DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

So Charming Socks

Heklaðar tátiljur með sólfjaðrakanti fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS Safran. Stærð 15 - 23.

DROPS Baby 29-4
DROPS Design: Mynstur e-076-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 15/17 - 18/19 - 20/21 - 22/23
Lengd fótar: 10-11-12-13 cm

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50 g litur 17, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fastalykkjur/stuðlar verði 10 cm á breidd.

FYLGIHLUTIR: Ca 1 meter silkiborði (ca 5 mm á breidd).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar.
Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar frá fyrri umferð með stuðlum.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Þegar heklað er í hring endar umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.
Þegar heklað er fram og til baka endar umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkjum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í umferð eftir að stuðlar framan á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fastar framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða þarf aðeins á þræðinum á milli hverra stuðla sem eru heklaðir. Þetta er gert til þess að miðjustykkið framan á tátilju verði ekki allt of laust.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJA:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sóla – ATH: Heklað er í hverja lykkju (ekki á milli lykkja). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið 19-21-23-25 loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með Safran.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 17-19-21-23 loftlykkjum = 18-20-22-24 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 22-24-26-28 fastalykkjur.
Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 3-4-4-5 cm. Fækkið nú um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA = 18-20-22-24 fastalykkjur í umferð – ATH: Í lok umferðar byrjar úrtaka þegar eftir eru 4 fastalykkjur, síðan eru heklaðar 4 síðustu fastalykkjur saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5) cm. Klippið frá og festið enda, sólinn er nú tilbúinn.
Heklið síðan stuðla í kringum sóla þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja í annarri skammhlið) – Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1-2-2-3 stuðla fram að horni, 2 stuðlar í horni, 1 stuðull í hverja af 18-20-22-24 fastalykkjum meðfram hlið, 2 stuðlar í horn, 4-6-6-8 stuðlar meðfram skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 18-20-22-24 stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3-4 stuðlar meðfram skammhlið að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 52-60-64-72 stuðlar.
NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul = 72 stuðlar.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG:
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en fækkið um 1 stuðul í hvoru af 2 hornum framan á tá – LESIÐ ÚRTAKA = 50-58-62-70 stuðlar.
HEKLIÐ SÍÐAN FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN ÞANNIG (Heklið 1 lykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð):
UMFERÐ 1: 19-22-24-27 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman – LESIÐ ÚRTAKA, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 19-22-24-27 fastalykkjur = 48-56-60-68 lykkjur.
UMFERÐ 2:18-21-23-26 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 18-21-23-26 fastalykkjur = 46-54-58-66 lykkjur.
UMFERÐ 3:17-20-22-25 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8-10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 17-20-22-25 fastalykkjur = 44-52-56-64 lykkjur.
UMFERÐ 4 í stærð 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): 24 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 10 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 24 fastalykkjur = 62 lykkjur.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG:
16-19-21-23 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 10-12-12-14 næstu stuðla saman 2 og 2, 1 hálfur stuðull og 16-19-21-23 fastalykkjur = 39-46-50-55 lykkjur.

NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 14-17-19-21 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 5-6-6-7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 14-17-19-21 fastalykkjur = 37-44-48-53 lykkjur.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í STÆRÐ 22/23 (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum) ÞANNIG: 20 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 7 stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 20 fastalykkjur = 51 lykkja.

ALLAR STÆRÐIR:
= 37-44-48-51 lykkjur. Heklið 1-1-2-2 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 30-36-36-36 stuðlar í 1. umferð – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir að gera tátiljuna stærri eða minni í opi þá er hægt að jafna lykkjufjöldann að óskuðu máli, en vegna mynsturs þá verður lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 6.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 30-36-36-36 fastalykkjur.
UMFERÐ 2 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10-12-12-12 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en í stærð 15/17 er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 3 sinnum í umferð og í stærð 18/19 + 20/21 + 22/23 eru heklaðar 4 fastalykkjur um loftlykkjuboga alls 1 sinni í umferð) = 37-49-49-49 fastalykkjur (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 12 + 1).
Heklið nú sólfjaðramynstur hringinn þannig: Heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið síðan 3-4-4-4 mynstureiningar með A.1B. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.

SILKIBORÐI:
Klippið silkiborðann í tvennt. Byrjið við miðju framan á annarri tátiljunni og þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferð. Hnýtið slaufu við miðju að framan. Gerið alveg eins á hinni tátiljunni.

Mynstur

symbols = þessi umferð er útskýrð í uppskrift
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í toppinn á picot
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = loftlykkja
symbols = 1 picot: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju frá fyrri umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = fastalykkja er hekluð í þennan stuðul
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Mette Nielsen wrote:

Kære Drops design Jeg kommenterer her da jeg ikke ved hvordan jeg ellers får fat på jer. Jeg skriver fordi der er en butik på Etsy, der sælger drops mønstre i butikkens eget navn og kalder designsne for deres egne. Hvordan melder vi dette til Drops, så de kan tage deres rettigheder tilbage og lukke butikken?! Mange tak

16.02.2021 - 16:09

DROPS Design answered:

Hej Mette, tak for info, vi skal se på det :)

18.02.2021 - 09:44

country flag Faith wrote:

Thanks for creating this blog. Your crochet sockets are beautiful and the colors are attractive. I would love you to make a video of it. So I can learn how to make mine as well. I await your urgent reply and thanks once more for creating this blog.

22.05.2020 - 13:54

country flag Margret wrote:

Guten Tag Nicht nur für dieses Modell möchte ich mich herzlich bedanken.Auch die Tatsache, dass man die Anleitungen ausdrucken kann, ohne bei einer Firma seine Daten hinterlassen zu müssen, finde ich super ! Weiter so! MfG Margret

14.11.2019 - 09:07

country flag Irene wrote:

En la vuelta 2 del patrón de abanicos, es decir, la hilera de agujeros para el listón de seda, ¿se hacen puntos medio altos o puntos altos? En el texto dice que puntos medios altos, pero en la vuelta siguiente se dice que se trabajen puntos bajos en los puntos altos de la vuelta anterior... Gracias!

26.08.2019 - 22:00

DROPS Design answered:

Hola Irene. Enviaré tu pregunta al departamento de diseño. Pero puedes trabajar puntos altos o medio altos para la vuelta para pasar la cinta, ya que esto solo afecta a la anchura de los agujeros, pero no al diseño del modelo.

08.09.2019 - 14:05

country flag Erika Reinhold wrote:

DIE NÄCHSTE RUNDE IN ALLEN GRÖSSEN: 16-19-21-23 feste Maschen, = 39-46-50-55 Maschen.DIE NÄCHSTE RUNDE IN ALLEN GRÖSSEN: 14-17-19-21 feste Maschen häkeln, 37-44-48-53 Maschen. wie bitte soll das gehen? entweder ich reduziere die Seiten oder die Mitte. hier ist die Seite von 19 auf 17 und die mitte von 8 auf 6 maschen reduziert

07.08.2019 - 18:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reinhold, es wird in der Mitte durch die 2 Stb zs abgenommen - aber gleichzeitig häkeln Sie weniger fM und mhr Stb um das richtige Form zu behalten. Viel Spaß beim häkeln!

08.08.2019 - 09:39

country flag Erika Reinhold wrote:

Könnte man es möglich machen eine Übersetzungsfunktion für die Fragen und Kommentare einzubauen? Dann könnte man sehen, ob die Frage schon einmal gestellt und beantwortet wurde.

06.08.2019 - 12:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reinhold, die Fragen/Antwort und Kommentare können Sie auch mit einer Online-Übersetzer übersetzen. Gerne können Sie immer Ihre Frage hier stellen, oder auch sich direk an Ihrem DROPS Store wenden. Viel Spaß beim häkeln!

07.08.2019 - 11:53

country flag Simard wrote:

Dans le patron vous dite de faire une maille serré dans le haut du picot c est où exactement

07.06.2019 - 21:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simard, au rang précédent vous avez crocheté 3 ml, 1 bride dans la 1ère des 3 ml pour former un picot, au rang suivant, vous crochetez la maille serrée dans la pointe de ce picot. Bon crochet!

20.06.2019 - 09:06

country flag Patricia CASTAGNOTTO wrote:

Bonjour, pourrais je avoir une video pour ces très jolis chaussons ? Merci

03.04.2019 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Castagnotto, nous n'avons pas de vidéo pour ce modèle, toutefois, lisez attentivement les indications pour la taille souhaitée et suivez bien le diagramme (comment lire un diagramme au crochet). Pour toute question complémentaire, n'hésitez pas à utiliser cette rubrique ou bien contactez le magasin où vous avez acheté votre laine pour toute assistance individuelle. Bon crochet!

04.04.2019 - 09:38

country flag Susanne Bylund wrote:

Ingen som vill svara...behöver hjälp för att kunna fortsätta... Mvh/Susanne Bylund

06.02.2019 - 14:18

country flag Susanne Bylund wrote:

Ska man börja med bara 1 maska på A1 o sen enbart upprepa A2 3 ggr? Mvh/Susanne Bylund

05.02.2019 - 13:47

DROPS Design answered:

Hej, jo du ska virka A.1A över den första maskan en gång och sedan upprepar du A.1B 3 gånger.

06.02.2019 - 17:30