DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 189-27
DROPS Design: Mynstur fl-029
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 11-12-13 cm

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 g litur 19, kórall
50-50-50 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið MYNSTUR A.1 (= 18-18-20 lykkjur – veldu mynstur fyrir þína stærð) 4 sinnum í umferð. Í umferð með ör í mynsturteikningu er skipt yfir í litinn kórall. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 5 cm frá efst á kanti og niður. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-4-8 lykkjur jafnt yfir = 66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir prjónamerki slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur á undan prjónamerki snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-5. hverri umferð alls 6-5-5 sinnum = 54-58-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 6-7-8 cm frá eftir mynsturteikningu A.1.
Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14 lykkjum á prjóni, setjið næstu 30-32-34 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni = 24-26-28 lykkjur fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 nýtt prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – lesið HÆLÚRTAKA!
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 30-32-34 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-74-82 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-32-34 lykkjur ofan á fæti. Prjónið síðan sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 30-32-34 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 30-32-34 lykkjum ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-9-11 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm mælt frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm eftir til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og og undir fæti. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) og 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri).
Endurtakið við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hveri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat

symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 5 lykkjur slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, setjið þær til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri). Færið til baka síðustu lykkju yfir á hægri prjón.
symbols = prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkju yfir lykkjuna sem prjónuð var yfir síðust, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri).
symbols = þessi umferð er prjónuð þannig: Brjótið uppá gataumferð (= 4. umferð í mynsturteikningu) þannig að rangan liggi að röngu. Setjið fyrstu lykkju á uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar á prjóni slétt saman (þ.e.a.s. fyrsta lykkja frá uppfitjunarkanti + fyrsta lykkja í umferð prjónuð slétt saman). Setjið næstu lykkju frá uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar slétt saman (þ.e.a.s. næsta lykkja frá uppfitjunarkanti + næsta lykkja í umferð prjónuð slétt saman). Haldið svona áfram að prjóna næstu lykkju frá uppfitjunarkanti saman með næstu lykkju á vinstri prjón þar til allar lykkjurnar í umferð hafa verið prjónaðar saman með uppfitjunarkant.
symbols = í þessari umferð er skipt yfir í litinn kórall
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Amanda Hubbard wrote:

Thank you for your link to How to knit a folded edge in a skirt. I can't get any volume from any of the links for these socks. Do you have any suggestions on how to get volume to work. I've tried it on numerous devices Thanks you for your assistance.

01.10.2021 - 04:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hubbard, Our videos do not have sound. We are a worldwide company and our videos are watched by people around the world, speaking different languages, many of whom do not understand English. We have therefore written instructions to accompany this video (ie here the written pattern and the diagram), and there is no sound to disturb while watching. Enjoy!

01.10.2021 - 07:48

country flag Amanda Hubbard wrote:

I don't understand what I should be doing here at the *=this round is worked as follows: Fold row of holes (= 4th round in diagram) so that the wrong side lies towards the wrong side. Place the first stitch on the cast-on edge outermost on the left needle, knit the first 2 stitches on the needle together (i.e. the first stitch from the cast-on edge + first stitch on the round are knitted together). Place the next stitch on the cast-on edge outermost on the left needle, knit the first 2 stitches

06.09.2021 - 02:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hubbard, maybe this video could help you understanding this row, the folded edge is somewhat different but the way of working this row (from approx. 1:08 in the video) is the same. Happy knitting!

06.09.2021 - 08:16

country flag Brugere wrote:

Bonjour Je viens de finir ce modèle qui est très joli. Une question quand sortez vous les explications du modèle no- 046 de printemps 2021 .. Je suis impatiente de le faire ... merci cordialement

19.03.2021 - 14:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brugere et merci, saviez-vous que vous pouvez partager vos photos sur notre site? Vous retrouverez toutes les infos ici - tous les modèles retenus seront publiés d'ici mai, le modèle no-046 ne devrait plus tarder :)

19.03.2021 - 15:28

country flag Carolina Björkman wrote:

Glöm min fråga för jag kom på vad jag gjorde för fel.

21.12.2020 - 12:51

country flag Carolina Björkman wrote:

Hej! När man gjort rad 10 i mönstret o stickat ihop fem maskor så att man har minskat maskor. Hur och var ökar man så att man på rad 11 sickar en avig o 17 räta maskor?

20.12.2020 - 21:22

DROPS Design answered:

Hej Carolina: På varv 10 har du även 8 omslag (markerade som ringar i diagrammet) så du minskar 8 maskor och ökar 8 så att maskantalet förblir detsamma. Mvh DROPS Design

21.12.2020 - 13:55

country flag Randu wrote:

Hello! Could you make a video on how to knit the part marked with the star ?! It would help a lot! Thank you!

22.11.2020 - 20:03

DROPS Design answered:

Dear Randu, this video shows how to work a similar row for a skirt - follow the pattern for the first rounds, then you can make the row with the star as shown from time code 1:15 approx. Hope this will help. Happy knitting!

23.11.2020 - 10:45

country flag Claudia Carolina wrote:

Buongiorno spett.le Drops, Nel Bordino superiore (inizio lavoro) si vedono delle piccole crestine o picot, come posso ottenerle se il diagramma A1 inizia coi primi tre giri tutto a diritto? Grazie mille per tanti meravigliosi schemi, Claudia

23.10.2019 - 13:30

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia Carolina. Quando lavora la riga con la stella nel diagramma , piega il lavoro all'altezza della riga traforata (quarta riga), formando così il bordino a picot che vede in fotagrafia. Buon lavoro!

23.10.2019 - 14:14

country flag Ann Weihe wrote:

Hvad betyder stjærnen i opskriften som er ude i siden Hilsen Ann

03.06.2019 - 15:52

DROPS Design answered:

Hei Ann. Dette er det nest nederste symbolet i symbolforklaringen: "denne omgangen strikkes slik: Brett hullraden (= 4.omgang i diagrammet) slik at vrangen ligger mot vrangen. Sett første maske på oppleggskanten ytterst på venstre pinne, strikk de 2 første maskene på pinnen rett sammen (dvs første maske fra oppleggskanten + første maske på omgangen strikkes rett sammen)... osv" God fornøyelse

04.06.2019 - 07:26

country flag Dina wrote:

Buongiorno! Dove posso trovare un video per capire come lavorare la riga indicata con una stella nel diagramma? Non l'ho notato fra quelli correlati al modello però forse mi è sfuggito... Grazie!

25.04.2018 - 15:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Dina. Un video che spieghi come lavorare la riga con la stella non è ancora disponibile. Di fatto è un metodo che sostituisce la cucitura con un ago, dove invece di passare l'ago tra il filo delle due maglie, riprende una maglia dal ferro di avvio delle maglie e la lavora insieme con la maglia sul ferro. Buon lavoro!

26.04.2018 - 11:45

country flag Mary wrote:

Hallo, helaas zijn de plaatjes van de telpatroontjes niet zichtbaar.. daar staat nu een vraagteken. zowel op de pc als op de iPad niet te zien. kunnen jullie dit herstellen? dan ga ik enthousiast aan de slag! :)

24.04.2018 - 13:47

DROPS Design answered:

Hallo Mary, Vaak heeft dit te maken met een (tijdelijke) internetstoring of verbindingsproblemen. De plaatjes zijn wel aanwezig op de site. De pagina herladen of later weren even proberen is de oplossing.

28.04.2018 - 18:17