DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Myosotis

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum með blúndu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.

DROPS 191-9
DROPS Design: Mynstur cm-085
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-650-700 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-100 g litur 29, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 10, pistasía
50-50-50-50-50-50 g litur 26, stormblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Cotton Merino 01, 17, 29, 15.
B) DROPS Cotton Merino 16, 01, 21, 09.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 2,9.
í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1).

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverjum samskeytum á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-106-110-116-120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum pistasía.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 35-38-43-37-42-45 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 135-144-153-153-162-171 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð.
Byrjið frá réttu með litnum pistasía og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-48-51-54-57-60 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-80-85-90-95-100 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 90-96-102-108-114-120 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
= 135-144-153-153-162-171 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar með 9 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1 er aukið út um 21-36-27-39-54-45 lykkjur jafnt yfir = 156-180-180-192-216-216 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 13-15-15-16-18-18 mynstureiningar með 12 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur og aukið út um 4-0-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 160-180-180-200-220-220 lykkjur.
Prjónið A.2 hringinn (= 8-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 20 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 240-270-270-300-330-330 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með litnum natur til loka.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-2-10-12-2-10 lykkjur jafnt yfir = 248-272-280-312-332-340 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 36-39-41-46-51-54 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 72-78-82-92-102-108 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki og prjónið þær 36-39-41-46-51-54 lykkjur sem eftir eru (= ½ bakstykki).
Í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 4-5-7-7-8-9 sinnum = 280-312-336-368-396-412 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-48-53-59-63 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-118-126 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-44-48-53-59-63 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki). Takið frá öll prjónamerki.
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-212-232-260-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi = 88-96-106-116-130-140 lykkjur á milli prjónamerkja. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 192-208-228-248-276-296 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 190-209-228-247-285-304 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 10-11-12-13-15-16 mynstureiningar með 19 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 270-297-324-351-405-432 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-72-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-82-88-92-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og byrjið umferð við prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-11-13-15-16-15 sinnum = 52-54-56-58-60-64 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-24-22-21-19-18 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir slétt og aukið JAFNFRAMT út 16-14-12-10-25-21 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-68-68-68-85-85 lykkjur. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.4 hringinn (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 17 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 108-108-108-108-135-135 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Ermin mælist ca 34-33-31-20-28-27 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting hefur verið gerð á UPPHÆKKUN Í HNAKKA

Mynstur

symbols = slétt með natur
symbols = slétt með pistasía
symbols = slétt með sægrænn
symbols = slétt með stormblár
symbols = brugðið með natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með natur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með natur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman með natur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með natur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Nicola Sewell wrote:

Hi i was just wondering your pattern state amount of yarn in grams. But you wouldnt happen to know what would it be in meters or yards?

10.08.2023 - 17:07

DROPS Design answered:

Hi Nicola, All the details of our yarns (including meterage/yardage) are found in our list of yarns under Yarns and Needles at the top of the page. For Drops Cotton Merino, each 50 g ball has approx. 120 yds (110 m). Happy crafting!

11.08.2023 - 06:47

country flag Olena wrote:

Vorrei lavorare questo modello ma il fiore all'estrema destra sembra decisamente storto rispetto all'altro , cosa che in foto non risulta così . Dipende dagli aumenti sottostanti ? Potete aiutarmi ? Grazie in anticipo !

16.02.2021 - 07:32

DROPS Design answered:

Buonasera Olena, i fiori devono essere in linea: controlli di aver lavorato correttamente. Buon lavoro!

16.02.2021 - 22:29

country flag Riviere Francoise wrote:

Bonjour, j'ai bien avancé mon ouvrage et je suis sur le diagramme A.3 rang 8. le point envers du rg 8 correspond au jete torse du rg 7. Comment fait-on un point envers torse. Merci !

17.03.2020 - 08:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivière, pour tricoter une maille torse, on la tricote en piquant le brin arrière au lieu du brin avant, piquez dans le brin arrière du jeté au lieu du brin avant pour les tricoter torse à l'endroit ou torse à l'envers - cf time code 1:13 dans cette vidéo. Bon tricot!

17.03.2020 - 10:08

country flag Riviere Francoise wrote:

Bonjour, J'ai toujours un choix difficile lorsque je dois choisir la taille. Pouvez-vous m'indiquer à quelle taille europeenne correspond le S et le M. Merci !

09.02.2020 - 13:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivière, mesurez un vêtement analogue dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du modèle que vous souhaitez réaliser, c'est la méthode la plus fiable pour trouver votre taille - plus d'infos sur les mesures ici. Bon tricot!

10.02.2020 - 09:24

country flag Aylin wrote:

Where do I find this pattern in Spanish? Thank you

30.10.2019 - 18:20

DROPS Design answered:

Hi Aylin! Please see HERE. Happy knitting!

30.10.2019 - 18:45

country flag Pascaline wrote:

Re-bonjour excusez-moi d'insister mais on voit au 20e rang case 23 que la base de la dernière partie de la fleur supérieure gauche commence après une longue rangée blanche, alors que toujours sur le rang 23, case 8 , la base de la dernière partie de la fleur est décalée .

13.03.2019 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Pascaline, Correction réponse précédente - les diagrammes sont justes ainsi, on augmente 1 m entre les 2 fleurs au 20ème rang, le rang 21 se trouve ainsi décalé car cette maille n'existe pas auparavant, mais en tricotant, les mailles à droite du premier pétale seront bien alignés: A.2 commence par 2 m naturel puis 4 m vert océan. Bon tricot!

13.03.2019 - 16:09

country flag Pascaline wrote:

Bonjour, il semble bien y avoir un problème avec le motif A2. Sur la deuxième rangée de motif à partir du treizième rang, le pétale supérieur droit n'est plus symétrique par rapport aux autres. Merci

13.03.2019 - 14:09

DROPS Design answered:

Bonjour Pascaline, sauf erreur de ma part, sur le 2ème rang de la 2ème rangée de fleur, on a bien 5 mailles naturel entre chaque fleur (on commence par 3 m naturel, on a 5 m naturel entre les 2 premières fleurs et on termine par 2 m naturel). Bon tricot!

13.03.2019 - 15:16

country flag Gladys Hatcher wrote:

The chart A2 has a Defect. Round 20 is off

30.12.2018 - 00:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hatcher, A.2 is correct, just make sure after the increase stitch that the pattern will continue as the other flower to get it working right. Happy knitting!

02.01.2019 - 12:04

country flag Barbara wrote:

Witam, Mam kłopot z interpretacją fragmentu instrukcji. Po dodaniu wszystkich oczek na reglan powinnam przerabiać bez dodawania aż długość robótki wyniesie 24 cm (dla rozmiaru M), mierząc od rzędu nabierania oczek. O którym rzędzie mowa? Pierwszym w którym nabierałam oczka na reglan? Z góry dziękuję za pomoc! Pozdrawiam.

24.08.2018 - 23:33

DROPS Design answered:

Witaj Barbaro! Chodzi o pierwszy rząd na początku robótki (czyli od dekoltu). Pozdrawiamy

28.08.2018 - 19:13

country flag Berit Alice J. Collert wrote:

Beklager ,over en linje ang.lengde til ermhull.

04.06.2018 - 20:04