DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Seaside Dreamer

Prjónuð hringpeysa með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyAlpaca Silk.

DROPS 191-6
DROPS Design: Mynstur bs-140
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500-550-650 g litur 7402, ljós sægrænn.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju á stykkinu (bak), síðan fram og til baka á hvorri hlið. Ermar eru prjónaðar hvor fyrir sig og saumaðar í stykkið í lokin.

HRINGPEYSA:
Fitjið upp 8 lykkjur með BabyAlpaca Silk og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 3.
Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 í umferð). Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið til og með umferð á undan ör í A.1 = 128 lykkjur í umferð. Frá umferð með ör er prjónað A.2 eftir hvert A.1 þannig: Prjónið * A.1 yfir fyrstu/næstu 15 lykkjurnar eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Lykkjur í A.1 eru prjónaðar inn í A.2 jafnframt sem aukið er út hvoru megin við A.2 (útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu). Prjónið til og með umferð með stjörnu í A.1. Nú hafa allar lykkjur í A.1, nema miðju 5 lykkjur verið prjónaðar inn í A.2. Klippið frá og færið byrjun á umferð 5 lykkjur til vinstri, þannig að fyrsta lykkjan í A.2 er byrjun á umferð. Haldið áfram með A.1 og A.2, þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið til loka.
Skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 34-36-38 cm að þvermáli, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með útaukningu. Nú er gerður handvegur þannig (það eru ca 256-272-288 lykkjur í umferð):
Aukið út eins og áður, þ.e.a.s. þegar felldar eru af lykkjur fyrir handveg, haldið áfram að auka út yfir þessar lykkjur, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn felldur af fyrir handveg (meðtaldar útaukningar), þ.e.a.s. teljið lykkjur sem felldar eru af.
Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 37-39-42 lykkjur, fellið af næstu 44-48-52 lykkjur fyrir handveg (án útaukninga, þ.e.a.s. útaukningar koma sem viðbót við þessar lykkjur), prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 81-87-94 lykkjur, fellið af næstu 44-48-52 lykkjur fyrir handveg (nema útaukningar, þ.e.a.s. útaukningar sem koma sem viðbót við þessar lykkjur), prjónið mynstur yfir síðustu 37-39-42 lykkjurnar. Í næstu umferð eru fitjaðar upp jafn margar lykkjur og þær sem felldar voru af fyrir handveg (þ.e.a.s. 44-48-52 lykkjur + útaukningar sem koma sem viðbót við þessar lykkjur) yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (nú eru 352 lykkjur í umferð), haldið áfram með A.3 yfir A.2 (A.1a heldur áfram eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru endurteknar efstu 12 umferðirnar í A.3, aukið út eins og áður í 4. hverri umferð og prjónið gataumferð og garðaprjón.

Haldið áfram með A.3 og A.1a þar til stykkið mælist 96-100-104 cm, nú eru ca 672-696-720 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið í framstykki þannig: Fellið af fyrstu 54-56-58 lykkjur, prjónið yfir næstu 162-168-174 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af lykkjur þar til eftir eru 216-224-232 lykkjur, prjónið yfir næstu 162-168-174 lykkjur (= hægra framstykki), setjið þær síðan á þráð, fellið af síðustu 54-56-58 lykkjur. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir 162-168-174 lykkjur, stillið af að 1. umferð þannig að affellingarlykkjur séu prjónaðar slétt frá röngu. JAFNFRAMT því sem fyrstu 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eru felldar af (= 2 lykkjur felldar af í hverri umferð). Haldið áfram með mynstur og fellið svona af þar til stykkið mælist alls 63-66-69 cm frá miðju á hring (þ.e.a.s. framstykkið mælist ca 15-16-17 cm). Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 48-56-64 lykkjur á sokkaprjón 3 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er prjónað A.4 yfir allar lykkjur (= 6-7-8 mynstureiningar á breidd). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 18-19-20 sinnum = 84-94-104 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-43-42 cm fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið, stykkið er síðan prjónað fram og til baka á hringprjón = 76-86-96 lykkjur. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 7-7-8 sinnum, 1 lykkja 5-7-9 sinnum og 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-58 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Dragið saman 8 lykkjur í byrjun á stykkinu. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.07.2018
HRINGPEYSA...Nú hafa allar lykkjur í A.1, nema miðju 5, verið prjónaðar inn í A.2. Klippið frá og færið byrjun á umferð 5 lykkjur til vinstri, þannig að fyrsta lykkjan í A.2 er byrjun á umferð...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það á að myndast gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (2 lykkjur færri)
symbols = nú hafa allar lykkjur í A.1, nema miðju 5 lykkjurnar, verið prjónaðar inn í A.2
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Elvira Starace wrote:

Buongiorno sto provando a fare questo cardigan e sono solo al 20simo giro ma mi pare un po complesso. Potere dirmi se riesco a trovare un tutorial da qualche parte? Grazie Elvira

06.04.2024 - 00:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Elvira, non abbiamo un tutorial completo di questo modello, ma nella pagina del modello può trovare dei video delle singole tecniche utilizzate. Buon lavoro!

06.04.2024 - 09:30

country flag Gitte Holm Hjarsen wrote:

Strikkefastheden er 32 p = 10 cm. Der skal lukkes af til ærmer når arb måler 36 cm (L/XL). Dette giver ca 115 p inden der lukkes af. Men iflg opskrift skal der være ca 272 m, når der lukkes af. Dette opnås allerede efter ca 70 p. Så hvad skal man gå efter - 36 cm? Eller 272 m?

08.03.2024 - 14:21

DROPS Design answered:

Hei Gitte. Det skal felles til ermhull når arbeidet måler 36 cm i DIAMETER, (ikke fra der omgangen startet). mvh DROPS Design

18.03.2024 - 09:07

country flag Murielle BRANCHTEIN wrote:

Bonsoir, J(ai déjà démonté plusieurs fois mon ouvrage et je viens d'identifier un problème. Au 23 -ème rang, on a 14 mailles et on fait 2 jetés, on devrait obtenir 16 mailles au 24 -ème rang. Malgré tout, on obtient 15 mailles. Je ne sais pas quoi faire, mon étoile est difforme. Merci beaucoup, Murielle

01.03.2024 - 20:48

DROPS Design answered:

Bonjour Murielle, au 23ème tour, vous avez 16 mailles dans chaque A.1, au tour suivant (celui avec la flèche), vous tricotez A.1 sur les 15 premières mailles, A.2 sur la maille suivante (on retrouve ainsi bien les 16 mailles du tour précédent). Autrement dit, on termine la fleur au début de A.1 et on commence le point ajouré entre les pétales via A.2; le nombre de mailles de A.1 va progressivement diminuer alors que celui de A.2 va augmenter. Pensez. à mettre des marqueurs entre chaque diagramme pour mieux repérer vos mailles et les motifs correspondants. Bon tricot!

04.03.2024 - 07:26

country flag Mona O wrote:

Virkelig flot mønster. Jeg er nået til ærmekuppel, hvor der skal lukkes masker af i hver side. Der står luk af i begyndelsen af hver pind i hver side således: 2 masker 7 gange. Er det så 7 eller 14 pinde?

10.07.2023 - 10:04

DROPS Design answered:

Hei Mona. Det felles i BEGYNNELSEN av hver pinne (retten og vrangen) 7 ganger. Når det er felt 7 ganger i begynnelsen av hver pinne er det strikket 14 pinner. mvh DROPS Design

24.07.2023 - 13:36

country flag Christiane wrote:

Ich habe diese Jacke gestrickt bis zu den Vorderteilen, bei mir passt die Proportion überhaupt nicht. Auf der Skizze sind die Ärmel im oberen Drittel bei mir in der Hälfte, obwohl ich das Abketten nach Anleitung gemacht habe. Gibt's dazu auch eine Korrektur?

22.11.2022 - 11:38

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, Stimmt Ihre Maschenprobe? Sie soll nicht nur in der Breite (24 Maschen) aber auch in der Höhe (32 Reihen glatt rechts) sein, so sollen Sie dieselbe Maßnahamen wie in der Skizze bekommen. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

22.11.2022 - 16:05

country flag Jenny wrote:

I printed the Seaside Dreamer pattern and saved to a PDF file. I then opened the file in Knit Companion. However chart 3 did not save. I tried to take a screenshot of chart 3and save that to a PDF file but the chart was not saved and the file was empty. Please could you look at why chart 3 did not save to PDF when the rest of the pattern did. P S, this is my second time at knitting this pattern and my first is in the #dropsfan gallery. Unfortunately I cannot find my original pattern.

20.11.2022 - 00:08

DROPS Design answered:

Dear Jenny, our patterns can only be printed, try using a virtual printer to save them as a .PDF, and then you should have full pattern including symbols and text to diagrams. Happy knitting!

21.11.2022 - 10:53

country flag Jenny Jyrkänkallio-Mikkola wrote:

Hei, En pääse eteenpäin kohdasta, jossa A2 mallin silmukoita lisätään A1:n jälkeen. A1 kapenee, niin kuin pitääkin, mutta A1:n kummankin puolen olevat oikeat silmukat lisäävät A2:n leveyttä niin, että seuraavalla kerroksella siinä on liikaa silmukoita. Mitä teen väärin? Suuri kiitos avusta!

18.12.2020 - 15:16

country flag Jenny wrote:

Hei, olen jäänyt jumiin kohtaan, jossa aloitetaan A2- mallin lisäykset A1n jälkeen. A1 kapenee, niin kuin pitääkin, mutta kavennusten ulkopuolelle jäävät oikeat silmukat kasvattavat A2 mallin leveyttä liikaa siten, ettei malli seuraavalla keralla enää toimi. Neulon muutaman kerroksen ja puran. Neulon ja puran, mutta ongelma pysyy. Saisinko tähän apua? Kovasti haluaisin työn tehdä. Kiitos

18.12.2020 - 07:08

country flag Jenny wrote:

In order to make symmetrical front pieces, shouldn't there be considered 5 stitches of A1a when making start for 2nd front piece?: My suggestion: Cast off the first 54-56-58 stitches, work the next 162-168-174 stitches (= left front piece), cast off stitches until you have 221-229-237 stitches left, work the next 162-168-174 stitches (= right front piece), place these stitches on a thread and cast off the last 59-61-63 stitches.

23.08.2020 - 17:31

country flag Anne Linskill wrote:

Ah, thank you for the solution and the amazingly fast response. This garment is unusual and beautiful but it would be really helpful if the charts were side by side to save constant scrolling up and down and to clearly see how they line up. Thank you.

28.01.2020 - 12:35