DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Stony Ridge

Hekluð ferhyrnd peysa úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S-XXXL.

DROPS 173-31
DROPS Design: Mynstur nr co-034
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
500-550-600-650 g litur nr 04, milligrár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
550-600-650-700 g litur nr 04, milligrár

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 st x 6 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNINGS STUÐLAHÓPUR:
Heklið (3 st, 3 ll, 3 st) um ll-boga í horni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá miðju að aftan og út eins og ferhyrningur.

PEYSA:
Byrjið með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air með heklunál nr 7 og heklið mynstur eftir A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt mynstur A.1 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 36 x 36 cm.
Stærð S/M er nú tilbúin. Aðrar stærðir halda áfram hringinn þannig:
Stærð L/XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram alls 1-2-2 umf með 1 st í hvern st og heklið 1 ÚTAUKNINS STUÐLAHÓPUR – sjá útskýringu að ofan, í hvert horn. ATH: Umferðin byrjar með 3 ll og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

Heklið nú áfram í öllum stærðum þannig (heklið 2. umf í mynstri A.2):
Heklið 1 ll og 1 kl í fyrsta st í umf, heklið A.2 yfir næstu 12-15-18-18 st (= 4-5-6-6 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, A.2 yfir næstu 6-9-12-12 st (= 2-3-4-4 mynstureiningar), 1 fl í bilið á milli næstu 2 st, setjið eitt prjónamerki í stykkið og heklið 18-21-24-24 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir 18-21-24-24 st, heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í næsta horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, heklið A.2 yfir næstu 27-33-39-39 st (= 9-11-13-13 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 18-21-24-24 lausar ll fyrir handveg, hoppið yfir 18-21-24-24 st, setjið eitt nýtt prjónamerki hér og heklið A.2 yfir næstu 9-12-15-15 st (= 3-4-5-5 mynstureiningar), heklið (1 fl, 3 ll, 1 fl) um ll-boga í horni, heklið 3 ll, hoppið yfir 3 st, heklið A.2 yfir næstu 12-15-18-18 st (= 4-5-6-6 mynstureiningar) og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf.

Heklið nú mynstur hringinn þannig (heklað er frá 2. umf í mynstri. A.3a-A.3c): Heklið A.3a (sýnir hvar umf byrjar og endar), heklið A.3b um hvern ll-boga fram að fyrsta horni, heklið A.3c (= 3 tbst, 3 ll, 3 tbst) um ll-boga í horni, haldið síðan áfram með A.3b um hvern ll-boga fram að ll fyrir handveg, heklið A.3b 6-7-8-8 sinnum um 18-21-24-24 ll, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b um hvern ll-boga fram að næsta horni, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b 6-7-8-8 sinnum um 18-21-24-24 ll fyrir handveg, heklið A.3b um hvern ll-boga fram að næsta horni, heklið A.3c um ll-boga í horni, heklið A.3b um þá ll-boga sem eftir eru í umf.
Þegar A.3a-A.3c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf í mynstri þar til stykkið mælist ca 70-76-80-82 cm alls (= 35-38-40-41 cm frá miðju á A.1 og út á aðra hliðina) – passið uppá að síðasta umf sem hekluð er sé umf með ll-bogum og fl ! Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Framstykkið er heklað fram og til baka, án útaukningar. Setjið eitt prjónamerki í síðustu umf sem hekluð var. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið við stjörnu á öðru horninu – sjá teikningu og heklið frá umf 2 í mynstri þannig: A.4a, síðan er A.4b heklað þar til eftir er 1 ll-bogi á undan ll-boga í horni, heklið A.4c.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.4a, A.4b og A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf þar til framstykkið mælist ca 23-25-26-27 cm frá prjónamerki – passið að síðasta umf sem var hekluð sé eins og næst síðasta umf í A.4a-A.4c. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á gagnstæðri hlið á stykki – sjá stjörnu í mynsturteikningu.

ERMAR:
Ermin er hekluð fram og til baka.
Byrjið við prjónamerki undir ermi og heklið frá röngu 18-21-24-24 st jafnt yfir upp að öxl, heklið síðan 18-21-24-24 st um ll-umf = 36-42-48-48 st. Setjið eitt prjónamerki hér. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið síðan mynstur fram og til baka frá umf 2 (= rétta) í mynstri A.4 þannig:
ATH: Í fyrstu umf er hvern og einn af tbst í tbst-hópum heklaður í einn st frá fyrri umf. Heklið A.4a, síðan er heklað A.4b yfir næstu 30-36-42-42 st, heklið A.4c = 12-14-16-16 tbst-hópar. Þegar allt mynstur A.4a-A.4c hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar 2 síðustu umf í mynstri, JAFNFRAMT er fækkað um 1 tbst-hóp í hvorri hlið á ermi með því að hekla eins og útskýrt er í 4 síðustu umf í mynstri A.5a í byrjun umf og A.5b í lok umf = 10-12-14-14 dst-hópar. Endurtakið þessa úrtöku í hvorri hlið 0-1-1-1 sinni til viðbótar = 10-10-12-12 dst-hópar. Þegar stykkið mælist ca 50 cm í öllum stærðum er ermin tilbúin – stillið af að endað sé eftir umf sem er eins og síðasta umf í A.4a-A.4c. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermi yst í lykkjubogann. Heklið kant í kringum alla peysuna þannig: Byrjið í einu horninu í einu af framstykkjunum og heklið * (1 fl, 3 ll, 1 fl, 3 ll,1 fl, 3 ll) um ll-boga í horni, heklið (3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl) fram að næsta horni, heklið 3 ll, *, endurtakið frá *-* í kringum alla peysuna. Endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 fastalykkja í loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkjjur á milli 2 lykkja
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkjju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman um loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni),heklið 2 tvíbrugðina stuðla til viðbótar alveg eins (= 4 lykkjur á heklunálinni), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjur
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar, eftir það eru heklaðar keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = þegar framstykki er heklað er byrjað hér
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Kristen wrote:

You can ask and ask. You won't get an answer!

12.05.2022 - 01:17

country flag Marta wrote:

Hola! Con el gráfico perfecto pero estoy teniendo algún problema con las explicaciones. Existe el gráfico completo de la chaqueta?\r\n\r\nMuchas gracias.

17.04.2022 - 18:11

DROPS Design answered:

Hola Marta, la única versión disponible de este patrón es la que está colgada. Si tienes problemas con alguna sección concreta de la chaqueta, puedes preguntar aquí en comentarios o consultar en tu tienda DROPS más cercana.

18.04.2022 - 20:26

country flag Malin Ljungné wrote:

Hej! I tidigare frågor hänvisas till bilder rörande diagram A2 som även jag har problem med. Länken fungerar inte längre. Går den att uppdatera? Jag undrar också vad som menas med att virka en fastmaska mellan två maskor/stolpar? MVH//Malin

28.03.2022 - 21:20

DROPS Design answered:

Hei Malin. Hjelpvideoer til denne oppskriften finner du over alle kommentarer, klikk inn på: Se 11 relevanta videor här. Om du klikker på en link på et tidligere svar, husk å velge ditt språk når du kommer til 404: Page not found, mulig det vil hjelpe. Om du har 2 eller flere staver og skal hekle 1 fastmaske mellom 2 staver, skal det ikke hekles i selve masken, men midt mellom 2 masker. mvh DROPS Design

04.04.2022 - 11:58

country flag Heike Zieten wrote:

Danke, brauch keine hilfe mehr, der knoten ist geplatzt :) mein denkfehler waren die luftmaschenbögen an den ecken. Vielen lieben dank

16.04.2021 - 15:06

country flag Heike Zieten wrote:

Danke erstmal für die schnelle antwort. der witz ist, DAS habe ich alles gemacht :), trotzdem wurde das schräg. andere frage. ab welchen luftmaschenbogen muss ich beginnen. ecken ist klar aber da ja noch ein gesamter luftmaschenbogen gehäkelt werden sollte. ist die frage: ab dem luftmaschenbogen über die letzten dreier dopplestäbchen oder der eckluftmaschenbogen? vllt liegt auch da mein denkfehler

16.04.2021 - 14:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zieten, in der 1. Ecke häkeln Sie die 4 Lm, dann in dem nächsten LmBogen (2 Lm, 3 D-Stb zusammen, 3 Lm) , dann A.4b bis 2 LmBogen übrig sind (inkl. die nächste Ecke), 3 D-Stb in den nächsten lm-Bogen, 1 D-Stb um die Ecke - hilft es Ihnen weiter so?

16.04.2021 - 15:27

country flag Heike Zieten wrote:

Hallo, ich habe probleme mit den zwei vorderteilen, bei mir werden beide schräg nach unten und zwar oben, am "kragen", sprich, ich überspringe immer ein dreier doppelstäbchen. ist das richtig oder kann ich die anleitung nicht lesen?? laut den zeichnungen 4a - 4c , mache ich nichts falsch. häng da jetzt fest und bekomme anfälle :) ein weiteres video wäre passend .

15.04.2021 - 21:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zieten, die Vorteile werden separat gehäkelt, in Reihen, an den Seiten mit 1 Sternchen in der Maßskizze. In der erste Ecke (mit dem Stern) fangen Sie mit A.4a (über den Luftmaschenbogen in der Ecke + in den nächsten Luftmaschenbogen), A.4b wiederholen bis 2 Luftmaschenbogen vor der nächsten Ecke übrig sind, dann A.4c über diese 2 Luftmaschenbogen häkeln. A.4a und A.4c müssen "gerade" sein und folgen die Seite beim Hals oben und die unten der Jacke. Hoffentlich kann es Ihnen helfen! Viel Spaß beim häkeln!

16.04.2021 - 14:17

country flag María wrote:

Hola!! Me gustaría realizar este modelo con Big Delight....cuántos ovillos necesitaría para la talla S. Muchas gracias y un saludo!!

27.10.2020 - 17:47

DROPS Design answered:

Hola Maria. Este modelo hay que trabajarlo con doble hilo de Big Delight, si quieres seguir las explicaciones. Para la talla S necesitarías aprox. 9 ovillos de Big Delight (para trabajar con doble hilo).

01.11.2020 - 17:01

country flag María wrote:

Hola!! Me gustaría realizar este modelo con Big Delight....cuántos ovillos necesitaría para la talla S. Muchas gracias y un saludo!!

27.10.2020 - 17:46

country flag Kaila wrote:

I’m having difficulty with diagram A.2. I read previous comments and the links provided have expired... some help would be greatly appreciated!

23.11.2019 - 09:17

country flag Sylvia Hoffmann wrote:

Hallo,habe den ersten Teil fertig. Gibt es ein Video, wie ich mit2.Es von A.2 anfange und die Ärmelausschnitte anbringen?

14.05.2019 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoffmann, hier können Sie mit Fotos sehen, wie man A.2 und die Armlöcher (Größen S/M) häkelt, vielleicht hilft es Ihnen. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2019 - 08:17