). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina (nú hefur verið prjónað aftur fram að sama prjónamerki). Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt frá röngu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér, snúið ekki stykkinu, næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjur.

BLAÐ C:
Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir næstu 36 lykkjur á prjóni (fram hjá prjónamerki og fram að næsta). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Snúið stykkinu og prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt frá röngu (fram að prjónamerki sem er staðsett mitt í einu blaði), snúið ekki stykkinu, næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjur.

BLAÐ D:
Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir síðustu 36 lykkjur á prjóni (fram hjá síðasta prjónamerki og út umferðina). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Nú hafa verið prjónuð 3 blöð og 2. röð með blöðum er nú tilbúin.

Prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 – sjá útskýringu að ofan, í skiptinguna á milli 2. og 3. raðar með blöðum.

RÖÐ 3: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 3 sinnum á breiddina, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 5 blöð í röðinni) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 í skiptinguna á milli 3. og 4. raðar með blöðum.

RÖÐ 4: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 5 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 7 blöð í röðinni) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 í skiptinguna á milli 4. og 5. raðar með blöðum.

RÖÐ 5: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð í röðinni). ATH! Nú á ekki lengur að prjóna BYRJUNAR UMFERÐ 1, nú á að prjóna BYRJUNAR UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 5. og 6. raðar með blöðum þannig:

BYRJUNAR UMFERÐ 2:
Frá réttu: Fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, setjið 1 prjónamerki á prjóninn þannig: Fitjið upp 36 nýjar lykkjur í lok umferðar og setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér. Nú er þetta tilbúið þannig að hægt er að prjóna áfram næstu röð með blöðum héðan. Snúið stykkinu.

RÖÐ 6: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐA C alls 7 sinnum á breiddina, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 6. og 7. raðar með blöðum.

RÖÐ 7: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUN Á UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 7. og 8. raðar með blöðum.

RÖÐ 8: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUN Á UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 8. og 9. raðar með blöðum.

RÖÐ 9: Prjónið BLAÐ E þannig:

BLAÐ E:
Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu 36 lykkjur (fram að fyrsta prjónamerki á prjóni séð frá röngu). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina (nú hefur aftur verið prjónað fram að sama prjónamerki). Snúið stykkinu. Prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, fellið af 18 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér og fitjið upp 18 nýjar lykkjur frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur frá röngu. Snúið ekki stykkinu þar sem næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjurnar héðan. Prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjurnar (= 9 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu.

RÖÐ 10: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 5 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 7 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu.

RÖÐ 11: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 3 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 5 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu.

RÖÐ 12: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C 1 sinni á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 3 blöð). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu.

RÖÐ 13: Prjónið BLAÐ E yfir síðustu 36 lykkjur, en þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru allar lykkjur felldar af frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá röngu
symbols = slétt frá réttu
symbols = sýnir átt á röðum og hvaða númer er á hverri röð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Justyna wrote:

Chciałam skrócić szal i po rzędzie 7 zrobić od razu 9 czy jest taka możliwość? Czytając wzór mam wrażenie, że nie zgadza mi się liczba oczek - 18 dodanych przerabiam na lewo, później na kolejnych 36 robię pierwszy z liści C ? Mam wtedy za mało o 18 oczek. Czy nie ma możliwości skrócenia szala, czy coś źle rozumiem?

25.11.2023 - 21:39

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, aby skrócić szal, po 7-mym rzędzie musisz wykonać rząd 10 i kolejne, aż do końca. Pozdrawiamy!

30.11.2023 - 08:49

country flag Martina Beck wrote:

Könnten Sie ein kurzes Video zur Anleitung dieses Schals drehen? Ich verstehe die Technik nicht, wie man die Blätter einzeln strikt und dann ansetzt.

23.10.2023 - 12:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beck, dann kann Ihnen sicher dieses Video helfen, wir zeigen, wie die ersten Blätter gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2023 - 08:44

country flag Justyna wrote:

Czy można dodać 1 rząd więcej po środku (między 5 a 8 rzędem), żeby szal wyszedł dłuższy ? Mam 285g włóczki (A)(ok.1000m) czy to wystarczy?

21.10.2023 - 14:59

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, można tak zrobić. Czy wystarczy włóczki, powinno, ale trudno to przewidzieć. Pozdrawiamy!

23.10.2023 - 08:40

country flag Stela wrote:

If I wanted to knitting a stole narrower for two leaves,, what would I have to do? I didn’t start yet, so I can’t wrap my mind around it.

16.01.2023 - 21:09

DROPS Design answered:

Dear Stela, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, however I guess you could here just adjust the number of leaves required, for ex work row 1 and 2 as described, but from row 3 working then only 3 leaves to row 10 (only 1). Happy knititng!

17.01.2023 - 10:08

country flag María wrote:

Existe una errata en el patrón en Español, se necesitan agujas de 4mm pero en el montaje indica 3.5mm, entiendo que lo correcto son 4mm. ESTOLA: Montar 36 puntos con agujas circulares de 3.5 mm y Delight. Gracias.

13.01.2023 - 18:38

DROPS Design answered:

Hola María, sí, se trata de una errata, son agujas de 4mm. La corregiremos lo antes posible, gracias.

15.01.2023 - 11:15

country flag Merete wrote:

Super sjov opskrift. Men jeg er nået til blad E, og jeg er usikker på måden det skal strikkes. Når jeg læser opskriften, synes jeg det virker som om, jeg skal strikke to blade direkte ovenpå hinanden (det er de to første sætninger, der forvirrer mig ). Er det korrekt læst? Det virker nemlig lidt mystisk, synes jeg , da resten af mønstret har bladene forskudt.

16.07.2020 - 06:32

DROPS Design answered:

Hej Merete, jo du ser i diagram A.2 nederst at efter række 9 hvor du strikker E, fortsætter du med 10 som også er E. God fornøjelse!

30.07.2020 - 14:46

country flag Mp 54 wrote:

Bonjour, mes feuilles sont bombées au milieu, alors que sur le modèle, elles paraissent plates Pouvez me dire où est mon erreur? Merci

09.03.2019 - 00:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mp54, il est possible que vous vous soyez trompée dans les rangs raccourcis de ces feuilles, quand elles sont terminées, elles doivent être toutes plates. N'hésitez pas à montrer votre ouvrage (même en photo par mail) à votre magasin, il lui sera plus facile de vous aider. Bon tricot!

11.03.2019 - 09:27

country flag Mp 54 wrote:

Bonjour, mes feuilles sont bombées au milieu, alors que sur le modèle, elles paraissent plates Pouvez me dire où est mon erreur? Merci

08.03.2019 - 20:44

country flag Anette wrote:

Eine sehr schöne Anleitung, die ich schon zweimal mit der angegebenen Wolle gestrickt habe. Leider benötigte ich bei jeder Version etwas mehr als 250 g Wolle.

22.11.2018 - 11:45

country flag Zaza wrote:

Bonjour j avoue ne pas trop saisir le debut du travail , j ai monte 36 mailles, tricote 36 mailles end, apres je bloque..je sais lire un diagramme' pourriez vous m aider pour tricoter le diagramme en entier et que j ai la premiere feuille sur mes aiguilles merci d avance zaza

22.10.2018 - 12:11

DROPS Design answered:

Bonjour Zaza, bien volontiers, lisez le 1er rang du diagramme sur l'envers = 36 m endroit, puis tricotez 18 mailles end sur l'end, tournez et tricotez 16 m end sur l'env, tournez, tricotez 18 m end sur l'end, tournez, et ainsi de suite. Au 22ème rang, tricotez 16 m end, tournez et tricotez 18 m end,, tournez et tricotez 16 m end, tournez et tricotez 18 m end et ainsi de suite jusqu'à la fin du diagramme. Bon tricot!

22.10.2018 - 14:17