DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Adventure

Prjónuð peysa, prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 3-12 ára

DROPS Children 27-32
DROPS Design: Mynstur nr me-024-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-250-300-350-350 g nr 05, ljós grár
50 g í allar stærðir í þessum litum:
nr 01, natur
nr 13, gallabuxnablár
nr 20, dökk blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt þá er afar nauðsynlegt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – fyrir stroff.
-------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-100-108 l á stutta hringprjóna nr 3 með dökk blár. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 6-4-2-2-3 l jafnt yfir = 78-84-90-98-105 l. Prjónið síðan hækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 32 l br til baka. Haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og prjónað hefur verið yfir alls 48-48-48-64-64 l, snúið við og prjónið sl aftur fram að miðju að aftan. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar 6-6-6-7-7 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og skiptið yfir á stærri hringprjóna þegar nægilega margar l eru komnar á prjóninn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 208-224-240-252-270 l á prjóni. Prjónið síðan 0-1-2-0-1 cm með ljós grár. Stykkið mælist nú ca 14-15-16-17-18 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Stykkið er prjónað til loka í sléttprjóni með ljós grár. Fyrst er prjónuð 1 umf slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-12-10 l jafnt yfir = 212-228-244-264-280 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-37-39 l, setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l á prjóninn, prjónið 62-66-70-74-78 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l á prjóninn og prjónið þær 31-33-35-37-39 l sem eftir eru.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjón í 23-26-29-32-35 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Í næstu umf er aukið út um 12-12-12-16-16 l jafnt yfir = 148-156-164-176-184 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Öll peysan mælist ca 40-44-48-52-56 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi).

ERMI:
Setjið l frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, prjónið að auki upp 1 l í hverja og eina af 6 l sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki (setjið 1 prjónamerki mitt í þessar nýju l = mitt undir ermi) = 50-54-58-64-68 l á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið sléttprjón í hring með ljós grár. Þegar ermin mælist 2 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 3-2½-3-2½-2½ cm millibili alls 7-9-10-13-14 sinnum = 36-36-38-38-40 l. Þegar ermin mælist 22-26-30-33-37 cm aukið út um 4-4-6-6-8 l jafnt yfir = 40-40-44-44-48 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff í hring (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm, fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið síðan hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = dökk blár
symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = gallabuxnablár
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l í grunnlit í mynsturrönd, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo að ekki myndist gat
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Adventure

Tantjonna, Sweden

Little Adventure

Tantjonna, Sweden

Little Adventure

Aga, Poland

I Gemelli diversi

Giancarla, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Trine Nilsen Saloniemi wrote:

Har stickad little adventure i str 3 år till mitt barnbarn och nu vill min son som är 26 ha en likadan. Han är str S, finns d mönster i större str eller kan jag ppp på nåt sätt räkna ut hur jag ska göra.Detta är min tredje tröja sedan jag haft ett uppehåll på 26 år😄 Tacksam för hjälp

24.01.2023 - 23:21

DROPS Design answered:

Hei Trine. Vi har nok ikke samme mønster i samme design. Men bruk vår søkemoter og søk på herre - rundfelling - garngruppe B, så får du opp herremodeller som er strikket i samme garntykkelse som Little Adventure. Så kan du prøve å tilpasse diagram/maskeantall fra Little Adventure til en av herremodellene du søkte på og evnt legge på noen mønster (for lengden/høyden). Lykke til. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 11:16

country flag Katrien Lievens wrote:

Hallo, ik had graag geweten als men tekening met verschillende kleuren gebruikt en je hebt een naald waar je maar 1kleur gebruikt, moet men dan ook de andere kleuren meenemen? Dank bij voorbaat. Katrien

14.12.2022 - 09:50

DROPS Design answered:

Dag Katrien,

Zelf neem ik de draden van de andere kleuren niet mee als er naald in een andere kleur gebruikt wordt, maar ik knip hem ook niet af als deze kleur bijvoorbeeld weer in de volgende naald gebruikt wordt. Als er een aantal naalden tussen zitten voordat de kleur weer gebruikt wordt dan neem ik die kleur niet mee en hecht ik hem af.

14.12.2022 - 11:36

country flag Ja wrote:

Ik ben begonnen met het telpatroon A1. Na ong. 6 naalden in patroon zie ik dat er tussen de laatste en 1e steek een gleuf ontstaat. Ik vermoed dat het te maken heeft met het wisselen van kleur. Het is alleen als ik aa het begin van de toer wissel met de kleur. Wat heb ik fout gedaan? Hoe kan ik het oplossen, moet ik alles uithalen tot de basis of is er een andere oplossing? Waar moet ik dan op letten bij de volgende toeren en wisselingen van kleur?

17.10.2022 - 22:12

DROPS Design answered:

Dag Ja,

Je hebt niets fout gedaan. Bij het in de rondte breien van het patroon zie je helaas en verspring aan het begin/einde van de toer. Dat is normaal.

19.10.2022 - 20:01

country flag Stina Krumpholz wrote:

Hallo. Es ist ein super schöner pullover. Ich habe mich richtig gefreut ihn zu stricken. Ich glaube jedoch, dass ich einen Fehler gefunden habe: bei den Ärmeln müsste es doch heißen "Glatt re mit HELLGRAU in Rd str". Oder? Lg stina

29.01.2022 - 23:34

DROPS Design answered:

Liebe Stina, ja genau, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

31.01.2022 - 11:12

country flag Sirkka wrote:

Hei! Miten voin laskea kuviosta kuinka monta silmukkaa pitää lisätä kierroksella, koska sitä ei ilmoiteta missään? Haluaisin tehdä sopivan villatakin 6-vuotiaalle lapselle.

14.03.2021 - 22:12

DROPS Design answered:

Hei, silmukat lisätään piirroksen mukaisesti, esim. piirroksen A.1 ensimmäisellä kerroksella jokaisessa mallikerrassa lisätään 1 silmukka.

16.03.2021 - 18:24

country flag Gisela Hohn wrote:

Hallo, ich suche ein neues Projekt in der Größe L in Merino extra fine....ist es möglich dieses Modell umzurechnen um die Anleitung in Größe L zu erhalten? Ich bin mir nicht sicher....

19.09.2020 - 19:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hohn, Crisp Air Sweater ist etwas änhlich, oder hier können Sie alle mehrfarbigen Modellen durchsuchen. Viel Spaß beim stricken!

21.09.2020 - 09:12

country flag Lara wrote:

Buongiorno, avrei ancora una domanda, dopo A1 e gli aumenti richiesti, prima di trasferire le maglie per le maniche dite di lavorare il giro dal rovescio del lavoro, cosa intendete? Grazie!

27.05.2019 - 16:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Lara. Abbiamo corretto il testo. Lavorando in tondo, si lavora sul diritto del lavoro. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

27.05.2019 - 17:04

country flag Lara wrote:

Buongiorno, scusate ma non capisco cosa significa quando scrivete di fare un gettato "nel colore base del motivo a strisce", che colore dovrei usare? Sempre grazie infinite per l'aiuto!

10.05.2019 - 16:35

DROPS Design answered:

Buongiorno Lara. Usa lo stesso colore della striscia che sta lavorando. Buon lavoro!

10.05.2019 - 18:09

country flag Mary wrote:

I watched the video on Fair Isle knitting with 2 colours, but this pattern uses 4 different colors. What do you do the the different coloured yarn that isn\'t being used in the rows? Do you carry it up the back?

10.05.2019 - 14:39

DROPS Design answered:

Dear Mary, you can carry up the unworked color for some rounds, or cut it to avoid to tighten work - see tip under stripes here. Happy knitting!

10.05.2019 - 15:53

country flag Mary wrote:

Ich möchte 2 Pullis stricken in Größe 3/4 und 7/8. Werde ich wirklich je 100 Gramm Wolle brauchen für die Muster oder reicht 1 Knäuel für beide Pulli?

29.04.2019 - 09:18

DROPS Design answered:

Liebe Mary, wir haben leider nur die Garnmenge für nur 1 Pullover. Am besten die beschriebene Garnmenge für je beide Grösse bestellen, so sind Sie sicher, Garn wird reichen. Viel Spaß beim stricken!

29.04.2019 - 11:02