DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 186-26
DROPS Design: Mynstur la-036
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál: Hæð mæld meðfram miðju lykkju er ca 64 cm og breidd mæld meðfram efri hlið er ca 180 cm.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 6790, kóngablár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

PRJÓNFESTA:
Sjalið á að bleyta og strekkja í rétt mál í lokin, þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg. En til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust eða of fast þá er hægt að prjóna smá prufu með sléttprjóni á prjóna 3 til að athuga hvort uppgefin prjónfesta passi.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn ásamt því að fella af. Sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir alla uppslætti frá fyrri umferð, uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Passið uppá að herða ekki á þræði. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að nota grófari prjóna við affellinguna.

FORMUN:
Ef skipt er yfir í annað garn frá garnflokki A þarf ekki að strekkja sjalið í rétt mál, bleytið sjalið og leggið það til blautt í rétt form. Látið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
----------------------------------------------------------

SJAL:
Sjalið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónað er ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3 með Lace.
Prjónið nú næstu 2 umferðirnar þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn,1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, brugðnar lykkjur fram þar til eftir eru 2 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 9 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu 4 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja – hún er prjónuð í sléttprjóni í öllu sjalinu), prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjur. Haldið áfram að prjóna eftir A.1 og A.2 svona þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina = 81 lykkja í umferð.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Nú er prjónað áfram með mynstur og útaukningu eins og gert var í A.1 og A.2.
Aukið út um 2 lykkjur í byrjun og í lok umferðar, aukið út hvoru megin við miðjulykkju. Gataumferð er prjónuð alveg eins, mikilvægt er að passa uppá að gataumferðin komi yfir hverja aðra (eins og áður) og að það séu alltaf minnst 5 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við miðjulykkju. Prjónið svona þar til aukið hefur verði út alls 54 sinnum, nú eru 333 lykkjur í umferð (= 166 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið nú áfram í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið mynsturteikningu A.3 yfir 4 lykkjur, endurtakið mynsturteikningu A.4 yfir næstu 156 lykkjur (= 12 mynstureiningar á breidd), prjónið A.5 yfir 6 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), A.6 yfir 6 lykkjur, endurtakið mynsturteikningu A.4 yfir næstu 156 lykkjur (= 12 mynstureiningar á breidd), prjónið A.7 yfir síðustu 4 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu svona 1 sinni á hæðina = 555 lykkjur í umferð.

Prjónið 4 umferðir garðaprjón. LESIÐ AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Klippið frá og festið enda.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið út, ekki vinda. Rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og klemmið fast til að ná vatninu úr – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Ef notað er annað garn frá garnflokki A – lesið FORMUN að ofan. Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétt form og notið nálar til að festa það með. Látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá réttu, slétt frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður og sá seinni er látinn falla niður
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja (hoppið yfir þennan ferning)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Maibrit Christiansen wrote:

Ja, jeg har lige endnu engang kontrolleret maskeantallet. Og ja alle omslagene er der.

10.05.2021 - 13:36

DROPS Design answered:

Hei Majbrit. Usikker på hvor det blir feil hos deg, men i diagram A.7 i rad 18 skal du ha 22 masker, i rad 19 strikker du 2 steder 2 masker sammen og øker med 2 masker = fremdeles 22 masker. Når du da strikker rad 20 skal du da også ha 22 masker. Du skriver at det skal være 21 masker, men i rad 20 skal det være 22. Kan det være noe tellefeil der? mvh DROPS design

10.05.2021 - 14:23

country flag Maibrit Christiansen wrote:

Efter jeg har fået god hjælp tidligere er jeg nu desværre gået i stå igen så tæt på målet. I diagram 7 kan jeg ikke få maskeantallet til at passe på pind nr. 20 (vrangpind). Iflg. diagrammet skal der være 21 masker efter den førstemaske (ret) men jeg har kun 18 masker. Har talt alle pindene efter og så vidt jeg kan se stemmer det hele vejes. Kan I regne ud hvor det er gået galt for mig??

10.05.2021 - 09:06

DROPS Design answered:

Hei Maibrit Husket du kastene på begge steder på pinne 19 i A.7? Både dobbeltkastet og enkelt kastet? Diagram A.7 og A.4 går litt over hverandre. Har du riktig maskeantall på de andre diagrammene, kan være fort gjort å overse et kast? mvh DROPS design

10.05.2021 - 13:22

country flag Lelletta wrote:

Non era più semplice spiegare come avete scritto voi ora? Spiegazioni sempre perfette ma machiavelliche! 2 maglie...54 aumenti..ecc...Vi seguo molto, ma spesso mi trovo in difficoltà, come tante altre, leggendo i vari commenti di quasi tutti i modelli! Semplificate! Scusate lo sfogo, ma il mio vuole essere solo un consiglio, una critica spero costruttiva! Comunque sempre grazie e buon lavoro! :)

25.04.2021 - 00:13

country flag Lelletta wrote:

Buonasera, sono ancora io, scusate!! Sono ferma alla fine delle 81 maglie perché nn capisco come è dove aumentare per arrivare ad avere 333 maglie.se capisco bene sono 6 in tutto 4 ai lati e 2 al centro per 54, quindi per 9 volte. Ma, a parte che non mi torna il conto, ogni quanti ferri devo aumentare? Cosa sbaglio? Spero di essere stata chiara! Potete spiegare un po\' più semplicemente per favore? Ringrazio come al solito per la vostra disponibilità!

24.04.2021 - 19:08

DROPS Design answered:

Buonasera Lelletta, la sezione spiega semplicemente come si svolgerà il lavoro: deve continuare a lavorare A.1 e A.2 come indicato fino ad avere 166 maglie a ogni lato della maglia centrale. Buon lavoro!

24.04.2021 - 22:19

country flag Lelletta wrote:

Buonasera. sto lavorando questo scialle che dalla foto sembra completamente diverso... A me risulta molto compatto, mentre nella foto il bordo è molto più traforato e si intravedono dei giri a rovescio che non sono menzionati nelle spiegazioni! Forse avete messo la foto di un altro scialle? O manca qualche altra spiegazione/diagramma? Spero in una rapida risposta, ho il lavoro in sospeso...Grazie mille!

22.04.2021 - 22:06

DROPS Design answered:

Buonasera Lelletta, la lavorazione si aprirà dopo il bloccaggio. Buon lavoro!

22.04.2021 - 22:58

country flag Elsemarie wrote:

Jag får inte ihop varv 5 i diagram A3. JAg får det inte att stämma så de dubbla omslagen kommer över varandra som det ser ut i diagrammet. Ska det vara över varandra?

04.03.2021 - 11:40

DROPS Design answered:

Hej Elsemarie, A3 strikkes i den ene side og de dobbelte omslag skal strikkes inden for retmasken på hver 2.pind. Da det er udtagninger kommer de ikke nøjagtig over hinanden men de vil altid være næst yderst. God fornøjelse!

05.03.2021 - 08:58

country flag Maibrit Christiansen wrote:

Tak for det hurtige svar. Nu har jeg lige prøvet igen men kan stadig ikke få det til at passe, Efter 1. pind efter diagram A! + 1 midtermaske + A2 har jeg ganske vist 15 masker men når jeg på 2. pind skal lade det ene omslag falde uden at strikke det må der nødvendigvis blive 2 masker mindre efter denne pind. Eller har jeg helt misforstået opskriften??

03.02.2021 - 16:33

DROPS Design answered:

Hej Maibrit, Jo når du laver 2 omslag og slipper det ene ned så har du 1 ny maske på næste p, det gør du 2 gange + 1 almindeligt omslag = 3 nye masker i både A.1 og A.2. Du kan se på næste pind hvor mange masker du skal have :)

04.02.2021 - 14:44

country flag Maibrit Christiansen wrote:

Jeg er startet på dette meget smukke sjal 5 gange og allerede når jeg kommer til 4 eller 5 pind har jeg 2 masker for lidt på pinden i forhold til diagrammet (A1). Hvor tror I at det går galt for mig? Håber at Ikan hjælpe mig så jeg kan strikke dette smukke sjal til min mor mår hun til sommer bliver 90 år.

01.02.2021 - 12:55

DROPS Design answered:

Hei Maibrit. Skriv ut oppskriften, deretter kan du telle kastene på hver rad og så skrive ned hvor mange masker inkl kast du skal ha etter hver rad. Du starter med 5 masker. På 1. og 2. rad skal du ha 9 masker = A.1 (4 masker og 3 kast) + midtmasken + A.2 (4 masker og 3 kast)= 7+1+7=15 masker. Det økes ikke på 2. rad. 3. rad= A.1 (7 masker + 3 kast) +1 midtmaske + A.2 (7 masker +3 kast) = 10+1+10= 21 masker. Det økes ikke på 4. rad. 5. rad = A.1 (10 masker + 4 kast - 2 rett sammen= 12 masker) + 1 midtmaske + A.2 (10 masker + 4 kast - 2 rett sammen= 12 masker) = 12+1+12 = 25 masker osv. mvh DROPS design

01.02.2021 - 15:54

country flag Gabriele wrote:

Wenn ich mir das foto so ansehe dann fängt dieses schultertuch unten mit dem wellenmuster an. ich habe jetzt a1 und a2 gestrickt, dass ist nur lochmuster

15.11.2020 - 13:11

DROPS Design answered:

Liebe Gabriele, das Tuch wird von oben nach unten gestrickt, dh zuerst stricken Sie das Lochmuster und nehmen für das gewünschte Form in jede 2. Reihe (= siehe Diagram) zu und zum Schluss stricken Sie das Wellenmuster (immer noch mit Zunahmen wie zuvor). Viel Spaß beim stricken!

16.11.2020 - 10:22

country flag VH wrote:

Olisi hyvä saada piirrokset ja merkkien selitykset myös suomenkieliseen ohjeeseen. Kiitos!

17.05.2020 - 14:04

DROPS Design answered:

Hei, nyt piirrokset aukeavat!

19.05.2020 - 14:23