DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-46
DROPS Design: Mynstur nr an-040
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
1100-1100-1300-1400-1500-1700 g nr 7130, sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 7 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað innan við 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið l þegar 2 l eru eftir á undan 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið l þegar 1 kantlykkja í garðaprjóni og 1 l sl eru eftir þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er ferð frá réttu!
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

MÆLING-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fyrir nákvæm mál á peysunni þá er öll mæling gerð þegar stykkið liggur flatt. Vegna þyngdar á garninu þá kemur stykkið til með að teygjast ca 10 cm á alla lengdina miðað við mál í mynsturteikningu.

MÆLING-2 (á við um ermi):
Vegna þyngdar á garninu þá er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki þannig (frá réttu): Prjónið 3 l, fellið af 2 l fyrir hnappagati, prjónið út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 56 og 70 cm
STÆRÐ M: 57 og 72 cm
STÆRÐ L: 58 og 74 cm
STÆRÐ XL: 59 og 76 cm
STÆRÐ XXL: 60 og 78 cm
STÆRÐ XXXL: 61 og 80 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 60-64-70-76-82-88 l á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 5 l í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 62-66-72-78-84-90 l. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 19 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið (= 2 l færri ) – LESIÐ ÚRTAKA og MÆLING-1.
Fækkið l í hvorri hlið með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 6 sinnum = 50-54-60-66-72-78 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið þannig: Prjónið A.1 yfir allar l með 1 kantlykkju í hvorri hlið (kantlykkjan er prjónuð áfram í garðaprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni með rönguna út (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 48-52-58-64-70-76 l. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm fellið af miðju 14-14-14-16-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 16-18-21-23-26-29 l eftir á öxl. Fellið allar l laust af þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 35-37-40-43-46-49 l (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 8 l garðaprjón (= kantur að framan), sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram með sléttprjón og garðaprjón. Þegar stykkið mælist 18 cm er prjónað áfram þannig – frá réttu: 8 l garðaprjón, sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Fitjið upp 1 kantlykkju í lok umf (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 36-38-41-44-47-50 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er l fækkað í hlið eins og á bakstykki, fækkið alls 6 sinnum = 30-32-35-38-41-44 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið þannig: Prjónið 8 l garðaprjón, A.1 yfir þær l sem eftir eru (kantlykkjur í garðaprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni með rönguna út (kantur að framan og kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af 1 kantlykkju í hlið = 29-31-34-37-40-43 l.
Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm setjið síðustu 9-9-9-10-10-10 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að þurfa ekki að klippa frá, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn), Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l 2 sinnum = 16-18-21-23-26-29 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HETTA:
Prjónið upp ca 46 til 58 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 66-68-70-72-74-76 l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan sléttprjón með 8 l garðaprjón í hvorri hlið, fram og til baka yfir allar l þar til hettan mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið saman með lykkjuspori efst uppi.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf garðaprjón, prjónið síðan A.1 yfir allar l. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri) og MÆLING-2. Aukið út með 5-4-4-3½-3-3 cm millibili alls 9-10-10-11-11-12 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Fellið af þegar stykkið mælist 51-50-49-48-45-44 l (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, látið neðstu 18 cm á fram- og bakstykki vera opna = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Annalisa wrote:

Buingiorno, come realizzo la maglia rasata rovescia? Lavorando tutti i ferri a rovescio? Grazie

15.02.2024 - 23:43

DROPS Design answered:

Buonasera Annalisa, si esatto, è tutto a rovescio. Buon lavoro!

16.02.2024 - 19:16

country flag Angelika wrote:

Biljett är bästa mönstret att sticka en nybörjarkofta när man är van att sticka med vanliga (strump)stickor, fram och tillbaka? Har inte lärt mig tekniken på rundsticka, men vill gärna lära mig, tips på videor tas tacksamt emot. Tacksam för svar.

21.10.2023 - 18:41

DROPS Design answered:

Hej Angelika, du finder alle aktuelle videoer til opskriften nederst på siden: Rundsticka - fram och tillb på rundsticka

24.10.2023 - 09:07

country flag Lisa wrote:

Hallo liebes Drops-Team, bei folgenden Teil eurer Anleitung für das erste vordere Seitenteil hänge ich leider: ...folgt abketten: 2 M 1 x und dann 1 M 2 x = 16-18-21-23-26-29 Schulter-M übrig. Alle M locker abketten, wenn die Arb eine Gesamtlänge von 78-80-82-84-86-88 cm hat... Ich verstehe nicht, was die Anleitung zum abketten 2 M 1x und dann 1M 2x aussagt. Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen! Viele Grüße

26.09.2023 - 15:03

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, für das rechte Vorderteil werden Sie jetzt die Maschen für den Halsauschnitt abketten (die ersten 9 oder 10 Maschen sind schon stillgegelt), so jetzt ketten Sie 2 Maschen am Anfang der nächsten Hin-Reihe (= ab Halsausschnitt) , dann 1 Masche am Anfang der 2 nächsten Hin-Reihe (= 3 Maschen insgesamt) ab. Viel Spaß beim stricken!

26.09.2023 - 15:19

country flag Maria wrote:

Hej Kan jeg strikke rygstykket og forstykkerne samtidigt på rundpinden?

18.09.2023 - 16:08

DROPS Design answered:

Hei Maria. Plagget blir veldig tungt ved å strikke rundt, men du kan gjøre det. Bare tilpasse maskeantallet ihht kantmaskene, bruk merketråd til fellingene og ta hensyn til / tilpass MÅLETIPS 1 og 2. mvh DROPS Design

26.09.2023 - 13:12

country flag Camilla wrote:

What is the width of the front right/left piece in cm? I am using a different wool and I just want to make sure my measurements are right. Thank you

15.12.2022 - 05:14

DROPS Design answered:

Hi Camilla, You can find a size chart at the bottom of the pattern, with all the measurements for the different sizes. Happy knitting!

15.12.2022 - 06:47

country flag Catherine Shaw wrote:

Hi. I'm a bit confused at the good. I have CO the hood sts. On the increase row I am not sure what type of stitch should be showing from the right side. Is the garter stitch all along, and the 2 ridges you refer to is 2 ridges of garter stitch all along? Or is it 2 ridges of reverse stockinette on the right side all along with garter stitch at the bands? Is the actual hood in stockinette on the outside with garter stitch at the bands?

12.02.2022 - 15:23

DROPS Design answered:

Dear Catherine, you work garter stitch in the bands and the rest in stocking stitch. In the last rows, you work the last 2 ridges in garter stitch over all stitches. Happy knitting!

13.02.2022 - 19:49

country flag Catherine Shaw wrote:

Hello. I'm reading through the pattern, back piece and I am stuck at the instructions in the waist are: Work A.1 over all sts with 1 edge st in garter st in each side (edge st continues in garter st). When A.1 has been worked 1 time vertically, work piece until finished measurements in reversed stockinette st (edge st in garter st). Is this telling me to do 1 ridge of garter st before doing the reverse stockinette? In the picture it looks like more than 1 ridge at the waist band,

09.01.2022 - 12:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Shaw, for A.1, you will work, starting from RS: K1 from RS, K1 from WS (= 1 ridge), 3 rows stocking stitch, K1 from WS( = 2nd ridge), 2 rows stocking stitch. Happy knitting!

10.01.2022 - 08:50

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, Ma question est la suivante: si je souhaite utiliser des pelotes du groupe C, combien de pelotes dois-je acheter? Dois-je prévoir le double (étant donné qu'il y aura deux fils)? Merci!

28.12.2021 - 21:25

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, cela depend de la qualite choisie. Utilisez notre convertisseur ICI. Bon tricot!

29.12.2021 - 12:10

country flag Jackie wrote:

I understand. Thank you for taking the time to get back to me with an explanation. Blessings, Chaplain Jackie

13.07.2021 - 17:21

country flag Jackie wrote:

I really want to make this sweater. I have done the math for the yarn required; therefore needing ~1470 yards. I have 1360 yards of a comparable yarn. I really don't want the hood. 1. Approximately how much yardage is needed to make the hood? 2. Without making the hood, would I have enough yarn to make a shawl collar? 3, Or, enough yarn to just have the border go up and around the neck? Help will be greatly appreciated!

12.07.2021 - 20:59

DROPS Design answered:

Dear Jackie, please understand that these patterns are made available to support DROPS yarns (you can use our yarn converter for substituting DROPS yarns), and we cannot help you with other brands, also, we are sorry, but it is impossible to modify and recalculate our patterns (and yarn amounts) to each individual request. Happy Stitching!

13.07.2021 - 01:48