DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 177-30
DROPS Design: Mynstur nr la-032
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------
Mál: Ca 37 x 200 cm
Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 6410, turkos

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 – ATH: Lesið um prjónfestu að neðan.
+ einn auka hringprjónn í sama grófleika fyrir uppfitjunarkant.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

PRJÓNFESTA:
Þessi hálsklútur á að bleyta og strekkja eftir réttu máli þegar hann hefur verið prjónaður til loka.
Prjónfestan er því ekki mikilvæg, en til að fá smá hugmynd um hvort prjónað sé of laust/fast er prjónuð prufa með sléttprjóni á prjóna 3.
Prufan á að gefa ca 24 lykkjur og 32 umferðir á 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

FORMUN:
Ef skipt er yfir í annað garn frá garnflokki A er ekki nauðsynlegt að strekkja hálsklútinn út í rétt mál, heldur dragið hann varlega út í rétt form og látið þorna.
Endurtakið þetta í hvert skipti sem hálsklúturinn er þveginn.
----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Hálsklúturinn er prjónaður í 2 alveg eins stykkjum sem saumuð eru saman í miðju í lokin.

STYKKI 1: Fitjið upp 116 lykkjur yfir 2 st hringprjóna nr 3 með Lace. Dragið út annan hringprjóninn (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 110 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 22 lykkjum), endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 86 lykkjur í umferð.
* Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 yfir næstu 80 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 16 lykkjum), endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 alveg eins. Þegar A.3 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er prjónað A.4 alveg eins *. Eftir A.4 er endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 endurtekningar), en síðasta endurtekningin endar eftir umferð merktri með ör í mynsturteikningu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, setjið lykkjurnar á þráð eða fellið LAUST af með sl frá réttu.

STYKKI 2: Prjónið eins og stykki 1.

FRÁGANGUR:
Saumið sama bæði stykkin á miðju með lykkjuspori (ef lykkjurnar hafa verið felldar af er saumað innan við affellingarkantinn).

STREKKING:
Leggið hálsklútinn í volgt vatn þar til hann er orðinn gegnblautur. Pressið varlega vatnið úr (ekki vinda). Rúllið hálsklútnum inn í handklæði og klemmið varlega til að ná enn meira vatni úr – hálsklúturinn á nú að vera bara aðeins rakur. Leggið hálsklútinn á mottu eða á dýnu, strekkið varlega út í rétt mál og notið nálar til að festa hann niður. Látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem hálsklúturinn er þveginn. ATH: Ef notað er annað garn í garnflokki A – LESIÐ FORMUN!

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið og seinni uppslátturinn er látinn falla niður af prjóni (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 3 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrsti uppslátturinn prjónaður brugðið, annar uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og þriðji uppslátturinn er látinn falla niður af prjóni (= gat)
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur. Steypið síðan annarri lykkjunni á hægri prjóni yfir fyrstu lykkjuna, steypið þriðju lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna, steypið fjórðu lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og steypið að lokum fimmtu lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja eftir)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Nina Marie Pasgaard Mortensen wrote:

Hej Er det for at få en ens afslutning i hver ende af tørklædet at det skal strikkes i to dele og strikkes sammen til sidst? Jeg lurer bare på om det kan strikkes samlet fra starten af eller om det bliver pænest i to dele? Mvh. Nina

29.10.2023 - 12:16

DROPS Design answered:

Hei Nina. De strikkes i to delene for å få de like (starten og slutten). Du kan evnt. strikke de som en del, bare å strikke forklaringen bakvendt når 1.del er ferdig. mvh DROPS Design

30.10.2023 - 10:25

country flag MB wrote:

Je vous remercie beaucoup. Je vais essayer. Bonne journée.

28.06.2023 - 09:01

country flag MB wrote:

Je vous remercie, je vais essayer. Bonne journée

28.06.2023 - 09:00

country flag MB wrote:

Bonjour, Je commence cette écharpe et ne comprend le diagramme A1. Le carré noir, pas de maille sauter cette case... Faut il faire 1 diminution ? Merci

27.06.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Bonjour MB, la diminution a été faite au rang précédent, autrement dit, au 7ème rang, vous diminuez 2 mailles (cf avant-dernier + dernier symbole de la légende), au 8ème rang, il vous "manque" donc 2 mailles - dessinées en noir dans le diagramme (il reste 20 m dans chaque A.1); au 9ème rang, vous diminuez de nouveau 2 m, il reste 18 m (et on a ainsi 4 cases noires) et ainsi de suite. Bon tricot!

28.06.2023 - 08:24

country flag Shivani Sharma wrote:

Thank you for your response.

06.12.2022 - 08:42

country flag Shivani Sharma wrote:

Hi Can one purl the row in a normal us/english way of purling or should we need to do it the norwegian way? it looks really tough in the video tutorial you have. I have to say though, you have amazing aids. Thank you

03.12.2022 - 10:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sharma, you can purl the stitches your own way, we work them with norwegian technique but just purl them as you are used to. Happy knitting!

06.12.2022 - 08:40

country flag Shivani Sharma wrote:

Hi would it be possible to get a tutorial link or explanation for the between 2 stitches make 2 or 3 YO and drop in purl row. Would really appreciate it. Thank you

02.12.2022 - 19:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sharma, sure, this video shows how to work A.4 and on time code 10:09 you will see how to work the 3 yarn overs, from the wrong side purling the first of them and dropping the last 2 - Happy knitting!

06.12.2022 - 08:22

country flag SHINO ONO wrote:

こんにちは、初めまして。 いつもこちらのサイトを楽しませていただいてます。 私は編み物の講師をしておりますが、こちらのパターンを使用して 編み方を生徒に指導することは可能でしょうか。 もし可能でしたら、私が気をつけなくてはならないことはどのような事があるでしょうか。教えていただけると嬉しいです。

24.05.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Hi, sorry, we cannot answer in Japanese - you will find the copyright rules at the very bottom of the pattern, hope it will help. Happy knitting!

25.05.2022 - 07:15

country flag Luisa T wrote:

Hello,, I would like to make this model kipping the aspect as faithful as possíbel to the one of the Lace Yarn. What yarn should I use for that and what quantity should I by? And as for the size of the needles? Thank you

14.10.2020 - 01:11

DROPS Design answered:

Dear Luisa T, DROPS Baby Alpaca Silk has same content - you can use our yarn converter to see other alternatives and new yarn amount. Happy knitting!

14.10.2020 - 08:02

country flag Ingrid wrote:

Ich verstehe auch nicht, warum der Schal mit 130 beginnt und dann mit 80 weitergeht. Soll das so eine Art Rüschen bilden? Trotzdem: Wunderschön!

24.06.2020 - 18:39

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, A.1 wird zuerst über 22 Maschen gestrickt, aber 6 Maschen werden in jedem A.1 (siehe Diagram) abgenommen = 16 Maschen sind noch übrig nach A.1, dh 86 Maschen bleiben auf der Nadel. Viel Spaß beim stricken!

25.06.2020 - 08:54