DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

White Flower

Prjónuð hringpeysa með blaðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-6
DROPS Design: Mynstur nr bs-101
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400 g nr 1101, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-200 g nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 30 umf með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan, stykkið er prjónað í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og deilið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (2 l á hvern prjón). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breiddina). Þegar fyrstu 27 umf í A.1 hafa verið prjónaðar, á byrjun umf á færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf slétt á undan fyrsta uppslætti í mynstri þannig að þetta sjáist sem minnst. Byrjun umf á að lokum að vera mitt í fyrstu mynstureiningu á A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 208 l í umf, stykkið mælist ca 34 cm að þvermáli. Setjið 8 prjónamerki í stykkið, setjið 1. prjónamerki í 1. l í umf, síða eru sett 7 prjónamerki í l, með 25 l á milli merkja, prjónamerkin eru staðsett beint yfir odd á hverju blaði. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat = 16 l fleiri í umf. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 1-2-3 sinnum til viðbótar (alls 32-48-64 fleiri l) = 240-256-272 l.

Í næstu umf er prjónað sl, JAFNFRAMT er fækkað um allar l á milli 2. og 3. prjónamerkis og 7. og 8. prjónamerkis fyrir handveg (= það er fækkað um 30-32-34 l í hvorri hlið). Næsta umf er prjónuð br, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 30-32-34 nýjar l yfir þær l sem fækkað var um á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 7. og 8. prjónamerkis. Þegar búið er að fitja upp allar l eru 240-256-272 l á prjóni.

Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið A.2 yfir allar l, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í hverri umf með stjörnu (= 16 l hver útauknings umferð) = 384-400-416 l. Stykkið mælist ca 66-68-70 cm að þvermáli.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið nú þannig: Haldið eftir l á milli 2. og 4. prjónamerkis á prjóni, aðrar l eru settar á þráð = 96-100-104 l á prjóni. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir þessar l, JAFNFRAMT í lok hverrar umf eru settar 2 síðustu l á þráð (þær eru ekki prjónaðar, snúið við). ATH! Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við 3. prjónamerki í 4. hverri umf. Haldið áfram þar til 44 l eru eftir á prjóni. Setjið síðustu 44 l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið l á milli 6. og 8. prjónamerkis á hringprjóna nr 6 og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki.

Prjónið síðan allar l af þræði slétt frá réttu til baka á hringprjóna nr 6 – á milli skipta sem l eru settar á þráð í hvorri hlið er þráðurinn tekinn upp og snúið áður en hann er settur á prjóninn (þ.e.a.s. á milli annarra hverra l, þetta er gert til þess að sleppa við göt í skiptingunum) = ca 512-540-568 l. Prjónið 8 umf garðaprjón, fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-40 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.3 1 sinni á hæðina (= 4-4-5 mynstureiningar á breiddina), í síðustu umf er aukið út um 1 l = 33-33-41 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón en í annarri hverri umf er prjónað þannig: Byrjið 2 l á undan l með prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat, það á að vera gataumferð uppúr mitt undir ermi, en fjöldi l er sá sami.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm byrjar útaukning mitt undur ermi, prjónið uppsláttinn og sléttprjón eins og áður, en fækkið EKKI l hvoru megin við uppslátt = 2 l fleiri. Endurtakið útaukningu svona með 3 cm millibili 13-14-14 sinnum til viðbótar = 61-63-71 l. Prjónið þar til stykkið mælist 54-55-56 cm, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2016
BAKSTYKKI:...Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðin svo að það myndist gat = 16 l fleiri í umf...
Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2016
Leiðrétting: Efni: DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio. ERMAR:... Prjónið síðan sléttprjón, en í annarri hverri umf er prjónað þannig: Byrjið 2 l á undan l með prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, l með prjónamerki, sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru.
Yfirfarið á vefsvæði: 09.10.2017
BAKSTYKKI: Fitjið upp 8 l með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og deilið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (2 l á hvern prjón). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breiddina). Þegar fyrstu 27 umf í A.1 hafa verið prjónaðar, á byrjun umf á færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf slétt á undan fyrsta uppslætti í mynstri þannig að þetta sjáist sem minnst.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich hab eine Frage zum Verschieben des Rundenanfangs . Wie oft soll ich das aller 2 Runden machen ? Ab welcher Runde beginnt dann das Verschieben in jeder 4. Runde? Vielen lieben Dank. Freundliche Grüße Claudia

09.01.2023 - 23:13

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, der Rundenanfang wird ab 27. Runde verschoben, dh am Anfang der 27. Runde soll die 1. Masche vom Diagram abgehoben und so beginnen Sie mit *1 Umschlag" im Diagram, dann das Diagramm wiederholen Sie in der Runde und enden Sie die Runde mit der 1. Masche vom 1. Rapport. Und so bis A.1 fertig ist. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2023 - 09:23

country flag Annika wrote:

Hallo, mit Nadelnummer 6 wird es bei mir bei vollständigem Muster A! 48cm im Durchmesser (statt wie angegeben 34cm , obwohl die maschenprobe mit NST 6 in der Breite passte. In der Höhe komme ich bei 30 R auf viel mehr höhe als 10cm... Irgendwie stimmt dads was nicht und ich frag mich, wo der Fehler liegt... (grübel)

24.09.2021 - 09:35

DROPS Design answered:

Liebe Annika, in diesem Fall wird die Reihenanzahl in der Maschen probe auch wichtig, wenn Sie mehr als 30 R krausreihe für 10 cm bekommen, dann wird die Arbeit nach A.1 auch grösser, mit 30 M = 10 cm sollen Sie bekommen ca 34 cm Durchmesser bekommen. Viel Spaß beim stricken!

27.09.2021 - 07:46

country flag Cristina wrote:

Ciao, non mi è chiaro come procedere dal ferro 27 del lavoro. Dove dice “spostare l’inizio del giro 1 m verso sinistra prima a giri alterni poi ogni 4 giri – cioè l’inizio del giro è sempre prima del 1° gettato nel diagramma in modo da renderlo meno visibile.”, se sposto di 1m a sinistra, in base al diagramma, prima del gettato ho 1m a dritto e poi il gettato giusto? Quindi sposto la prima maglia senza lavorarla e la lavoro alla fine del ferro? Grazie mille

16.06.2021 - 18:51

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, deve spostare il segnapunti di inizio giro di 1 maglia verso sinistra, in modo che il giro inizi sempre prima del 1° gettato nel diagramma. Buon lavoro!

16.06.2021 - 19:53

country flag Britta wrote:

In A1 ist in der 38.R ein Fehler? Erst 7M li, dann 6M re, da müsste eigentlich 7M re sein und dann 8M li?

04.03.2020 - 17:27

DROPS Design answered:

Liebe Britta, es sieht so aus, unser Design Team wird sicher das Diagram A.1 korrigieren, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

05.03.2020 - 10:00

country flag Larisa wrote:

Hi, I am struggling to understand instructions about displacing the stitches. Although I’m an experienced knitter I haven’t seen this before. Do you have some explanation for this technique. Also, it says to do it in every other round and then in every 4th round. How many times do I need to do it in every other round? Just once? Same about every 4th round? I love this pattern I hope you can help me. Thank you.

28.11.2019 - 09:14

DROPS Design answered:

Dear Larisa, the idea is to avoid to get the beg of the round in the middle of a ridge in garter stitch between leaves, so that from round 27, you have to work the beginning of the round before the yarn over, so that the ridges in garter stitch fit nicely in the round in this section in garter stitch. Happy knitting!

28.11.2019 - 09:59

country flag Franziska wrote:

Hallihallo. Das heisst, in der 28. Runde fängt das Verschieben des Rd-Beginns an. Dort habe ich aber keinen Umschlag... sorry ich stehe im Moment total auf dem Schlauch. Sonnige Grüsse Franziska

07.10.2019 - 10:49

DROPS Design answered:

Liebe Franziska, am Anfang Rd 27, heben Sie die 1. Masche der Runde (ohne zu stricken = die 1. re.M in Diagram), dann stricken Sie A.1 wie beschrieben, am Ende der Runde stricken Sie die letzte Masche rechts = die 1. Ma in A.1 + Umschlag. Runde 28 fängt jetzt nach dem Umschlag und endet mit dem 1. Umschlag in A.1 = die Maschen im Krausrippe. Viel Spaß beim stricken!

07.10.2019 - 11:03

country flag Franziska wrote:

Guten Tag. Ich habe keine Ahnung wie das mit dem verschieben des Rundenanfangs gemacht wird. Ich habe nun schon 4x angefangen und checke das nicht. In welchen Runden muss ich das machen? Herzlichen Dank

06.10.2019 - 11:18

DROPS Design answered:

Liebe Franziska, ab 27. Runde in A.1, die Runden sollen nach der 1. Masche im Krausrippen anfangen (= vor dem 1. Umschlag im Diagram), so gibt es keine "Abmarkung" in den Krausrippen Maschen. Viel Spaß beim stricken!

07.10.2019 - 09:24

country flag Lillian Enevoldsen wrote:

Så er jeg her igen. Tusinde tak for det hurtige svar. Jeg har endnu et spørgsmål. Når jeg har strikket A1 skal jeg strikke de næste omgange med at slå om på hver side af mærket, så der kommer huller. Men på billedet ser det ikke sådan ud, huller er senere. er det rigtigt?. Til orientering: På A1 38. omg. m nr. 14 skal være en ret. Jeg er i ørvrigt vild med jeres sider hvor jeg også kan se video. Nu tør jeg strikke

16.09.2019 - 11:57

DROPS Design answered:

Hej Lillian, ja det stemmer, designeren har bestemt at omslagene/hullerne skal komme med det samme, sikkert for at få nok masker på omgangen. Hvis du ikke vil se hullerne så strikker du dem bare drejet på næste pind, da vil hullet blive mindre. Tak for info, vi skal se om vi kan få rettet det så hurtigt som muligt :) God fornøjelse! :)

17.09.2019 - 15:53

country flag Lillian Enevoldsen wrote:

Ja, nu er jeg i gang med at strikke denne jakke og strikket til og med 27. række. Jeg forstår ikke rigtigt, hvordan jeg flytter omgangen, hvordan læser jeg så mønstret videre. På forhånd tak for hjælpen.

08.09.2019 - 17:40

DROPS Design answered:

Hei Lillian. Du fortsetter å strikke etter diagrammet, men begynnelsen av diagrammet forskyves (forskyvelsen viser begynnelsen av omgangen, men ikke der du starter å strikke på hver omgang). Når du har strikket A.1 ferdig i høyden er starten blitt forskjøvet til å være midt i den første rapporten av A.1. Når det da skal settes merker i arbeidet er det viktig å vite hvor starten er. God Fornøyelse!

09.09.2019 - 09:37

country flag Lillian Enevoldsen wrote:

Hvordan omregner jeg denne opskrift til kun én slags garn, her er skrevet 2 slags garn?

23.07.2019 - 14:29

DROPS Design answered:

Hej Lillian, brug vores omregner og skriv garnforbruget i Baby Alpaca Silk x 2 og 2 tråde, så får du masser af alternativer op i 1 tråd. God fornøjelse!

02.08.2019 - 12:20