DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Flora

Prjónuð peysa með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-22
DROPS Design: Mynstur fl-026
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 19, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir kant í hálsmáli með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur uppi meðfram miðju að aftan er prjónað sléttprjón yfir 32-34-38-32-34-38 lykkjur í A.2 við miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 16.
Í þessu dæmi þá eru prjónaðar 15. og 16. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að úrtöku fyrir hálsmáli. Síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón upp að kanti í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 276-276-276-368-368-368 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12-12-12-16-16-16 mynstureiningar með 23 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 192-204-228-256-272-304 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 96-102-114-128-136-152 lykkjur (= í hliðum – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-38-48-51-57 lykkjur í sléttprjóni, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að framan), 64-68-76-96-102-114 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR) og endið með 32-34-38-48-51-57 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm þar sem það er styst, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-2-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 180-192-220-248-264-296 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 22-20-20-22-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 5-6-6-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 200-216-244-268-288-320 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm þar sem það er styst í öllum stærðum.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 87-87-87-95-95-95 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 8-8-8-9-9-9 sinnum, prjónið A.3 (= 23 lykkjur), * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8-8-8-9-9-9 sinnum. Haldið svona áfram með stroff og mynstur.
Þegar stykkið mælist 2 cm þar sem það er styst er fækkað um allar 3 lykkjur brugðið í stroffi í 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri einingu með stroffi = 71-71-71-77-77-77 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 65-65-65-73-73-73 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn, en haldið áframa með A.4 mitt yfir A.3 til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm þar sem það er styst er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 6-10-14-13-15-18 sinnum í S: Í 18. hverri umferð, í M: Í 9. hverri umferð, í L og XL: Í 6. hverri umferð, í XXL: Í 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 77-85-93-99-103-109 lykkjur.
Þegar ermin mælist 38-37-35-33-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 67-75-81-87-89-93 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 314-346-382-418-438-474 lykkjur í umferð. Takið frá öll fyrri prjónamerki í stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kanta á ermum (= 4 ný prjónamerki).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.2 eins og áður, að auki er haldið áfram með A.3 yfir miðju 3 lykkjur á hvorri ermi.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA í næstu umferð – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 6-5-4-4-6-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 17-22-27-30-30-31 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm setjið miðju 26-26-30-36-40-50 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli.
Haldið áfram fram og til baka eins og áður með úrtöku fyrir laskalínu í hverri umferð frá réttu. Að aukið er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þar til laskaúrtöku er lokið.
Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 90-90-90-96-96-106 lykkjur eftir á prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 128-128-132-144-148-168 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 2,5.
Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 120-120-124-134-138-144 lykkjur – lesið ÚRTAKA-2.
Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður brugðið, hinn er látinn falla niður
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = Hnútur: prjónið þessar 4 lykkjur án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni þannig:
4 lykkjur brugðið saman, 4 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur brugðið saman, 4 lykkjur slétt saman, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni
symbols = Hnútur: prjónið þessar 3 lykkjur án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni þannig:
3 lykkjur brugðið saman, 3 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið saman, 3 lykkjur slétt saman, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Claudia wrote:

Ein sehr schönes Modell mit zauberhaftem Blattdesign ☺️ Die richtige Größe zu ermitteln ist mir sehr schwer gefallen. Eine Orientierung an Körpermaßen (Brustumfang) wäre mir leichter gefallen. Drops-Flora und Nadelstärke 3 ergeben einen wunderbar leichten Pullover, der fast schon als Feinstrick durchgeht. Ich bin begeistert von dieser Seite, den tollen Anleitungen und der wunderbaren Wolle.

21.08.2022 - 01:47

country flag Fernanda wrote:

Estou fazendo a blusa, porém a manga não consigo... Colocar 87 pontos e fazer o ponto fantasia A3 por 8 vezes, mas o desenho necessita 23 pontos, então 23 x 8 = não enquadra a quantidade de pontos.

03.03.2021 - 16:24

DROPS Design answered:

Bom dia, Só tricota A.3 uma vez. Deve tricotar a manga da seguinte maneira: *1 malha meia, 3 malhas liga*, 8 vezes, A.3 (= 23 malhas), * 3 malhas liga, 1 malha meia* 8 vezes. O que tece 8 vezes é 1 malha meia/3 malhas liga antes e depois de A.3. Bom tricô!

04.03.2021 - 11:06

country flag Jane wrote:

Fantastiskt vacker/elegant tröja. Hoppas att denna designer kommer med fler liknande rler modeller och att hon får feedback. :) Jag har just köpt Drops Flora och börjat stick men fastnade direkt. Snälla finns det någon video som visar hur man stickar den maska som i diagrammet är representerat med en svart punkt mellan två rutor där det står att man ska göra två omslag varav ett ska släppas på nästa varv. Det ser inte rätt ut nör jag gör det,

12.01.2021 - 01:13

DROPS Design answered:

Hei Jane. Ikonet viser et dobbeltkast = større hullmønster. Ta gjerne en titt på denne videoen: mvh DROPS design

18.01.2021 - 14:02

country flag SONIA wrote:

"Lavorare il giro successivo come segue: * 1 maglia diritto, 3 maglie rovescio *, lavorare da *-* 8-8-8-9-9-9 volte in tutto, diagramma A.3 (= 23 maglie), * 3 maglie rovescio, 1 maglia diritto *, lavorare da *-* 8-8-8-9-9-9 volte in tutto. Proseguire a coste e seguendo il motivo in questo modo. Quando il lavoro misura 2 cm sul lato più corto, diminuire 1 maglia rovescio in ogni gruppo di 3 maglie rovescio (diventano gruppi di 2 maglie rovescio)" C'è un errore?

24.10.2020 - 18:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Sonia. Se capiamo correttamente la domanda, il diagramma fa sì che il bordo non sia lineare, ma ha un effetto tipo onde. Deve misurare nel punto in cui il bordo rientra di più. Buon lavoro!

25.10.2020 - 08:50

country flag Anne Carlson wrote:

Hello, I just finished knitting this sweater, using Drops Flora yarn. When I sew in the yarn ends, it shows through on the right side of the garment as a sort of bump/line. Does anyone else have this problem? Is there a solution? I’ve tried weaving the ends on just one row, and also over two rows, like one of your videos shows how to do it, but it still shows up on the right side. Thank you!

14.06.2020 - 05:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carlson, you can "untwist" the yarn and weave the different ends in many directions to make it less visible. Your DROPS store might have even more tipps for you, they'll be happy to share them with you even by mail or telephone. Happy knitting!

15.06.2020 - 09:38

country flag Sujata wrote:

Lovely pattern thanks for sharing

11.05.2020 - 11:43

country flag Lidy wrote:

Ik begin met de mouw en als ik dan de de Naalden averecht recht avererecht heb gebreid dan staat er ga verder met noordster en patroon zo!! Verder staat er niets. Bedoelen jullie zoals het telpatroon A 3. Wilt u het mij even laten weten. Bij voorbaat dank

21.04.2020 - 11:24

DROPS Design answered:

Dag Lidy,

Ja, je breit inderdaad verder op dezelfde manier, dus met boordsteek en A.3.

26.04.2020 - 20:53

country flag Jude wrote:

I am disappointed still to be waiting for an answer to my question. Do you not have a symbol explanation chart somewhere?

01.01.2020 - 10:59

DROPS Design answered:

Dear Jude, please understand that most of our staff is off for the Holidays (including the person, who can fix the symbols, which is a technical problem for the moment). We have to ask a little more patiente from you. Thank you for understanding.

01.01.2020 - 13:17

country flag Jude wrote:

I am puzzled by the last 3 lines of the chart A1 and charts A2 and A3 as the symbols show there (with the exception of the central triangle on A1) are not described in the diagram explanations. Also the last diagram explanation -describd as a 3 stitch knot, dos not appear in any of the diagrams A1, A2 or A3. I have tried to guess but this does not resut in the correxct number of stitches remaining. How do you knit these 5 symbols?

27.12.2019 - 12:29

DROPS Design answered:

Dear Jude, it looks like the 2 symbols you are missing are the decreases (see 8th and 9th symbol under diagram key): ie decrease 2 stitches and make 1 yarn over. The last symbol of diagram key appears in A.2 size S + XL so it might not apply to the size you are working. Happy knitting!

02.01.2020 - 11:33

country flag Lucia Milti wrote:

Sto facendo la fascia davanti A2 ma vi siete dimenticati di scrivere che il diagramma A2 va fatto di continuo fino al collo? grazie

10.08.2019 - 20:02

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia. Viene indicato di proseguire con il motivo, che comporta proseguire lavorando le maglie come sono state impostate in precedenza, quindi continuando con il diagramma. Nello sprone è indicato espressamente di proseguire con il diagramma. Buon lavoro!

10.08.2019 - 20:49