DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tauriel Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með dominoferningum, garðaprjóni, röndum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-15
DROPS Design: Mynstur nr fa-351
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 g litur nr 200, grár
100-150-150-150-150-200 g litur nr 651, sandfok

ATH: Ef peysan er prjónuð með einum lit þá þarf 350-400-450-500-550-600 g Fabel.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með litnum sandfok. Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár *, endurtakið frá *-* til loka. Fyrsta umf með nýja litnum er alltaf frá réttu.

DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkja.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl að l með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 2 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. aukið út um 2 l í miðju á ferningi í hverri umf frá réttu.

HÁLFUR VINSTRI DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l.
UMFERÐ (= rétta): Prjónið 1 l sl (l með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, sl út umf.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. aukið út um 1 l innan við 1 l á ferningi í byrjun hverrar umf frá réttu.

HÁLFUR HÆGRI DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í síðustu l.
UMFERÐ 1(= rétta): Prjónið sl að l með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (l með prjónamerki).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. aukið út um 1 l innan við 1 l á ferningi í lok hverrar umf frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið uppá prjóninn (= 1 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

MYNSTUR (á við um ermi):
Prjónið * 6 umf garðaprjón með litnum sandfok, prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, síðan eru prjónaðar rendur þannig: Prjónið * 2 umf garðaprjón með litnum sandfok, 2 umf garðaprjón með litnum grár *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Stykkið er nú prjónað með litnum grár til loka. Snúið stykkinu þannig að rangan snúi út og prjónið síðan áfram í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 3 dominoferningar – sjá ferning í mynsturteikningu, síðan er prjónaður 1 kantur að l á dominoferningi (þ.e.a.s. neðri kantur á peysu) með stuttum umf – sjá stjörnu í mynsturteikningu. Kanturinn er prjónaður frá miðju að framan, að miðju að aftan og aftur að miðju að framan. Að lokum er berustykki prjónað á peysuna yfir dominoferninginn – sjá kross í mynsturteikningu.

BAKSTYKKI:
DOMINOFERNINGUR:
Fitjið upp 5 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Skiptið um lit yfir í litinn sandfok og prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið Dominoferning og rendur þar til stykkið mælist 38-42-46-50-56-62 cm þar sem það er breiðast = ca 124-136-148-164-180-200 umf garðaprjón, passið að síðasta garðaprjónið sé með litnum sandfok og ca 64-70-76-84-92-102 l hvoru megin við l með prjónamerki í (= alls ca 129-141-153-169-185-205 l í umf). Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við l með prjónamerki) og aukið út um 4 l jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju í umf frá réttu (= alls 10 l fleiri í umf frá réttu) = ca 69-75-81-89-97-107 l hvoru megin við l með prjónamerki í (= alls ca 139-151-163-179-195-215 l í umf). Setjið l á þráð og prjónið framstykki dominoferningur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
DOMINOFERNINGUR:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu.
Skiptið yfir í litinn sandfok og prjónið HÁLFUR VINSTRI DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka og rendur, þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-31 cm þar sem stykkið er breiðast = ca 124-136-148-164-180-200 umf garðaprjón, stillið af með bakstykki (= ca 65-71-77-85-93-103 m).

Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. 1 l á eftir l með prjónamerki) og aukið út um 4 l jafnt yfir í umf frá réttu (= alls 5 l fleiri í umf frá réttu) = ca 70-76-82-90-98-108 l. Setjið l á þráð og prjónið framstykki dominoferningur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
DOMINOFERNINGUR:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Skiptið um lit yfir í litinn sandfok og prjónið HÁLFUR HÆGRI DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka og rendur, þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-31 cm þar sem stykkið er breiðast = ca 124-136-148-164-180-200 umf garðaprjón, stillið af með bakstykki (= ca 65-71-77-85-93-103 m).

Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. 1 l á eftir l með prjónamerki) og aukið út um 4 l jafnt yfir í umf frá réttu (= alls 5 l fleiri í umf frá réttu) = ca 70-76-82-90-98-108 l.

Setjið til baka allar l frá domonoferningi á prjóninn í réttri röð án þess að prjóna þá þannig: Lykkjur frá hægra framstykki dominoferningur eru á prjóni, setjið 1 prjónamerki, setjið til baka lykkjur frá bakstykki dominoferningur á prjóninn, setjið 1 prjónamerki, setjið til baka lykkjur frá vinstra framstykki dominoferningur á prjóninn = ca 279-303-327-359-391-431 l alls. Prjónið síðan neðri kant frá hægra framstykki, yfir bakstykki, að vinstra framstykki þannig:

NEÐRIKANTUR:
Stykkið er prjónað saman með l frá miðju að framan (þ.e.a.s. hornið á dominoferningi á hægra framstykki) og út að hlið, niður að horni fyrir miðju að aftan, upp að hlið og niður að miðju að framan (þ.e.a.s. hornið á dominoferningi á vinstra framstykki). Fitjið upp 16-16-12-12-12-12 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum grár. Prjónið stuttar umf og rendur þannig:

HÆGRA FRAMSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá horni við miðju að framan og út að prjónamerki á hlið þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn sandfok.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 5 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn grár.
Endurtakið umf 1 til 8 þar til allar l frá horni á dominoferningi út að hlið að prjónamerki (þ.e.a.s. hægra framstykki dominoferningur = ca 70-76-82-90-98-108 l) hafa verið prjónaðar saman við kant.

HÆGRA BAKSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá hlið og niðru að horni á dominoferningii á bakstykki þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri):
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman með fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn sandfok.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 5 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn grár.
Endurtakið umf 1 til 8 niður að horni við miðju að aftan = ca 69-75-81-89-107 l). ATH: Í síðustu endurtekningu af umf 8 eða 2 eru fyrstu 3 l frá dominoferningi settar til baka á prjóninn (= 4 l slétt saman = 3 l færri frá dominoferningi).

VINSTRA BAKSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá horni á dominoferningi á bakstykki og út að prjónamerki í hlið eins og hægra framstykki neðrikantur.

VINSTRA FRAMSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá hlið og niður að horni á dominoferningi á framstykki eins og á hægra bakstykki neðrikantur.

BAKSTYKKI:
Prjónið nú berustykki á bakstykki með litnum grár þannig:

HÆGRA BAKSTYKKI:
Takið upp 64-70-76-84-92-102 l með litnum grár frá réttu á prjóna nr 3,5 á annarri hliðinni á dominoferningnum, takið upp 2 l í hornið á dominoferningnum, takið upp 64-70-76-84-92-102 l niður meðfram hinni hliðinni á dominoferningnum = 130-142-154-170-186-206 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og aukið út um 15-13-13-11-13-9 l jafnt yfir hvoru megin við hornið (= alls 30-26-26-22-26-18 l fleiri) = 80-84-90-96-106-112 l á hvorri hlið (= alls 160-168-180-192-212-224 l). Prjónið síðan yfir fyrstu 80-84-90-96-106-112 l (þ.e.a.s. í hægri hlið á stykki séð frá réttu þannig:

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR, STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI OG JAFNFRAMT AUKIÐ ÚT Í HLIÐ ÞANNIG:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, snúið við (= 1 l).
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Prjónið 1 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið næstu 2 l frá dominoferningnum slétt saman, snúið stykkinu (= 2 l). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu!
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið 2 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, snúið við (= 3 l).
UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 7 (= frá réttu): Prjónið 3 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, snúið við (= 4 l).
UMFERÐ 8 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
Haldið svona áfram með stuttar umferðir, þ.e.a.s. að prjónað er yfir 2 l fleiri í hverri umf frá réttu, en prjónið 2 l slétt saman, þ.e.a.s. að 2 l fækka í 1 l. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar l upp að horni á dominoferningi.
STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI:
Þetta á einungis yfir stærðir L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 0-0-2-2-2-2 cm prjónið 0-0-1-1-1-1 stutt rönd í garðaprjóni og prjónið til baka = 2 umf = 1 stutt rönd í garðaprjóni) yfir l sem nú þegar hefur verið prjónað yfir, prjónið stutta rönd í garðaprjóni með 0-0-5-4-3-2 cm millibili alls 0-0-4-6-8-11 sinnum.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar berustykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í byrjun næstu umf frá réttu. Aukið svona út með 1½-1-1- ½-½-½ cm millibili alls 9-12-14-17-19-22 sinnum = 10-13-15-18-20-23 l á undan prjónamerki. Þegar berustykkið mælist 15-14-15-14-15-17 cm (mælt meðfram hlið) fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig:
Fellið af 3 l alls 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 l alls 1-2-2-3-4-4 sinnum, 1 l alls 4-5-4-5-5-5 sinnum (þ.e.a.s. það er eftir 1 l á undan prjónamerki).

Stykkið mælist ca 19-21-23-25-28-31 cm mælt frá hlið á dominoferningi og upp. Þegar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka eru alls 40-42-45-48-53-56 l á prjóni. Setjið l á þráð og prjónið vinstra bakstykki.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 80-84-90-96-106-112 l.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR, STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI OG JAFNFRAMT AUKIÐ ÚT Í HLIÐ ÞANNIG:
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið fyrstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman (= 1 l).
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið 1 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið næstu 2 l frá dominoferningnum, snúið stykkinu (= 3 l).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu!
UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (= 2 l).
UMFERÐ 5 (= frá röngu): Prjónið 2 l sl, prjónið næstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu (= 4 l).
UMFERÐ 6 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið sl út umf.
UMFERÐ 7 (= frá röngu): Prjónið sl, prjónið næstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu (= 4 l).
UMFERÐ 8 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið sl út umf.
Haldið svona áfram með stuttar umferðir, þ.e.a.s. prjónið yfir 2 l fleiri frá dominoferningi í hverri umf frá röngu og fækkið um 1 l í byrjun hverrar umf frá réttu, þ.e.a.s. 2 l fækka í 1 l. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar l upp að horni á dominoferningi.
STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI:
Þetta á einungis við stærð L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 0-0-2-2-2-2 cm prjónið 0-0-1-1-1-1 stutt rönd í garðaprjóni (þ.e.a.s. prjónið frá röngu fram þar sem snúið var síðast við, snúið við og prjónið til baka = 2 umf = 1 stutt rönd í garðaprjóni) yfir l sem þegar hefur verið prjónað yfir, prjónið stutta rönd í garðaprjóni með 0-0-5-4-3-2 cm millibili alls 0-0-4-6-8-11 sinnum.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar berustykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í lok næstu umf frá réttu. Aukið svona út með 1½-1-1- ½-½-½ cm millibili alls 9-12-14-17-19-22 sinnum = 10-13-15-18-20-23 l á undan prjónamerki. Þegar berustykki mælist 15-14-15-14-15-17 cm (mælt meðfram hlið) fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fellið af 3 l alls 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 l alls 1-2-2-3-4-4 sinnum, 1 l alls 4-5-4-5-5-5 sinnum (þ.e.a.s. það er eftir 1 l á eftir prjónamerki).

Stykkið mælist ca 19-21-23-25-28-31 cm mælt frá hlið á dominoferningi og upp. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eru alls 40-42-45-48-53-56 l á prjóni.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka l af hægra og vinstra bakstykki á sama prjón = 80-84-90-96-106-112 l. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 13-11-11-9-8-8 cm frá horni á dominoferningnum (nú eru eftir ca 2 cm til loka) fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-30-32-35-39-42 l eftir á öxl. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l = 27-29-31-34-38-41 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 15-13-13-11-10-10 cm frá horni á dominoferningi. Fellið af. Stykkið mælist alls ca 60-62-64-66-71-74 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Takið upp 66-72-78-86-94-104 l með litnum grár frá réttu á hringprjóna nr 3,5 á hlið á dominoferningi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og auki út um 14-12-12-10-12-8 l jafnt yfir = 80-84-90-96-106-112 l. Klippið frá. Prjónið síðan stuttar umf og aukið út eins og vinstra bakstykki (með byrjun frá röngu). Þegar allar l frá dominoferningi hafa verið prjónaðar eru fitjaðar upp 8 l í lok næstu umf frá röngu að kanti að framan = 48-50-53-56-61-64 l (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan). Haldið áfram í garðaprjóni.

Þegar stykkið mælist alls 60-62-64-66-71-74 cm (stillið af við bakstykki) fellið af fyrstu 27-29-31-34-38-41 l fyrir öxl í næstu umf frá röngu = 21-21-22-22-23-23 l á prjóni, prjónið út umf. Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá réttu þannig:
* Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 15-15-16-16-17-17 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 104-113-117-127-140-154 l með litnum grár í ystu l frá réttu frá neðri kanti á peysu upp meðfram dominoferningi fyrir miðju og upp þar sem 8 kantlykkjur að framan voru fitjaðar upp (stillið lykkjufjöldann af þannig að kanturinn að framan beygist ekki eða verði of stífur). Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni, saman við 8 kantlykkjur að framan þannig: Takið upp 1 l í hverja og eina af 8 kantlykkjum að framan frá réttu á sokkaprjóna nr 3,5, láið l vera á sokkaprjóni og prjónið þær saman í garðaprjóni þannig: Í hverri umf frá réttu er prjónuð síðasta l frá kanti að framan saman við 1 l frá 8 kantlykkjum að framan.
Þegar prjónaðar hafa verið 10 umf í garðaprjóni er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 KNAPPAGÖTUM – sjá útskýringu að ofan, jafnt yfir í næstu umf frá réttu (efsta hnappagatið er staðsett nákvæmlega í skiptingunni á milli kant að framan og framstykki). Fellið af þegar 8 kantlykkjur að framan hafa verið prjónaðar saman við kant að framan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Takið upp 66-72-78-86-94-104 l með litnum grár frá réttu á hringprjóna nr 3,5 á hlið á dominoferningi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og auki út um 14-12-12-10-12-8 l jafnt yfir = 80-84-90-96-106-112 l. Klippið frá. Prjónið síðan stuttar umf og aukið út eins og hægra bakstykki. Þegar allar l frá dominoferningi hafa verið prjónaðar eru fitjaðar upp 8 l í lok næstu umf frá réttu fyrir kant að framan = 48-50-53-56-61-64 l (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan). Prjónið garðaprjón.

Þegar stykkið mælist alls 60-62-64-66-71-74 cm (stillið af við bakstykki) fellið af fyrstu 27-29-31-34-38-41 l fyrir öxl í næstu umf frá réttu = 21-21-22-22-23-23 l á prjóni, prjónið út umf.
Prjónið síðan sjalkraga í garðaprjóni með byrjun frá röngu þannig:
* Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 15-15-16-16-17-17 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 104-113-117-127-140-154 l með litnum grár í ystu l frá réttu þar sem 8 kantlykkjur að framan voru fitjaðar upp, yfir dominoferning og niður meðfram allri peysunni (stillið lykkjufjöldann af þannig að kanturinn að framan beygist ekki eða verði of stífur). Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni, saman við 8 kantlykkjur að framan þannig: Takið upp 1 l í hverja og eina af 8 kantlykkjum að framan frá réttu á sokkaprjóna nr 3,5, láið l vera á sokkaprjóni og prjónið þær saman í garðaprjóni þannig: Í hverri umf frá röngu er prjónuð síðasta l frá kanti að framan saman við 1 l frá 8 kantlykkjum að framan.
Fellið af þegar 8 kantlykkjur að framan hafa verið prjónaðar saman við kant að framan.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum sandfok. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 14-12-10-8-3 cm, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, aukið út með 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 21-22-23-24-25-26 sinnum = 88-92-96-102-106-110 l. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla). Prjónið síðan fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l 2 sinnum, 2 l 3 sinnum og 1 l 2 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-56-56-56-55-54 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið á stykki. Fellið af þær l sem eftir eru.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Allur frágangur er gerður með litnum grár. Saumið axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið ermar í með röngu út, þ.e.a.s. sléttprjón snýr inn. Saumið hliðarsauma niður að neðri kanti í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = dominoferningur
symbols = neðri kantur
symbols = berustykki
symbols = þetta er ca málið, það fer eftir því hversu margar lykkjur eru í domonoferningi
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Judith Williams wrote:

Hello. I am making the large size. I have reached the centre back of the bottom border and have 18 stitches on the needle. Is this correct as the right front edge had 12 to start and I am worried that I will have too many when I reach the end of the left bottom edge. Thank you

18.08.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, you should have also 12 sts as when starting, make sure you made enough decreases. Happy knitting!

18.08.2023 - 16:06

country flag Hanneke wrote:

Langs de oplopende schuine kant wordt gemeerderd en langs de aflopende schuine kant wordt geminderd. De verkorte toeren vormen de uitwaaiering aan de onderkant van de trui.

05.11.2022 - 10:15

country flag Hanneke wrote:

Zet de domino’s naast elkaar op de rondbreinaald 3.5. De onderrand van de trui wordt overdwars gebreid ( zie modelfoto). Begin middenachter, dus op de onderste punt van een domino. Zet nu (16-16-12-12-12-12) nieuwe steken op een naald met knop 3,5. Brei de eerste toer vlgs de beschrijving. Het einde van iedere volle toer wordt bevestigd aan de domino, door de laatste steek samen te breien met de volgende twee steken van de domino. ( zie de video)

05.11.2022 - 10:14

country flag Hanneke wrote:

ONDERKANT:Zet de domino’s naast elkaar op de rondbreinaald 3.5. De onderrand van de trui wordt overdwars gebreid ( zie modelfoto). Begin middenachter, dus op de onderste punt van een domino. Zet nu (16-16-12-12-12-12) nieuwe steken op een naald met knop 3,5. Brei de eerste toer vlgs de beschrijving. Het einde van iedere volle toer wordt bevestigd aan de domino, door de laatste steek samen te breien met de volgende twee steken van de domino. ( zie de video)

05.11.2022 - 10:13

country flag Lene Østergaard wrote:

Vedr. D.D Strikket jakke i \" Fabel\" med dominoruder, nr. 173 - 15, Tauriel Cardigan, står der under materialer kun 2 farver, - en Drops Fabel grå nr. 200 og en sand nr. 651. På billedet ser jeg også en brun nuance og en beige farvet , - måske en lidt mørkere beige, eller er der to nuancer i sandfarvet? hvilke nr. har disse farver?\r\nmvh. Lene Østergaard

07.03.2022 - 14:35

country flag Marina wrote:

Hi! I have not completely understood how to knit sleeves. First we knit stripes in garter st. Then when stripes are done, we knit with grey in garter st. or turn the piece inside out and work in stocking st from WS? In this case all the knitting will be done in opposite direction, correct?

26.08.2021 - 14:27

DROPS Design answered:

Dear Marina, you work following PATTERN (applies to sleeve):, ie in garter stitch following the stripes (= 4 ridges x 4 = 16 ridges) + (2 ridges x 4 = 8 ridges) = 16+8=24 ridges in total, then continue in stocking stitch, but the purl side shoul be the right side, so yes turn and knit from the other direction (you will work now from WS and turn right side out at the end). Hope this will help. Happy knitting!

26.08.2021 - 16:29

country flag Виктория wrote:

Большая просьба! Снимите видео по вязанию кокетки Tauriel. Очень сложное описание. Ваши модели прекрасны!

25.02.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Спасибо Виктория. Каждый день мы выпускаем новые видео. Следите за новыми выпусками в социальных сетях .Ваша просьба направлена в отдел дизайна

28.02.2021 - 20:10

country flag Beth Swindell wrote:

For this pattern (173-15), is the yardage for the solid part of the jacket (where NOTE is) in addition to amounts for the two colors above it?

23.12.2020 - 17:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Swindell, the amount of yarn is always given in grams, not in yards nor in meters, ie if you work this jacket with 1 colour in S you will need 350 g /50 g a ball DROPS Fabel = 7 balls one colour, if you work the jacket as shown with 2 colours, you will need 6 balls color 200 + 2 balls color 651 (or any matching color). Happy knitting!

04.01.2021 - 07:32

country flag Iris Borowski-Mashi wrote:

Braucht man wirklich nur zwei Farben? Sieht deutlich farbiger aus

03.09.2020 - 23:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Borowski-Mashi, ja genau Farbe Nr 651 ist "Printfarben" und hat slebs regelmäßig unterchiedliche Farbrapporte - siehe Farbkarte. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2020 - 08:18

country flag Wendy wrote:

I’m knitting the small size & am completely lost at the right back piece. I have got to the part where I have 160 stitches all good & well. Feeling lost! Is there a row by row guide for the small size available please?

16.07.2020 - 07:50

DROPS Design answered:

Dear Wendy, work the next 8 rows as described, and continue then the same way working 2 more sts on every RS row decreasing them at the same time, ie on row 9 you will work K4, K2 tog (= 5 sts), then row 11 = K5, K2 tog (= 6 sts) etc... at the same time after 1 cm increase towards the side every 1,5 cm a total of 9 times. Happy knitting!

16.07.2020 - 10:47