DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS SS24

Misty Moor

Prjónuð peysa með laskalínu, köðlum og A-formi prjónuð ofan frá og niður úr 2 þráðum DROPS Delight og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-19
DROPS Design: Mynstur de-168
Garnflokkur A + A + C eða E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-250-250-300-300 g litur 05, beige/grár/bleikur
150-200-250-250-300-300 g litur 06, bleikur/fjólublár
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK (tilheyrir garnflokki C)
75-100-125-125-150-150 g litur 05, beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 lykkjur og 12 umferðir sléttprjón með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 9 fyrir stroff og garðaprjón.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla í laskalínu.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 38 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 6,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Byrjið frá réttu frá miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og prjónið 6-6-7-7-7-8 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-14-16 lykkjur brugðið frá röngu, snúið við, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-21-24 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-28-32 lykkjur brugðið, snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við miðju undir ermum):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 38-38-38-40-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 10 með 1 þræði Delight í hvorum lit + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Skiptið yfir á sokkaprjóna 9 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í þriðju umferð (= umferð með sléttum lykkjum) er aukið út um 6-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 44-46-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 10.
Til að fá betra form er nú hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin er lokið eru sett 4 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT sem prjónað og aukið er út þannig: Prjónið 6-6-6-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann = 3 lykkjur fleiri) og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= mitt ofan á hægri ermi), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkju, 1 lykkja brugðið, 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= miðja ofan á vinstri ermi), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af 3 næstu lykkjum og setjið 1 prjónamerki í miðju á þessum 6 lykkjum, 1 lykkja brugðið og 5-6-6-6-7-7 lykkja slétt (= ½ bakstykki) = 56-58-58-60-62-64 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: 6-6-6-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt (= ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt (= ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 8 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu og prjónið þær 5-6-6-6-7-7 lykkjur sem eftir eru slétt. Haldið svona áfram í sléttprjóni og A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig – ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum:

FRAM-/BAKSTYKKI: Aukið út um 1 lykkju á undan A.1 og á eftir A.2 í annarri hverri umferð alls 5-5-8-9-12-15 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan) og síðan í 4. hverri umferð 3-4-3-3-2-1 sinnum (= alls 8-9-11-12-14-16 sinnum).

ERMI: Aukið út um 1 lykkju á eftir A.1 og A.2 í annarri hverri umferð alls 11-11-12-11-12-13 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð er að ofan) og síðan í 4. hverri umferð 0-1-1-2-2-2 sinnum (= alls 11-12-13-13-14-15 sinnum).

Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 132-142-154-160-174-188 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ca 25-27-29-31-33-35 cm frá öxl).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 18-19-21-23-25-28 lykkjur slétt (þ.e.a.s. fram að prjónamerki (= ½ bakstykki), setjið næstu 31-33-35-35-37-39 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 35-38-42-45-50-55 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 31-33-35-35-37-39 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið 17-19-21-22-25-27 lykkjur sem eftir eru (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 78-84-92-102-112-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 10 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 90-96-104-114-124-134 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið var út um 14-16-16-22-20-26 lykkjur jafnt yfir = 104-112-120-136-144-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 9 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Þegar stroffið mælist 5 cm eru auknar út aðra hverjar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 117-126-135-153-162-180 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 31-33-35-35-37-39 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 10, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og setjið 1 prjónamerki mitt í þessa 4-4-4-6-6-6 lykkjur = 35-37-39-41-43-45 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 19-21-21-23-23-25 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-35-33-32-30-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5-3-3-5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-28-28-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 9 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm (öll ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu) fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Olga wrote:

Buonasera, volevo sapere se c è lo stesso modello nella versione cardigan. grazie

21.04.2020 - 19:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Olga. Purtroppo no, per questo modello non è disponibile la versione cardigan. Provi a guardare altri nostri modelli simili, per i quali è prevista la versione aperta. Buon lavoro!

21.04.2020 - 23:52

country flag Annie Gravgaard wrote:

Jeg er lidt forvirret : der er to billeder til opskriften, ser ud til at det er forskellige farver. Hvilken passer med farverne i opskriften ?

29.01.2019 - 12:37

DROPS Design answered:

Hei Annie. Det er nok bare lyssettingen som gjør at de ser ut som forkjsellige farger - den ene er tatt i dirkete sollys, mens den andre er tatt i vanlig dagslys. Men det er altså fargene som er oppgitt i oppskriften på begge bildene. God fornøyelse.

29.01.2019 - 13:06

country flag Clara wrote:

Bonjour je tricote du S, je crois que cela vient d'un problème au niveau des augmentations (j'ai tricoté 2 fois les mailles au lieu de faire des jetés). Par contre je pense que l'empiècement parait petit pour passer la tête.

10.07.2017 - 10:34

DROPS Design answered:

Bonjour Clara, vous avez 56 m après les augmentations juste avant A.1/A.2 et augmentez ainsi: Dos & devant: 5x 1 m + 3x1m au début et à la fin du dos/du devant = + 32 m Manches: 11x1 m au début et à la fin de chaque manche = + 44 m. Vous aviez 56 m + 32 + 44 = 132 m. Votre réflexion va être transmise à nos stylistes, merci d'avance pour votre patience en raison des vacances. Bon tricot!

10.07.2017 - 10:59

country flag Clara wrote:

Bonjour, je pense que les explications sont inexactes car à partir des augmentations du raglan il y a un problème de nombre de mailles nécessaires pour effectuer les explications. Pouvez-vous m'aider ou vérifier que les explications sont justes ? Merci d'avance.

08.07.2017 - 18:31

DROPS Design answered:

Bonjour Clara, pouvez-vous indiquer quelle taille vous tricotez pour que les vérifications puissent être faites? Merci.

10.07.2017 - 09:37

country flag Svetlana wrote:

Hi, Probably, I don't understand the instructions. On the diagram, the width of the 1/2 of the yolk is 16 cm for the medium size (32 for the whole?). No way, that it would fit my head. I began to knit and it looks like it's too small for my head (and I believe for any adult head). Please, advise. Thank you, Svetlana

08.07.2017 - 06:24

DROPS Design answered:

Hi Svetlana, I think you could be right that the measurements on the diagram are misleading. I think, though, that 38 stitches with size 10 mm needles will be large enogh, looking at the knitting tension. You can try taking the stitches off the needle when you have completed the ridges and see how big the neck is. Send another comment if this is not the case. Kind regards, Deirdre

08.07.2017 - 11:43

country flag Regina wrote:

Hallo, Stimmt es wirklich, dass ich für Größe M von Drops Delight jeweils 200g brauche, aber von Drops Brushed Alpaca Silk nur 100g ? Die Lauflänge von letzterem ist doch geringer? Danke

15.06.2017 - 15:52

DROPS Design answered:

Liebe Regina, 4 x Brushed Alpaca Silk = 560 m, aber 3 x Delight wären nur 525 m, dann braucht man 4 x Delight. Viel Spaß beim stricken!

15.06.2017 - 18:08

country flag Pia Hansen wrote:

Jeg er netop færdig med denne model i XL, som jeg har lavet noget længere end mønstret, alligevel har jeg lidt over 200g garn tilovers. ca. 75 g brushed alpaca & 150 Deligth... Er der fejl i mængde-angivelsen?

24.03.2017 - 09:55

DROPS Design answered:

Hei Pia. Takk for din tilbakemeldig. Vi har ikke fått noen andre henvendelser på for mye garn på dene modellen, men vi vil undersøke nærmere og evnt komme med en garmmengde endring om det trengs.mvh Drops design

17.10.2017 - 08:44

country flag Susan W wrote:

Hello, Instead of 2 strands of Delight could not 1 strand of Big Delight be used? I know the colour effect will not be the same but I have at least 400g of it that has been my stash for years, waiting for the perfect project. Also, would the grams and meterage be the same, or will I need more? Thank you.

22.03.2017 - 00:45

DROPS Design answered:

Dear Susan W, you can replace 2 strands yarn group A (= Delight) with 1 strand yarn group C (= Big Delight), read more and calculate new amount here. Happy knitting!

22.03.2017 - 09:25

country flag Mary wrote:

Bonjour, juste pour vous remercier de mettre tous ces modèles / aides / conseils / techniques et astuces, gratuitement à notre disposition. Je viens de trouver ce que je cherchais et grâce à vous je n'ai plus qu'à tricoter sans trop me prendre la tête à calculer!! :)

31.01.2017 - 16:00

country flag Angela Biagi wrote:

Magnifici colori. Evergreen. Ho una passione particolare per i colori mèlange. Quando potro' avere il modello ? Buon lavoro.

12.01.2017 - 11:20