Summer Azalea |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Heklaður hattur með gatamynstri og blómum úr DROPS Paris.
DROPS 190-20 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Umferð með tvíbrugðnum stuðlum í A.1 byrjar með 4 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Heklið 2 stuðla í sömu lykkju. ÚRTAKA: Heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, sækið þráðinn með nýja litnum, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður, þ.e.a.s. heklið frá topp á hatti og niður, heklið síðan barðið í hring. Innsti hlutinn á blóminu er heklaður á sama tíma með hattinum og blöðin eru hekluð eftir á. HATTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum hvítur. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla í 1. loftlykkju sem var hekluð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið * 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: Heklið * 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 4 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. Nú er útaukningu lokið í stærð S/M, haldið áfram að auka út í stærð L/XL þannig: UMFERÐ 7: Heklið * 2 stuðla í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 84 stuðlar. BÁÐAR STÆRÐIR: Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 4-0 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 76-84 stuðlar. Heklið 2 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul. Stykkið mælist ca 10-11 cm frá miðju og út. Heklið nú A.1 (= 4 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 19-21 sinnum). Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 4 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 72-80 stuðlar. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.2 og A.2 þannig: Heklið með púðurbleikur – lesið LITASKIPTI þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFEÐR 2: Heklið A.2 þannig: ** Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 3 stuðlum, heklið 2 stuðla saman í næsta stuðul og um þessa stuðla er heklað A.3 (= blóm) þannig (sjá ör í A.3, hér byrjar blómið): Um síðasta stuðul sem var heklaður í A.2 er heklað þannig: * Heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið síðan um næst síðasta stuðul sem var heklaður í A.2 þannig: Heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 loftlykkju, síðan er heklað A.2 áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum **. Heklið frá **-** hringinn alla umferðina = 9-10 blóm. Það á síðar að heklað í kringum loftlykkjuboga í blómi (= A.4). Skiptið yfir í hvítur. UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 3 stuðlum, heklið 1 stuðul um loftlykkju sem var hekluð á eftir blómi, heklið 1 stuðul í hvern af 4 næstu stuðlum *, heklið frá *-* JAFNFRAMT er aukið út um 18-10 stuðla jafn yfir hringinn alla umferðina = 90 stuðlar. Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 18-19 cm. Nú er barðið heklað með litnum hvítur þannig: UMFERÐ 1: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 8 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 100 stuðlar. UMFERÐ 2: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 9 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 110 stuðlar. UMFERÐ 3: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 10 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 120 stuðlar. UMFERÐ 4: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 11 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 130 stuðlar. UMFERÐ 5: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 140 stuðlar. UMFERÐ 6: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 13 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 150 stuðlar. UMFERÐ 7: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 14 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 160 stuðlar. UMFERÐ 8: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 15 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 170 stuðlar. UMFERÐ 9: * 2 stuðlar í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 16 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 180 stuðlar. Klippið frá og festið enda. BLÓM: Um hvern loftlykkjuboga sem var heklaður í A.3 er heklað A.4 með litnum ljós bleikfjólublár. Þegar A.4 hefur verið heklað í kringum alla 5 loftlykkjubogana í 1 blómi, klippið frá og festið enda. Heklið um allt A.3 á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Tina Nordstrøm wrote:
Jeg har hæklet hatten i str L-XL.......hovedformen passer, men “skyggen” falder ned, og klasker......skal den stives med noget for at opnå den ombukkede effekt?
02.05.2019 - 15:29DROPS Design answered:
Hej Tina, Det skal egentlig ikke være nødvendigt hvis du hækler den i DROPS Paris og hækler lidt stramt ifølge hæklefastheden i opskriften. God fornøjelse :)
03.05.2019 - 10:39Christa Hofer wrote:
Sehr, sehr lieb und hübsch
13.04.2019 - 22:45Karen wrote:
The hat is worked in the round but the pattern does not indicate making a ring. It just says "work 2 chains stitches"
03.07.2018 - 17:16DROPS Design answered:
Dear Karen, yes, that is right. You work 2 chain sts, in the first of them work 12 treble crochets - this will make a base for circle and then continue work in round. Happy crocheting!
03.07.2018 - 21:32Chiara wrote:
Buongiorno, la ringrazio. Sí, ho controllato il campione ma il mio lavoro risulta essere un po' piú "pesante". Secondo lei potrebbe essere utile irrigidire la tesa con l'amido? Grazie.
26.06.2018 - 10:16DROPS Design answered:
Buongiorno Chiara, l'amido potrebbe esserd una buona soluzione, oppure può provare a immergere la tesa in acqua zuccherata e lasciar asciugare. Buon lavoro!
26.06.2018 - 14:55Chiara wrote:
Buongiorno, la ringrazio. Sí, ho controllato il campione ma il mio lavoro risulta essere un po' piú "pesante". Secondo lei potrebbe essere utile irrigidire la tesa con l'amido? Grazie.
26.06.2018 - 10:01Chiara wrote:
Ho realizzato il modello 190-20 secondo le istruzioni. Ho utilizzato il filato Paris e l'uncinetto 4,5 mm. Mi sembra che il modello in foto sia stato realizzato con un filato più sottile rispetto a quello indicato. Se é effettivamente così, vorrei sapere quale filo e quale uncinetto sono stati utilizzati per il modello. Grazie.
25.06.2018 - 21:37DROPS Design answered:
Buonasera Chiara, il modello è lavorato con il filato e l'uncinetto indicati nelle spiegazioni. Ha controllato che il suo campione corrispondesse a quello indicato prima di iniziare a lavorare? Buon lavoro!
25.06.2018 - 23:31