DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 169-1
DROPS Design: Mynstur nr w-583
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
550-600-650-750-850-900 g nr 16, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) nr 522. 6-6-6-6-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l brugðið saman. Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok brugðnu mynstureininga.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Prjónið 2 l snúnar brugðið saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), 2 l brugðið saman.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskalínan til með að verða of stutt og handvegur of lítill.
Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 19, 26, 33, 40, 47 og 54 cm.
STÆRÐ M: 19, 26, 33, 40, 48 og 56 cm.
STÆRÐ L: 19, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XL: 19, 28, 36, 44, 52 og 60 cm.
STÆRÐ XXL: 19, 26, 33, 40, 47, 54 og 62 cm.
STÆRÐ XXXL: 19, 26, 33, 40, 48, 56 og 64 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 216-228-240-266-286-306 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, * 8 l br, 8 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 8 l br, 27-33-39-44-54-64 l sléttprjón, * 8 l br, 8 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, 8 l br, 27-33-39-44-54-64 l sléttprjón, * 8 l br, 8 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 8 l br, 5 l garðaprjón. Endurtakið þetta mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í öllum brugðnu mynstureiningunum (= 11-11-11-12-12-12 úrtökur í hverri úrtökuumferð) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 3. hverjum cm 5 sinnum til viðbótar = 150-162-174-194-214-234 l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónað áfram þannig: 5 l garðaprjón, A.1 2 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 27-33-39-44-54-64 l, A.1 4-4-4-5-5-5 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 27-33-39-44-54-64 l, A.1 2 sinnum, 2 l br, 5 l garðaprjón. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 40-43-46-51-56-61 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 70-76-82-92-102-112 l). Þegar stykkið mælist 23 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 2½-3-3-3½-3½-4 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 174-186-198-218-238-258 l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið næstu umf þannig – frá réttu: Prjónið 43-46-49-54-59-64 l, fellið af næstu 6 l, prjónið 76-82-88-98-108-118 l, fellið af næstu 6 l, prjónið þær 43-46-49-54-59-64 l sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 l á sokkaprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 2 umf garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Aukið út með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili 13-13-14-15-16-16 sinnum til viðbótar = 60-62-66-70-74-76 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-47-46-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu) fellið af miðju 6 l undir ermi = 54-56-60-64-68-70 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 270-286-306-334-362-386 l. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum mismunandi á fram- og bakstykki og á ermum.
LASKALÍNA Á ERMI:
Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 16-17-17-18-18-19 sinnum, síðan í hverri umf 4-4-6-7-9-9 sinnum = alls 20-21-23-25-27-28 sinnum.
LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 4-2-0-0-0-0 sinnum, í annarri hverri umf 11-16-19-21-19-16 sinnum, síðan í hverri umf 0-0-2-0-7-15 sinnum = alls 15-18-21-21-26-31 sinnum.
Eftir alla úrtöku eru 130-130-130-150-150-150 l á prjóni. Í næstu umf er fækkað um 2 l yfir hvern kaðal í A.1 = 114-114-114-132-132-132 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, í fyrstu umf er fækkað um 20-16-12-26-22-18 l jafnt yfir = 94-98-102-106-110-114 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op mitt undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.02.2018
Nýtt efnismagn í stærð XL-XXL-XXXL: DROPS PARIS frá Garnstudio
550-600-650-750-850-900 g nr 16, hvítur

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 4 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Romantic Twist

Joe, France

Minu versioon Romantic Twist jakist

Inga´s Handicrafts, Estonia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (155)

country flag Marilyn Growns wrote:

Re - Sleeve....when piece measures 48 cm ( size large) the pattern says... cast off 6 stitches mid under sleeve which leaves 60 stitches.. I have placed markers all the way up the sleeve, therefore should I decrease 3 stitches either side of the last marker? The video is not working. Thankyou

02.04.2024 - 00:10

DROPS Design answered:

Hi Marilyn, Yes you cast off 3 stitches on each side of the marker. Happy knitting!

02.04.2024 - 06:38

country flag Marilyn Growns wrote:

Can you please let me know how often the cable is done? i cannot see it in the pattern. I am making size L. I do however note that on 16/06/21 you answered Jenny's question - every 8th row. Have I interpreted that correctly? Looking at the picture of the cardigan it looks like in total there are 11 cables to the neckline. Please could you confirm. Sorry for the many questions. I love this pattern and really want to be able to complete it. Thanks in advance

23.01.2024 - 14:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Growsn, cables are worked on every 8th row as follows in A.1: Row 1 with cable, Row 2 til 8 without cable, repeat these 8 rows. Happy knitting!

24.01.2024 - 08:14

country flag Marilyn Growns wrote:

I posted 7/01/24 re the 11 decreases for size L. Decrease at the beginning of first Purl section and decrease at the end of the next purl section. Julia's question on 29/04/17 says in one row you do all decreases at the beginning of each P section and in the second decrease row you do them at the end of each P section. This contradicts what I have done and is concerning me that I have done this incorrectly. Please can you clarify. Thanks in advance

23.01.2024 - 14:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Growns, you should decrease 11 stitches on every decrease row = 1 stitch in each of the P-sections and work these decreases a total of 5 times. the first time you will decrease at the beg of every P-section, the 2nd time at the end of every P-section and continue like this decreasing alternately one time at the beg of every P-section and next time at the end of every P-section. Happy knitting!

24.01.2024 - 08:10

country flag Marilyn Growns wrote:

Thanks for answering my question. However, what I am confused with is 'When piece measures 5 cm, dec 1 sts in all P-sections (= 11-11-11-12-12-12 dec per dec round)' Read decrease tip which is ' Dec 1 st by P 2 tog. Dec alternately at beg and end of P section'. From 8 stitches it would mean each purl section decreases to 6 which would make the calculation wrong. What does it mean - alternately? I am just totally confused. :(

05.01.2024 - 22:50

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, you decrease by purling 2 together in each section once. However, in each purl section you will decrease either at the beginning or the end of the section (alternately means every other or on alternate sections). For example, in the first section you purl together the first 2 stitches, in the second section you purl together the last 2 stitches, in the third section you purl together the first 2 stitches, e.t.c. Happy knitting!

07.01.2024 - 23:34

country flag Marilyn Growns wrote:

When the body measure 5cm, should the decrease start from the RS?

03.01.2024 - 22:39

DROPS Design answered:

Hi Marilyn, Yes, the decreases are from the right side. Happy knitting!

04.01.2024 - 07:42

country flag Marilyn wrote:

Drops pattern 169-1 Can you explain please on the BODY when following instructions for the first row after 1 ridge of garter stitch....do I reverse all stitches when doing row 2 ( except the first 5 garter stitches which is the band)

27.12.2023 - 23:00

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, as explained in GARTER ST (back and forth): 1 ridge = 2 knit rows. So you knit from the right side and the wrong side. Then, start working as indicated on the next row from the right side. Happy knitting!

29.12.2023 - 00:15

country flag Carol wrote:

A woman is selling this pattern on Etsy. I can't send you the link but the seller's name is ThistleandTwigCrafts

23.03.2023 - 09:10

country flag Věra wrote:

Jak mám převést rukávy a trup na jednu kruhovou jehličí, aby se dalo dobře pokračovat. děkuji

25.07.2022 - 20:52

DROPS Design answered:

Dobrý den, Věro, rukávy připletete k trupu v místech, kde jsou uzavřená oka pro průramky, takto: upletete přední díl, v místě průramku připletete na stejnou kruhovou jehlici jeden odložený rukáv, pak upleteze zadní díl, druhý rukáv a druhý přední díl. Podívejte se na tuto video-ukázku , kde je postup hezky vidět. Hodně zdaru! Hana

26.07.2022 - 05:26

country flag Maja Hulgaard Pedersen wrote:

Hej Jeg er ved at lave str. M og er kommet til der hvor man laver raglan. Men forstår ikke helt hvordan det skal gøres, er med på det med hvornår, men bare ikke helt hvordan. På retsiden skal jeg så strikke raglan når jeg kommer til mærket ved ærmet eller er det først ved sidste mærke for ærmet? Tusind tak for hjælpen

08.05.2022 - 14:26

DROPS Design answered:

Hei Maja. Fra retten strikk til det gjenstår 3 masker før 1. merke , strikk 2 masker rett sammen, strikk 2 masker rett (merketråden sitter mellom disse maskene), ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, 1 rett, løft den løse masken over. Du har nå felt 1 maske på hver side av 1. merketråd. Når du kommer til de andre merketrådene gjør du det samme. Når du skal felle fra vrangen strikker du til det gjenstår 3 masker før 4. merketråd, deretter strikkes det 2 masker vridd vrang sammen, 2 m vrang (merketråden sitter mellom disse maskene), 2 masker vrang sammen, Gjenta ved de 3 andre merketrådene. mvh DROPS Design

09.05.2022 - 13:06

country flag Bente ørslev wrote:

Opskrift 169-1. Han nu strikket 10 cm og omkreds er 150 cm!!!!! Jeg strikker i str. small, slog op til str large, den nåede rundt om mig to en halv gang. Jeg er på garnnøgle 2, har købt 15, men er bange for at jeg kommer til at drukne i den jakke Er I helt sikker på at opskriften er rigtig.

29.04.2022 - 15:36

DROPS Design answered:

Hei Bente. Pga vrangmaskene foran og bak, bil plagget trekke seg sammen, Men det er viktig å overholde strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. Omkretsen nederst på jakken skal i str. S være 118 cm og i str. L 132 cm. mvh DROPS Design

02.05.2022 - 11:45