DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Celestina Hat

Prjónuð húfa fyrir börn með köðlum og garðaprjóni. Stærð 1 mán – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-7
DROPS Design: Mynstur nr bm-078-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm: 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50-50) g litur 11, ísblár

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynstur fyrir rétta stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og saumað saman við miðju að aftan í lokin.

HÚFA:
Fitjið upp 123-129-135 (141-147) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með BabyMerino.
Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.1 (= 1 lykkja) (= 1 lykkja fleiri), * A.2 yfir næstu 21-22-23 (24-25) lykkjur, A.3 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri), A.4 yfir næstu 21-22-23 (24-25) lykkjur, A.5 yfir næstu 2 lykkjur (= 1 lykkja fleiri) *, A.1 yfir næstu lykkjur (= 1 lykkja fleiri), 9-10-11 (12-13) lykkjur garðaprjón, A.3 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri) (= mitt framan á húfu), 9-10-11 (12-13) lykkjur í garðaprjóni, A.5 yfir 2 næstu lykkjur (= 1 lykkja fleiri), A.1 yfir næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Eftir þetta er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.5 yfir 3 lykkjur, A.4 yfir 20-21-22 (23-24) lykkjur (þ.e.a.s. hoppið yfir síðustu rúðuna, þessi lykkja í A.4 hefur verið felld af í A.3), A.3 yfir 3 lykkjur, hoppið yfir 1. rúðu í mynsturteikningu A.2 og prjónið afganginn af A.2 yfir 20-21-22 (23-24) lykkjur *, A.1 yfir 2 lykkjur, A.5 yfir 3 lykkjur, 8-9-10 (11-12) lykkjur í garðaprjóni (þ.e.a.s. það hefur fækkað um eina lykkju í garðaprjóni í A.3), A.3 yfir 3 lykkjur, 8-9-10 (11-12) lykkjur í garðaprjóni (þ.e.a.s. lykkjur í garðaprjóni hefur fækkað í A.3), A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.1 yfir 2 lykkjur, 1 lykkja brugðið og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Þ.e.a.s. það verður 1 lykkja færri í hverju A.2 og A.4 (þ.e.a.s. hoppið yfir 1 rúðu fleiri í annarri hverri umferð í mynsturteikningu A.2 og A.4) og 1 lykkja færri í garðaprjóni við miðju að framan hvoru megin við A.3 í annarri hverri umferð vegna þess að lykkjum fækkar í A.3.
Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.3 í hverri umferð frá réttu (= 6 lykkjur færri), aukið út um 1 lykkju í hverri einingu A.1 og A.5 (= 6 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami, aukið er út og fækkað um jafn margar lykkjur, en garðaprjón við miðju að framan og mynstur í A.2 og A.4 kemur til með að hverfa.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og kaðla yfir kaðla.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón yfir þessar lykkjur, þ.e.a.s. ekki er lengur aukið út. Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, er ekki gerður kaðall lengur, þær lykkjur sem eftir eru fyrir kaðal eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru, þ.e.a.s. fækkað er um 6 lykkjur í annarri hverri umferð (= 2 lykkjur við hvert mynstur A.3), það verður 21 lykkja eftir í umferð. Stykkið mælist ca 16-16-17 (17-18) cm frá neðsta horni við fyrsta og síðasta mynstur A.3 (= eyrnaleppur).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 15 lykkjur mynstur eins og áður, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 19 lykkjur.
Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í hverri umferð (frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur á undan og á eftir kantlykkju brugðið saman) þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar og herðið að.

FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju.
Miðju á 3 heilu hornunum (= A.3) á uppfitjunarkanti nær niður framan á enni.

SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón 2,5. Prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, leggið þráðinn framan við stykkið (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur aftan við stykkið (frá þér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og í öllum umferðum.
Nú verðu til hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru alveg eins. Saumið snúruna niður neðst í hvort horn á eyrnalepp í hvorri hlið.

----------------------------------------------------------
Fyrir samfellu sjá DROPS Baby 31-06.
----------------------------------------------------------

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2018
Leiðrétting: Stór hluti af húfu hefur verið endurskrifaður til að gera mynstrið auðveldara

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = í þessari rúðu er engin lykkja þar sem búið er að fella af áður lykkjuna. Farið beint inn í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Irmgard ROTERTt wrote:

Kann ich Anleitung und Muster auf Papier haben? Bezahle gern per Überweisung

13.03.2024 - 01:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rotert, unsere Anleitungen können Sie selber direkt von unserer Website ausdrucken; Ihr Wollladen kann sicher das für Sie tun, gerne können Sie dort mal fragen. Viel Spaß beim Stricken!

13.03.2024 - 08:23

country flag Jo Grimster wrote:

Oh the pattern, row 2, work 1 edge stitch, a5 and then a4 for 20-21-22 stitches. However, there is no corresponding decrease in row 1 for that section to account for the reduced stitches. The end of row 1 is a4 for 22 & a5 for 2 + 1 increase. My dyslexia can play havoc with written & graph instructions, so I've placed markers to help. My last marker on row 1 is between the last A3 and the A4. Lastly, reading the graphs right to left for R1, left to right for R2, or always right to left?

05.02.2024 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Grimster, the diagram A.3 will "eat" 1 stitch on each side every time you make the double decrease in the middle, this means when working 2nd row, you will work 1 stitch less in A.4 (the last stitch A.4 is now the first stich A.3) and the 3rd stitch A.3 is now the previous first stitch in A.2, that's why you should skip the first square in A.2. (from WS read diagrams left towars right). Happy knitting!

05.02.2024 - 15:50

country flag Riitta wrote:

Celestina Hat. Eka kerros, A.3- 3 silmukasta tulee kaventaen 1 silmukka. Toisella kerroksella kaaviossa on samalla kohdalla 3 nurjaa silmukkaa!!!! Kuinkas se onnistuu?

27.05.2023 - 07:09

DROPS Design answered:

Hei, ohjeeseen on nyt lisätty tekstiä, jotta ohjetta olisi helpompi seurata.

31.05.2023 - 16:57

country flag Birgit Jørgensen wrote:

Er det ikke meningen at alle firkanter i A1 og A5 skal strikkes? Når jeg har strikket 2 p. mangler jeg 6 masker på pinden og jeg mener at følge diagrammet til punkt og prikke .

02.10.2022 - 19:09

DROPS Design answered:

Hej Birgit, sæt et mærke imellem hver diagram, så kan du let se hvor du mangler maskerne :)

03.10.2022 - 15:08

country flag Magdalena wrote:

Liebes team ich verstehe das muster nicht. sind da nur die HIN-Reihen aufgezeichnet und man strickt die maschen in der rückreihe wie sie erscheinen??? oder zeigen A2 und A4 nur die HIN-reihen und A1 und A5 zeigen hin und rückreihen? ich weiß einfach nicht, wie ich das muster lesen soll. hab reihe 1 als hin reihe gestrickt und dann reihe 2 als rückreihe etc und das muster hat nichts schlaues ergeben. vielen dank für deine hilfe.

05.08.2022 - 13:24

DROPS Design answered:

Liebe Magdalena, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, bei den Hin-Reihen lesen Sie rechts nach links und bei den Rückreihen lesen Sie links nach rechts, so daß A.2 und A.5 je über 12 Reihen; A.3 über 2 Reihen, und A.2 + A.4 je über 4 Reihen gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

05.08.2022 - 16:26

country flag Ives DLR wrote:

Sorry mensen, ik heb het patroon uitgeprint en op papier nog eens goed nageplozen en ik heb de steek die ik over het hoofd zag gevonden. Mijn probleem is opgelost. U mag mijn opmerkingen gerust verwijderen.

07.05.2022 - 15:41

country flag Ives DLR wrote:

Ik merk op dat ik 123 steken opzet voor het werk maar dat de eerste toer met patroon bestaat uit 1 rechts + 1 A1 + 21 A2 + 3 A3 + 21 A4 + 2 A5 + 1 A1 + 9 rechts + 3 A3 + 9 rechts + 2 A5 + 1 A1 + 21 A2 + 3 A3 + 21 A4 + 2 A5 + 1 rechts en dat zijn slechts 122 steken. Lees ik ergens over of is er 1 steekje teveel in het opzetten?

07.05.2022 - 12:26

DROPS Design answered:

Dag Ives,

Je mist aan het begin 1 kantsteek in ribbelsteek. Als ik vervolgens alle steken optel met de eerste kantsteek erbij kom ik op 123 steken.

10.05.2022 - 09:07

country flag Nadine wrote:

I absolutely love this pattern! However, I have tried to make it several times, and it does not work out. There is something wrong with the translation in English. Please check it out, as I have read the instructions very carefully and followed both the diagram and the the written instructions, and the numbers of stitches and the pattern after the second row of the first pattern section do not synchronize.

11.05.2021 - 19:55

DROPS Design answered:

Dear Nadine, maybe this lesson can help you to understand how to work diagrams? You will increase when working A.1/A.5 and at the same time decrease in A.3, ie the stitches worked on each side of A.3 will be by and by decreased, "eaten" by A.3, while the increases in A.1 and A.5 will keep the number of sts constant. Hope this will help. Happy knitting!

12.05.2021 - 08:10

country flag Catherine Gonfroy wrote:

Merci pour votre réponse rapide et très claire. Je m’y remets dès ce soir !

15.04.2021 - 09:30

country flag Catherine Gonfroy wrote:

Bonjour, j’essaie de réaliser ce bonnet en taille 6/9 mois. J’ai donc fait 4 côtes mousse sur 129 mailles. Sur le rang suivant, je suis les diagrammes comme indiqué mais l’ensemble de ces indications s’exécute sur un total de 119 mailles ! Pouvez vous m’expliquer pourquoi ? Merci d’avance !

14.04.2021 - 23:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gonfroy, tricotez ainsi: 1 m lisière, 1 m endroit, A.1 (= 1 maille), *A.2 (= 22 m) , A.3 (= 3 m ), A.4 au-dessus des 22 m suivantes, A.5 (=2 m)*, A.1 (= 1m), 10 m au point mousse, A.3 (= 3 m), 10 m au point mousse, A.5 (= 2m), A.1 (=1m), répéter de *-* encore 1 fois, et terminer par 1 m lisière = 1+1+ 1+(22+3+22+2)+1+10+3+10+2+1+(22+3+22+2)+1= 129 m. Bon tricot!

15.04.2021 - 07:56