DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Himalaya Rose

Motta með gatamynstri og röndum, hekluð í hring frá miðju og út. Stykkið er heklað úr 3 þráðum DROPS Paris.

DROPS 189-10
DROPS Design: Mynstur w-710
Garnflokkur C + C + C
-----------------------------------------------------------

Mál: Þvermál: ca 110 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300 g litur 41, sinnep
250 g litur 19, ljós gulur
250 g litur 01, apríkósa
200 g litur 38, kórall
200 g litur 30, gráblár
150 g litur 37, rústrauður
150 g litur 35, vanillugulur

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 8 stuðlar og 4,5 umferðir með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. (Mynsturteikning A.1 og A.3 sýna hvernig umferðin byrjar og endar).

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferða með nýja litnum.

RENDUR:
Uppfitjun + UMFERÐ 1-2: sinnep
UMFERÐ 3-4: ljós gulur
UMFERÐ 5: apríkósa
UMFERÐ 6: rústrauður
UMFERÐ 7: gráblár
UMFERÐ 8: kórall
UMFERÐ 9: sinnep
UMFERÐ 10: gráblár
UMFERÐ 11: vanillugulur
UMFERÐ 12: apríkósa
UMFERÐ 13-14: kórall
UMFERÐ 15: rústrauður
UMFERÐ 16: apríkósa
UMFERÐ 17-18: kórall
UMFERÐ 19: sinnep
UMFERÐ 20: vanillugulur
UMFERÐ 21-24: ljós gulur
UMFERÐ 25: apríkósa
UMFERÐ 26: rústrauður
UMFERÐ 27: gráblár
UMFERÐ 28: kórall
UMFERÐ 29: sinnep

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju og út með 3 þráðum Paris.

MOTTA:
Byrjið með heklunál 8 og 3 þráðum í litnum sinnep. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og MYNSTUR hringinn þannig:
Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2 alls 10 sinnum hringinn í umferð – lesið LITAMYNSTUR!
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í síðustu umferð er aukið út um 8 stuðla jafnt yfir = 168 stuðlar. Þegar allt A.1 og A.2 er lokið mælist stykkið ca 68 cm að þvermáli.
Byrjið á umferð með ör í mynsturteikningu og heklið A.3 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4 alls 14 sinnum hringinn í umferð.
Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka eru 280 stuðlar í umferð og stykkið mælist ca 110 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er byrjun á umferð.
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja um bilið á milli 2 lykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = heklið 4 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 3 stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af stuðlunum, heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 2 og 2 stuðla saman þannig: Heklið 2 stuðla um fyrstu loftlykkjuna, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af þessum stuðlum, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu loftlykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = í byrjun á umferð er byrjað með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð
symbols = í byrjun á umferð er skipt út fyrsta tvíbrugðna stuðul fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð. Nú eru heklaðar 14 mynstureiningar A.4 hringinn í umferð
symbols = í þessari umferð er aukið út um 8 stuðla jafnt yfir = 168 stuðlar
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Himalaya Rose

Jennifer, Georgia

Just finished another project...

Stefanie, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Karin wrote:

Är mönstret ett diagram eller text?

08.02.2022 - 14:22

DROPS Design answered:

Hej Karin, du finder diagrammet nederst i opskriften :)

08.02.2022 - 14:46

country flag Anne wrote:

Bonsoir ! Je voudrais le faire plus grand, avez-vous une explication comment faire ? Si je continue avec le dernier tour j’augmente à quel interval ? Merci 💐💐💐

21.02.2021 - 20:56

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, merci d'avance pour votre compréhension. Votre magasin devrait pouvoir vous aider, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

22.02.2021 - 09:30

country flag Aneta wrote:

Witam Chciałam zapytać ile ma być w każdym okrążeniu słupków gdzie można znaleźć te informacje bo we wzorze nie widzę żadnych liczb. Dziekuje za informację

09.08.2020 - 09:39

DROPS Design answered:

Witaj Aneto! Dywanik jest przerabiany wg schematu, bez opisu dodatkowego, podane są liczby słupków, ale po zakończonym kolejnym schemacie. Ile słupków jest po każdym okrążeniu dowiesz się po pomnożeniu liczby słupków w schemacie w danym okrążeniu x 10. Ale w kolejnych okrążeniach nie ma tylko samych słupków, więc dlatego te liczby nie są podawane. Jak przerabiać na szydełku wg schematu znajdziesz TUTAJ. Powodzenia!

10.08.2020 - 14:52

country flag Elisabeth Dahl wrote:

Jeg har nå kjøpt Drops paris i fargene som er oppgitt, ( som ikke stemmer med bildet) og tatt hekleprøve på 8 staver på 4,5 runde, dette stemte perfekt på 10x10 cm med 3 tråder på 8mm krok. Oppskriften stemmer ikke i det hele tatt, starten av matten blir for løs, så blir alt for stramt. Dette blir en sekk og ikke en matte. Jeg har nå begynt å hekle denne med kun en tråd og krok nr 5 for å se , og akkurat samme problemene oppstår på de samme plassene.

20.04.2020 - 15:53

country flag Imogen wrote:

Der Teppich sieht toll aus. Habe ihn aus Garnresten unterschiedlicher Art gehäkelt. Es ging recht schnell und das Ergebnis ist toll. In der Anleitung konnte ich keine Fehler entdecken. Vielen Dank!

17.02.2019 - 11:11

country flag Reix wrote:

Bonjour, j'aimerais savoir pourquoi lorsque je crochète en rond mon travail fait des plis, il n'est pas plat. Peut être est ce dû au crochet.. mais du coup il faut que je prenne la taille au dessus ou en dessous? Merci de votre réponse

06.12.2018 - 10:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Reix, il est possible que cela vienne de votre tension - avez-vous bien le bon échantillon en largeur et en hauteur soit 8 brides x 4.5 rangs avec 3 fils crochetés ensemble = 10 cm de large et 10 cm de hauteur? Si vous avez trop des mailles pour 10 cm, essayez avec un crochet plus gros. Si vous n'avez pas assez des mailles pour 10 cm, essayez avec un crochet plus fin. Bon crochet!

06.12.2018 - 12:41

Monika wrote:

I love the design, but I don´t like that there are new symbols invented.

05.07.2018 - 10:22

DROPS Design answered:

Dear Monica, each symbol is drawn for a stitch or a group of stitch, most important is always to follow diagram watching the key matching each symbol. Happy crocheting!

05.07.2018 - 13:24

country flag Lisa wrote:

Love this! It would add cheer to any room.

19.12.2017 - 21:46

country flag Monika wrote:

So adorable. Love the design and colours.

11.12.2017 - 19:55