DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Scarborough Fair

Prjónað poncho með gatamynstri prjónað frá hlið úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-8
DROPS Design: Mynstur z-812
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-500 g litur 9022, kórall
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-175 g litur 13, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir gatakant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Athugið að mynstur er prjónað bæði frá réttu og frá röngu í A.6 og A.7.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið fram og til baka á hringprjón í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 123-138-158-173 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið A.1, en í 7. umferð í A.1 er mynstureining endurtekin þar til eftir eru 1-2-2-1 lykkjur á prjóni, prjónið síðustu 1-2-2-1 lykkjur slétt.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 12 lykkjur), prjónið A.3A yfir næstu 50-60-80-100 lykkjur (= 5-6-8-10 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.3B yfir næstu 0-5-5-0 lykkjur (= 0-1-1-0 mynstureiningar með 5 lykkjum), 3 lykkjur sléttprjón, A.4 (= 10 lykkjur), A.5 (= 27 lykkjur), setjið 1 prjónamerki og prjónið A.6 (= 17 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATH: Prjónamerkið markar skilin á milli A.5 og A.6, passið vel uppá að mynstur í A.6 er prjónað bæði frá réttu og frá röngu og að lykkjufjöldinn í A.6 kemur til með að vera breytilegur á milli 17 til 21 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið þar til stykkið mælist ca 67-76-88-97 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.5/A.6 á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.1, en í 7. umferð í A.1 er mynstureiningin endurtekin þar til eftir eru 1-2-2-1 lykkjur á prjóni, prjónið síðustu 1-2-2-1 lykkjur slétt. Prjónið A.1 til loka en fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 123-138-158-173 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið A.1, en í 7. umferð í A.1 er mynstureining endurtekin þar til eftir eru 1-2-2-1 lykkjur á prjóni, prjónið síðustu 1-2-2-1 lykkjur slétt.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.7 (= 17 lykkjur), setjið 1 prjónamerki, prjónið A.5 (= 27 lykkjur), A.8 (= 10 lykkjur), prjónið A.3A yfir næstu 50-60-80-100 lykkjur (= 5-6-8-10 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3B yfir næstu 0-5-5-0 lykkjur (= 0-1-1-0 mynstureiningar með 5 lykkjum), 3 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 12 lykkjur) og 4 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATH: Prjónamerkið merkir skil á milli A.7 og A.5, passið uppá að mynstur í A.7 er bæði prjónað frá réttu og frá röngu og mynstureining er endurtekin á hæðina í umferð merktri með stjörnu í mynsturteikningu. Lykkjufjöldinn í A.7 kemur til með að vera breytilegur frá 17 til 21 lykkjur.

Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 67-76-88-97 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.7/A.5 á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.1, en í 7. umferð í A.1 er mynstureining endurtekin þar til eftir eru 1-2-2-1 lykkjur á prjóni, prjónið síðustu 1-2-2-1 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

FRÁGANGUR:
Sjá teikningu. Leggið stykkin ofan á hvort annað með réttuna út og saumið saum A og B innan við affellingarkantinn. Saumið síðan saum C og D í ystu lykkjubogana. Nú er klauf 30-32-34-36 cm í annarri hlið og önnur klauf meðfram hinni hliðinni í viðbót við op í hálsmáli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.06.2019
Leiðrétting - mynsturteikning A.6: Bætt hefur verið við 1 lykkju brugðið í síðustu umferð í A.6.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = snúið slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur brugðið saman frá réttu og 2 lykkjur brugðið saman frá röngu
symbols = 3 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = endurtakið mynsturteikningu í þessari umferð
symbols = prjónstefna
symbols = fellið af 1 lykkju
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Carole Rousseaux wrote:

Problème d'impression : on ne peux obtenir les instructions en fichier pdf, ça ne fonctionne pas. Toutes mes applications sont à jour...

05.06.2020 - 10:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousseaux, vérifiez bien tous les paramètres, je viens à l'instant de l'enregistrer en .pdf et j'ai bien toutes les explications et les diagrammes - vérifiez que toutes les pages sont bien sélectionnées par exemple, mais ça doit fonctionner. Sinon, merci de nous indiquer sur quel navigateur vous êtes, sa version et votre système d'exploitation. Bon tricot!

05.06.2020 - 12:11

country flag Karin Nielsen wrote:

Tak for svar. Nyt spørgsmål: Jeg er nu gået i gang med bagstykket og strikker på mønster A. 7. Der er 11 pinde i mønstret, i stedet for A. 6 hvor der kun er 10 pinde. Så, hvordan strikker jeg pind 12, før jeg går i gang med 1. pind i mønstret på ny. Venligst Kain Nielsen

08.10.2019 - 17:35

DROPS Design answered:

Hej Karin, Når du skal gentage rapporten i A.7, så skal du starte ved stjernen :)

09.10.2019 - 14:07

country flag Karin Nielsen wrote:

Jeg forstår ikke monteringsvejledningen. Kan du beskrive lidt mere detaljeret, hvor jeg skal sy sammen, og hvor der derefter er åbent. Venlig hilsen Karin

07.10.2019 - 14:40

DROPS Design answered:

Hej Kain, se måleskitsen aller nederst i opskriften, du syr de 2 stykker sammen langs med halvdelen af 2 sider. Ponchen bliver asymmetrisk :)

07.10.2019 - 17:10

country flag Otti wrote:

Hallo liebes Drops-team, nur ein kleiner Hinweis: in der Grafik A6 fehlt in den letzten beiden Reihen links eine Masche. Man findet den Fehler schon wenn man lange genug mit A 7 vergleicht - aber vielleicht könnt ihr das ausbessern.

01.06.2019 - 14:10

DROPS Design answered:

Liebe Otti, danke für den Hinweis, A.6 wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

03.06.2019 - 13:35

country flag Julia wrote:

Hallo liebes Drops Team, Ich liebe diesen Poncho, mein Vorderteil ist auch bereits fertig. Nun hänge ich bei A7, ich verstehe einfach nicht, wie das mit dem wiederholen des Rapports gemeint ist?? Soll ich dann die erste Reihe auslassen?! Oder immer erst in Reihe 3 anfangen?! Im Gegensatz zu A6 hat A7 ja auch 11 Reihen. Vielen Dank für die Hilfe. liebe Grüße

26.03.2019 - 12:36

DROPS Design answered:

Liebe Julia, wenn die 11 Reihen in A.7 einmal in der Höhe gestrickt werden, dann wiederholen Sie A.7 ab der Reihe mit dem Stern = ab 2. Reihe, dh Reihe 2 bis 11 wiederholen. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2019 - 13:48

country flag Mimi wrote:

Bonjour à l'équipe Garnstudio, J'ai une question/remarque à propos du diagramme A7, au niveau de la dernière ligne, il me semble qu'il y ait une maille de trop. Est-ce qu'après les 4 mailles rabattues, il n'y aurait pas que 2 mailles tricotées à l'endroit (à la place de 3). Bien cordialement,

22.04.2018 - 15:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mimi, quand on a rabattu les 4 premières mailles, il reste 1 maille sur l'aiguille droite, on tricote les 2 m suivantes à l'endroit = on a bien 3 m end avant le jeté. Bon tricot!

23.04.2018 - 09:41

country flag Antje wrote:

Hallo, in Diagramm A.6 sind schwarze Kästchen gezeichnet , in der Erklärung zum Diagramm finde ich keine passende Erklärung dazu. Ich weiß mir nicht zu helfen und komme nicht weiter.Danke für ihre Hilfe

24.02.2018 - 15:15

DROPS Design answered:

Liebe Antje, diese Maschen sollen abgekettet werden, diese Zeichen werden so bald wie möglich ergänzt. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2018 - 08:06

country flag Mimi wrote:

Bonjour, Je pose plusieurs questions concernant respectivement les diagrammes A3A et A6 : Diagramme A3A : la photo du modèle montre des points ajourés régulièrement disposés. Cela pourrait être possible si la (diminution + jeté) est au rang 9 et non au rang 11 ? Diagramme A6 : les cases noires non pas été légendées : est-ce que cela correspond à des diminutions (par exemple tricoter une maille et la passer par dessus la suivante) ? Dans l'attente de vous lire,

12.02.2018 - 00:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mimi et merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier A.3A et ajouter la légende manquante à A.6 et A.7. Bon tricot!

12.02.2018 - 09:38

Katherine wrote:

Hello! I love this pattern, but can I use DROPS Lace instead? Please advice. Thank you

06.02.2018 - 19:45

DROPS Design answered:

Dear Katherine, DROPS Lace is quite thinner and generally used only for shawls, you can swatch first and check if you like the fabric with the given tension. For any further assistance do not hesitate to contact your DROPS store even per mail, telephone or on social medias. Happy knitting!

07.02.2018 - 08:35

country flag Audrey wrote:

Bonjour Est il possible d'avoir les explications de ce magnifique châle? en vous remerciant cordialement

18.01.2018 - 14:07