Stony Ridge |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferhyrnd peysa úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S-XXXL.
DROPS 173-31 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNINGS STUÐLAHÓPUR: Heklið (3 st, 3 ll, 3 st) um ll-boga í horni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá miðju að aftan og út eins og ferhyrningur. PEYSA: Byrjið með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air með heklunál nr 7 og heklið mynstur eftir A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt mynstur A.1 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 36 x 36 cm. Stærð S/M er nú tilbúin. Aðrar stærðir halda áfram hringinn þannig: Stærð L/XL, XXL og XXXL: Haldið áfram alls 1-2-2 umf með 1 st í hvern st og heklið 1 ÚTAUKNINS STUÐLAHÓPUR – sjá útskýringu að ofan, í hvert horn. ATH: Umferðin byrjar með 3 ll og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Heklið nú áfram í öllum stærðum þannig (heklið 2. umf í mynstri A.2): Heklið 1 ll og 1 kl í fyrsta st í umf, heklið A.2 yfir næstu 12-15-18-18 st (= 4-5-6-6 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, A.2 yfir næstu 6-9-12-12 st (= 2-3-4-4 mynstureiningar), 1 fl í bilið á milli næstu 2 st, setjið eitt prjónamerki í stykkið og heklið 18-21-24-24 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir 18-21-24-24 st, heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í næsta horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, heklið A.2 yfir næstu 27-33-39-39 st (= 9-11-13-13 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 18-21-24-24 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir 18-21-24-24 st, setjið eitt nýtt prjónamerki hér og heklið A.2 yfir næstu 9-12-15-15 st (= 3-4-5-5 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, heklið A.2 yfir næstu 12-15-18-18 st (= 4-5-6-6 mynstureiningar) og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Heklið nú mynstur hringinn þannig (heklað er frá 2. umf í mynstri. A.3a-A.3c): Heklið A.3a (sýnir hvar umf byrjar og endar), heklið A.3b um hvern ll-boga fram að fyrsta horni, heklið A.3c (= 3 tbst, 3 ll, 3 tbst) um ll-boga í horni, haldið síðan áfram með A.3b um hvern ll-boga fram að ll fyrir handveg, heklið A.3b 6-7-8-8 sinnum um 18-21-24-24 ll, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b um hvern ll-boga fram að næsta horni, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b 6-7-8-8 sinnum um 18-21-24-24 ll fyrir handveg, heklið A.3b um hvern ll-boga fram að næsta horni, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b um þá ll-boga sem eftir eru í umf. Þegar A.3a-A.3c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf í mynstri þar til stykkið mælist ca 70-76-80-82 cm alls (= 35-38-40-41 cm frá miðju á A.1 og út á aðra hliðina) – passið uppá að síðasta umf sem hekluð er sé umf með ll-bogum og fl ! Klippið frá. FRAMSTYKKI: Framstykkið er heklað fram og til baka, án útaukningar. Setjið eitt prjónamerki í síðustu umf sem hekluð var. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við stjörnu á öðru horninu – sjá teikningu og heklið frá umf 2 í mynstri þannig: A.4a, síðan er A.4b heklað þar til eftir er 1 ll-bogi á undan ll-boga í horni, heklið A.4c. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.4a, A.4b og A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf þar til framstykkið mælist ca 23-25-26-27 cm frá prjónamerki – passið að síðasta umf sem var hekluð sé eins og næst síðasta umf í A.4a-A.4c. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á gagnstæðri hlið á stykki – sjá stjörnu í mynsturteikningu. ERMAR: Ermin er hekluð fram og til baka. Byrjið við prjónamerki undir ermi og heklið frá röngu 18-21-24-24 st jafnt yfir upp að öxl, heklið síðan 18-21-24-24 st um ll-umf = 36-42-48-48 st. Setjið eitt prjónamerki hér. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið síðan mynstur fram og til baka frá umf 2 (= rétta) í mynstri A.4 þannig: ATH: Í fyrstu umf er hvern og einn af tbst í tbst-hópum heklaður í einn st frá fyrri umf. Heklið A.4a, síðan er heklað A.4b yfir næstu 30-36-42-42 st, heklið A.4c = 12-14-16-16 tbst-hópar. Þegar allt mynstur A.4a-A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar 2 síðustu umf í mynstri, JAFNFRAMT er fækkað um 1 tbst-hóp í hvorri hlið á ermi með því að hekla eins og útskýrt er í 4 síðustu umf í mynstri A.5a í byrjun umf og A.5b í lok umf = 10-12-14-14 dst-hópar. Endurtakið þessa úrtöku í hvorri hlið 0-1-1-1 sinni til viðbótar = 10-10-12-12 dst-hópar. Þegar stykkið mælist ca 50 cm í öllum stærðum er ermin tilbúin – stillið af að endað sé eftir umf sem er eins og síðasta umf í A.4a-A.4c. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermi yst í lykkjubogann. Heklið kant í kringum alla peysuna þannig: Byrjið í einu horninu í einu af framstykkjunum og heklið * (1 fl, 3 ll, 1 fl, 3 ll,1 fl, 3 ll) um ll-boga í horni, heklið (3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl) fram að næsta horni, heklið 3 ll, *, endurtakið frá *-* í kringum alla peysuna. Endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Stefanie wrote:
Die perfekte Jacke zum einkuscheln
12.07.2016 - 10:44Elly wrote:
Dit is nu precies t vest waar ik al zolang naar op zoek ben. Zou t absoluut geweldig vinden als t in de catalogus kwam. Cross My fingers;)
12.07.2016 - 09:23Janet Harrington wrote:
Love this pattern, very interesting and pretty. Most becoming.
24.06.2016 - 20:53Ana Lisa wrote:
Me encantaría el patrón de esta prenda!
19.06.2016 - 03:14Serville wrote:
On espère l'explication de ce modèle au plus vite svpl , merciiii
15.06.2016 - 16:25Lauren McRoberts wrote:
I love this jacket! Sweater jackets with designs on the back are very popular right now. Please include!
12.06.2016 - 01:10Delaney Harter wrote:
This is definitely my fave style of the series. I'd love to crochet this card!!! I am waiting anxiously to get the pattern in the next Drops catalog!!
07.06.2016 - 18:20