DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mountain Stroll

Prjónaðar leggins fyrir herra úr DROPS Fabel í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1161
DROPS Design: Mynstur nr fa-327
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Mittismál: ca 82 - 90 - 98 - 108 - 116 - 130 cm.
ATH! Mál ca 10 cm neðan við nafla, ekki þar sem er breiðast. Vegna stroffprjóns þá koma buxurnar til með að dragast saman, en þær eru mjög teygjanlegar, prjónið þá stærð sem venjulega er notuð.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
350-400-450-500-500-550 gr litur nr 905, svartur / natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 35 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Meira svona:
Herrarstroffprjón
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjur sem auknar eru út eru prjónaðar slétt, næstu 2 lykkjur brugðið o.s.frv.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur brugðið saman (prjónið í aftari lykkjubogana), (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan.

BUXUR:
Fitjið upp 216-240-256-280-304-344 lykkjur á hringprjóna nr 2,5 með Fabel.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 108-120-128-140-152-172 lykkjur (= miðja að framan). Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-*, endið á 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.
Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig:
Prjónið 11 lykkjur stroffprjón.
Snúið við, herðið á þræði, prjónið 22 lykkjur stroffprjón til baka.
Snúið við, herðið á þræði, prjónið 32 lykkjur stroffprjón.
Haldið svona áfram að prjóna 10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 162-182-202-202-242-262 lykkjur.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið síðan hringinn aftur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-19-20-22-24-26 cm fyrir miðju að framan.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðjulykkjur að framan og að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 10-10-12-12-13-13 sinnum = 256-280-304-328-356-396 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm fyrir miðju að framan eru felldar af fyrstu 7-7-7-9-9-9 lykkjur, setjið 114-126-138-146-160-180 lykkjur á þráð (= skálm), látið næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur verða eftir á prjóni (= klofbót), setjið 114-126-138-146-160-180 lykkjur á þráð (= skálm), fellið af þær 7-7-7-9-9-9 lykkjur sem eftir eru.
Prjónið síðan 9-10-11-12-13-14 cm stroffprjón yfir 14-14-14-18-18-18 lykkjur í klofbót, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og saumið niður klofbótina við þær 14-14-14-18-18-18 lykkjur sem voru felldar af fyrir miðju að aftan.

SKÁLM:
Setjið 114-126-138-146-160-180 lykkjur frá öðrum þræðinum á stutta hringprjóna nr 2,5, takið að auki upp 22-26-30-34-36-36 lykkjur meðfram annarri hlið á klofbót = 136-152-168-180-196-216 lykkjur.
Haldið áfram í stroffprjóni – setið 1 prjónamerki innan í skálm.
Þegar skálmin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í 10.-8.-6.-6.-5.-4. hverri umferð alls 24-30-36-40-46-54 sinnum = 88-92-96-100-104-108 lykkjur.
Þegar skálmin mælist ca 78-79-80-81-82-83 cm (mátið buxurnar til að ákvarða lengd á skálmum), fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Setjið til baka lykkjur af hinni skálminni á prjóna og prjónið á sama hátt og fyrri skálm.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1161

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Sue Bamford wrote:

HUbby has requested a pair of these but in a less itchy yarn - can I just substitute the DROPS alpaca /silk 4 ply yarn instead? Many thanks! Sue

19.03.2023 - 20:26

DROPS Design answered:

Dear Sue, for this kind of garment, tighter yarns are needed, while alpaca and silk yarns may be too thin and non resistant, although you can in theory interchange them, since they are in the same yarn group. That's why we use DROPS Fabel, which is used for knitting socks, so it's quite a resistant thread. Happy knitting!

19.03.2023 - 23:20

country flag JS wrote:

Hei! Hvilken garn vil dere anbefale dersom jeg skal strikke denne til en person som klør lett av ull?

08.12.2022 - 09:46

DROPS Design answered:

Hei JS. Test ut DROPS Baby Merino. Det er et 100% extra fine merinoullgarn som er supermykt, puster godt og er kløfritt. Garnet er spunnet av flere tynne tråder som gir garnet ekstra elastisitet og et jevnt maskebilde. Denne spesielle konstruksjonen gjør det ekstra viktig å ha riktig strikkefasthet i prosjektet, så ha heller en litt for fast strikkefasthet enn for løs. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 10:58

country flag Stine Dølmo wrote:

Hei. Hvorfor skal prøvelappen strikkes i glattstrikk når prosjektet strikkes i rille? Blir det rett da?

17.09.2022 - 13:59

DROPS Design answered:

Hei Stine. Når man har på seg en bukse strikket i vrangbord, kommer det litt an på den personen som har på seg buksen på om hvor mye/lite den strekker seg ut, og da blir det litt vanskelig å måle en riktig strikkefasthet. Om man oppgir strikkefastheten i glattstrikk, vil man mest sannsynlig strikke like løst/fast når man strikker vrangbord, slik at da vil en oppgitt strikkefasthet være mest riktig. mvh DROPS Design

19.09.2022 - 11:27

country flag Anne wrote:

Hei. Jeg tenker å strikke denne til en som er 1.95 lang og er medium i livet. Hvor mange nøster bør jeg regne med?

05.09.2022 - 10:00

DROPS Design answered:

Hei Anne. I str. M går det 400 gram DROPS Fabel og benet vil måle ca 79 cm (innsiden av låret og ned). Man må neste måle benet til vedkommende som skal bruke buksen, for å finne ut om ca 79 cm er passe, kort eller for lang. Selv om man er 1,95 høy kan man ha korte bein eller lang bein, så det beste er å prøv tightsen på underveis, tilpass evt benlengden. mvh DROPS Design

05.09.2022 - 14:40

country flag Gurli Malm wrote:

Jeg er ved at strikke disse tights og er nået til kilen og her er mit spørgsmål: Skal der tages ud til kile både foran og bagpå? kan se at jeg ellers ikke kan få maskeantallet til at gå op med udtagninger.

15.06.2022 - 07:13

DROPS Design answered:

Hei Gurli. Når du skal strikke kilen har du felt av de fremste maskene, satt maskene til begge beina på 2 tråder og har kun de bakerste 14-14-14-18-18-18 maskene på pinnen. Det er kun disse maskene som er kilen og som det strikkes over. Om du ikke har nok masker før du skal strikke kilen, oppgi hvilken str du strikker, så kan vi evnt dobbeltsjekke maskeantallet. mvh DROPS Design

20.06.2022 - 08:08

country flag Barbara wrote:

Dzień dobry proszę o pomoc z dodaniem oczek . mam na drutach 240 oczek . środek tyłu to 2o.p marker 2 o.l środek przodu to 2o.l. marker 2 o.p. Jak w takim razie powinno wyglądać dodanie oczek? Dziękuję za odpowiedź.

07.02.2022 - 11:13

DROPS Design answered:

Witaj Basiu, marker jest na środku przodu i tyłu między 2 o.p. Dodajesz oczka z każdej strony środowych oczek prawych wykonując narzut. Po pierwszym dodaniu oczek, przerób narzuty na prawo. Po drugim będziesz już mogła wykonać ściągacz, czyli 2 o.p., 2 o.l. i 2 o.p. Pamiętaj, aby zawsze dodawać oczka z każdej strony 2 oczek środkowych (między nimi jest marker), w kolejnym okrążeniu tymi oczkami będą 2 o.l. Pozdrawiamy!

07.02.2022 - 12:03

country flag Sherri wrote:

Please tell me how many: yards, grams, meters etc. balls of drops yarns are needed to make this pattern in med, large, and extra large please. I cannot see on the pattern anywhere where it says how much yarn is needed. Thank you 😊

23.10.2021 - 08:46

country flag Teresa wrote:

Hi there approximately how much wool would I need to make a medium size. I didn't see quantity required unless I missed it. Thank you.

17.05.2021 - 21:15

DROPS Design answered:

Dear Teresa, the yarn needed to make this pattern can be found just right to the picture. You will need 400 grams of DROPS Fabel yarn for teh size M. Happy Knitting!

17.05.2021 - 22:10

country flag Mette wrote:

Hei! Lurer på å strikke denne med dobbelt garn, fabel + alpaca (samme som Firenze genser som er min samboers favoritt). Kan jeg forholde meg til samme maskeantall ift størrelse da?

29.09.2020 - 19:29

DROPS Design answered:

Hei Mette, Det er lurt å strikke en prøvelapp for å se om strikkefastheten er riktig. Juster pinnestørrelsen hvis det er feil. God fornøyelse!

30.09.2020 - 07:19

country flag Steffi wrote:

My husband would like leg warmers that cover the entire leg. So basically just legs of the pants without the top part. Do you think it’s possible to just follow the instructions for the individual legs? Also i would like any suggestions to make the cast-on stretchy (if i start from the top, the cast-on should be somewhat stretchy and not too tight). Thanks!! BTW a great fan of your designs. When my kids are older and I have more time I want to try some of those awesome socks you have!

19.09.2019 - 02:51

DROPS Design answered:

Dear Steffi, you can probably just work the legs casting on the number of stitches required for the size and then working top down, adjusting length by trying them on. You will find a technic to cast on stitches in rib K2/P2. Happy knitting!

19.09.2019 - 09:42