DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Swing Cardigan

Peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-31
DROPS Design: Mynstur r-710
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir sléttprjón verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) – NR 3,5 fyrir kant á ermum og í hálsi – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR: 521: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 282 lykkjur), mínus kant að framan (10 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 8,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 7. og 8. hver lykkja og 8. og 9. hver lykkja saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 8 lykkjur færri í umferð).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni við miðju að framan, sláið 2 sinnum uppá prjóninn og prjónið síðustu 2 lykkjurnar slétt. Snúið stykkinu, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu lykkju slétt saman með fyrri uppslættinum, prjónið seinni uppsláttinn slétt saman með næstu lykkju, prjónið síðan áfram eins og áður.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
M: 3, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm
L: 3, 12, 21, 30, 38, 46 og 54 cm
XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
XXL: 3, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm
XXXL: 3, 13, 23, 33, 42, 51 og 60 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 346-346-388-430-472-514 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT!
Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið a.1 (= 21 lykkjur) 16-16-18-20-22-24 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 282-282-316-350-384-418 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur þar sem fækkað er um 33 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 249-249-283-317-351-385 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 34 lykkjur) 6-6-7-8-9-10 sinnum, prjónið A.3 (= 35 lykkjur), prjónið kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 og A.3 hafa verið prjónað til loka á hæðina eru 193-193-219-245-271-297 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 178-194-210-230-258-282 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð M er aukið út um 1 lykkju. Í stærð S, L, XL, XXL og XXXL er fækkað um 15-9-15-13-15 lykkjur jafnt yfir). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 43-47-50-55-61-66 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 76-84-90-100-112-122 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur, prjónið þær 43-47-50-55-61-66 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR Á ERMUM:
Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 68-76-84-88-92-98 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Muskat. Prjónið A.4 í hring. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= undir ermum), prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru og fækkið um 1-0-0-0-0-1 lykkju jafnt yfir = 59-68-74-78-80-83 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermakanta á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-314-338-366-394-420 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður, JAFNFRAMT í 1. umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 21-23-25-28-30-33 sinnum = 112-130-138-142-154-156 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið A.4 með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í umferð með ör í mynsturteikningu er fækkað um 2-14-18-16-24-20 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kant að framan) = 110-116-120-126-130-136 lykkjur. Fellið af þegar A.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2017
Uppskrift og mynsturteikning A.2 og A.2 hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 27.04.2017
Mynsturteikning A.2 og A.3 - umferð 41 er uppfærð

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = í þessari umferð eru prjónaðar 2 lykkjur slétt eftir 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni áður en haldið er áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu

diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Marine wrote:

Bonjour . Je ne comprends pas très bien le calcul: après les 33 mailles de diminution il reste 351 ( xxl) comment peut on faire 9 x A2 et A3 plus 10 mailles de la boutonnière ( total 34+35+10 = 79 mailles ( 351:79= 4,44??) mon dernier dessin ne sera pas complet . Merci pour votre réponse

20.04.2022 - 09:23

DROPS Design answered:

Bonjour Marine, tricotez ainsi: 5 m de bordure devant, 9 x les 34 m de A.2 (= 306 mailles), les 35 m de A.3 et 5 m de bordure devant soit: 5+306+35+5=351 mailles. Bon tricot!

20.04.2022 - 13:33

country flag Angelika Wolf wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Muster A2: In der 15. Reihe soll ich nach den Blendenmaschen 2 rechte Maschen stricken und dann das Muster von A2 stricken. Muss ich auch bei den anderen Wiederholungen in der 15. Reihe immer 2 rechte Maschen stricken?

21.03.2022 - 22:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wolf, so stricken Sie nur am Anfang der Reihe, dh bei der ersten A.2 der Reihe, dann stricken Sie die letzte Masche in A.2 mit den 2 ersten Maschen vom nächsten A.2 / und dann A.3 zusammen. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2022 - 10:23

country flag Marine wrote:

Vous avez très bien expliqué ( cela m’aidera après le cardigan) mais cest moi qui me suis trompée de drop . c’est pour le Summer swing cardigan 178/31 ou il y a une étoile dans le A2 ligne 15 et ligne 56 . Merci encore pour vos explications .

28.02.2022 - 12:03

DROPS Design answered:

Bonjour Marine et merci, là je vois l'étoile :) Lorsque vous tricotez ce rang, vous allez devoir ajuster le début du 1er motif: tricotez 2 mailles endroit (les 2 cases qui manquent) lorsque vous tricotez le diagramme la 1ère fois, puis, à la fin du diagramme, tricotez la dernière maille avec les 2 mailles du A.2suivant/de A.3 (= les 2 mailles qui manquent au début). Bon tricot!

28.02.2022 - 13:42

country flag Ruth Bealer wrote:

I need some clarification. I'm on the yoke and have put the sleeves on the needle and inserted the marker. When I continue in stockinette and garter stitch , am I knitting the sleeves at this point. in A4pattern? Also with the reglan decrease-If I go up to the marker, I will eb reducing the stitches in the sleeve each time, I don't understand how I get to the138 Stitches. thank you for your time. I love this pattern and have had no problem up to this point. Ruth Bealer

19.05.2021 - 20:53

DROPS Design answered:

Dear Ruth, after you put together the sleeves and the body, and continue to knit the cardivan in one piece, you should knit in stockinett stitch and garter stitch only on teh button babnds. A.1 pattern is only for the edge of the sleeves and the neckline. You have not stated which size, but from teh 138 stitches I am guessing M. For raglan decreases see the explanations in the pattern, in eevery other row you are decreasing 8 stitches 25 times. You start with 338 stitches - (8X25 = 200)= 138 stitches. Happy Knitting

20.05.2021 - 00:38

country flag Beverley wrote:

On diagram A2, row 51 you have 32 stitches which reduces by 1 stitch. On the next row, it is shown to be reduced by 2 stitch’s ? When I go to stitch row 53, I have 1 extra stitch ?

02.04.2020 - 10:14

DROPS Design answered:

Dear Beverly, diagram A.2 will be checked, but it might take some time sorry in advance. Continue diagram as shown to get the lace pattern coming in a triangle so that the lace pattern continue from previous row - the number of sts on each side of the lace pattern/decreases might then be different on the next 2 rows. Happy knitting!

02.04.2020 - 12:50

country flag Beverley wrote:

Just about to start this on the jacket and it says “ Work as follows from WS: Work 5 band stitches in GARTER STITCH - see explanation above, work A.1 (= 21 stitches) 16-16-18-20-22-24 times, finish with 5 band stitches in garter stitch.” Do i start on the WS after cast on? Does this mean I start with my first row of A1 after cast on with Knit? It is not clear why my first row should start with “WS”?

19.03.2020 - 22:38

DROPS Design answered:

Dear Beverly, after casting on, you should knit the first row, according to the first row of the diagram and go from there. However, the side, from which you knitted the first row, will be the wrong side of the sweater, the feather and fan pattren's right side will be on the other side (the right side) of teh sweater. I hope this helps. Happy Knitting!

19.03.2020 - 22:55

country flag Mrs Stephanie Greenside wrote:

Hi, I am not a fan of garter stitch, has anyone tried a seed or moss stitch. I would really have to play with the increases and decreases, using another stitch but I don't know if it is possible with this pattern?

31.12.2019 - 20:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Greenside, except if I'm misunderstanding your question, garter stitch is here used most in the front band edges + bottom of sleeve + in the diagram (this sections in garter stitch shouldn't been removed). Hope this can help. Do not hesitate to contact your DROPS store - even per mail or telephone - for any individual assistance. Happy knitting!

02.01.2020 - 14:13

country flag Leigh wrote:

Hi, please can you tell me if it is possible to make this pattern long sleeve? Thanks a lot Leigh

21.12.2019 - 08:06

DROPS Design answered:

Dear Leigh, Yes, you can make this with long sleeves. to do so, instead of the sleeve edges, you sould knit sleeves, until the underarm, and put them on the needles woth the stotches of the body (where you cast off teh stitches for the armhole) and continue according to the pattern. Be careful to have the sleeves end up with as many stitches as the sleeve edges would, befre putting them together with the other stitches. Happy Knitting!

24.12.2019 - 17:24

country flag Marcia wrote:

Under the Jacket heading, it says to work until you reach 13 3/4 inches for the large size. The bottom has a scalloped edge which measures 1 1/4 inches in depth. So do you measure from the center of the scallop or the beginning/end of the scallop? Thanks.

27.09.2019 - 21:33

DROPS Design answered:

Dear Marcia, measurements are taken from the langest length, along front band stitches, ie at the bottom of scallop. Happy knitting!

30.09.2019 - 08:14

country flag Hanne Bækgård Jensen wrote:

Jeg savner nogle forklaringer til diagrammerne.

26.07.2019 - 17:10

DROPS Design answered:

Hej Hanne, diagramforklaringerne står lige over selve diagrammerne, nederst i opskriften. God fornøjelse!

01.08.2019 - 15:57