DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 187-5
DROPS Design: Mynstur r-720
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
600-650-700-750-850-950 g litur 12, rauður

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 stuðlar verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. A.2 sýnir hvernig umferð byrjar og endar þegar heklað er í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul).
Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).

ÚRTAKA:
STUÐULL:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju/um loftlykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).
FASTALYKKJA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 156 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi þá eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það Er 10 cm klauf neðst niðri á kjólnum, stykkið er fyrst heklað fram og til baka þar til klaufin er tilbúin, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins alla leið. Þegar stykkið skiptist upp við handveg er aftur heklað fram og til baka.

FRAMSTYKKI.
Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkjan sem snúið er við telst eins og 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju til baka í hverja fastalykkju. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1 – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið heklað.

BAKSTYKKI:
Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina út = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkjan sem snúið er við er einnig talin sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju til baka í hverja fastalykkju. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1. haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endið í sömu umferð og á framstykki.

KJÓLL eftir klauf:
Haldið svona áfram með mynstur – heklið fyrstu lykkjur yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar yfir bakstykki, að lokum er umferðin hekluð saman við eina keðjulykkju í 1./3. lykkju í umferð, heklið lykkju í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka.
Setjið 1 prjónamerki í skiptingu á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar.
Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. Í umferð með stuðlum eða fastalykkjum eru nú 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talin með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm – stilli af þannig að næsta umferð sé umferð með stuðlum eða fastalykkjum (merkt í mynsturteikningu með stjörnu), fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR og ÚRTAKA (jafnt yfir). Endurtakið úrtöku alls 6 sinnum í merktum 6 umferðum með stuðlum eða fastalykkjum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum.

Eftir síðustu úrtökuumferð er mynstrið heklað eins og áður í ca 3 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð merkt með stjörnu (stykkið mælist nú ca 48-49-50-51-52-53 cm). Aukið nú um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 lykkjur í 1 lykkju. Endurtakið útaukningu alls 4 sinnum á hæðina við merktu umferðirnar í mynsturteikningu = 144-156-168-180-204-228 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum á eftir síðustu útaukningu. Þegar stykkið mælist ca 60-61-62-63-64-65 cm – stillið af eftir umferð merktri með stjörnu, heklið kjólinn til loka eftir mynsturteikningu A.3 (snúið eins og áður með mynsturteikningu A.2). Þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm deilist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við handveg.

FRAMSTYKKI:
Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, síðan er heklað fram og til baka þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru heklaðar 4 ystu lykkjur í hvorri hlið saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru ystu 2 lykkjur heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar.
Eftir allar úrtökur eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 70-71-73-74-76-77 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig.

ÖXL:
Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 17-19-21-22-23-24 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, síðan er heklað út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru 2 fyrstu lykkjur heklaðar saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina = 10-12-14-15-16-17 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm, klippið frá.
Heklið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. Byrjið frá réttu, úrtaka fyrir hálsmáli er gerð í lokin á umferð frá röngu.

BAKSTYKKI:
Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, síðan er heklað fram þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 lykkjur á undan prjónamerki í hlið, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru ystu 4 lykkjur heklaðar saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru ystu 2 lykkjur heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar. Eftir alla úrtöku eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð. Heklið áfram þar til stykkið mælist ca 78-80-82-84-86-88 cm. Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig þannig: Heklið 1 umferð yfir fyrstu 12-14-16-17-18-19 lykkjur, snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið út umferðina, klippið frá. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

SKRAUTKANTUR:
Kanturinn er heklaður í kringum hálsmál, hvorn handveg og í kringum fram- og bakstykki neðst niðri – einnig upp og niður í hvorri klauf.
Skrautkanturinn er heklaður þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og gerið 1 fastalykkju *. Endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2018
Leiðrétting: HEKLLEIÐBEININGAR: Á við þegar heklað er fram og til baka:Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2019
Leiðrétting: MYNSTURTÁKN: Stjarna = í þessari umferð er aukið út/lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá mynstur

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í aftari lykkjubogann frá réttu og í fremri lykkjubogann frá röngu
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðla
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í/um næstu fastalykkju/loftlykkja, 1 stuðull í/um lykkju sem hoppað var yfir
symbols = stuðlahópur: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 2 stuðla í sama stuðul alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = í þessari umferð er aukið út/lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá mynstur
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Katho wrote:

Hi, ich hab eine Frage zu der Schulter. Im Text steht, dass Stäbchen gehäkelt werden sollen. Aber etwas weiter vorher stand, dass nach Diagramm A3 zu Ende gehäkelt werden soll. Wird die Schulter nur mit Stäbchen oder nach Diagramm gehäkelt? Vielen Dank für die ansonsten sehr tolle Anleitung :)

24.03.2020 - 08:08

DROPS Design answered:

Liebe Katho, die Schulter häkeln Sie nur mit Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2020 - 10:18

country flag Isabelle wrote:

Hoi! Kan ik de jurk ook gewoon in voor - en achterpand haken en daarna aan elkaar haken? We haken toch heen en weer....

05.03.2020 - 08:48

DROPS Design answered:

Dag Isabelle,

Je haakt heen en weer omdat anders de steken langzaamaan verschuiven in de breedte. Vandaar dat je steeds de toer sluit en dan weer terug haakt. Als je het voor en achterpand los van elkaar haakt, dan krijg je naden aan de zijkanten.

10.03.2020 - 19:37

country flag Annie wrote:

Pour les premières diminutions on dit répéter ces diminutions 6 fois au total aux 6 tours de brides ou des mailles serrées. Est-ce que je fais 6 tours (rangs) de brides seulement en ne suivant plus le patron ? Jusqu’à 45 cm ? Ensuite 3 cm selon la grille pour atteindre 48 cm (avec 120 mailles)

27.02.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, vous continuez à suivre le diagramme, et au rang de brides ou de mailles serrées suivants, vous diminuez, vous continuez le diagramme et vous diminuez au rang de mailles serrées ou de brides suivant et ainsi de suite. Bon crochet!

28.02.2020 - 07:55

country flag Annie wrote:

Pour le 2e rang du devant on dit 78 mailles est ce qu’on compte la ml du début du rang et de la fin du rang ? Sinon j arrive à 76 . Pour la fin des rangs la grille ne montre pas s il faut faire 3 ml en l air pour tourner

10.02.2020 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, la maille en l'air pour tourner compte comme la 1ère maille serrée - ensuite, au début de chaque rang, on crochète 3 ml ou 1 ml (rang de brides ou de ms) - cf ASTUCE CROCHET, mais ces mailles en l'air ne comptent pas comme la 1ère maille et se font donc en plus du diagramme. Bon crochet!

10.02.2020 - 10:11

country flag Yana wrote:

Hallo, ich bin gerade bei dem 3-ten Stern für die Zunahme angekommen. In dieser Reihe werden 2 Stäbchen um die Luftmasche gehäkelt. Wie soll in dieser Reihe die Zunahme erfolgen? Ich kann schlecht anstatt zwei 3 Stäbchen um die Luftmasche häkeln. Vielen Dank im Voraus für die Antwort. Viele Grüße

30.01.2020 - 18:58

DROPS Design answered:

Liebe Yana, so wird es zugenommen, anstatt 2 häkeln Sie regelmäßig 3 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

31.01.2020 - 07:15

country flag Sharon wrote:

Hi I have a question on the increases/decreases. It's difficult to explain I hope it makes sense ! Do I complete the whole pattern and only increase on rows 3, 5, 8 and 12 or do I change pattern temporarily and leave out rows 4,6,7,9,10 and 11 so that increases happen on 6 consecutive rows . Thanks in advance

28.01.2020 - 12:09

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you start decrease (increase) on one of the row with a star matching the measurements in your size, then increase a total of 6 times on the row with a star, ie continue diagram as before and when crocheting the rows with a star, increase evenly, and on the other rows without a star, just work as before until you have increased a total of 6 times. Hope it helps. Happy crocheting!

28.01.2020 - 13:18

country flag GiGi wrote:

I would like to make this into a long, maxi dress. Could you suggest how many stitches I should increase? Thanks so much for your help!

14.11.2019 - 03:44

DROPS Design answered:

Dear GiGi, we are unfortunately not able to adapt every pattern to every individual request, please contact the store where you bought the yarn or any crochet forum for any individual assistance. Happy crocheting!

14.11.2019 - 10:07

country flag Catherine wrote:

In the A1 pattern are the stars increases or decreases?

25.09.2019 - 14:01

DROPS Design answered:

Dear Catherine, the stars in A.1 shows the rows where you will decrease and increase when working the section DRESS, after vent - see also previous answer. Happy crocheting!

25.09.2019 - 14:11

country flag Catherine wrote:

On the A1 pattern when it tells you to increase evenly, where can you find how many you are supposed to increase by.

25.09.2019 - 13:55

DROPS Design answered:

Dear Catherine, when working the DRESS after vent, you will first decrease in diagrams to shape waist, then you will increase - see DRESS after Vent for more details for your size, ie you don't increase nor decrease before it's stated in the written pattern. Happy crocheting!

25.09.2019 - 14:10

country flag Cecilie wrote:

Når forstykket og bagstykket skal sættes sammen, er det så i begge sider jeg skal hækle dem sammen, så arbejdet bliver rundt?

07.09.2019 - 21:16

DROPS Design answered:

Hej Cecilie, ja det stemmer, efter de 10 cm hækles arbejdet rundt, men vendes for hver omgang, for at strukturen skal blive ens hele vejen. God fornøjelse!

17.09.2019 - 16:04