DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Swing

Toppur með gatamynstri og laskalínu, prjónaður neðanfrá og upp úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-32
DROPS Design: Mynstur r-711
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir sléttprjón verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) – NR 3,5 fyrir kant á ermum og í hálsi – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 272 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 7. og 8. hver lykkja saman.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 8 lykkjur færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.

TOPPUR:
Fitjið upp 336-336-378-420-462-504 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið A.1 (= 21 lykkjur) 16-16-18-20-22-24 sinnum í umferð. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 272-272-306-340-374-408 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur þar sem fækkað er um 34 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 238-238-272-306-340-374 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan A.2 (= 34 lykkjur) 7-7-8-9-10-11 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum seins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 182-182-208-234-260-286 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 168-184-200-220-248-272 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð M er aukið út um 2 lykkjur. Í stærð S, L, XL, XXL og XXXL er fækkað um 14-8-14-12-14 lykkjur jafnt yfir). Haldið síðan áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-45-50-56-61 lykkjur (= ½ bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 76-84-90-100-112-122 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur, prjónið þær 38-42-45-50-56-61 lykkjur (= ½ bakstykki). Geymið stykkið og prjónið kanta á ermum.

KANTUR Á ERMUM:
Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 68-76-84-88-92-98 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Muskat. Prjónið A.3 í hring. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= undir ermum), prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru og fækkið um 1-0-0-0-0-1 lykkju jafnt yfir = 59-68-74-78-80-83 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermakanta á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 270-304-328-356-384-410 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður, JAFNFRAMT í 1. umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 21-23-25-28-30-33 sinnum = 102-120-128-132-144-146 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið A.3. Í umferð með ör í mynsturteikningu er fækkað um 2-14-18-16-24-20 lykkjur jafnt yfir = 100-106-110-116-120-126 lykkjur. Fellið af þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.04.2017
BERUSTYKKI:Prjónið eftir mynsturteikningu A.3, ekki A.4
Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2017
Uppskrift og mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 27.04.2017
Mynsturteikning A.2 (umferð 41 er uppfært)

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir

diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Lynn Booysen wrote:

Forgive me, reading wrong size. Thanks for your hardwork in creating this pattern.

12.04.2024 - 17:41

country flag Lynn Booysen wrote:

On the size L at the shaping of the yoke, we have 90 sts each side, front and back total stitches 180. On the sleeves 74sts times 2 total stitches 148. Altogether ready for raglan 328 stitches. Raglan decrease for 25 times total of 50 stitches. Calculation:- 90-50=40x2=80 stitches for front and back. 78-50=28x2=56 stitches for either sleeves. 80+56=136 stitches to start A3 pattern. The pattern requests to have a total of 4 sts per sleeve to many, that would mean another 4 rows before A3 is done?

12.04.2024 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Lynn, you decrease on each side of each marker thread for the raglan. In total, you decrease 8 times on each round. 8 stitches x 25 times = 200 stitches. 328-200 = 128 stitches. For the sleeves, you had 74 sts on each sleeve (not 78), minus 50 = 24. 24*2 = 48. 80+48 = 128 stitches. Happy knitting!

14.04.2024 - 22:40

country flag Chantal Tremblay wrote:

J’ai commencé à faire le modèle no 178-32 et lorsque j’ai terminé le A1 j’avais beaucoup plus de maille au lieu de moins de maille alors que j’ai fait à la lettre

22.03.2024 - 21:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, notez bien que A.1 comporte des diminutions: vous allez diminuer 2 mailles au 6ème tour et 2 mailles au 12ème tour, autrement dit vous allez diminuer 4 mailles dans chaque A.1. Pensez à bien mettre un marqueur entre chaque A.1 pour bien vérifier votre n nombre de mailles à chaque fois et ainsi être certaine de bien conserver le bon nombre de mailles. Bon tricot!

02.04.2024 - 08:06

country flag Malgorzata wrote:

Co to znaczy przersbiac schemat A3 w okrazeniu oznaczonym w schemacie strzalka.Przerabiamy tylko do strzalki czy jak

13.03.2024 - 08:28

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu, 'W okrążeniu oznaczonym w schemacie A.3 strzałką, równomiernie zamknąć....'. Tzn. że w 9-tym okrążeniu schematu A.3, czyli w okrążeniu oczkami prawymi, musisz równomiernie zamknąć X oczek. Jak równomiernie zamykać oczka znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!

13.03.2024 - 09:23

country flag Mo Brown wrote:

After working A.1 should there be a PURL row? The pictures seem to show one. I'd also like to know the answer to Claudia's question please.

16.07.2023 - 15:13

DROPS Design answered:

Dear Mo, yes, you'd need to purl the next round after A.1 and at the same time decrease. The arrow is explained in the pattern instructions and is used for the yoke: On round marked with arrow in diagram decrease 2-14-18-16-24-20 stitches evenly. Happy knitting!

17.07.2023 - 11:33

country flag Claudia Thierry wrote:

What does the arrow mean on the right of Chart A3, beside Row 9?

15.07.2023 - 21:38

DROPS Design answered:

Dear Claudia, the arrow is explained in the pattern instructions and is used for the yoke: On round marked with arrow in diagram decrease 2-14-18-16-24-20 stitches evenly. Happy knitting!

17.07.2023 - 11:34

country flag Maria Elena wrote:

Non ho eseguito il campione, ma ho usato il filo e i ferri indicati nel modello

22.04.2022 - 08:49

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Elena, la tensione del campione è soggettiva, per cui se il suo campione dovesse essere diverso da quello indicato, anche la quantità di filato cambierebbe. Buon lavoro!

24.04.2022 - 16:34

country flag Annette Brakenhoff wrote:

Is A.4 gelijk aan A.3?

18.04.2022 - 22:16

DROPS Design answered:

Dag Annette,

Ja, dit mot inderdaad A.3 zijn. Het staat verkeerd in de tekst. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling ter controle.

20.04.2022 - 11:01

country flag Maria Elena wrote:

Ho lavorato la taglia L ma segnato che sono necessari gr. 500 di filato anziché gr. 450

18.04.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Elena, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!

19.04.2022 - 21:26

country flag Marine wrote:

Bonjour Pouvez vous me dire ce que veux dire "l'étoile ".......*......dans le graphique (A 2) Il y en a deux ...une a la 15 e ligne et l'autre 36 e ligne MERCI pour vos explications

26.02.2022 - 07:58

DROPS Design answered:

Bonjour Marine, je ne vois pas détoile dans A.2, mais au début du 15ème et du 51ème tour vous devez commencer le diagramme 1 maille avant, autrement dit tricotez le tour précédent jusqu'à ce qu'il reste 1 maille, et commencez le diagramme A.2 ainsi. Si j'ai mal compris votre question, pouvez-vous essayer de la reformuler différemment? Merci pour votre compréhension.

28.02.2022 - 09:13